Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 35

Morgunblaðið - 03.01.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 35 MINNINGAR ✝ Þorsteinn IngiJónsson fæddist í Vatnsholti í Stað- arsveit 6. september 1929. Hann andaðist á Landspítalanum Hringbraut 25. des- ember síðastliðinn. Hann var næst- yngstur átta barna þeirra hjóna Jóns Ólafs Stefánssonar, f. 17 maí 1875, d. 21. febrúar 1954, og Jónínu Þorsteins- dóttur, f. 18. mars 1888, d. 15. júní 1974. Hinn 30. september 1955 kvæntist Þorsteinn Öldu Sófus- dóttur, f. 21. janúar 1934. Börn þeirra eru Jónína, f. 1955, Ólöf Margrét, f. 11. maí 1960, og Jón Ingi, f. 1965. Fóstursonur er Lár- us Már Björnsson, f. 9. október 1952. Barnabörn eru sex talsins. Þorsteinn ólst upp í föðurhús- um í Staðarsveit allt þar til hann hélt til náms í unglingaskóla Sauðárkróks í janúar 1944 og var hann þar fram í maí. Hann lauk gagnfræðaskóla MA 1947 og stúd- entsprófi við sama skóla 1950, lauk kennaraprófi 1953. Hann tók ýmis námskeið tengd kennslu, að- allega þó í stærð- fræði og eðlisfræði. Árin 1950–1952 kenndi Þorsteinn við Breiðavíkur- skóla og við barna- og gagnfræðastig í Kópavogi 1954– 1973. Hann vann ýmis byggingastörf 1973–1975, sem var og hans aðalstarfi á sumrin. Hann var skólastjóri Reyk- holtsskóla 1975– 1977, launafulltrúi Sláturfélags Suðurlands 1977– 1999. Þorsteinn tók virkan þátt í fé- lagsstörfum um árabil, var for- maður Kennarafélags Kópavogs í nokkur ár, seinna formaður Fé- lags gagnfræðaskólakennara í Kópavogi um árabil og fyrsti for- maður Félags framhaldsskóla- kennara í Reykjanesumdæmi. Hann sat nokkur ár í stjórn LSFK auk ýmissa trúnaðarstarfa. Hann var einnig einn af stofnendum bridgefélags Ásanna í Kópavogi og fyrsti formaður þess. Útför Þorsteins verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Við fráfall frænda míns og vinar, Þorsteins Inga Jónssonar hrynur enn einn hornsteinninn í fjölskyld- unni stóru frá Vatnsholti í Staðar- sveit. Systkinin voru alls átta en eft- irlifandi eru nú aðeins móðir mín, Rannveig Margrét, og Gunnar. Móðursystkin mín tengdust mér sterkum böndum, Margrét á Öl- keldu sem var mér sem önnur móðir og bræðurnir, Jón, Gunnar og Þor- steinn, hafa allir reynst mér sem bestu feður, einkum í æsku. Ég kynntist Þorsteini best vet- urinn 1962, þegar þau Alda buðu mér að dvelja hjá sér vetrarlangt í þeim tilgangi að ljúka unglingaprófi við Gagnfræðaskólann í Kópavogi en þar var Þorsteinn kennari um árabil. Ég var þá 14 ára gamall, óráðinn og óraunsær um flesta hluti, taldi meira að segja skóla- göngu minni lokið. Þótt mín mót- unarár bæði til sjós og lands séu eiginlega óttalegur hrærigrautur er ég samt viss um að flest mín gæfu- spor eru um margt vegvísar frá vel- gjörðamanni mínum og frænda. Við- horf hans til kennarastarfsins og raunar lífsins; þessi sérkennilega og óskýranlega blanda af því að vera í senn strangur en samt svo góður ætti að vera hverjum kennara til umhugsunar og eftirbreytni. Þótt fleira komi til er mér sú hugsun áleitin að það hafi í raun ekki verið tilviljun að ég valdi mér það lífsstarf að verða kennari. Þorsteinn var einstakur maður, í senn agaður og samkvæmur sjálfum sér í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var í margra huga sannur maður, verkmaður af guðs náð, gáfumaður og listamaður en þó auðvitað ekki gallalaus