Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í JANÚAR Þetta ferli hefur svo sann-arlega opnað mér nýja sýnog nú lifi ég í gjörbreyttumheimi. Áður lifði ég í heimi lesblindunnar þar sem ég lét mér nægja að lesa fyrirsagnir í dag- blöðum, átti mjög erfitt með að fylgj- ast með skjátexta í sjónvarpinu og forðaðist bækur eins og heitan eld- inn,“ segir Þorsteinn Gíslason, 36 ára málmsteypumaður hjá Málmsteyp- unni Hellu í Hafnarfirði. Eftir að Þorsteinn ákvað að sækja sér hjálp með styrk frá stéttarfélag- inu sínu, Félagi járniðnaðarmanna, var hann frá fyrsta degi sann- færður um að hann væri að stíga skref í rétta átt. „Ég hef alla tíð átt mjög erfitt uppdráttar í skóla og hafa einkunnir mínar í gegnum tíðina borið vott um það. Ég lét mig þó hafa það að fara í iðnnám í Iðnskólanum í Hafnarfirði þar sem ég lærði málm- steypu, en óhætt er að segja að sú skólaganga hafi verið bæði kvöl og pína. Allur lestur verður mjög erf- iður. Hugurinn fer á eitthvert hug- arflakk í tímum og þá vill verða erfitt að halda einbeitingunni við kenn- arann og efnið. Það var mjög gott að fá sjálfsstyrkingu í byrjun nám- skeiðsins því flestir þeir, sem stríða við lesblindu, eru að burðast með skerta sjálfsmynd í þokkabót við allt annað. Ég varla trúði árangrinum af námskeiðinu sjálfur þegar upp var staðið. Núna les ég fréttir í dagblöðum, næ að fylgjast vel með skjátexta í sjónvarpi og einbeiti mér miklu betur en áður. Dóttir mín, Dagný Þóra, sem er fjög- urra ára, er sömuleiðis farin að biðja pabba sinn um að lesa fyrir sig barnabækurnar, sem ég get nú loks- ins gert skammlaust. Hún vildi það ekkert áður því ég ruglaði öllu saman og las ekkert rétt. Hún var fljót að fatta það enda var enginn þráður í lestrinum hjá mér,“ segir Þorsteinn og bætir við að hann stefni nú að þriggja ára háskólanámi í véliðnfræði við Háskólann í Reykjavík frá og með næsta hausti. Þorsteinn var í hópi tíu manna, sem útskrifuðust um mitt ár. Að loknu námskeiðinu útbjó hann lista- verk, sem nemendahópurinn færði Mími-símenntun að gjöf við útskrift og lýsir vel þeirri tilfinningu, sem fylgir því að sigrast á lesblindunni. Fjármögnun helsta vandamálið Mikil þörf er fyrir úrræði fyrir lesblinda og fólk með lesraskanir í þjóð- félaginu. Lesblindir hafa margir hverj- ir lent í verulegum erfiðleikum í skólakerfinu og því er brýnt að bjóða upp á nám- skeið, sem sér- staklega tekur á og leiðréttir lesblindu. Námskeiðið „Aftur í nám“ á vegum Mímis- símenntunar stendur yfir í 95 kennslu- stundir. Þar af fer stór hluti námsins fram í ein- staklingskennslu og eru lesblindir leiðréttir með aðferðum Ron Davis-tækninnar. Námskeiðið hefst með sjálfsstyrkingu, en jafn- framt er kennd námstækni, íslenska og ritvinnsla í tölvum auk þess sem allir nemendur fá námsráðgjöf. „Ef ástandið er líkt og í nágranna- löndunum, þá er ekki ólíklegt að ætla að um 8% íslensku þjóðarinnar séu lesblind. Það svarar til fimmtán þús- und Íslendinga á aldrinum 15 til 65 ára sem eiga við mjög mikla eða um- talsverða lestrarörðugleika að etja. Til viðbótar eiga um tuttugu þúsund Íslendingar í nokkrum vandræðum vegna lítillar lestrarfærni. Samanlagt eru þetta því um 35 þúsund Íslend- ingar sem eiga við mismikla lestr- arörðugleika að etja,“ segir Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Mími-símenntun. Hátt