Morgunblaðið - 30.01.2006, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
D
ansinn er í fyrirrúmi á
kvikmyndahátíð í ná-
grannabænum Cler-
mont l’Hérault, alls
konar dans, allt frá
frægustu dans- og söngvamynd
allra tíma, Singing in the Rain, til
heimildarmynda um nútímadans.
Það er ekki illa til fundið, því
skammt undan er ein helsta nú-
tímadansborg Frakklands, Mont-
pellier.
Mathilde Monnier er einn þekkt-
asti kóreógraf Frakka, og stjórnar
dansmiðstöðinni í Montpellier.
Heimildarmyndin Vers Mathilde
veitti góða innsýn í vinnuaðferðir
þessa frumlega og heillandi lista-
manns. Einkum er fjallað um það
hvernig eitt verka hennar, Dérou-
tes (Afvegaleidd?), verður til. Þar
er gengið út frá Lenz, texta Georgs
Buchners, en þessi danshöfundur
vinnur gjarnan með bókmennta-
texta sem kveikju að verkunum.
Mathilde Monnier brá sér bæj-
arleið og ræddi við gesti í Clermont
l’Hérault í björtum sal sem hefur
verið lagður undir kvikmyndahátíð-
ina. Þetta eru einhverjar skemmti-
legustu og sársaukalausustu list-
rænar umræður sem ég hef heyrt
og séð. Hér var allt sjálfsagt og
eðlilegt, jafnvel panikslegnar prí-
vatpersónur sem höfðu umsjón með
matarbita og drykkjarföngum.
Spurningar úr sal voru góðar og
gáfulegar. Einn spurði um tónlist-
ina, annar um sjálfan dansinn. Öll-
um datt eitthvað sniðugt í hug.
Frakkar eru snillingar í samræðu
af þessu tagi, þrautþjálfaðir í að
hugsa sitt, og að finna leiðir til að
tjá það. Matthildur var eins og snið-
in í sófann, látlaus og yfirveguð, og
útskýrði meðal annars listina að
finna réttu hreyfinguna, og hélt
helst að það mætti líkja henni við
þá list hjá rithöfundi að finna rétta
orðið. Hún velti því líka fyrir sér
hvort rithöfundur hitaði upp eins
og dansari áður en hann setti sig í
skrifstellingar, og bætti því við að
fyrir sér væri upphitunin hluti af
vinnuferlinu. Kannski voru upphit-
unaræfingar hennar, teknar eins og
hún væri alveg ein í heiminum,
allra áhrifamesta efnið í myndinni,
listamaðurinn einn og berskjald-
aður, og listin ræður ein.
Þ
á var dansleikurinn, Le Bal,
eftir Ettore Scola (frá 1984)
af öðrum toga, eintóm tón-
list og dans, ekki sagt orð í
næstum því tvo klukkutíma, og allt
í sama salnum. Það sem hangir á
spýtunni er líf manneskjunnar,
ballið byrjar, það er búið, á milli er
mikil sveifla, breytingatímar, heil
heimsstyrjöld. Þegar upp er staðið
eru allir samir við sig, en farnir að
eldast, mest þó þjónninn sem hökt-
ir um dansgólfið með bakka og glös.
Leikstjórinn býr til frábærar týp-
ur, flottastur þó leppurinn, sá sem
alltaf fylgir valdinu, skiptir engu
máli hvar það er, í höndum nasista
þess vegna. Fyrir utan típurnar
dásamlegu þá er það hrein upplyft-
ing að vera á löngu balli, með
skemmtilegri tónlist og gam-
alkunnum lögum frá ýmsum tím-
um, og horfa á dansinn duna meðan
meðan mannsævin líður hjá.
B í ó k v ö l d u m d a n s
Ballið byrjar, og
ballið er búið
Mathilde Monnier er einn þekktasti danshöfundur Frakka og stjórnar
dansmiðstöðinni í Montpellier.
Eftir Steinunni Sigurðardóttur
NEMENDAÓPERA Söngskólans í
Reykjavík frumsýndi óperuna
Töfraflautuna í Iðnó á föstudaginn.
Frumsýningardagurinn var vel val-
inn enda þá 250 ár frá fæðingu Wolf-
gang Amadeus Mozart höfundar
Töfraflautunnar.
Í einsöngshlutverkum eru sautján
af nemendum háskóladeilda Söng-
skólans í Reykjavík, ásamt átján
manna kór nemenda á mið- og fram-
haldsstigum skólans.
Sibylle Köll leikstýrir verkinu og
semur dansa og stjórnandi er Garð-
ar Cortes.
Töfraflautan er ævintýri sem
fjallar um prins og prinsessu,
skrýtna og skemmtilega mannfugla,
vonda drottningu og góða anda.
Hún er um baráttu góðs og ills,
þar sem hið góða sigrar að lokum.
Fullt var út úr dyrum á frumsýn-
ingardaginn og var söngstjörnunum
klappað lof í lófa að lokinni sýningu.
Frumsýning | Söngskólinn í Reykjavík heiðrar minningu Mozarts
Morgunblaðið/Kristinn
Nemendur Söngskólans voru kátir að lokinni sýningu. Leikstjórinn Sibylle Köll í fangi Ásgeirs Páls Ágústssonar.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Egill Páll Pálsson sem leikur Tamínó.
Helga Björk Arnardóttir sem Næt-
urdrottningin ásamt Dagrúnu
Hjartardóttur, söngkennara sínum.
Jón Ásgeirsson og Garðar Cortes,
stjórnandi Töfraflautunnar, voru
ánægðir í frumsýningarpartýinu.
Töfraflautan í Iðnó
THE
FOG
Mögnuð
hrollvekja
sem fær
hárin til
að rísa!
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM****
F
U
N
FUN WITH DICK AND JANE kl. 6, 8 og 10
THE FOG kl. 10.40 B.I. 16 ÁRA
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 5.20 og 8
FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.45, 5.50, 8og 10.10
FUN WITH DICK AND JAN Í LÚXUS kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
THE FOG kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 4, og 6
HOSTEL kl. 8 og 10.10 B.I. 16
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6 B.I. 14
DRAUMALANDIÐ kl. 4
STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR
OG ÁTÖK BYGGÐ Á HINNI
ÓGLEYMANLEGU METSÖLUBÓK
EFTIR ARTHUR GOLDEN
6BAFTA TILNEFNINGARM.A. BESTA AÐALLEIKKONA
BESTA TÓNLISTIN,
JOHN WILLIAMS
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN
eee
Kvikmyndir.com
eee
Kvikmyndir.is
eee
Topp5.is
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
N ý t t í b í ó FÓR BEINT Á
TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Þegar þokan skellur á…er enginn óhultur!
eee
Rolling Stone