Morgunblaðið - 03.01.2006, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Á aðventu horfa
prestar með söfnuðum
sínum til jóla og hvetja
til að undirbúast rétt
með því að stilla sálar- og hjarta-
strengi inn á bylgjulengd englasöngs
og himinljósa sem hljóma í og lýsa
upp næturhúm.
Sr. Ólafur Oddur Jónsson sóknar-
prestur hefur gert það í byrjun lið-
innar aðventu sem löngum fyrr, og
hann hefur hugleitt það hvernig hann
ætti að setja fram undursamlegt
fagnaðarerindi jóla um fæðingu frels-
arans sem innleiðir og opnar aðgang
að ríki Guðs, svo að myrkur, synd og
sorg, veikindi og dauði víkja fyrir
andblæ hans og áhrifum.
Andlát sr. Ólafs Odds á stysta og
ÓLAFUR ODDUR
JÓNSSON
✝ Ólafur OddurJónsson, sóknar-
prestur í Keflavík,
fæddist í Reykjavík
1. nóvember 1943.
Hann lést 21. des-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Keflavíkur-
kirkju 30. desem-
ber.
dimmasta degi ársins
kom á óvart því að ekk-
ert hafði frést af veik-
indum hans. Hann var
vökull og vandvirkur
guðfræðingur og hug-
sjónaríkur prestur sem
mikill missir er að.
Sr. Ólafur Oddur
vakti athygli í guð-
fræðideild Háskóla Ís-
lands fyrir glæsileika
og atgervi, örugga
framkomu og fas en
einkum fyrir skarp-
skyggni og námshæfni
sína. Hann náði góðum tökum á trú-
fræði og siðfræði enda í mun að rann-
saka hvort og hvernig trúarsjónarmið
gætu svarað spurningum í síbreyti-
legri samtíð um lífsgildi og merkingu.
Ég sé Ólaf Odd enn fyrir mér klædd-
an ljósum leðurjakka í heimsókn í
guðfræðideildinni nýkominn úr fram-
haldsnámi í Vesturheimi. Andans
kraftur og atorka fylgdi honum en
jafnframt festa og yfirvegun þekking-
ar og skilnings. Hann hafði m.a. lagt
stund á trúarbragðafélagsfræði enda
lét hann sig ávallt mjög varða sam-
skipti kirkjudeilda og trúarbragða og
vildi glæða virðingu og skilning þeirra
á milli og var um tíma formaður Sam-
starfsnefndar kristinna trúfélaga.
Þegar sr. Ólafur Oddur vígðist til
sóknarprestsþjónustu við Keflavíkur-
kirkju fyrir réttum þrjátíu árum tók
hann við þjónustu af sr. Birni Jóns-
syni, vinsælum og farsælum guðs-
þjóni. Ekki var auðvelt að fylla það
skarð. En sr. Ólafur Oddur sannaði
brátt hæfni sína og ávann sér traust
sem skeleggur prestur og félagsmála-
frömuður og lét vel að sér kveða í
samtímaumræðu um siðfræði og sam-
félagsmál. Hann var rökfastur og
góður kennari og fræðimaður, náði
vel til unglinga sem og þeirra er eldri
voru. Hann ritaði fjölda greina og
álitsgerða um siðferðileg álitamál og
hafði glöggar hugmyndir um mikil-
vægt hlutverk kirkjunnar í samfélagi
sem var á stöðugri hreyfingu. Hann
var prófasti Kjalarnessprófasts-
dæmis, sr. Braga Friðrikssyni, mjög
innan handar og leysti hann af ef þörf
var á. Og óskað var eftir kennslu sr.
Ólafs Odds í guðfræðideild þar sem
hann kenndi siðfræði og viðhafði þar
sem hvarvetna vönduð vinnubrögð.
Breytingar á byggð og atvinnuhátt-
um urðu miklar í Keflavík svo sem
víðar á landinu á þremur áratugum.
Atvinna var stundum ótrygg og fé-
lagsleg röskun olli óvissu í mannlífi.
Sr. Ólafur Oddur lét sig mjög varða
kjör og líðan sóknarbarna sinna og
liðsinnti þeim, uppörvaði og styrkti.
Slys og ótímabær dauðsföll snertu
hann mjög sem sálusorgara og hann
hafði forgöngu um stofnun Bjarma,
félags um sorg og sorgarviðbrögð á
Suðurnesjum og gerðist formaður
þess. Sr. Ólafur Oddur hafði oft hugg-
að og styrkt þá sem höfðu orðið fyrir
miklu mótlæti í lífinu og skrifaði um
brostnar vonir, heilsutjón og dauða,
læsilegt efni fyrir grunnskólanem-
endur.
Hann var raunsær og raungóður
og aflaði sér ekki auðfenginna vin-
sælda með fagurgala. Hann fylgdi
hiklaust sannfæringu sinni og hug-
sjónum, kjarkaður og einarður, við
því búinn að sæta andbyr og ámælum
ef svo bar við, var sjálfur strangheið-
arlegur og vænti slíks af öðrum, eink-
um þeim sem treyst var fyrir þjón-
ustu í kirkjunni. En það hefur komið
honum mjög í opna skjöldu að þurfa
að fást við andgust í söfnuðinum eftir
að hann kom að utan úr námsleyfi því
vegið var að stöðu hans. Sr. Ólafur
Oddur brást ákveðið og einarðlega við
en það hefur reynt mjög á hann og
haft mikið að segja varðandi líðan
hans og fjölskylduhagi.
