Morgunblaðið - 30.01.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 27
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Námskeið ætlað þeim, sem vilja takaupp heilsusamlegt líferni, verðurhaldið í Reykholti í Borgarfirði dag-ana 3. til 5. febrúar nk. Það er
Birna Ásbjörnsdóttir, næringarþerapisti og
hómópati, sem stendur fyrir námskeiðinu í
samvinnu við Fosshótel. Boðið er upp á
fræðslu, heilsusamlegt fæði, heita potta, gufu-
böð og gönguferðir um sveitina fyrir þá sem
vilja.
„Við ákváðum að halda námskeiðið í ró og
næði upp í sveit langt frá öllu stressi, tækjum
og tölvum og vera þess í stað úti í náttúrunni,“
segir hún.
„Við verðum með hreinsunarkúr enda er
námskeiðið hugsað, sem upphaf heilsuátaks,
þar sem þátttakendum er boðin hjálp í byrjun
átaksins,“ segir hún. „Sérstök áhersla verður
lögð á hreinsun með heilnæmu fæði og verður
eingöngu boðið upp á lífrænt ræktað grænmeti
með áherslu á hráfæði og ferskan mat. Þannig
að það verða ávextir í boði og nýpressaðir saf-
ar. Ég verð að auki með fræðslu um grunninn
að hráfæði.“
– Hvað með andlegu hliðina?
„Það verður boðið upp á léttar jógaæfingar,
sem allir geta tekið þátt í og á kvöldin verður
hugleiðsla og þjálfun fyrir skynjun og heila.
Þannig verður reynt að snerta á öllum flötum.
Ég mun ein standa að þessum hluta nám-
skeiðsins en ef þátttaka verður næg þá verður
boðið upp á nudd hjá nuddara og að auki höf-
uðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.“
– Á hverju byggist námskeiðið?
„Það er vel þekkt staðreynd að streita, lélegt
mataræði og ýmsir umhverfisþættir geta valdið
hinum ýmsu kvillum og orsakað lakari virkni
t.d. í nýrum, lifur, meltingarfærum, heila,
tauga- og æðakerfi eins og blóðrás, blóðþrýst-
ing, blóðsykur og sogæðakerfi. Þetta er svo-
kölluð Detox meðferð og hefur einnig bætandi
áhrif á breytingaskeið, tíðaverki, kólesteról,
höfuðverk, þunglyndi, liða- og vefjagigt og
svefn. Það er oft hægt að hafa áhrif til batn-
aðar með því að breyta mataræði. Ég er starf-
andi næringarþerapisti og tek fólk í einkatíma
en er auk þess hómópati og gríp til hennar ef
með þarf.“
– Fylgja átök þessari hreinsun?
„Það ætti ekki að gera það en það fer að
sjálfsögðu eftir því í hvernig ástandi fólk er.
Þetta er ekki líkamlega erfitt á neinn hátt en
fólk getur að sjálfsögðu fundið fyrir ein-
hverjum fráhvarfseinkennum. Ekkert kaffi er í
boði og þeir sem reykja verða að sleppa því.
Það sama á við um þá sem borða mikinn sykur
að öllu jöfnu þeir finna fyrir fráhvörfum og
finna aðeins fyrir timburmönnum. Það fylgir.
Hugsunin er að með námskeiðinu komist fólk
yfir erfiðasta hjallann, sem er að byrja. Það
fær hjálp til að losa út úr þessu, kemur
hreinna og bjartara til baka og getur haldið
áfram eftir beinu brautinni.“
– Er eitthvert aldurstakmark?
„Nei, námskeiðið hentar öllum aldri. Það er
öllum opið og miðast við að allir geti verið
með, sem hafa áhuga á og vilja til að taka nýtt
skref í lífinu. Námskeiðið krefst engrar
reynslu á þessu sviði eða þekkingar.“
Námskeiðið hefst kl. 19 á föstudag og stend-
ur til kl. 22–23. Á laugardag byrjar dagskráin
kl. 9 og er til kl. 14 en þá tekur við opin dag-
skrá fram að kvöldmat. „Þá er ýmislegt í boði
fyrir þá sem vilja en svo má einnig slaka á í ró
og næði. Um kvöldið er boðið upp á hlaðborð
með hráfæði og spjall en daginn eftir, sunnu-
dag hefst dagskráin klukkan 9 og stendur fram
yfir hádegi. Þeir sem vilja geta verið lengur og
leitað sér persónulegrar ráðgjafar hjá mér,“
segir Birna.
