Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Benidorm
20. eða 27. júlí
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi /
stúdíó / íbúð í viku. Flug, gisting, skattar
og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 14.000.
Verð kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, gisting,
skattar og íslensk fararstjórn.
Aukavika kr. 10.000.
Síðustu sætin
Nú bjóðum við frábært tilboð til
Benidorm 20. júlí í 1 eða 2 vikur og
27. júlí í viku. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað.
Þú bókar og tryggir þér síðustu sætin
og 4 dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir.
ÍSLENDINGARNIR sex í Beirút,
sem ekki komust í rútu með Norð-
mönnum yfir til Sýrlands í gær,
verða að öllum líkindum fluttir í
dag yfir landamærin með rútu á
vegum Finna, að sögn Valgerðar
Sverrisdóttur utanríkisráðherra.
Þótt Íslendingarnir sex hefðu ekki
fengið far með norskum rútum í
gærmorgun, fékk þó fjögurra
manna íslensk fjölskylda far, en
þremur íslenskum flugvirkjum og
þriggja manna fjölskyldu var
meinað að fara um borð í rúturnar.
Samkvæmt upplýsingum Más
Þórarinssonar flugvirkja hafði Ís-
lendingunum verið sagt að Íslend-
ingar og Norðmenn hefðu sama
forgang í rúturnar. Þeir hefðu því
mætt snemma til að tryggja sér
sæti en verið sagt af fulltrúa
norska sendiráðsins á staðnum að
Norðmenn hefðu forgang.
Olli þetta talsverðum vonbrigð-
um, sérstaklega hjá fjölskyldu með
ungbarn, sem beið með þeim við
rúturnar.
Mistök hljóta að hafa orðið
Valgerður Sverrisdóttir sagði
þetta atvik hafa verið leiðinlegt og
að einhver mistök hlytu að hafa átt
sér stað. „Við höfum verið að vinna
þetta mjög náið með Norðmönnum
fram til þessa og þeir hafa sýnt
mikinn áhuga á að sinna okkur,“
sagði hún við Morgunblaðið í gær.
„En svo gerist þetta, hvernig sem
á því stendur. Það voru bara þrír
Norðmenn sem voru að skipu-
leggja þetta [í Sýrlandi] og hafa
ekki fengið réttu upplýsingarnar
frá höfuðstöðvunum.“
Íslenska utanríkisráðuneytið
ákvað í gær að senda 472 sæta far-
þegaþotu frá Bretlandi til Damas-
kus í Sýrlandi til að sækja Íslend-
inga og aðra Norðurlandabúa og
flytja þá frá landinu. „Norðmenn,
Danir og Finnar hafa allir óskað
eftir sætum í þessari vél, þannig
að mér sýnist ekki verða vand-
kvæðum bundið að fylla hana.“
Vélin fer frá Bretlandi kl. 20 í
kvöld og vonast Valgerður til að
vélin geti farið til baka þá um
nóttina.
Valgerður sagði íslensk stjórn-
völd hafa snúið sér að þeim mögu-
leika að fá aðstoð Finna við að
flytja Íslendingana, strax og ljóst
var að flutningarnir með Norð-
mönnum hefðu brugðist. En jafn-
framt hefði hinn kosturinn líka
verið í athugun, þ.e. að senda þot-
una frá Bretlandi. „Og úr því að
það virtist ætla að ganga upp, þá
var hætt við að biðja aðra um
hjálp, heldur bjóða öðrum aðstoð,“
sagði hún.
Utanríkisráðuneytið mun í dag
fylgjast náið með framvindu mála,
bæði hvað snertir finnsku rútu-
flutningana á Íslendingunum sex
frá Beirút og svo þotunni sem fer
frá Bretlandi í kvöld. Miklar bið-
raðir eru við Sýrlensku landamær-
in en í gærkvöldi hafði Valgerður
fregnir af því að norsku rúturnar
væru farnar í gegn. „Og það eykur
bjartsýni um að þetta geti gengið.
