Morgunblaðið - 30.01.2006, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Kjör formanns
Neytendasamtakanna
Samkvæmt lögum Neytendasamtakanna skal
kjör formanns fara fram það ár sem reglulegt
þing Neytendasamtakanna er haldið.
Í 12. grein laga Neytendasamtakanna segir svo
um kjör formanns: „Framboð til formanns
skulu berast stjórn Neytendasamtakanna eigi
síðar en fyrir lok febrúar þess árs sem reglulegt
þing er haldið. Framboði til formanns skulu
fylgja meðmæli 25 skuldlausra félagsmanna
hið fæsta en 50 skuldlausra félagsmanna hið
flesta.“
Í samræmi við þetta auglýsir stjórn Neytenda-
samtakanna eftir framboðum til formanns
Neytendasamtakanna vegna næsta kjörtíma-
bils (2006—2008) sem hefst frá og með þingi
Neytendasamtakanna í haust. Framboðum
ásamt lista yfir meðmælendur skal skilað á
skrifstofur Neytendasamtakanna í Reykjavík
eða á Akureyri, eigi síðar en kl. 16:00 þann
28. febrúar 2006. Einnig er hægt að senda
framboð ásamt lista yfir meðmælendur í pósti
og má dagsetning póststimpils ekki fara fram
yfir 28. febrúar 2006.
Reykjavík, 30. janúar 2006.
F.h. stjórnar Neytendasamtakanna,
Jóhannes Gunnarsson, formaður.
Auglýsing
um deiliskipulag í Leirár- og Melahreppi,
Borgarfjarðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að breytingu á deili-
skipulagi fyrir Svínahús í landi Mela, Leirár-
og Melahreppi, Borgarfjarðarsýslu. Tillagan
gerir ráð fyrir nýrri byggingu, allt að 34x100
m að stærð. Mesta hæð húss verði 5,7 m.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmál-
um liggur frammi hjá oddvita á Eystri-Leirár-
görðum frá 30. janúar 2006 til 27. febrúar 2006
á venjulegum skrifstofutíma.
Þeim, sem telja sig hafa hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytinguna. Skal þeim skilað skriflegum til
oddvita, Marteins Njálssonar, Eystri-Leirár-
görðum, fyrir 13. mars 2006 og skulu þær vera
skriflegar.
Þeir, sem ekki gera athugasemd innan til-
greinds frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi,
Ólafur K. Guðmundsson.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu
embættisins í Hafnarstræti 1, Ísafirði, föstudaginn 3. febrúar
2006 kl. 10.00.
Ísborg ÍS-250, sk.skr.nr. 0078, þingl. eig. Kuldaklettur ehf., gerðar-
beiðandi Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
27. janúar 2006.
Una Þóra Magnúsdóttir, fulltrúi.
Félagslíf
MÍMIR 6006013019 I
HEKLA 6006013019 VI
GIMLI 6006013019 III
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
GÚSTAF Adolf Skúlason, forstöðu-
maður stefnumótunar- og sam-
skiptasviðs Samtaka atvinnulífsins,
gerir athugasemdir við ummæli for-
manns Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands, Árna Finnssonar, í Morgun-
blaðinu í gær, sunndaginn 29.
janúar. Þar sé haft eftir Árna að
margar þeirra spurninga sem lagð-
ar hafi verið fyrir hann í spurn-
ingavagni IMG Gallup á dögunum –
og hann kýs að telja að hafi verið
könnun sú sem unnin var að beiðni
Samtaka atvinnulífsins og kynnt á
ráðstefnunni Orkulindinni Ísland
föstudaginn 27. janúar – sé ekki að
finna á vefsíðu Samtaka atvinnulífs-
ins og haft er eftir Árna að senni-
lega henti það ekki SA, segir Gústaf
Adolf í athugasemd sem borist hef-
ur Morgunblaðinu.