frekar en aðrir menn. Af kynnum okkar eru mér efst í huga gönguferðirnar niður Álfhóls- veginn, áleiðis í skólann á Digranes- inu. Var þar margt skrafað og skeggrætt og svo áttum við sam- ræður um efni sem engir aðrir fá að vita. Ég get þó sagt að þar varð til ómetanlegt veganesti út í lífið. Missir fjölskyldunnar er mikill. Elsku Alda mín, Jónína, Ólöf, Jón Ingi, Lárus og barnabörn, ég og fjölskylda mín vottum ykkur inni- lega samúð. Guð styrki ykkur og varðveiti. Þorvaldur Pálmason. Ætli það séu ekki um sex áratugir síðan fundum okkar Þorsteins Inga Jónssonar frá Vatnsholti í Staðar- sveit bar fyrst saman, það var á Sauðárkróki. Þá var hann við und- irbúningsnám fyrir menntaskóla hjá séra Helga Konráðssyni sóknar- presti á þeim stað og dvaldist Þor- steinn á heimili hans. Þeir munu hafa átt ættir saman að rekja til Efribyggðar í Skagafirði, til eins af afkomendum Ólafs nokkurs Andr- éssonar bónda í Valadal í Skörðum, eldri Valadalsætt. Þorsteinn var á þessum árum fríður unglingur, með- almaður á hæð, grannvaxinn og kvikur í hreyfingum. Hann var dökkjarpur á hár, snareygur og ávallt snyrtimenni í klæðaburði. Hann var vel máli farinn og aflaði sér fljótt vinsælda með skynsam- legri orðræðu, jafnt meðal pilta sem stúlkna. Einu eða tveimur árum seinna lágu leiðir okkar saman á Akureyri, við menntaskólann þar. Þar vorum við skólafélagar í nokkur ár og samstúdentar vorið 1950. Þor- steinn var maður glöggur og greind- ur, honum sóttist því námið vel en sýndi þó ekki af sér neinn sérstakan skörungsskap í námi fremur en við hinir sem næstir honum stóðum. Þorsteinn kunni vel að meta söng og tónlist, átti t.d. gítar sem hann dró stundum upp og lék á fyrir gesti í heimahúsum þegar honum þótti of þungt vera yfir samkvæmi. Átta árum síðar flutti ég í Kópa- vog til að hefja kennslu við ungl- ingaskóla sem þar var starfandi. Þar hitti ég fyrir vin minn, Þorstein Jónsson, hann var þar kennari við Kópavogsskólann sem var barna- skóli í sama húsi og unglingaskól- inn. Þorsteinn hafði lokið námi frá stúdentadeild Kennaraskólans og starfað við kennslu eftir það, hann átti raunar nokkurn þátt í þeirri ráðabreytni minni að færa mig um set til Kópavogs. Þorsteinn var þá kvæntur sinni ágætu eiginkonu, Öldu Sófusdóttur, og bjuggu þau í leiguhúsnæði á Kársnesbraut en voru farin að huga af fullri alvöru að húsbyggingu eins og flestir aðfluttir Kópavogsbúar um þetta leyti. Þau byggðu sitt fyrsta hús við Birki- grund hér í Kópavogi en áttu eftir að skipta oft um húsnæði, fimm sinnum eftir þetta að mig minnir, og var þá keypt ófullgerð hæð, raðhús eða einbýlishús, misjafnlega langt á veg komið. Þorsteinn vann sjálfur mikið við endanlegan frágang þess- ara íbúða og fórst það vel úr hendi enda maðurinn handlaginn og vel að sér í öllu er laut að húsasmíði. Skemmtilegasta íbúðin hygg ég að hafi verið í einbýlishúsi með tveimur bílskúrum við Stórateig í Mos. Um nokkurt skeið áttu Þorsteinn og Alda hæð í húsi við Álfhólsveg og vorum við þá nágrannar. Við það efldist vinátta og samgangur milli heimila okkar til muna en fleira kom til. Unglingaskólinn í Kópavogi hafði nú breyst í gagnfræðaskóla og var Þorsteinn orðinn kennari þar og þar með samkennari minn. Báðir höfðum við gaman af taflmennsku og bridsspilamennsku. Við spiluðum í heimahúsum og einnig í almennum bridsfélögum, stofnuðum