Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 33

Morgunblaðið - 03.01.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 33 MINNINGAR ✝ María Jensenfæddist í Hvammi í Valla- hreppi í Suður- Múlasýslu 1. apríl 1922. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt 27. desember síðast- liðins. Foreldrar hennar voru Þórey Arngrímsdóttir saumakona, f. 10.5. 1892, d. 30.7. 1964, og Markús Jensen, f. 14.1. 1897, d. 14.12. 1965, kaupmaður á Eskifirði og víðar. Markús var sonur Wilhelms Jensen stórkaup- manns á Eskifirði og í Reykjavík og Þórunnar Markúsdóttur en hún var dóttir Markúsar Einars- son prests í Stafafelli í Lóni. María eignaðist einn hálfbróður sam- mæðra sem er látinn og fjögur hálfsystkini samfeðra. María fór ung í fóstur að Litla- Sandfelli í Skriðdal. Hún vann al- menn sveitastörf sem unglingur og gekk í farskóla sem var í sveit- inni og fór síðar í kvöldskóla í Reykjavík og lagði stund á al- menn fög. María fór í Húsmæðra- skólann á Hallormsstað. María giftist 2. september 1944 Steingrími Vigfús- syni Ísfeld, f. 12.8. 1918, d. 25.1. 1975, innheimtumanni. Foreldrar hans voru Aldís Sigurgeirs- dóttir húsmóðir og Vigfús Sigfússon verkamaður en þau bjuggu á Raufar- höfn. Dóttir Maríu og Steingríms er Sveinfríður Krist- björg Steingríms- dóttir, f. 6.7. 1947, fóstra. Eiginmaður hennar er Baldur Sigurðsson, f. 8.9. 1948, símvirki. Dóttir þeirra er María Steingerð- ur Jensen Baldursdóttir, f. 11.5. 1971, gift Sighvati Gunnari Har- aldssyni, f. 4.6. 1974. Börn þeirra eru Viktor Steinn Sighvatsson, f. 5.6. 2001, og Sylvía Karolína, f . 20.1. 2005. María og Steingrímur fluttu til Akureyrar 1947 og bjuggu þar í 11 ár. Þau fluttust svo til Reykja- víkur 1958. María vann á sauma- stofu Belgjagerðarinnar og hjá Iðunni, barnaheimilum og á Hrafnistu. Útför Maríu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku amma mín. Nú ertu farin frá mér og ég sakna þín svo mikið. Ég elskaði þig svo mikið. Það er svo erfitt að geta ekki hringt í þig og talað við þig eins og ég var vön að gera næstum hvern einasta dag og stundum oft á dag. Og Viktor Steinn sagði: „Hver á nú að búa í ömmuhúsi og hvar fáum við nýja langömmu?“ Ég var svo heppin að fá að alast upp hjá þér og líka að fá að bera nöfn- in þín. Við sátum oft saman á daginn og hlustuðum á síðdegissöguna á Rúv og fimmtudagsleikritin. Þú tókst þátt í öllu mínu lífi í gleði og sorg, sigrum og ósigrum. Sama hvað var, þú stóðst alltaf með mér og huggaðir mig ef eitthvað bjátaði á. Þú kenndir mér svo margt og þú áttir líka eftir að kenna mér svo margt, t.d. bakaði enginn eins góðar pönnukökur og þú. Ég sagði við þig fyrir stuttu að þú yrðir nú að kenna mér að baka þær. Þú varst líka ótrúlega mikil hann- yrðakona, allar myndirnar sem þú varst búin að sauma, föt á mig er ég var yngri og allar peysurnar sem þú prjónaðir á barnabörnin þín tvö. Varst meira að segja með tvær peys- ur rétt ókláraðar á þau. Nú þegar þú ert dáin streyma fram svo margar minningar um þig. Ein af mínum fyrstu bernskuminningum er þegar þú sast með mig innpakkaða í sænginni minni og söngst mig í svefn. Þannig var best að sofna. Þú kenndir mér líka svo mikið af söngvum og kvæðum sem ég syng nú fyrir Viktor Stein og síðar mun ég syngja þau fyr- ir Sylvíu Karolínu. Þú varst líka svo dugleg að lesa fyr- ir mig sögur á kvöldin áður en ég fór að sofa. Enn gátum við hlegið að einu atviki: Þú varst orðin þreytt en varst samt að lesa fyrir mig og hálfsofnaðir við lesturinn, setningin átti að vera: „Vertu nú dugleg á spítalanum, Sig- rún mín,“ en kom út hjá þér: „Vertu nú dugleg í rabarbaranum, Sigrún mín.