„Samtök atvinnulífsins hafa eng-
ar upplýsingar um það hvaða spurn-
ingar IMG Gallup kann að hafa lagt
fyrir Árna Finnsson. Skemmst er
þó frá því að segja að umrædd
könnun sem IMG Gallup gerði að
beiðni Samtaka atvinnulífsins var
kynnt í heild sinni á fyrrnefndri ráð-
stefnu á föstudaginn var, af Þóru
Ásgeirsdóttur, forstöðumanni við-
horfskannana hjá IMG Gallup. Eng-
ar spurningar könnunarinnar voru
þar undanskildar og vandséð hví
svo hefði átt að vera. Ráðstefnuna
sátu á fjórða hundrað manns, hún
var öllum opin og aðgangur ókeypis.
Fáeinum mínútum eftir erindi Þóru
var kynning hennar sett á vefsíðu
Samtaka atvinnulífsins og hefur
könnunin í heild því verið öllum að-
gengileg þar frá því fyrir kl. 14:00
föstudaginn 27. janúar sl. Fjöl-
miðlar hafa greint frá ýmsum af
helstu niðurstöðum könnunarinnar,
sem í stuttu máli má draga saman á
þann hátt að mikill meirihluti Ís-
lendinga sé fylgjandi áframhaldandi
nýtingu íslenskra orkuauðlinda,
meðal annars vegna áliðnaðar.
Framangreind ummæli formanns
Náttúruverndarsamtaka Íslands
sæta því furðu en nákvæmlega eng-
inn fótur er fyrir þeim aðdróttunum
sem þar er að finna,“ segir Gústaf
Adolf.
Segir ummæli formanns Náttúru-
verndarsamtaka Íslands sæta furðu
ÁRSFUNDUR Rannsóknastofn-
unar í hjúkrunarfræði var haldinn
26. janúar sl. að viðstöddu fjölmenni
hjúkrunarfræðinga. Yfirskrift fund-
arins var „Öflugt doktorsnám í
hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði –
öllum til heilla“.
Herdís Sveinsdóttir, prófessor og
formaður stjórnar Rannsóknastofn-
unar í hjúkrunarfræði, gerði grein
fyrir áherslum í starfi stofnunar-
innar sem miða að því að efla rann-
sóknir í hjúkrunarfræði og ljósmóð-
urfræði. Að sögn Herdísar hefur
mikil gróska verið í rannsóknum
þessara hópa undanfarin ár þrátt
fyrir að þær búi við þrengri fjár-
hagslegan kost en aðrar sambæri-
legar klínískar greinar innan HÍ.
Þá ávarpaði Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
fundinn. Kom fram í máli hennar
hversu veigamiklu hlutverki Háskól-
inn gegnir í rannsóknum hér á landi
og hversu sterk staða skólans er á
því sviði. Ráðherra ítrekaði stefnu
stjórnvalda sem fram kemur í álykt-
un Vísinda- og tækniráðs frá 19. des-
ember sl. sem er að leggja áherslu á
eflingu doktorsnáms á Íslandi, þar
með talið í heilbrigðisvísindum.
Greindi hún jafnframt frá því að
unnið væri að rammalögum um há-
skóla þar sem settar verða fram
skýrar reglur um doktorsnám og
gæði þess.
Doktorsnám afar mikilvægt
fyrir heilbrigðisstofnanir
Hjúkrunarforstjóri LSH, Anna
Stefánsdóttir, ræddi í erindi sínu
gildi þess að doktorsmenntaðir
hjúkrunarfræðingar starfi á heil-
brigðisstofnunum. Sagði hún hjúkr-
unarfræðinga með doktorsnám ótví-
rætt hafa sannað gildi sitt innan
LSH. Sú þekking og þjálfun sem
doktorsnám felur í sér eykur innsýn
og færni í samþættingu fræða og
starfs í hjúkrun. Kristín Björns-
dóttir, dósent, formaður rannsókn-
anámsnefndar við hjúkrunar-
fræðideild HÍ fjallaði um
doktorsnám í hjúkrunarfræðideild.
Greindi hún frá ferli námsins við
deildina og hvatti hjúkrunarfræð-
inga og ljósmæður til að sækja sér
framhaldsnám og efla þannig fag sitt
skjólstæðingum sínum til heilla.
Heiðursgestir fundarins voru
hjúkrunarfræðingarnir Ingibjörg R.
Magnúsdóttir, fyrrverandi náms-
brautarstjóri námsbrautar í hjúkr-
unarfræði og Guðrún Árnadóttir.
