Morgunblaðið - 17.07.2006, Qupperneq 1
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
21Km
42Km
Km10
Km3
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GL
19.
Hlaupið í
sandfoki
Laugavegshlaupið fór fram í
vonskuveðri um helgina | 10
Fasteignir og Íþróttir í dag
Fasteignir | Reykvísk steinsteypuklassík Frístundabyggð í Fossatúni,
Íþróttir | Fyrsta tap FH í Landsbankadeildinni Örn Arnarson í miklum
ham Ásthildur Helgadóttir vinnur á Íslandi og spilar í Svíþjóð
„VIÐ mættum tímanlega á svæðið og þá var hér
mikil fólksmergð, en eftir tvo, þrjá tíma var okkur
sagt að Norðmenn hefðu forgang í rúturnar og við
yrðum að bíða uns þeir hefðu allir skráð sig og bú-
ið væri að raða í rúturnar,“ sagði Már Þórarinsson
flugvirki sem ekki komst með rútu frá Líbanon yf-
ir til Sýrlands í gær ásamt fimm öðrum Íslend-
ingum. Stjórnvöld á Vesturlöndum áforma nú
mörg hver brottflutninga á þegnum sínum frá Líb-
anon, þar á meðal íslensk stjórnvöld.
Í för með Má voru tveir aðrir flugvirkjar að
reyna að fá far, þeir Markús Sigurjónsson og Guð-
mundur Karl Guðmundsson. „Norðmennirnir
sögðu okkur reyndar að við myndum fá pláss en
rúturnar voru á endanum fylltar sex tímum síðar
og við komumst ekki um borð,“ sagði Már.
Í boði voru 200–250 sæti í fimm rútum. Már
sagðist hafa verið í miklu sambandi við íslenska
utanríkisráðuneytið og fengið þær upplýsingar að
Íslendingarnir ættu að njóta sama forgangs og
Norðmennirnir. „En það endaði ekki þannig,“
sagði Már.
„Ég held að Norðmenn hafi allan tímann verið
ákveðnir í að þeir sjálfir hefðu forgang, þannig að
utanríkisráðuneytið hlýtur að hafa fengið aðrar
fréttir frá Norðmönnum sem voru með það á
hreinu að við værum síðastir.“
Í gærkvöldi voru Már og félagar hans á hóteli í
miðborg Beirút og 3–5 km frá féllu sprengjur.
„Við teljum okkur vera ágætlega örugga, en við
verðum mjög varir við sprengingarnar og það er
ekki mikill svefnfriður á nóttunni.“
Með þeim félögum beið íslensk kona ásamt
manni sínum með líbanskt og íslenskt ríkisfang og
ungu barni, í þeirri von að komast í norsku rút-
urnar en það brást, þeim til sárra vonbrigða. Búa
þau nokkuð frá Beirút og verða minna vör við
sprengjugnýinn, sögðu þau við Má. Hins vegar
komst önnur íslensk fjölskylda um borð í rúturnar
fyrir ákveðinn misskilning – miðað við þá áherslu
sem Norðmenn lögðu á forgangsröðunina þá um
morguninn. Konan er íslensk og maður hennar líb-
ansk/íslenskur. Voru þau með tvö börn og hún
komin 8 mánuði á leið að þriðja barni þeirra.
Afar illa skipulagðir flutningar
Már segir að rútuflutningarnir hafi verið afar
illa skipulagðir enda hafi rúturnar átt að fara kl. 10
um morguninn en fóru ekki fyrr en kl. 14. „Fólk
mætti kl. 8 og mikill hamagangur var til að byrja
með sem lenti aðallega á barnafólkinu. En þegar á
leið og fólk áttaði sig á því að allir Norðmenn væru
öruggir með far, þá róaðist ástandið. Þarna var lít-
ið herbergi inni á einhverju hóteli og inn um dyrn-
ar reyndu 250 manns að troðast til að láta skrá sig.
Þar voru athuguð vegabréf frá hverjum og einum
en þegar við komum inn með okkar íslensku vega-
bréf var okkur bent á að fara út aftur og koma
þegar Norðmennirnir væru afgreiddir.“
Reuters
Guðmundur Karl Guðmundsson, Markús Sigurjónsson og Már Þórarinsson við Le Meridien-hótelið í Beirút í aðeins 3–5 km fjarlægð frá þeim svæðum þar sem sprengjur Ísraela hafa fallið.
Íslendingar í Beirút sátu eftir með sárt ennið þegar Norðmenn hófu skipulagða flutninga frá borginni
Bíða brottflutnings
ásamt fjölda annarra
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Árna Helgason
Í Beirút í gærkvöldi
Finnar | 4
Yfir | Miðopna
ÁTÖK milli Ísraela og
Hizbollah-samtakanna
héldu áfram í gær og lét-
ust átta Ísraelar og yfir
40 særðust í eldflauga-
árás Hizbollah á lestastöð
í hafnarborginni Haifa í
Ísrael.
Ísraelski herinn brást
við með loftárásum á Líb-
anon. Létust yfir 60 Líb-
anar og 111 særðust í að-
gerðum hersins í gær, en
þær stóðu fram á kvöld.
Talið er að alls hafi yfir
150 látist í Líbanon og 23 í
Ísrael frá því á miðvikudag þegar átök brutust
út. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði
að árás Hizbollah á Haifa gæti haft víðtækar af-
leiðingar. Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah,
sagði að samtökin myndu grípa til allra meðala
og að átökin væru rétt að byrja.
Í yfirlýsingu G8-fundarins er kallað eftir því
að átökunum ljúki nú þegar og að Öryggisráð
SÞ kanni möguleika á veru alþjóðlegs örygg-
isliðs á landamærum Líbanons og Ísraels.
Harðar árásir
í gærkvöldi
STOFNAÐ 1913 192. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is