“ Kannski hefurðu verið að hugsa um að gera rabarbarasultu eins og þú gerðir svo oft. Þú varst svo sterk manneskja, þið afi voruð nýbúin að kaupa húsið ykk- ar þegar hann dó. En þú gast borgað af öllu og mikið varstu ánægð fyrir nokkrum árum þegar það var allt að baki. Myndir af þér frá því þú varst ung sýna hvað þú varst stórglæsileg, allt- af í kjólum og fín. Ég fékk nú að nýta suma flottu kjólana þín, þú bara hjálpaðir mér að breyta þeim aðeins. Þú sagðir mér svo oft sögur frá því þú og afi voruð á Kristnesi en þar börðust þið bæði við berkla. Þú trúðir á líf eftir dauðann og að hinir látnu vaki og fylgist með þeim sem eftir lifa. Því trúi ég því að þú sért nú loksins komin til afa, hestanna þinna og allra hinna sem voru farnir á undan. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna og að þú haldir verndarhendi yfir okkur. Þú sagðir mér frá álfum og huldu- fólki. Manstu eftir litla álfinum þínum í fallegu peysunni sem þú sást stund- um. Við sögðum líka oft ef eitthvað hvarf heima: „Nú hefur einhver feng- ið þetta lánað.“ Þú fórst til spákonu þegar þú varst ung, en þú vildir ekki segja mér allt sem hún hafði sagt þér en eitt merki- legt sagði hún sem rættist: að þú myndir ala upp tvær Maríur. Þegar þið bjugguð á Akureyri tók- uð þið Maríu Kristinsdóttur í fóstur um tíma og svo ólst ég upp hjá þér. Þú kenndir mér líka að trúa að lífið er ákveðið fyrir okkur, við stjórnum því upp að vissu marki. Þú varst líka mjög vel að þér í stjörnumerkjum, gast stundum bara með því að fylgjast með manneskj- unni séð í hvaða merki hún var. Hestarnir þínir voru þér svo mikils virði, meira að segja kvöldið áður en þú lést fórstu að gefa þeim. Þú varst hörkukona. Daginn fyrir Þorláksmessu fórum við upp í kirkjugarð og settum jóla- ljós á leiðið hans afa, við ætluðum svo að kíkja þangað aftur með kerti milli jóla og nýárs. Ekki grunaði mig þá að ég færi til að fylgja þér síðustu spor- in. Þú varst líka svo duglega að passa Viktor Stein fyrir mig ef ég þurfti að skjótast frá og ekki þóttu þér síðri heimsóknir okkar Sylvíu Karolínu. Þau tvö voru gimsteinarnir þínir. Takk fyrir alla hjálpina í sumar með þau tvö er ég var á spítala. Þú varst líka alltaf syngjandi og raulandi. Þú sagðir mér einu sinni að ef aðstæður hefðu verið aðrar þegar þú varst ung þá hefðir þú lært söng og jafnvel óperusöng. Eins og ég sagði þegar þú lést: Árið hófst með gleði vegna fæðingar Syl- víu og árið endar í dauða og sorg. Þú fórst aldrei til útlanda en nú ertu farin í þitt stærsta og mesta ferðalag. Það er skrýtið til þess að hugsa að þú skyldir fara á jólum en það var uppáhaldstíminn þinn. Þú skreyttir svo fallega og bakaðir fjöldann allan af smákökum og brúnu lagkökuna og þessi jól voru engin undantekning. Þú gafst okkur öllum svo fallegar jólagjafir. Stundum dett- ur mér í hug að þú hafir vitað að þú varst að fara. Ég sakna þín