Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 23
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
ÚTSALA
N ER HA
FIN
-30% AF
SLÁTTU
R
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 40, s. 561 1690
Laugavegi 40
Sími 561 1690
RALPH
LAUREN
Útsala
Útsala
20-70%
afsláttur
Útsala
Útsala
30-50%
afsláttur
Fyrri rannsóknir hafa sýntfram á að gæludýr gætulengt ævi eigenda sinna
en nýjar rannsóknir eru ekki
eins afdráttarlausar. Á vefnum
forskning.no er greint frá því að
fyrri rannsóknir hafi leitt í ljós
að gæludýraeigendur ættu meiri
möguleika á að lifa af hjartaáfall
og ættu síður á hættu að fá
hjarta- og æðasjúkdóma.
Nýrri rannsóknir taka fleiri
áhrifaþætti með í reikninginn
þegar rannsakað er hvaða hlut-
verki gæludýr gegna.
Breskir vísindamenn undir
forystu June McNicholas hafa
rannsakað það og hverjar orsak-
irnar fyrir hugsanlegum áhrifum
á eigandann eru. Niðurstöðurnar
eru að möguleikarnir eru þrír: Í
fyrsta lagi að ekkert samhengi
sé á milli gæludýraeignar og
heilsufars. Þ.e. að gæludýraeig-
endur hafi bara ákveðinn lífsstíl.
En vísindamennirnir efast um
þennan möguleika þar sem eng-
ar rannsóknir hafa sýnt fram á
að gæludýraeigendur lifi heil-
brigðara lífi en aðrir. Annar
möguleiki er sá að gæludýraeig-
andinn nái betra sambandi við
annað fólk vegna gæludýrsins.
Og rannsóknir sýna að félagslíf
hefur jákvæð áhrif á heilsuna.
Þriðji möguleikinn er að gælu-
dýraeignin sjálf sé holl. Að sam-
bandið á milli gæludýrsins og
eigandans geti haft jákvæð áhrif
á heilsuna. Rannsóknir hafa sýnt
fram á að gæludýr geta gegnt
sama hlutverki og vinir úr hópi
manna og sambandið á milli eig-
anda og gæludýrs jafnvel stöð-
ugra en hefðbundið vinasam-
band.
En gæludýrum fylgja einnig
ókostir. Gæludýraeigendur
fresta oft eða sleppa því að leita
sér læknishjálpar vegna þess að
þeir óttast að sjúkrahúsvist að-
skilji þá frá gæludýrinu. Einnig
getur sorgin vegna dauða gælu-
dýrs verið jafnþung og sú sem
maður ber í brjósti vegna frá-
falls fjölskyldumeðlims og gælu-
dýraeignin getur þannig haft
áhrif á andlega heilsu eigandans
til hins verra.
Einnig geta gæludýr borið
með sér bakteríur og sníkjudýr
sem geta borist í eigendurna.
Áhættan er þó ekki mikil.
Morgunblaðið/Ásdís
Samband á milli eiganda og
gæludýrs getur reynst stöðugra
en hefðbundið vinasamband.
Dýrin geta gegnt
hlutverki vinar
GÆLUDÝR
Vísindamenn við Kaliforn-íuháskóla í San Diego segjaað stórir skammtar af D-
vítamíni geti minnkað líkurnar á
algengustu tegundum krabba-
meins um allt að helming. Vís-
indamennirnir skoðuðu 63 eldri
rannsóknir um málið og tóku eftir
því að vítamínið getur m.a. minnk-
að líkur á brjósta-, eggjastokks-
og ristilkrabbameini. Enn á þó
eftir að framkvæma frekari rann-
sóknir til að fá endanlegar nið-
urstöður, að sögn vísindamanna.
Þetta kemur fram í nýjasta hefti
American Journal of Public
Health.
Læknar fagna rannsókninni en
taka henni með fyrirvara og segja
hættu á því að of stórir skammtar
af D-vítamíni geti skaðað nýru og
lifur. Svokölluð náttúruleg gerð
vítamínsins kallast D3, en hún
myndast í húð manna við tilkomu
útfjólublás sólarljóss. Finnst vít-
amínið þó einnig í ákveðnum teg-
undum fæðu, s.s. í feitum fiski,
smjöri og í kjöti.
Samband vítamíns
og krabbameins
Í rannsókninni var sambandið á
milli magns D-vítamíns í blóði og
hættunnar á krabbameini skoðað
Þar kom m.a. fram að lífslíkur
fólks af afrísk-karabísku bergi
brotið sem greint hefur verið með
brjósta-, ristil-, blöðruháls- og
eggjastokkskrabbamein eru minni
en hvítra. Af því drógu vísinda-
mennirnir þær ályktanir að dekkri
húð framleiddi minna af D-víta-
míni en hvít.
Þá gaumgæfðu vísindamennirnir
rannsóknir víðs vegar að úr heim-
inum sem gerðar voru á árunum
1966 til 2004. Segja þeir nið-
urstöðurnar sýna að D-vítamín sé
fyrirbyggjandi gegn nokkrum
gerðum krabbameins og ekki
hægt að leiða mikilvægi þess hjá
sér. En með því að taka 25 milli-
grömm af D-vítamíni daglega
megi minnka líkurnar á rist-
ilkrabbameini um helming og
brjóstakrabbameini og krabba-
meini í eggjastokkum um 30%.
D-vítamín minnkar líkur
á krabbameini
HEILSA Fáðu úrslitin
send í símann þinn