Heilsa | Hjálp í upphafi átaks
Hreinsun og heilnæmt fæði
Birna Ásbjörnsdóttir
fæddist í Reykjavík,
28. apríl árið 1971. Hún
lærði hómópatíu og
næringarþerapíu í Bret-
landi og hefur starfað
við það síðustu fimm ár.
Hún hefur lært svæða-
nudd, sem hún hefur
stundað lengi. Birna
býr á Sólheimum í
Grímsnesi en starfar í Reykjavík hjá Maður lif-
andi og Fyrir fólk í Akralind í Kópavogi. Hún er
í sambúð með Guðmundi Árna Péturssyni
framkvæmdastjóra og á dótturina Emblu Líf.
Útilokunaraðferðin.
Norður
♠10432
♥Á106 S/Allir
♦D4
♣DG109
Vestur Austur
♠DG98765 ♠--
♥543 ♥94
♦9 ♦KG108762
♣82 ♣Á763
Suður
♠ÁK
♥KDG87
♦Á53
♣K54
Vestur á að spila út gegn þremur
gröndum eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 grönd
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 3 grönd Allir pass
Suður sýnir fyrst jafna hönd og 20–
22 punkta og síðan hjartalit við Staym-
an-spurningu norðurs. Norður hefur
lofað fjórlit í spaða með spurningunni,
því ella hefði hann sagt þrjú grönd
strax.
Spilið er frá Minningarmótinu um
Hörð Þórðarson um áramótin. Helgi
Sigurðsson var í vestur og hann fann
sannarlega óvenjulegt útspil gegn
grandsamningi – einspilið í tígli!
Helgi hugsaði dæmið þannig:
(1) Spaðadrottning virðist í fljótu
bragði augljóst útspil, en eftir melding-
ar er sennilegt að norður sé með fjórlit,
en þá á makker engan spaða. Spaði
kemur því ekki til greina.
(2) Hjarta er heldur ekki líklegt til
árangurs, beint upp í sagðan lit suðurs.
(3) Makker fékk tækifæri til að dobla
þrjú lauf, en gerði það ekki og þá er
varla mikið að hafa í laufi.
(4) Tígull er eini liturinn sem ekkert
mælir á móti.
Að þessu athuguðu spilaði Helgi út
tígulníunni, sem snardrap spilið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5
Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 a6 8.
Dd2 b5 9. a3 g5 10. fxg5 cxd4 11.
Rxd4 Rcxe5 12. Bd3 Bb7 13. O-O Dc7
14. Kh1 Bg7 15. Hae1 O-O 16. Rce2
Rc4 17. Bxc4 dxc4 18. Rg3 c3 19.
bxc3 Hac8 20. Rh5 Dxc3 21. Dxc3
Hxc3 22. Rxg7 Hxe3 23. Hxe3 Kxg7
24. Hc3 Bd5 25. Hc7 Rb6 26. Hf6
Kg8 27. Ha7 Rc4 28. Hxa6 Hd8 29.
Kg1 Be4 30. c3 e5 31. Rf3 Hd1+ 32.
Kf2 Bd5 33. a4 e4 34. axb5 exf3 35.
gxf3 Hb1 36. b6 Hb2+ 37. Kg3 Kg7
38. Hf4 Be6
Staðan kom upp á rússneska meist-
aramótinu sem lauk fyrir nokkru í
Moskvu. Alexander Motylev (2632)
hafði hvítt gegn Sergey Volkov
(2614). 39. b7! Re3 39... Hxb7 hefði
leitt til ósigur í ljósi 40. Hxe6 fxe6 41.
Hxc4 og 39…Bd5 gat ekki heldur
bjargað svörtum með hliðsjón af 40.