svo sárt, en, elsku amma, takk fyrir að koma til mín nóttina sem þú dóst, það er mér mik- ils virði. Ég sé þig fyrir mér eins og þú varst daginn áður en þú lést, með blik í augum og brosandi út í annað. Þannig mun ég alltaf muna þig í hjarta mínu. Guð blessi þig og við sjáumst síðar. Þín María Steingerður Jensen. Þegar María er öll, koma í hugann minningabrot frá æskuárunum. Hún ólst upp á Litla-Sandfelli hjá ömmu minni og afa, Kristbjörgu og Jóni, en þau tóku hana í fóstur þegar hún var á öðru ári. Fyrir áttu þau þrjú upp- komin börn, Björgu, Runólf og Gróu. Eftir andlát Jóns tók Runólfur við búinu. Hann bjó þar með móður sinni fyrst í stað og seinna með eiginkonu sinni Vilborgu Jónsdóttur, sem hann kvæntist árið 1926. Þau eignuðust átta börn og því var oft mannmargt á bænum. Ég minnist þess hvað María var lífsglöð og smitandi hlátur hennar gleymist ekki. Ég heyrði föður minn oft segja: ,,Hún María mín var svo ljúft og yndislegt barn. Hún óx og dafnaði og ég man hvað hún var glæsileg þegar hún var fermd. Hún var í hvítum kyrtli og með fallegan höfuðbúnað, bar slör og gullspöng eins og álfkona. Hennar mesta prýði var þykkt og jarpt hárið, sem hún hélt til hins síðasta. María gekk í öll sveitastörf úti og inni með hinu fólkinu og var mjög lið- tæk. Í minningunni sé ég þær fóst- ursystur og móður mína við hvers kyns handverk svo sem útsaum, hekl og prjónaskap. María tók miklu ástfóstri við eina glókollinn í fjölskyldunni, Jón, elsta bróður minn. Hún var mikil hesta- kona og þegar Jón fermdist gaf hún honum jarpskjótt folald. Eins og títt var í þá daga var ráðinn á heimili foreldra minna ungur vinnu- maður, Steingrímur Vigfússon. Hann var einstakur geðprýðismaður og mikill ljúflingur. Með þeim þróaðist samband sem stóð þar til hann lést fyrir aldur fram árið 1975. Mikið ást- ríki var milli þeirra hjóna og dóttur- innar Kristbjargar og var missir þeirra mæðgna mikill við fráfall Steingríms. Þau voru öll miklir dýravinir, höfðu yndi af hestamennsku og áttu alltaf hesta. Ég get hugsað mér að Stein- grímur hafi beðið Maríu sinnar í nýj- um heimkynnum með fallegan gæð- ing í taumi. Elsku Lilla, María og aðrir vanda- menn, ég votta ykkur samúð mína. Ingibjörg Runólfsdóttir. Elsku María, hér sit ég og skrifa nokkrar línur um konu sem var mér sem móðir, frá fæðingu minni fyrir 50 árum. Þið Steingrímur fluttuð til afa Munda og ömmu Maríu, þá nýkomin af Kristnesi eftir tveggja ára veru þar vegna berkla, og ekkert húsnæði að fá á þeim tíma á Akureyri. Þar hófust kynni fjölskyldna okkar. Upp frá þeim tíma hófust mikil og góð kynni sem varðveitast enn þann dag í dag. Í þá daga var ekkert fæðingarorlof, og þá voruð þið til staðar fyrir mig og dekruðuð við mig meðan mamma mín vann úti til að sjá okkur farborða. Seinna fluttuð þið til Reykjavíkur. Þá var ég flutt suður með mömmu minni og gat farið til ykkar Stein- gríms og farið á hestbak, horft á hestamannamótin hjá Fáki, og heim- sótt Steingrím í vinnuna en hann vann í Fálkanum. Svo gat ég farið ein með Akraborginni og þið tókuð alltaf á móti mér. Það var alltaf gaman að fara með Lillu einkadóttur ykkar að skoða hestana en ég var nú frekar hrædd við þá í byrjun, og enn þá finnst mér betra að horfa bara á dýrin gegnum glerið