Morgunblaðið - 30.01.2006, Qupperneq 28
28 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Himintunglin sýna hrútinn í trúgjörnum
ham. Að binda trúss sitt við ranga fólkið
getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
Hresstu upp á innsæið. Hjálpaðu fólki
til þess að segja þér satt með því að sýna
því að þú sért til í að heyra sannleikann.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Himintunglin opna augu nautsins fyrir
öllu því óáþreifanlega sem gerir lífið svo
frábært. Nautið hefur náð tangarhaldi á
hluta regnbogans og enginn annar veit
hversu frábær hann er.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samningaviðræður koma við sögu.
Deildu einhverju persónulegu. Það gerir
þig mannlegri og fólk á erfitt með að
neita þér um leið og það áttar sig á því
hversu áhugaverð manneskja þú ert.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Heimilislíf krabbans er frábærlega vel
upp byggt og hann tekur því sem sjálf-
sögðum hlut. Þú áttar þig á þessu þegar
einhver utanaðkomandi bendir þér á
það.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er hvorki ástæða til þess að fela sig
né breytast. Þú ert í lagi eins og þú ert.
Án þess að reyna mikið á sig leggur ljón-
ið fyrsta flokks innlegg af mörkum til
einhvers sem félagi þess fæst við. Með
því hjálpar það viðkomandi til þess að
komast áleiðis.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Flókið ástand verður bara enn flóknara
ef meyjan þarf að útskýra það fyrir ein-
hverjum. Á dögum sem þessum er best
að láta kyrrt liggja og snúa sér að ein-
hverju öðru. Sérhvert samtal á sér sitt
fullkomna augnablik. Það er ekki núna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn í dag er eins og púsluspil,
hann er óskiljanlegur þar til búið er að
raða nokkrum stykkjum saman. Leggðu
þig fram í þínu litla horni veraldarinnar,
fyrr en varir verður þér þakkað fyrir að
setja allan heiminn saman.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fátt er sorglegra en eitthvað sem hefði
getað orðið. Sporðdrekinn veit þetta
innst inni og er því með hæfileika sína á
hreinu. Hann gerir líf sitt að öllu því sem
það getur verið og á að vera.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þýðingarmiklir einstaklingar leggja sig
fram við að mynda sambönd. Bogmað-
urinn er þannig manneskja. Taktu af
skarið, jafnvel þegar þú heldur að við-
komandi sé algerlega utan seilingar.
Það er óhugsandi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin á erfitt með að segja nei. En
nei er orðið sem breytir lífi þínu til hins
betra, líkt og um töfra væri að ræða.
Neitaðu ástvini sem tekur of mikið og
gefur of lítið tilbaka.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu að líta ekki á viðfangsefni þín
sem endalausa keðju umbunar og refs-
ingar, heldur spennandi ferðalag. Þegar
upp er staðið getur umbun verið sem
refsing og svokölluð refsing búið yfir
óumdeildum kostum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það þarf engan heilaskurðlækni til þess
að reka fyrirtæki með góðum árangri,
nema að um heilaskurðlækni sé að ræða.
Sinntu því sem augljóslega þarfnast úr-
lausnar. Þannig kemur þú í veg fyrir
enn meiri flækjur.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Þeir sem hafa ekki ákveðið
hvað þeir ætla að gera á
þessu ári til þess að hjálpa
meðbræðrum sínum fá auka hvatningu
frá tungli í vatnsbera til þess að helga sig
góðgerðarstarfsemi. Sérhver viðleitni
leiðir til heppni, en eins og venjulega
brosir gæfan helst við þeim sem gefa án
þess að láta vita af því.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 dögg, 4 kuldi, 7
andstaða, 8 fjandskapur,
9 þegar, 11 heimili, 13
spotta, 14 málmblanda,
15 vegarspotta, 17 klæð-
leysi, 20 illur andi, 22
hjólspelum, 23 hamingja,
24 náðhús, 25 mál.
Lóðrétt | 1 kækur, 2
ávöxtur, 3 ástargyðja, 4
konur, 5 amboðin, 6
skjóða, 10 hamslaus, 12
reið, 13 bókstafur, 15 kal-
viður, 16 fiskum, 18 tréð,
19 fugl, 20 tunnur, 21
slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 reipdrátt, 8 umber, 9 selja, 10 tík, 11 braka, 13
aktar, 15 hrafl, 18 stöku, 21 inn, 22 sagið, 23 jólin,
24 fangbrögð.
Lóðrétt: 2 Embla, 2 parta, 4 röska, 5 tylft, 6 kubb,
7 maur, 12 kóf, 14 kát, 15 hosa, 16 angra, 17 liðug,
18 snjór, 19 öflug, 20 unna.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
101 gallery | Ásmundur Ásmundsson. Til
25. feb.
Artótek Grófarhúsi | Valgerður Hauks-
dóttir myndlistarmaður til 19. febrúar.
Sjá: www.artotek.is
Aurum | Katrín Elvarsdóttir sýnir ljós-
myndir sem eru hluti af seríunni Heimþrá
til 3.feb.
Café Karólína | Aðalsteinn Svanur sýnir
bleksprautuprentaðar ljósmyndir á segl-
dúk til 3. febr. www.simnet.is/adals-
teinn.svanur
Gallerí BOX | Arna Valsdóttir sýnir
„Kvika“ . Sýningin stendur til 11. febrúar.
Opið fimmtud og laugard kl. 14–17.
Gallerí I8 | Ólafur Gíslason
Gallerí Sævars Karls | Myndlistarmað-
urinn Helgi Már Kristinsson með einka-
sýningu.
Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnars-
dóttir með sýningu út janúar.
