Morgunblaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 564 0000❅
❅
❅ ❅❅
❅❅
❅
❅
❅
❅
❅
❅
❅❅
❅ ❅
❅
❅
❅
❅
❅
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
Yndisleg jólamynd fyrir
alla fjölskylduna
Jólamyndin 2005
Upplifðu ástina og kærleikann
❅❅
Miðasala opnar kl. 13.30
Gleðilegt nýtt ár
Sýnd kl. 2, 4 og 6 Íslenskt talSýnd kl. 6 Íslenskt tal
Gleðilegt nýtt ár
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
KOLSVARTUR HÚMOR!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI!
eeee
Ó.Ö.H / DV
Sýnd kl. 6
ryan reynolds amy smart
JUST
FRIENDS
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
EINNIG SÝND Í LÚXUS kl. 2, 4, 6, 8 og 10
„ áhugaverð og fáguð kvikmynd sem
veitir ferskum straumum inn í íslenska
kvikmyndagerð“
eeeeHJ / MBL
„Mynd sem stendur
fyllilega fyrir sínu"
„...A Little Trip sýnir
mann (Baltasar) sem
hefur náð fullum tökum
á list sinni"
Valur Gunnarsson /
Fréttablaðið
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliam
byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með
Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum
Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliam
byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt
Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 14 ára
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
“ Íslenskur kraftur í erlendum
stórstjörnum, Baltasar á réttri leið”
K&F / XFM
TROMMU- og bassamaðurinn Mar-
cus Intalex hélt uppi glimrandi
stemningu á miklu gamlársballi
Breakbeat.is sem var haldið á Gauki
á Stöng á nýársmorgun. Dans-
þyrstir gestir Gauksins fögnuðu
nýja árinu undir beljandi töktum og
seiðandi grúvi frá hússnúðum break-
beat.is þeim Kalla, Lella og og Ewok
áður en Intalex sjálfur steig á stokk.
Þeir Ozy og Earl Mondeyano sáu
svo um tjúttið í kjallaranum.
Morgunblaðið/Eggert
Plötusnúðar frá Breakbeat.is stóðu vaktina um nóttina.
Elvar Ingi Helgason og Sara Karlsdóttir tóku á móti fyrstu tím-
um nýs árs á gamlársballi Breakbeat.is á Gauki á Stöng.
Dansinn dunaði á dansgólfinu undir beljandi takti snúðanna.
Kjartan Þór Kjartansson og Lilja Björk Guðmundsdóttir.
Helgi Sigurðsson og Arndís Sumarliðadóttir voru í miklum gír á Gauknum.
Dansað inn í nýja árið
HLJÓMSVEITIRNAR Mínus, Bang Gang,
Hjálmar, Brain Police, Dr. Spock, Hairdoctor
og Beatmakin Troopa koma fram á tónleikum í
Laugardalshöll, föstudaginn 6. janúar (þrett-
ándanum) í tilefni af því að Toyota á Íslandi hef-
ur hafið sölu á nýja smábílnum Aygo.
Strákarnir í Mínus hafa látið lítið fyrir sér
fara undanfarið og ekki komið opinberlega fram
síðan í júlí á síðasta ári. Ráðgert hafði verið að
Mínus kæmi fram á Iceland Airwaves síðasta
haust en úr því varð þó ekki.
Langt er liðið síðan Bang Gang hefur komið
fram opinberlega hér á landi ef frá eru taldir 70
manna tónleikar í Stúdentakjallaranum á dög-
unum og enn lengri bið mun verða þar til sveitin
stígur næst á svið þar sem Barði Jóhannsson er
á leið úr landi til að taka upp næstu plötu.
Hjálmar eru flestum að góðu kunnir en nú er
kærkomið tækifæri fyrir yngri aldurshópa að
upplifa sveitina á tónleikum því ekkert aldurs-
takmark er á þessa tónleika.
Brain Police er nýkomin úr tónleikaferðalagi
til Þýskalands þar sem sveitin gerði stormandi
lukku og spilaði hvað eftir annað fyrir fullu húsi
við mikinn fögnuð og hlaut rífandi dóma áhorf-
enda jafnt sem þýsku pressunnar.
Hairdoctor hefur fengið góðar móttökur við
sinni fyrstu skífu og mikil eftirvænting ríkir eft-
ir því að sjá þessa ungu sveina spila í fyrsta sinn
á alvöru tónleikum.
Dr. Spock spilar gríðarlega kraftmikið rokk
en sveitin gaf út sína fyrstu skífu nú í sumar.
Sveitin hefur fengið afar góða dóma og þá ekki
síst fyrir sviðsframkomu svo óhætt er að lofa
eftirminnilegu innleggi þessarar sveitar.
Beatmakin Troopa gaf út plötuna Peaceful
Thinking á síðasta ári auk þess sem hann kom
fram á Iceland Airwaves.
Ekkert aldurstakmark er á tónleikana og að-
gangur er ókeypis en miðar eru afhentir í Aygo-
hjólhýsinu á Lækjartorgi milli kl. 16 og 20 alla
daga fram að tónleikum Einnig er hægt að nálg-
ast miða í söludeildum og hjá umboðsaðilum
Toyota um land allt.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Rokksveitin Mínus hefur ekki komið fram í
þónokkurn tíma en spilar nú á þrettánda-
tónleikum í boði Toyota.
Tónlist | Íslenskar hljómsveitir
spila í boði Toyota
Þrettánda-
tónleikar
Laugardalshöll, 6. janúar. kl. 18. Fram koma
Bang Gang, Hjálmar, Brain Police, Dr. Spock,
Hairdoctor og Beatmakin Troopa. Aðgangur
ókeypis og aldurstakmark er ekkert.