en vera í návist þeirra. En svo stofnaði Lilla heimili með Baldri sínum, og þá fæddist þeim stór sólargeisli, María Steingerður, eina barn þeirra sem var þitt líf og yndi. Alltaf varstu svo hreykin af öllu sem María Steingerður gerði. Ég man eftir brúðkaupsdegi henn- ar. Þú varst svo stolt af þessu unga fólki Maríu og Sighvati, enda voru þau stórglæsileg og veislan eftir því. Þegar ég átti afmæli í haust voruð það þið mæðgurnar allar sem ég vildi að yrðuð í afmælinu mínu nr. eitt, tvö og þrjú, vegna þess að þið hafið alltaf verið hjá mér á mínum stóru stundum gegnum tíðina, en þið komust ekki í afmælið mitt. Við mamma heimsótt- um þig viku síðar og áttum góðar stundir saman með Maríu Steingerði og litlu gullmolunum hennar, Viktori Steini og Sylvíu Karolínu. Mikið geislaði þá af þér. Ég er mjög fegin að hafa heimsótt þig stuttu fyrir jól og skilið eftir smá- jólakveðju til þín, elsku María mín. Ég og fjölskylda mín sendum Lillu, Baldri, Maríu Steingerði, Sighvati og barnabörnunum samúðarkveðju og erum með ykkur í sorg ykkar. Kveðja. María Kristins og fjölskylda. Enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér, þetta sannaðist nú um jólahátíðina. Ég átti erfitt með að skilja þegar síminn hringdi og mér sagt að María föðursystir mín væri látin. Ég var búin að undirbúa jólaboð þennan dag, þar sem hún átti að vera meðal frændfólksins, en ekkert varð af því, hún lést skyndilega aðfaranótt 27. des. Ég hafði hitt hana káta og hressa að vanda á Þorláksmessu og við ákváðum að hittast í jólaboði hjá mér. María frænka var myndarhúsmóð- ir sem alltaf tók vel á móti manni þeg- ar litið var inn til hennar. Hún var mikil hestakona og hélt ávallt hesta með eiginmanni sínum meðan hann lifði. Eftir fráfall hans fékk hún dygg- an stuðning dóttur sinnar. Þetta var fasti punkturinn í tilverunni hjá Mar- íu og kunni hún alltaf góðar sögur af hestunum sínum þegar við hittumst. Í Samtúninu bjó María ásamt dóttur, tengdasyni og lengstum dótturdótt- ur. Í húsinu eru tvær íbúðir og bjó hún uppi, en dóttir og tengdasonur niðri. Þannig gat barnabarnið hún María, augasteinninn hennar, verið jafnt á báðum hæðum. Fékk María einnig að njóta langömmubarna sinna því þau komu oft til hennar. Þau gáfu henni mikla lífsfyllingu og stolt var hún af afkomendum sínum, það fann maður svo vel. Hún hafði góðan húm- or og sá oft spaugilegu hliðarnar á líf- inu. Hún var ung í anda alla tíð og kvik í hreyfingum. Við systurnar og fjölskyldur okkar viljum þakka Maríu frænku allt það góða sem hún hefur gert okkur. Hennar verður sárt saknað. Megi góður Guð gefa fjölskyldu hennar styrk á þessum erfiðu tímum. Áslaug Þorsteinsdóttir. Látin er í Reykjavík heiðurskonan María Jensen. Við systkinin viljum heiðra minningu hennar með nokkr- um orðum. Amma okkar, Sigríður Pétursdóttir, og Þórey Arngríms- dóttir, móðir Maríu, voru uppeldis- systur, aldar upp í Hvammi á Völlum í Suður-Múlasýslu. María var tengd ömmu okkar tilfinningaböndum og vináttan við Maríu tengist minningu Siggu ömmu okkar. Frá því að við systkinin munum eftir var mikill sam- gangur milli heimilis okkar og heim- ilis þeirra Maríu, öðlingsins Stein- gríms og dóttur þeirra, hennar Lillu. María var greind kona með ákveðnar skoðanir. En það