Hann vildi sjá byggingu nýs safn-
aðarheimilis Keflavíkurkirkju borgið
en töluverð andstaða var gegn því að
byggt yrði við kirkjuna þótt mjög
væri vandað til undirbúnings og
hönnunarvinnu. Hve vel tókst til við
að reisa safnaðarheimili við Hafnar-
fjarðarkirkju sem er systurkirkja
Keflavíkurkirkju og teiknuð af sama
arkitekt og hún, Rögnvaldi Ólafssyni,
hefur hvatt til framkvæmda. Það
sýndi sig og þegar safnaðarheimilið
nýja við Keflavíkurkirkju, Kirkju-
lundur, var fullbyggt, að það setti
fagran svip á kirkjuna og umhverfi
hennar og hefur skapað aðstöðu fyrir
mun margþættara og öflugra safnað-
arstarf en fyrr enda hafa tveir prestar
þjónað kirkjunni síðustu árin og fjöl-
mennara starfslið en áður unnið að
safnaðarstörfum. Það var þó sem sr.
Ólafur Oddur léti minna fyrir sér fara
síðustu árin en fyrr enda hafði mikið á
honum mætt. Hann fylgdist samt vel
með því sem var að gerast í veröld og
samfélagi. Og hann hugleiddi vanda
og viðfangsefni samtímaguðfræði og
siðfræði, sem leituðust við að bregð-
ast við nýjum aðstæðum og svara
áleitnum spurningum, t.d. um afleið-
ingar tækninýjunga og framfara í
læknisfræði.
Það var jafnan ánægjulegt að hitta
sr. Ólaf Odd enda var hann víðsýnn og
viðræðugóður. Síðast bar fundum
okkar saman á prédikunarnáms-
stefnu í Skálholti á liðnu hausti, þar
sem hann lagði gott til mála sem
endranær. Sr. Ólafur Oddur var í far-
arbroddi þeirra presta hér á landi
sem hafa látið sig mjög varða hvernig
ber að tjá og túlka sígilt fagnaðarer-
indi Jesú Krists við breytilegar að-
stæður og byggja upp og móta kirkju-
og safnaðarstarf svo að það fái í anda
hans veitt sem best skjól og athvarf í
Bróðir minn,
JÓN BERGMANN GUÐMUNDSSON
fyrrum bóndi á Breið,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki fimmtudaginn 29. desember.
Jórunn Guðmundsdóttir.
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, systir, tengda-
móðir og amma,
BJARNFRÍÐUR H. GUÐJÓNSDÓTTIR
(Fríða),
Orrahólum 7,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Lára Hjartardóttir,
Ester Gísladóttir, Haukur Barkarson,
Eyrún Helga Jónsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Elva Rut Jónsdóttir,
Erna Ósk Guðjónsdóttir,
Þórdís M. Guðjónsdóttir, Margeir Elentínusson,
Lára Samira Benjnouh, Yann Le Pollotek,
Telma Rún, Mikael Elí og Sóley Nadia.
SIGURBJÖRG KRISTFINNSDÓTTIR
er látin og hefur útför hennar farið fram í kyrrþey.
Aðstandendur.
Elskuleg sambýliskona mín og vinur, móðir
okkar, tengdamóðir og amma,
FJÓLA LEÓSDÓTTIR,
Reykjasíðu 7,
Akureyri,
lést þriðjudaginn 27. desember.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 6. janúar kl. 13.30.
Guðmundur Jónasson,
Monika Gissurardóttir, Sigurður Árnason,
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir, Sigríður Jónsdóttir,
Víglundur Páll Einarsson, Berglind Wiium Árnadóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
DAGUR HERMANNSSON,
Snægili 6,
Akureyri,
lést á heimili sínu að morgni föstudagsins
30. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jóna Kristín Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og afabörn.
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
PÉTUR SIGURÐSSON
frá Grundarfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 5. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd afkomenda,
Ingibjörg Pétursdóttir, Magnús Karl Pétursson,
Halldóra Karlsdóttir,
Kristján Pétursson, Erla Magnúsdóttir,
Sigrún Pétursdóttir, Björn Ólafsson,
Sigurður Kr. Pétursson, Helga Magnúsdóttir,
Sigþór Pétursson, Colleen Mary Pétursson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR,
lést að kvöldi laugardagsins 31. desember sl.
Jósef Magnússon, Rut Magnússon,
Guðríður Helga Magnúsdóttir, Þórir Ragnarsson,
Jakob Magnússon, Valgerður Jóhannsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
TÓMAS TÓMASSON
frá Helludal,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Sel-
fossi, aðfaranótt laugardagsins 31. desember.
Tómas Tómasson, Guðríður Guðbjartsdóttir,
Kristófer Arnfjörð Tómasson, Sigrún Jóna Sigurðardóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
NÍELS HELGI JÓNSSON,
Birkihlíð 14,
Reykjavík,
lést laugardaginn 31. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Dóra Unnur Guðlaugsdóttir,
Valgerður Níelsdóttir, Lárus Loftsson,
Gústaf A. Níelsson, Bergþóra Sigurbjörnsdóttir,
Guðlaugur Níelsson, Ragna Þóra Ragnarsdóttir,
Brynjar Níelsson, Arnfríður Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HULDA FINNBOGADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtu-
daginn 5. janúar kl. 15.00.
Gunnar Smárason, Christine Vinum,
Elín Smáradóttir, Hjalti Nielsen,
Hrafnhildur Huld Smáradóttir, Alexander Wiik
og barnabörn.