Gallery Turpentine | Hallgrímur Helga-
son. Til 31. jan.
Grafíksafn Íslands | Ingiberg Magnússon
– Ljós og tími II sólstöður/ sólhvörf. Opið
fim–sun kl. 14–18 til 12. febrúar.
Grafíksafn Íslands | Ingiberg Magnússon
– Ljós og timi II. Sýningin er opin fim–sun
kl. 14–18.
Hafnarborg | Kári Sveinsson frá Fær-
eyjum og Pétur Bjarnason, myndhöggv-
ari.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Málverkum Þóru Guðrúnar Bene-
diktsdóttur til loka janúar 2006.
Kaffi Milanó | Erla Magna Alexand-
ersdóttir. Sýningin stendur út febrúar.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl.
Listasafn ASÍ | Myndlist vs. hönnun.
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigríður
Ólafsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
og Tinna Gunnarsdóttir. Til 5. feb.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II
– Um rými og frásögn. Sýning á verkum
13 ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Krist-
ín Þorkelsdóttir (hönnun, vatnslitir). Guð-
rún Vigfúsdóttir (vefnaður). Til 12. feb.
Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning
Guðrúnar Einarsdóttur. Til 5. mars.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
til 23. apríl. Gabríela Friðriksdóttir, Fen-
eyjaverkið. Kristín Eyfells. Til 26. feb.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið.
Jóna Þorvaldsdóttir. Til 22. feb.
Norræna húsið | Þrjár finnskar listakon-
ur.
Skúlatún 4 | Fyrsta sýning ársins. Ólíkir
listamenn úr ýmsum áttumTil 12. feb.
Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni
Matur og menning í Þjóðmenningarhús-
inu eru sýnd málverk eftir Hjört Hjart-
arson.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí.
Ljósmyndir Marco Paoluzzo í Myndasal
og ljósmyndir Péturs Thomsen í Mynda-
sal. Til 20. febrúar.
Söfn
Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins í
Duushúsum. Opið daglega kl. 13–18.30.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Myndirnar
á sýningunni Móðir Jörð gefa óhefð-
bundna og nýstárlega sýn á íslenskt
landslag.
Minjasafn Austurlands | Endurnýjun á
sýningum stendur yfir. Ný grunnsýning
opnar 1. maí nk.
Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár-
angri fornleifarannsókna sem njóta
stuðnings Kristnihátíðarsjóðs eru til sýn-
is í anddyri Þjóðmenningarhússins. Rann-
sóknirnar fara fram á Skriðuklaustri, Hól-
um, Þingvöllum, Keldudal, Reykholti,
Gásum, Kirkjubæjarklaustri og Skálholti.
Fræðist um fjölbreytt efni á sýningunum
Handritin, Þjóðminjasafnið – svona var
það, Fyrirheitna landið og Mozart-óperan
á Íslandi.
Skemmtanir
Broadway | „Nína og Geiri“ næstu sýn-
ingar 4., 18. og 25. febrúar – 4., 17. og
25. mars. Aðeins þessar sýningar. Nánari
upplýsingar á http://www.broadway.is
Mannfagnaður
Félagsheimilið Hvoll | Þorrablót Hvol-
hrepps hin forna verður haldið í Hvolnum
4. febrúar.
Laugaland í Holtum | Þorrablót Ása-
hreppinga verður að Laugalandi 4. febr-
úar. Bandamenn leika fyir dansi eftir
borðhald og skemmtun. Miðaverð er kr
4.500. - miðapöntun í síma 487 5014.
Rangárþing ytra | Þorrablótið á Hellu
verður haldið í íþróttahúsinu laugardag-
inn 11. febrúar nk. Miðasala 4. febrúar nk.
Fyrirlestrar og fundir
Alþjóðahúsið | Félag túlka heldur mál-
stofu um túlkun í leikskólum, í Alþjóða-
húsinu, 3. hæð, kl. 20. Gestir fundarins
eru Valgerður Knútsdóttir sérkennari, og
Maria Priscilla Zanoria túlkur. Kaffiveit-
ingar. Aðgangur ókeypis fyrir fé-
lagsmenn, 500 fyrir aðra. Hægt er að
gerast félagi á staðnum.
Kristniboðssalurinn | Félagsfundur í
Kristilegu félagi heilbrigðisstétta verður
kl. 20–22. Efni: Máttur trúarinnar í lífi og
starfi. Ásgerður Þorsteinsdóttir, mat-
ráðskona og Fjóla Haraldsdóttir, sjúkraliði
og djákni fjalla um efnið. Lokaorð og
bæn: Fjóla Haraldsdóttir, djákni.
Fréttir og tilkynningar
Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla
miðvikudaga frá kl. 13 til 17. Úthlutun
matvæla er alla miðvikudaga frá kl. 15 til
17 að Eskihlíð 2–4 v/Miklatorg. Þeir sem
vilja styðja starfið fjárhagslega, vinsam-
legast leggið inn á reikning 101-26-
66090 kt. 660903-2590.
Kvennakór Kópavogs | Kvennakór Kópa-
vogs er að hefja sitt 5. starfsár og eru
fleiri konur velkomnar í kórinn. Æfingar
eru á mánudögum kl. 20–22, í Digranes-
skóla. Nánari uppl. veita: Natalía kór-
stjóri, s. 5551346 og 6994613, Hildur, s.
5543619 og Elínborg, s. 5546617 og
8463774.
Börn
Háteigskirkja | Krakkaklúbbur í Háteigs-
kirkju á mánudögum kl. 15–16. Farið í
leiki, sungið, hlustað á sögur, föndrað
o.fl.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is