var í góðu lagi. Hún fylgdist vel með mönnum og málefnum og var með góðar for- sendur til að mynda sér skoðanir á eigin spýtur. Með fjölskyldu okkar fylgdist hún vel, vildi fá að vita hvað við hefðum fyrir stafni og hvað af- komendur okkar væru að gera. Við eigum minningar um jólaboð, hesthúsaferðir og árvissar heimsókn- ir á aðfangadag. En ekki síður um lífsgildi eins og velvild, ræktarsemi, tryggð og vináttu. Kærar þakkir fyrir tryggð við foreldra okkar og fjöl- skyldu. Vegir skiptast. Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (Einar Ben.) Aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Árdís Ívarsdóttir, Hannes Eðvarð Ívarsson og Gísli Bergsveinn Ívarsson. MARÍA JENSEN Á nýliðinni aðventu þegar jólaljósin voru að kvikna hvert af öðru barst okkur sú harmafregn að Lára væri látin. Í dag er afmælisdagurinn hennar og við viljum minnast hennar með nokkrum orðum. Lára kom til okk- ar í þjónustumiðstöðina á Vestur- götu 7 árið 1994 og starfaði hér sem forstöðumaður næstu sex árin. Hún var nákvæm í vinnubrögðum og lagði alúð í að prýða og fegra staðinn, ekki síst þegar jólin nálg- uðust og við tókum til við að skreyta húsið. Lára var mikið jóla- barn. LÁRA ÓSK ARNÓRSDÓTTIR ✝ Lára Ósk Arn-órsdóttir fædd- ist í Reykjavík 3. janúar 1947. Hún lést á heimili sínu 5. desember síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 14. desember. Þetta eru góð ár að minnast, mikið var hlegið og skrafað. Að taka vel á móti gest- um og láta þeim líða vel var ávallt sett í öndvegi. Þetta var það sem Lára vildi að starfsfólkið tileinkaði sér og við vonum að okkur hafi tekist að standa undir vænting- um hennar. Hún var trygg og góð kona sem kenndi okkur margt. Það mynduðust sterk tengsl milli starfsfólksins á Vesturgötunni og við fylgdumst vel með fjölskyldum hvert annars. Fjölskylda Láru kom oft í heimsókn. Rúnar eiginmaður hennar sýndi okkur hvað sönn væntumþykja er og var Láru stoð og stytta, í öllum verkum. Hún sagði okkur oft hve mikils virði hann væri henni. Svo litu börnin þeirra inn, Valgerður eða Völubarn- ið eins og við tókum upp eftir Láru að kalla hana, kom falleg og frísk af ballettæfingu. Gauja, sem sífellt kom á óvart, ýmist í gallanum að koma úr vélsmiðjunni, eða næsta dag eins og fegurðardrottning í flugfreyjudragtinni að kveðja mömmu fyrir flugferð. Arna með myndavél um öxl en hún var á þessum tíma að vinna myndir um litróf íslenskra húsdýra. Hlynur einkasonur Láru leit líka stundum inn til að heilsa upp á okk- ur. Arna og Hlynur komu oft með börnin sín og þá leyndi sér ekki stoltið hjá ömmunni. Móðir Láru var um tíma dag- legur gestur hjá okkur. Frú Unnur eins og Lára sagði, sat við hann- yrðir og saumaði fallega listmuni handa fjölskyldunni. Við minnumst hennar með hlýhug, en hún lést ár- ið 2002. Allt er breytingum háð og Lára lét af störfum vegna heilsubrests. Hún kom þá bara í heimsókn og fylgdist með okkur og starfinu á Vesturgötu. Að leiðarlokum viljum við segja. „Að lifa er að elska og sá sem ein- hver elskar getur aldrei dáið.“ Kæra fjölskylda, megi Guð gefa ykkur ljósið til að lýsa upp minn- ingarnar. Við kveðjum Láru Arnórsdóttir með virðingu og þökk. Samstarfsfólk Vesturgötu 7.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.