Ha4! Rd6 41. Had4. Eftir textaleikinn
er taflið einnig tapað á svart. 40. Hb4
Hg2+ 41. Kf4 Rd5+ 42. Ke4! Rxb4
43. cxb4 Bc4 44. Ha8 og svartur
gafst upp enda er b-peð hvíts að
renna upp í borð.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hornsteinn samfélagsins
ÉG er sammála því sem sr. Sigurður
Pálsson segir í grein sinni í Morg-
unblaðinu sl. föstudag: „Það sæmi
ekki siðuðu samfélagi þar sem menn
ættu að kappkosta að virða tjáning-
arfrelsið og láta andstæðinga sína
njóta sannmælis þrátt fyrir ágrein-
ing.“
Umræðan um giftingu samkyn-
hneigðra hefur þróast í þá átt að fólk
megi bara hafa eina skoðun. Þeir
sem á móti eru fá yfir sig dembu af
formælingum. Því kjósa margir að
þegja. Þetta er ekki lýðræðislegt,
heldur skoðanakúgun. Biskupinn
mætti vera ákveðnari í túlkun sinni á
þessu því kirkjan verður að fara eftir
því sem í biblíunni stendur. Ég veit
að margir munu skrá sig úr þjóð-
kirkjunni ef gifting samkynhneigðra
verður leyfð þar og ég er einn
þeirra.
Ég hef ekkert á móti samkyn-
hneigðum né þeirra réttindabaráttu
ef eitthvað er en sem kristinn maður
get ég ekki sæst á það að karlar eða
konur séu gefin saman í hjónaband.
Kirkjan og stjórnvöld eiga að gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að
hlúa að hjónabandi karls og konu því
það er hornsteinn samfélagsins.
Halli.
Gettu betur
STAÐKUNNUGUM fannst ósann-
gjarnt þegar hinn fjölfróði spurn-
ingahöfundur og dómari í keppninni
Gettu betur sl. þriðjudagskvöld,
Anna Kristín Jónsdóttir, gaf fram-
haldsskólanum á Höfn rangt fyrir að
svara því til að önnur Grímseyjan við
Ísland sé á Steingrímsfirði. Vel má
vera að spekingar með nútíma mæli-
tæki geti fundið út að hún tilheyri
frekar Húnaflóa en venja er það eigi
að síður á þessu svæði að tala um
Grímsey á Steingrímsfirði. En
næsta fáir eða nokkur talar um að
hún tilheyri Húnaflóa. Því var úr-
skurður dómarans ósanngjarn að
mínu mati.
Guðfinnur S. Finnbogason.
Slæm umgengni
hundaeigenda
ÉG er hundaeigandi og hef ekki far-
ið í langan tíma á Geirsnefið. Fór
þangað nýlega til að skoða þar að-
stöðuna fyrir hunda þar sem hægt er
að sleppa þeim lausum. Þarna er allt
til alls, hundapokar, tunna og allar
græjur.
En staðurinn var viðbjóðslegur,
það er eins og fólk fari þarna með
hundana til að láta þá skíta og þrífa
ekki eftir hundana. Óþrifnaðurinn er
lygilegur. Ég sem hundaeigandi
spyr; hvers konar fólk er það sem
þrífur ekki eftir hundana sína?
Maður verður sár og reiður sem
hundaeigandi þegar maður kemur
að svona.
Hundaeigandi.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14.
viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.
9.30–11. Leikfimi kl. 9. Boccía kl. 10.
Vinnustofur opnar frá kl. 9–16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 816. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður
kl. 9–16.30. Söngstund kl. 10.30.
Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Ath ! Kaupa þarf miða á morgun
fyrir þorrablótið 3. febr. Hljómsveit
Hjördísar Geirsdóttur spilar fyrir
dansi.