í fimmtíu manns hafa farið í gegnum lesblinduleiðréttingaferli hjá Mími-símenntun síðan farið var að bjóða upp á slík námskeið árið 2004. Fjórir hópar hafa nú þegar verið út- skrifaðir og stefnt er að áframhald- andi námskeiðahaldi þar sem þörfin er brýn. „Hjá okkur er langur bið- listi, en helsta vandamálið okkar er að það gengur illa að finna fjár- mögnun. Mjög mörg stéttarfélög hafa stutt mjög myndarlega við bakið á sínum félagsmönnum og borgað allt að 90% af kostnaði. Á hinn bóginn eru til fjölmörg dæmi um að lesblint fólk, sem þarf svo sannarlega á leið- réttingu að halda, sé ekki í stétt- arfélagi og hafi þar af leiðandi ekki bolmagn til að greiða 215 þúsund króna námskeiðsgjald,“ segir Hulda að lokum.  LESBLINDA | Leiðréttingarferlið opnaði Þorsteini Gíslasyni, sem nú stefnir á háskólanám, nýja sýn „Get nú lesið skammlaust fyrir dóttur mína“ Morgunblaðið/Ómar Þorsteinn Gíslason með dóttur sína Dagnýju Þóru, 4 ára. Hann les nú glað- ur barnabækurnar með henni þeim báðum til ánægju. Listaverkið, sem Þorsteinn bjó til og nemendur gáfu Mími er táknrænt fyr- ir lesblinduna. Það sýnir höfuð, sem tekið hefur verið í sundur og er holt að innan, steypt í kopar. Öðrum megin er stafahrúga, sem steypt var í ál, en hinum megin eru stafirnir svo komnir í stafrófsröð. Talið er að 35 þúsund Íslendingar eigi við mismikla lestrarörðugleika að etja. Jóhanna Ingvarsdóttir skyggnist inn í heim Þorsteins Gíslasonar, sem kætist nú mjög yfir því að hafa sótt sér hjálp. Næsta námskeið undir yfirskrift- inni „Aftur í nám“ hjá Mími- símenntun hefst 24. janúar og munu fræðslusjóðir ýmissa stétt- arfélaga styrkja sína félagsmenn til námsins auk þess sem mennta- málaráðuneytið hefur veitt styrk til námsins. join@mbl.is Sú nýbreytni hefur verið tekinupp í Vesturbæjarlaug aðbjóða upp á dagsbirtulampa. Þessir lampar eru ætlaðir fólki sem er að kljást við skammdegisóyndi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að um 10,5% Íslendinga eru haldin því sem kallað hefur verið skammdegisóyndi og þar af eru 3,6% þunglynd. Skammdegisóyndi lýsir sér í því að þeir sem af því þjást sýna einkenni um depurð, skerta virkni eða at- hafnaleysi, kvíða, bráðlyndi, þreytu að degi til, aukna svefnþörf og kyn- deyfð. Birtumeðferð þessi gengur út á það að fólk situr fyrir framan til þess gert ljós í ákveðinn tíma. Ekki er um meðferð gegn þunglyndi að ræða. Telja má að tæplega 12.000 Reyk- víkingar fái einkenni skammdeg- isóyndis ár hvert. Lamparnir voru settir upp í Vest- urbæjarlaug að frumkvæði verkefn- isins Reykjavíkur – heilsuborgar og í samtali við Sigmar B. Hauksson verkefnisstjóra kemur fram að árs- tíðabundið þunglyndi hafi verið skil- greint sem sjúkdómur 1984. „Vetr- aróyndi er heilkenni sem lýsir sér í geðlægð sem kemur ávallt fram á sama tíma ár hvert og stendur yfir vetrarmánuðina. Það hefur verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að birtumeðferð dregur úr einkenn- um sjúkdómsins.“ Sigmar segir einn- ig að lamparnir geri sama gagn og ferð suður á bóginn. „Geðlægðin kemur alltaf fram í skammdeginu og birtumeðferð, hvort sem er ferð suð- ur á bóginn eða í lömpunum, hefur betri líðan í för með sér.“ Að sögn Sigmars eru dagsbirtulamparnir seldir í verslunum og nokkuð er um að fólk sé með þetta heima hjá sér. „Ef árangurinn af lömpunum í Vest- urbæjarlaug verður góður munum við setja þetta upp á fleiri stöðum.