En það hefur verið talað um að
það sé mikill seinagangur í af-
greiðslunni á landamærunum.“
Allir að reyna að komast burt
Ljóst er að senda þarf fleiri þot-
ur eftir öllum þeim fjölda Norð-
urlandabúa sem bíður í Sýrlandi.
„En þetta er framlag Íslendinga í
þessu alvarlega máli,“ sagði Val-
gerður.
Hver þjóðin af annarri skipu-
leggur nú flutninga á erlendum
borgurum frá Líbanon. Banda-
ríkjamenn sendu öryggissveitir að
sendiráði sínu í gær til að hefja
undirbúning að brottflutningi
bandarískra borgara. Þá voru á
fjórða hundrað manna, aðallega
Evrópubúar, fluttir á brott á laug-
ardagskvöld og sunnudag.
Helstu dagblöð á Norðurlönd-
unum fjölluðu um Líbanonmálið á
netútgáfum sínum í gær og sagði
norska blaðið Aftenposten m.a. frá
því að tvær norskar systur, 18 og
19 ára, sem hefðu verið með
norskan ríkisborgararétt í áratug,
hefðu ekki fengið far með rút-
unum. Þær höfðu verið í mánaðar
heimsókn í Beirút. Norski utanrík-
isráðherrann hefur hins vegar lof-
að að þeim verði komið út úr land-
inu rétt eins og öðrum
Norðmönnum.
Sex Íslendingar fengu ekki að fara með Norðmönnum frá Beirút eins og til stóð
Finnar ráðgera að sækja
Íslendingana til Beirút
Reuters
Rútan með norsku ríkisborgurum kemur til Trípólí í norðurhluta Líbanons í gær frá Beirút á leið til Sýrlands.
Íslensk stjórnvöld
senda farþega-
þotu eftir Norður-
landabúum til
Damaskus
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
UMHVERFISRÁÐ hefur óskað eft-
ir umsögn umhverfissviðs Reykja-
víkurborgar um starfrækslu bensín-
stöðvar við Hringbraut í nálægð við
núverandi staðsetningu Umferðar-
miðstöðvarinnar. Í bókun Kjartans
Magnússonar, fulltrúa Sjálfstæðis-
flokks í umhverfisráði, er lagst gegn
byggingu bensínstöðvar á svæðinu í
ljósi nálægðar við vinsæl útivistar-
svæði og viðkvæmt lífríki Tjarnar-
innar og Vatnsmýrarinnar. Í tillögu
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
sem lögð var fyrir fund umhverfis-
ráðs, var lagt til að samþykkt yrði að
taka áform um bensínstöðina til um-
fjöllunar en að óskað yrði eftir form-
legri umsögn umhverfissviðs með til-
liti til náttúru og umhverfis og
Flugmálastjórnar um hugsanlega
slysahættu þar sem fyrirhuguð stað-
setning er í rétt við aðflugslínu
Reykjavíkurflugvallar. Í tillögu D-
lista kemur m.a. fram að þar sem
lóðaúthlutanir til olíustarfsemi séu
ætíð viðkvæmar sé mikilvægt að far-
ið verði í einu og öllu eftir gildandi
reglum. Þá sé rétt að umhverfisráð
fjalli um málið í ljósi nálægðar fyr-
irhugaðrar bensínstöðvar við vinsæl
útivistarsvæði og lífríki Vatnsmýrar-
innar og Tjarnarinnar.
Í bókun Kjartans segir að fjöl-
margir íbúar í nágrenninu hafi lýst
yfir andstöðu sinni við staðsetningu
bensínstöðvarinnar. Ljóst sé að ekki
sé þörf á nýrri bensínstöð á umrædd-
um stað.
Fortíðarvandamál frá
R-listanum
„Þetta er fortíðarvandamál frá R-
listanum sem við sitjum uppi með.
