Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 2

Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 20% afsláttur! 20% afsláttur af Outback og Fiesta Gusto gas- grillum. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðið. ÍSLENDINGAR Í BEIRÚT Sex Íslendingum sem voru í Beir- út í Líbanon var meinað um far með norskum rútum til Sýrlands eins og til stóð. Fjögurra manna íslensk fjöl- skylda fékk þó far. Vonast er til að Íslendingarnir sex komist frá Beirút í dag með rútum á vegum Finna. Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra segir Íslendinga leggja brottflutningum Norðurlandabúa lið með því að leggja til 472 sæta far- þegaþotu sem flaug til Sýrlands í gær. Erlendir ríkisborgarar í Líb- anon flýja nú átökin tugþúsundum saman. Ísraelsher hélt uppi linnu- lausum loftárásum á Líbanon í gær og létust yfir 50 manns í átökunum. CCP skoðar brottflutning Hilmar V. Pétursson, forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins CCP, seg- ir flutning fyrirtækisins úr landi hafa verið í alvarlegri skoðun. Fyrir fyrirtæki eins og CCP, hvers tekjur eru næstum allar í erlendum gjald- miðlum og kostnaður í íslenskum krónum, skipti mestu máli að gengið sé stöðugt. Eitthvað sé ekki í lagi þegar mikilvægasta verkefni fyr- irtækisins sé að standa í framvirkum gjaldeyrisskiptasamningum. Ólík- legt sé þó að fyrirtækið flytji starf- semi sína alfarið af landi brott. Strætó bs. verði leyst upp Í kjölfar ákvörðunar um skerta þjónustu Strætó bs. hafa borg- arfulltrúar Vinstri grænna óskað eftir umræðu um málefni byggða- samlagsins á næsta fundi borg- arráðs. Þar verði lögð fram tillaga um endurskoðun aðildar Reykjavík- ur að Strætó bs. Árni Þór Sigurðs- son, borgarfulltrúi, segir fullreynt að sveitarfélögin eigi ekki samleið í málefnum almenningssamgangna. Fyrsta tap FH í deildinni Bikarmeistarar Vals báru sigur úr býtum gegn Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika með tveimur mörkum gegn einu í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn er sá fyrsti sem FH tapar í deildinni það sem af er sumri. Tilraunaskot fordæmt Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt einróma ályktun þar sem tilraunaskot N-Kóreu- manna á flugskeytum í byrjun mán- aðarins eru fordæmd. Lagt er bann við því í ályktuninni að kaupa eða selja tækni sem gæti nýst stjórn- völdum í Kóreu til að þróa flug- skeyti. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Forystugrein 20 Fréttaskýring 8 Minningar 24/27 Vesturland 11 Dagbók 30/33 Verið 12 Myndasögur 30 Viðskipti 13 Víkverji 30 Erlent 14 Staður og stund 32 Menning 15 Bíó 34/37 Daglegt líf 16/17 Ljósvakar 38 Umræðan 18/23 Veður 39 Bréf 23 Staksteinar 39 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is BORGARFULLTRÚAR Vinstri grænna hafa óskað eftir umræðu um málefni Strætós bs. á næsta fundi borgarráðs fimmtudaginn 20. júlí þar sem lögð verður fram til- laga um að taka aðild Reykjavík- urborgar að byggðasamlaginu til endurskoðunar. Tillagan kemur í kjölfar ákvörðunar Strætós um skerta þjónustu en stjórn fyrir- tækisins hefur ákveðið að leggja niður stofnleið S5 og hefja ekki á ný akstur á 10 mínútna tíðni á stofnleiðum, eins og var í síðustu vetraráætlun. Var gripið til þess- ara aðhaldsaðgerða til að stöðva 360 milljóna kr. hallarekstur fyr- irtækisins. Að mati Árna Þórs Sigurðsson- ar, borgarfulltrúa VG, er nú full- reynt að sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu eiga ekki samleið í málefnum almenningssamgangna. „Með því að ákveða að skerða þjónustuna vegna færri farþega og minni tekna getur skapast víta- hringur því þessi skerta þjónusta mun leiða til enn færri farþega. Í mínum huga er mikilvægasta ráðið til að fjölga farþegum fólgið í að auka þjónustuna jafnvel þótt leggja verði meiri peninga í það tímabundið,“ segir hann. „Ég tel augljóst að Reykjavík eigi langmestra hagsmuna að gæta og ef hin sveitarfélögin sem eru með okkur í byggðasamlaginu eru á annarri leið, þá held ég að sé heiðarlegast að menn leiti leiða til að leysa þetta byggðasamlag upp og hvert sveitarfélag fyrir sig ákveði hvaða þjónustu það vill bjóða upp á.“ Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi Samfylkingar, segir að nið- urskurðurinn sé vanhugsaður og augljóst brot á kosningaloforðum Sjálfstæðisflokks. Mun Samfylk- ingin leggja til á borgarráðsfund- inum að hraðleið muni áfram ganga í Árbæjarhverfi, tíu mín- útna tíðni verði á hraðleiðum til reynslu næsta vetur og að gengið verði til samninga við háskóla, framhaldsskóla, starfsmannafélag Landspítala – háskólasjúkrahúss og aðra stóra vinnustaði með það fyrir augum að auka nýtingu strætisvagna, tekjur Strætós og hlutdeild almenningssamgangna í umferðinni. Eftir eðlilegan tíma verði svo lagt mat á árangur hins nýja leiðakerfis. Eðlilegt að leita leiða til að leysa upp Strætó bs. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is ÓSAGT skal látið hvort þessir ferðamenn hafa ekki treyst sér til að leigja bílaleigubíl vegna lélegra vega- og leiðamerkinga á ensku og látið sér þess í stað lynda að sitja í rútu sem merkt er á ensku í bak og fyrir en meðal niðurstaðna í nýlegri skýrslu sem unnin var fyrir samgönguráðuneytið er að samgönguyfirvöld þurfi al- mennt að vera vel vakandi varðandi ýmsa þjónustu- þætti sem erlendir ferðamenn nýta sér svo sem vega- og leiðamerkingar á ensku. Þetta sé mikilvægt þar sem vaxandi fjöldi erlendra ferðamanna aki nú um landið á bílaleigubílum og flestir þeirra séu ekki vanir mal- arvegum og hálendisslóðum. Útsýnis notið í tvíþilja rútu Morgunblaðið/Jim Smart DREIFING Morgunblaðsins hefur gengið erfiðlega undanfarnar helgar og þar er því fyrst og fremst um að kenna hve illa hefur gengið að manna dreifinguna í sumarleyfum blaðbera, að sögn Arnar Þórissonar, dreifingarstjóra Morgunblaðsins. Allir áskrifendur hafi fengið blaðið á endanum þó að það hafi í sumum til- vikum tekið langan tíma. Komið hafi fyrir að laugardagsblaðið hafi verið borið út með sunnudagsblaðinu. „Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að blaðburðurinn sé hnökralaus. Ef blaðburði hefur verið lokið á svæðum og áskrifendur ekki fengið blaðið er hefð fyrir því að það sé sent með bíl ef þess er óskað. Þar að auki hafa allir áskrifendur aðgang að blaðinu á netinu, ef þeir eru komnir með aðgangsorð sem annars er hægt að nálgast hjá áskriftarþjón- ustu. Það getur dugað fólki tíma- bundið,“ segir Örn. „Blaðberar Morgunblaðsins eru um 500 talsins og þegar margir eru í fríi þarf mikinn fjölda afleysinga- fólks. Hjá okkur er fjöldi manns sem sinnir ráðningarmálum og mönnun- armálum blaðbera á degi hverjum. Þrátt fyrir stöðugar auglýsingar og mikið starf þessa fólks hefur ekki tekist að láta blaðburð ganga upp. Þetta hefur verið eitt erfiðasta sum- arið hvað þetta varðar. Við vonumst þó til þess að við séum að komast fyr- ir vind með þetta, en það veitir ekki af fleira fólki í afleysingar. Ef fólk er að leita sér að skammtímavinnu eða vinnu til lengri tíma, þá er um að gera að leita til blaðadreifingar, t.d. með því að hringja í 569-1440 eða senda okkur tölvupóst á bladber- i@mbl.is,“ sagði Örn. Morgunblaðið skilar sér seint Mannekla vegna sumarleyfa blaðbera LÖGREGLAN í Reykjavík krafð- ist viku gæsluvarðhalds yfir þremur 18 ára piltum í gær vegna vopnaðs ráns í verslun í Mosfellsbæ seint á laugardags- kvöld. Einn piltanna er grunaður um að hafa farið vopnaður hnífi inn í verslunina en afgreiðslu- stúlka veitti lögreglu haldgóða lýsingu á honum. Fannst hann á gangi stutt frá versluninni skömmu síðar og var þá vopn- aður hnífi. Í kjölfar handtöku hans var húsleit gerð á heimili í bænum og fimm menn hand- teknir, sem taldir eru tengjast málinu. Þeir þrír sem krafist var gæslu yfir hafa allir komið við sögu lögreglunnar vegna afbrota. Á laugardag handtók lögreglan mann vegna gripdeildar og lík- amsárásar í verslun við Granda- garð í Reykjavík um klukkan 16. Þar hafði maður komið inn í búð- ina og farið að eiga við pen- ingakassa. Þegar afgreiðslukona reyndi að stöðva hann hrinti hann henni á flóttanum og sló hana í andlitið. Maðurinn komst á brott með nokkuð af peningum en af- greiðslukonan náði niður númeri flóttabílsins og tókst lögreglunni að handtaka manninn síðar um daginn. Hann var yfirheyrður og sleppt að því loknu. Gæslu krafist vegna vopnaðs ráns ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kölluð út seint í gærkvöldi vegna slyss á Hveravöllum en þar hafði þýsk ferðakona dottið á andlitið í urð. Blæðingar þóttu það miklar að ekki var hætt á annað en að sækja hina slösuðu með þyrlu og koma henni undir læknishendur sem fyrst. Hún hélt þó meðvitund eftir slysið. Ferðakona slasaðist á Hveravöllum LÖGREGLAN í Hafnarfirði fékk í gærkvöldi tilkynningu um að olía flæddi upp úr holræsi við Fjarð- argötu. Þegar betur var að gáð var það matarolía sem hafði lekið frá nærliggjandi veitingastað. Var kallað á slökkvilið til að þrífa olíuna upp. Matarolía í Fjarðargötu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.