“ Fastagestir í Vesturbæjarlaug nýta sér lampana „Við fengum þessa lampa í Vest- urbæjarlaugina í byrjun nóvember,“ segir Guðrún Arna Gylfadóttir, for- stöðumaður Vesturbæjarlaugar. „Gestir voru forvitnir til að byrja með, fólk hélt jafnvel að þetta væri einhvers konar sólbekkir, til að verða brúnn í. Þegar fólk svo áttaði sig á hvað lamparnir geta gert hefur þeim gestum sem nota sér þá fjölgað. Sér- staklega á morgnana og kvöldin.“ Guðrún Arna segir að það sé ákveðinn hópur sem noti lampana, sumir bæta þessu við hressinguna sem felst í sundinu, aðrir koma ein- göngu til að fara í lampa. „T.d. sagði ein kona mér að hún svæfi talsvert betur síðan hún byrjaði að nota þá og hún fann mun eftir vikunotkun. Ég frétti líka af öðrum sem hefur fundið fyrir skammdegisleiða í mörg ár, sá segist vera mun léttari og vill meina að notkun lampanna geri honum mjög gott.“ Guðrún Arna segir að það hafi auk- ist að fólk komi eingöngu til að fara í lampa. Einnig sé mjög stór hópur fólks sem stundar sund áður en það fer í vinnu og nýti sér gjarnan að sitja um stund við lampa. Einn viðmælandi Morgunblaðsins, sem er fastagestur í lauginni, hafði það að segja um lampana að þeir væru góð viðbót við sundlaugarferð- ina. Rútínan væri að fara í laugina, heitan pott og gufu. Eftir að lamp- arnir komu í laugina hefði þeim verið bætt við og viðmælandinn vissi til að fleiri fastagestir notuðu lampana að staðaldri. Notkun lampanna er gestum að kostnaðarlausu.  HEILSA | Birtumeðferð þykir gefast vel gegn skammdegisóyndi Góð viðbót við laugarferðina Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Gestir voru forvitnir til að byrja með en þegar fólk svo áttaði sig á hvað lamparnir geta gert hefur þeim sem nota sér þá fjölgað, segir Guðrún Arna Gylfadóttir sem hér stendur framan við lampana. FITA er nauðsynleg líkamanum, hún flytur fituleysanleg vítamín A, D, E og K gegnum líkamann og ver innvortis líffærin. Hún getur líka innihaldið ómissandi fitusýrur sem eru sagðar hafa jákvæð áhrif á hjartað og ónæmiskerfið. Fita er uppspretta orkunnar, sem þýðir að ef þú borðar mikið af feitum mat er líklegt að þú fitnir. En að vita muninn á ómettaðri og mettaðri fitu getur hjálpað til segir á vefslóð BBC. Mettuð fita er venjulega föst við herbergishita og er oftast dýrafita. Það er hægt að finna hana í feiti, smjöri, hörðu smjörlíki, osti, ófitu- skertri mjólk og öllu sem inniheld- ur þessar vörur, eins og kökum, súkkulaði, kexi og bökum. Mettuð fita er líka hvíta fitan sem þú sérð á rauðu kjöti og undir skinni ali- fugla. Best er að borða sem minnst af mettaðri fitu, en þeir sem borða mikið af henni eru í aukinni hættu á að fá kransæðasjúkdóma. Ómettuð fita er vanalega fljót- andi í herbergishita og kemur oft- ast af grænmeti. Ómettuð fita er hollari en mettuð fita og má finna hana í grænmetisolíum eins og se- sam, sólblóma, soja og olívu; fiskur eins og makríll, sardínur og lax innihalda líka ómettaða fitu. Mikið af mat inniheldur bæði mettaða og ómettaða fitu, en hann er sagður vera annað hvort eftir því hvor fitan er í meirihluta. Þannig að olífuolía með hollri ómettaðri fitu inniheldur líka mett- aða fitu. Nokkur orð um fitu  MATUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.