Það er meira en að segja það fyrir
okkur að ætla að snúa því við eins
langt og það er komið, það myndi
þýða stórar fjárhæðir í skaðabætur,“
segir Gísli Marteinn Baldursson, for-
maður umhverfisráðs.
Deiliskipulagi fyrir Hringbraut
vegna staðsetningar bensínstöðvar-
innar hefur verið breytt og hafa upp-
drættir hlotið þá meðferð sem skipu-
lags- og byggingarlög mæla fyrir
um.
„Staðsetning bensínstöðvarinnar
er mjög viðkvæm með tilliti til um-
hverfisins. Engu að síður var aldrei
leitað umsagnar umhverfisráðs og
við báðum einfaldlega um kynningu
á málinu til að skoða stöðuna. Ætl-
unin er að leggja fram umsögn okkar
um málið út frá umhverfinu á næsta
fundi umhverfisráðs. Eftir það verð-
um við að sjá hvað hægt er að gera,“
segir Gísli Marteinn.
Fjallað um fyrirhugaða bensínstöð við Umferðarmiðstöð
Umhverfissvið meti
með tilliti til náttúru
Flugumferðarstjórar skora á sam-
gönguráðherra að beita sér fyrir
því að vaktafyrirkomulag það sem
gildi tók í flugstjórnarmiðstöðinni
16. mars sl. verði fellt úr gildi og
upp verði tekið það vakakerfi sem
var við lýði fyrir þann tíma. Kem-
ur þetta fram í samþykkt fé-
lagsfundar Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra. Er farið fram á
það í samþykktinni að yfirmönnum
Flugmálastjórnar verði jafnframt
gefin fyrirmæli um skilyrðislaust
samráð við starfsfólk varðandi fyr-
irkomulag vakta.
„Besta og skynsamlegasta
lausnin er að við færum aftur í
gamla kerfið,“ segir Loftur Jó-
hannsson, formaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra. „Við
sjáum ekki að það hafi þurft að
gera breytingar á því, en ef það er
nauðsynlegt þá viljum við að haft
verði samráð við starfsfólk.“
Vaktafyrirkomulaginu sem tók
gildi 16. mars sl. hafi verið komið á
samkvæmt einhliða ákvörðun
Flugmálastjórnar Íslands og ekki
hafi verið haft samráð við starfs-
menn.
„Stjórna með valdboði“
Í samþykktinni segir að himinn
og haf sé á milli orða og gjörða
Flugmálastjórnar. „Í orði kveðnu
leggur Flugmálastjórn áherslu á
góðan starfsanda, tillitssemi í öll-
um samskiptum manna og viðleitni
til að koma eftir föngum til móts
við þarfir fjölskyldna starfsmanna
sinna. Í verki ganga yfirmenn
Flugmálastjórnar hins vegar hart
fram í að rjúfa friðinn, stjórna með
valdboði og eitra þannig andrúms-
loft á vinnustaðnum.“ Ástandið sé
óviðunandi og engin teikn um að
yfirmenn Flugmálastjórnar muni
beita sér fyrir breytingum til hins
betra.
„Það er yfirlýst stefna Flug-
málastjórnar að semja ekki við
vaktavinnufólk í flugstjórn um
vinnutíma. Samkvæmt dóminum
er þeim heimilt að gera það sem
þeim sýnist varðandi vinnutíma
vaktavinnufólks. Einu takmörkin
sem Félagsdómur virðist fallast á
er að starfsmenn hafi 48 klukku-
stundir í frí á viku þó það séu ekki
tveir samfelldir frídagar,“ segir
Loftur og vísar til dóms Fé-
lagsdóms í máli Félags íslenskra
flugumferðarstjóra gegn íslenska
ríkinu sem féll þann 6. júlí sl.
Flugumferð-
arstjórar
skora á sam-
gönguráð-
herra