meira að segja eitt slíkt með öðrum félögum okkar. Það var bridsfélagið Ásarnir í Kópavogi. Þar spilaði okkar sveit kerfi sem við Þorsteinn settum sam- an en ég skráði og gaf seinna út, það hét Litaskil. Sumarið 1969 var stofnaður nýr gagnfræðaskóli í Kópavogi, Þing- hólsskóli. Þar urðum við Þorsteinn samstarfsmenn, ég skólastjóri en hann kennari. Þorsteinn var góður kennari sem skilaði vel sínu verki í kennslustofunni og var vinsæll með- al nemenda. Þorsteinn varð seinna skólastjóri í Reykholti í Aratungu. Þar eftir sneri hann sér að öðrum starfsvettvangi og vann hin síðustu ár hjá Sláturfélagi Suðurlands við gjaldkerastörf og launaútreikninga eftir því sem ég best vissi. Eftir að ég kom í Kópavog komst sú venja brátt á að við Þorsteinn og tveir til þrír aðrir gamlir bekkjar- bræður frá MA komum saman að kveldi þann 16. júní og gerðum okk- ur glaðan dag ef svo má segja. Þetta voru skemmtilegar stundir sem hafa skilið eftir ljúfar minningar. Ætla ég að vona að eitthvað af slíkum minningum fylgi vini mínum Þor- steini þegar hann gengur nú inn í vor eilífðarinnar og vetur jarðlífsins er frá. Hinni ágætu eftirlifandi eig- inkonu Þorsteins og börnum þeirra votta ég innilega samúð mína. Guðmundur Hansen. Er góður maður yfirgefur okkur er alsiða að færa þakkir fyrir þær stundir er gáfust. Þorstein kveð ég nú og færi þökk fyrir trygglyndi hans og velvilja í garð fjölskyldu minnar. Megi algóður Guð styrkja Öldu og börnin og aðra fjölskyldumeð- limi. Ólafur Lárusson. ÞORSTEINN INGI JÓNSSON  Fleiri minningargreinar um Þor- stein Inga Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Ólöf, Davíð og Hugi. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, KRISTGERÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, Skagabraut 25, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 23. des- ember. Útförin verður gerð frá Akraneskirkju miðviku- daginn 4. janúar kl. 14.00. Valdimar Þórðarson, Helga Jóhannesdóttir, Geir Þórðarson og fjölskyldur. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, HULDA SIGMUNDSDÓTTIR, lést á nýársnótt. Sverrir Már Sverrisson, Kolfinna Sigurvinsdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir mín og systir okkar, ÁSTDÍS STEFÁNSDÓTTIR, áður Smiðsgerði, Skagafirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki aðfaranótt 1. janúar. Örn Jónsson, Gerður Stefánsdóttir, Jóna Stefánsdóttir. Systir okkar og mágkona, ELÍN BJÖRG GÍSLADÓTTIR frá Naustakoti á Vatnsleysuströnd, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, á nýársnótt. Guðríður Gísladóttir, Haukur Einarsson, Hrefna Gísladóttir, Ingimundur Ingimundarson, Lóa Gísladóttir, Geir Valdimarsson, Þorgerður Þorleifsdóttir. Elskuleg móðir okkar, MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Víðilundi 25, Akureyri, lést á heimili sínu föstudaginn 30. desember. Útförin verður auglýst síðar. Erla Hólmsteinsdóttir, Hugrún Hólmsteinsdóttir, Hólmsteinn Hólmsteinsson, Margrét Hólmsteinsdóttir. Systir okkar og frænka, GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR, Samtúni 10, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 20. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og aðstoð. Ragna Gunnarsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Garðar Sölvi Helgason, Gunnar Bjartmarsson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.