Morgunblaðið - 17.07.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 17.07.2006, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frekari upplýsingar á www.or.is Þriðjudagskvöldið 18. júlí verður farin göngu- og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Guðríðar Helgadóttur líffræðings. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 33 50 4 07 /2 00 6 Gróðurfar í Elliðaárdal er margbreytilegt og ræðst fjölbreytileikinn af mismunandi gróðurlendum og ræktun landsins. Skoðaðar verða blómplöntur og byrkningar. Þátttakendur eru hvattir til að hafa meðferðis stækkunargler og plöntuhandbók ef tök eru á. Gangan hefst kl. 19.30 við Minjasafnið í Elliðaárdal og stendur í rúma tvo tíma. Íslenska flóran í Elliðaárdal Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is ERNA Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar því sem kemur fram í skýrslu matvælaverðsnefndar, en þar er lagt til að vörugjöld á matvælum verði lögð niður og að öll veitingaþjónusta beri 14% virðisaukaskatt. Spurð um hátt verðlag á gisti- og veitingaþjón- ustu hér á landi skv. skýrslu Hag- stofu Evrópusambandsins, þar sem kemur fram að það er 91% hærra en meðalverð í 25 ESB löndum, sagði Erna að það ætti aðallega við um veitingaþjónustu og væri það engin furða að þessi verðmunur væri til staðar: „Það er ljóst að veitinga- menn hafa átt í verulegum vandræð- um með matvælaverð eins og aðrir neytendur. Það hefur lengi verið krafa samtakanna að á þessu verði tekið því þegar aðföng fyrir veit- ingastaði eru orðin 50% dýrari en að meðaltali er í Evrópu, sem íslensk ferðaþjónusta á í samkeppni við, þá eru menn í erfiðum málum. Þess vegna höfum við fagnað þessari nefnd og fögnum góðri skýrslu og það er margt gagnlegt sem kemur fram í henni. Auðvitað eru það von- brigði að menn gátu ekki skilað sam- eiginlegri niðurstöðu, en kannski var þess ekki að vænta.“ Stjórnmálamenn bregðist við Erna taldi jafnframt mikilvægt að stjórnmálamenn tækju þessa skýrslu og færu í þá vinnu að stór- lækka matvælaverð. Auk þess taldi hún mikilvægt að veitingaþjónusta bæri eitt skattþrep: „Við höfum lagt mjög mikla áherslu á það, sama hvernig og hvar matur er seldur, að hann sé á sama skattþrepi. Vegna þess að matarsala er orðin svo fjöl- breytt, það er farið að selja tilbúinn mat á svo gríðarlega fjölbreyttum stöðum að það gengur ekki lengur að það skuli ekki vera í sama skatt- þrepi. Þetta er gríðarlega mikil- vægt.“ Erna taldi það gefa augaleið að ís- lenskir veitingastaðir yrðu sam- keppnishæfari ef farið yrði í að lækka vörugjöld og einfalda skatt- þrep: „Stóru málin eru að lækka og afnema í einhverjum skrefum þessa tolla og aðflutningshindranir og setja allan mat í sama virðisauka- þrep, sama hvar og hvenær hann er seldur.“ Formaður SAF fagnar niðurstöðum matvælanefndar Telur nauðsynlegt að fella niður vörugjöld Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is EF AÐEINS á að grípa til þeirra að- gerða til lækkunar á matvælaverði, sem samstaða náðist um innan mat- vælanefndar er allt of skammt geng- ið, að mati Rannveigar Guðmunds- dóttur, þingsmanns Samfylkingarinnar. „Ég fagna að sjálfsögðu öllum skrefum sem tekin verða til lækkunar matvælaverðs, hversu stutt sem þau eru, en eftir fimm ára umræður innan þings sem utan og skýrslur Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands og matvælanefndar liggur ljóst fyrir hvað gera þarf.“ Rannveig segir það athyglisvert sem fram kemur í skýrslu matvæla- nefndar að um helmingur stuðnings ríkisins við landbúnaðinn er tekinn í matvælaverði. „Það gerir enginn ráð fyrir því að öllum stuðningi við land- búnaðinn verði hætt, en hægt er að fara sömu leið og Evrópusambandið hefur farið og hafa stuðninginn í formi beingreiðslna.“ Rannveig bendir að lokum á að Samfylkingin hafi barist fyrir því nú í fimm ár að ástæður hás matvæla- verðs hér á landi yrðu kannaðar, en boltinn sé nú hjá ríkisstjórninni. Varhugavert að fella niður tolla Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna segir matvælanefndina nálg- ast viðfangsefni sitt of þröngt. „Nefndin einblínir nær eingöngu á tolla og gjöld af landbúnaðarvörum, en verkefni hennar var mun víðara, að finna leiðir til að ná fram lækkun á matvælaverði. Ég hefði til dæmis viljað sjá hana skoða frekar hvað sú fákeppni, sem ríkir á matvörumark- aði, kostar okkur.