Ingibjörg hafði sl. haust fært rann-
sóknastofnun eina milljón krónur að
gjöf til stofnunar sjóðs sem ætlað er
að styrkja doktorsnemendur í hjúkr-
un. Guðrún færði stofnuninni inn-
bundin Tímarit hjúkrunarfræðinga
frá upphafi útgáfu þess til ársins
1993.
Undir lok ársfundar steig ungur
frændi Ingibjargar, Magnús Friðrik
Guðrúnarson, og afhenti sjóðnum
eitt hundrað þúsund krónur að gjöf.
Ástæður gjafar sinnar sagði hann
vera að hann ætti sterka hjúkr-
unarfræðinga að og að hann óskaði
eftir að hjúkrunarfræðingar rann-
sökuðu aðstæður barna. Þeim þrem
eru færðar bestu þakkir fyrir höfð-
inglegar gjafir.
Ársskýrslu Rannsóknastofnunar í
hjúkrunarfræði er að finna á heima-
síðu hennar þar sem einnig er að
finna upplýsingar um opinber erindi
og málstofur stofnunarinnar.
Heimasíða Rannsóknastofnunar í
hjúkrunarfræði er
www.hjukrun.hi.is/page/
hjfr_rannsoknastofnun.
Ársfundur Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við HÍ og LSH
Mikil gróska í
rannsóknum
Ljósmynd/Jóra
Ingibjörg R. Magnúsdóttir og Guðrún Árnadóttir ásamt frænda Ingibjarg-
ar, Magnúsi Friðriki Guðrúnarsyni, sem afhenti sjóði, sem ætlað er að
styrkja doktorsnemendur í hjúkrun, eitt hundrað þúsund krónur að gjöf.
SAMTÖK um betri byggð skora á
borgarstjórnarflokk og frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík að gera grein fyrir stefnu sinni í
skipulagi og uppbyggingu á Vatns-
mýrarsvæðinu og nefni það ár, sem
Reykjavíkurflugvöllur muni í síðasta
lagi víkja fyrir byggð. Samtökunum
er „umhugað um að frambjóðendur
og kjörnir fulltrúar á borgarmála-
sviði bjóði kjósendum sínum skýra
valkosti í skipulagsmálum“ eins og
segir í tilkynningu frá þeim.
Í tilkynningunni segir að stjórn
samtakanna fagni breyttum
áherslum Sjálfstæðisflokksins í
skipulagsmálum höfuðborgarinnar
og því að flugvöllurinn skuli víkja
fyrir miðborgarbyggð í Vatnsmýri
og er þar vísað í ummæli oddvita
flokksins í borgarstjórn í Morgun-
blaðinu í haust um að hann ætli að
beita sér fyrir því að Vatnsmýrar-
svæðið verði nýtt undir íbúðar- og
atvinnubyggð og að innanlandsflugi
verði fundin ný staðsetning á næsta
kjörtímabili og tekin ákvörðun um
nýtt heildstætt skipulag fyrir svæð-
ið.
Fyrirvari um uppbyggingu
„En oddvitinn bætti því við að til
þess að þoka málinu áfram þyrfti
góða samvinnu borgar og samgöngu-
yfirvalda ríkisins, sem hefðu yfir-
stjórn og ábyrgð á þessum málum og
ættu auk þess 40% af landinu í
Vatnsmýri,“ segir í tilkynningu sam-
takanna.
„Þessi fyrirvari slævir mjög fyr-
irheitið um miðborgarbyggð í Vatns-
mýri og gerir það óskýrt. Með þess-
um orðum framselur oddvitinn í
raun skipulagsrétt borgarinnar til
samgönguyfirvalda og víkur sér,
sem kjörinn borgarfulltrúi, undan
þeirri frumskyldu sinni að tryggja
skipulagshagsmuni Reykvíkinga.“
Síðar segir: „Samtökin telja að
ótvíræð stefna allra frambjóðenda í
þessu mikilvægasta hagsmunamáli
Reykvíkinga verði að liggja ljós fyrir
áður en kjósendur ganga að kjör-
borðinu í vor.“
Samtök um betri byggð
Kalla eftir
stefnu fram-
bjóðenda um
Vatnsmýrina