Dalbraut 18–20 | Eitthvað um að
vera alla daga. Bendum t.d. á upp-
lestur/framsögn og félagsvist á
mánudögum, leikfimi á mánudögum
og miðvikudögum, söng á fimmtu-
dögum, postulínsnámskeið á föstu-
dögum. Listasmiðja Dalbrautar 21–
27 er opin kl. 8–16 daglega. Skrán-
ing á myndlistarnámskeið sem
hefst 31. jan. S. 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, opið
hús kl. 13–16. Vilborgardagur, leið-
beint við handverk og föndur af
öllu tagi. Kaffiveitingar að hætti
Álftnesinga. Auður og Lindi annast
akstur, sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Félagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gullsmára.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi
kl. 13.30. Línudanskennsla kl. 18.
Samkvæmisdans framh. kl. 19 og
byrjendur kl. 20. Námskeið í fram-
sögn og upplestri hefst 7. febrúar
leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson,
skráning og uppl. í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9–12
handavinna, kl. 9.30 boccia, kl.
9.30 gler- og postulínsmálun, kl.
13.15 lomber, kl. 17 kóræfing, kl.
20.30 skapandi skrif.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Eldri borgarar spila brids (tvímenn-
ing) alla mánu- og fimmtudaga í fé-
lagsmiðstöðinni. Skráning kl. 12.45
á hádegi. Spil hefst kl. 13. Þátt-
tökugjald kr. 200. Kaffi og meðlæti
fáanlegt í spilahléi.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínsmálun kl. 9, handa-
vinnustofan opin kl. 13, brids kl. 13,
félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Kennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45,
bókband kl. 10 og glerskurður kl. 13
í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi auka kl.
9.45 í Mýri. Tölvur kl. 17 og 19 í
Garðaskóla.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10.30
sund og leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi spilasalur op-
inn. Kl. 14.30 kóræfing. Mánud. 13.
mars er veitt framtalsaðstoð frá
skattstofunni, skráning hafin á
staðnum og í síma 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Perlusaumur,
almenn handavinna, kaffi, spjall,
dagblöðin. Kl. 10 bænastund. Kl. 12
hádegismatur. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaik,
ullarþæfing og íkonagerð. Jóga kl.
9–11. Frjáls spilamennska kl. 13–16.
Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir
588 2320.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Lítið við í kaffi, kíkið í
blöðin og fáið dagskrána. Minnum á
hagyrðinga- og ljóðahóp í dag kl.
16, enn er pláss. Minnum á fram-
sögnina á morgun þriðjudag kl. 10,
fyrir byrjendur, enn er pláss. Sím-
inn okkar er 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi
í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 á
morgun.
Laugardalshópurinn Blik, Laug-
ardalshöll | Leikfimi fyrir eldri
borgara í Laugardalshöll kl. 12.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl.
10.30 upplestur, kl. 13–16.30 opin
vinnustofa.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 9–12.30, bókband og bútasaum-
ur kl. 9–13, hárgreiðsla og fótaað-
gerðarstofur kl. 9, morgunstund kl.
9.30, boccia kl. 10–11, handmennt
almenn kl. 13–16.30, glerbræðsla og
frjáls spilamennska kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Vímulaus æska
kl. 20, stuðningshópur foreldra
unglinga í vímuefnavanda.
Árbæjarkirkja | Bæna- og helgi-
stund kl. 10 í félagsmiðstöðinni
Hraunbæ 105. Umsjón sr. Þór
Hauksson og Kristina Kalló Szklen-
ár.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir
8. bekk í Hjallakirkju kl. 20–21.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa
2 kl. 19. Örfá sæti laus, láttu sjá
þig, við tökum vel á móti þér eða
hringdu og skráðu þig í síma 535-
4700.
KFUM og KFUK | Fundur í AD
KFUK Holtavegi 28 þriðjudaginn
31. jan. kl. 20. Jólabókaflóðið skoð-
að. Fundurinn er í umsjá vinkvenn-
ahóps. Kaffi. Allar konur eru vel-
komnar.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut
58–60, miðvikudaginn 1. feb. kl. 20.
„Ef ég fæ aðeins...“ Halldóra Lára
Ásgeirsdóttir talar. Bænastund.
Kaffi eftir samkomuna. Allir vel-
komnir.
Fréttasíminn
904 1100