“ Jón segir gjöldin sem nefndin fjallar um falla í tvo flokka, annars vegar tolla og vörugjöld sem lögð eru á innflutning matvöru og hins vegar skatta og aðrar álögur sem lagðar eru á matvöru þegar inn í landið er komið. „Við teljum að lækka eigi gjöld á ferðaþjónustu og veitinga- sölu, eins og nefndin gerir tillögu um. Hins vegar teljum við varhugavert að lækka mikið, eða jafnvel fella niður, tolla og vörugjöld á innflutt kjöt og mjólkurafurðir án þess að gripið sé til einhverra aðgerða til að minnka áhrif þess á innlendan landbúnað. Það hef- ur sýnt sig að þjóðin vill sterkan ís- lenskan landbúnað og frjáls innflutn- ingur á þessum afurðum frá útlöndum gæti stefnt innlendri mat- vælaframleiðslu í voða,“ segir Jón. Tillögur matvælanefndar forsætisráðuneytis Blendin viðbrögð stjórnarandstöðu Þrátt fyrir að votviðrið sem einkennt hefur sumarið hafi ekki glatt alla þá hefur það haft góð áhrif á sprettu eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var við Ægisíð- una. Þar hefur hvönnin lifað góðu lífi í sumar og er engu líkara en að konurnar tvær þurfi að ryðja sér leið með barnavagna sína í gegnum gróðurinn. Morgunblaðið/Sverrir Gengið í hvönninni KÍSILRYK var meginuppistaða reyksins sem Járnblendiverk- smiðjan á Grundartanga gaf frá sér sl. þriðjudag. Vegfarendur urðu þá varir við mikinn og þéttan reyk sem lagði frá verksmiðjunni. Reyk- hreinsibúnaður sló út með þeim af- leiðingum að kísilryk hreinsaðist ekki úr reyknum og nauðsynlegt var að sleppa óhreinsuðum reyknum út. „Við misstum þarna söluvöru því kísilrykið er selt og flutt út, að mestu leyti til Japan. Þar er það not- að til að búa til byggingarplötur auk þess sem það er notað sem íblönd- unarefni í steinsteypu,“ segir Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs hjá Járnblendi- verksmiðjunni. „Við erum skyldugir til að hreinsa reykinn frá verksmiðj- unni og þessi reykur var innan þeirra marka sem okkur eru sett. Efnasamsetning kísilryksins er svip- uð og í sandi og engin hættuleg efni voru í reyknum. Fyrir utan fram- leiðslutjón okkar hlaust af þessu sjónmengun sem vissulega er til leiðinda fyrir þá sem eiga leið hjá verksmiðjunni.“ Járnblendiverksmiðjan hefur áð- ur neyðst til að hleypa óhreinsuðum reyk beint út í andrúmslofið vegna bilunar í reykhreinsibúnaði, síðast hinn 19. maí á þessu ári. Ljósmynd/Sigurður Bogi Kísilryk í reyk frá Járnblendi INNBROTUM fjölgaði í júnímánuði í Reykjavík á svipaðan hátt og raun- in varð í júní í fyrra. Það sem af er árinu eru þó innbrot færri en fyrstu sex mánuði ársins í fyrra. Nokkur kippur kom í þennan brotaflokk nú í júní og töldust tilkynnt innbrot um 150 talsins en til samanburðar eru fjöldi innbrota vanalega um 100 á mánuði. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir ágæt- lega ganga að afgreiða þau mál sem berast til rannsóknar þótt á hinn bóginn séu færri rannsóknarlög- reglumenn nú að vinna vegna sum- arleyfa. „Á þessum árstíma eru menn í sumum tilvikum einkum að einbeita sér að þeim málum sem þola ekki bið,“ segir hann. „Það hefur ekki tíðkast að vera með afleysinga- menn í rannsóknardeild en almenna vaktin fær viðbótarmannskap á sumrin og er því fullmönnuð. Það hægist aðeins á yfir sumarið í rannsókn og færri menn eru til stað- ar þannig að álagið eykst á þá.“ Að sögn Harðar þýðir þetta að forgangsraða verður málum og ein- beita sér að því sem upp kemur. „Ofbeldis- og nauðgunarmál hafa alltaf forgang og einnig er farið strax í innbrot sem fyrir liggja upp- lýsingar um. En annars konar brot sem eru tímafrek í eðli sínu s.s. slysarannsóknir og fjármunabrot þola e.t.v. frekar bið en aðkallandi mál. Þetta hefur verið svona í ára- raðir.“ Ofbeldis- og nauðg- unarmál í forgangi Sakamálarannsóknir ganga ágætlega þrátt fyrir manneklu vegna sumarleyfa Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.