Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 17. júlí 2006, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. júlí 2006 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 17. júlí 2006, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, van- skilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipu- lagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysa- tryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, af- dreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 17. júlí 2006 Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli ALLT frá árinu 1976 hafa Færeyingarhaft hér heimildir til veiða á botnfiskián þess að fyrir það hafi komið greiðsla eða veiðiheimildirá móti innan lögsögu Færeyja. Síðustu árin hafa þessar heimildir numið 5.600 tonnum, þar af eru 1.200 tonn af þorski. Allan þennan tíma hefur verið litið svo á að með þessu væru Ís- lendingar að aðstoða frændþjóð í vanda. Samskipti íslenzkra og færeyskra sjómanna hafa alla tíð verið góð og segja má að á árum áður hefði ekki verið hægt að gera út stóran hluta íslenzkra fiski- skipa, hefðu ekki fengizt á þau færeyskir sjómenn. Samvinna þjóðanna á sviði sjávarútvegs hefur alla tíð verið góð. Því skýtur það skökku við nú þegar sú umræða hefst í Færeyjum að Fær- eyingar séu að gefa Íslendingum kolmunnakvóta að verðmæti ríflega 2 milljarða króna. Þeir verði því að fá eitthvað á móti og einnig verði að takmarka veiðar íslenzkra skipa á kolmunna innan lögsögu eyjanna 18. Þessi umræða er hreinlega alveg glórulaus. Hún byggist á frekju, vanþakklæti og skammtímahagsmunum. Færeyingar gefa Íslendingum engan kvóta. Það eru veiðiþjóðirnar við norðanvert Atlantshafið sem ákveða í sameiningu hámark kolmunnaveiðanna og skiptingu þess hámarks milli aðildarþjóðanna. Kolmunninn er göngufiskur sem gengur suður að Írlandi og norður eftir Atlants- hafinu milli Íslands og Noregs. Færeyingar og Íslendingar hafa gert með sér samkomulag þess efnis að hvor þjóð fyrir sig geti stundað veiðar á kolmunna innan lögsögu hinnar til að auðvelda þeim að ná kvótanum. Það er misjafnt hvernig kolmunninn geng- ur fyrir utan það að hann hrygnir að miklu leyti á svipuðum slóð- um. Það er rétt hjá Færeyingum að á þessu ári hafa Íslendingar veitt um 200.000 tonn af kvóta sínum innan lögsögu þeirra og að þeir hafi nánast ekkert veitt innan lögsögu okkar. En þetta ár er nokkur undantekning. Á árinu 2004 veiddu Íslendingar ríflega þrjá fjórðu af kvóta sínum, eða 314.000 tonn, innan eigin lögsögu, en reyndar 102.000 tonn innan lögsögu Færeyja. Árin þar á und- an hafa Íslendingar alltaf veitt meira innan eigin lögsögu. Hvar skyldu Færeyingar hafa veitt sinn kolmunna þá? Færeyingar tala um gjafakvóta upp á 2,2 milljarða króna í ár. Íslendingar geta á móti talað um gjafakvóta upp á tugi milljarða á 30 ára tímabili og nú heyrast þær raddir í Færeyjum að þeir eigi að fá meiri botnfiskkvóta vegna þess að íslenzk skip veiði svo mik- ið af kolmunna innan lögsögu þeirra. Þetta er einkennileg skammsýni hjá frændum vorum. Íslend- ingar og Færeyingar hafa staðið saman gegn yfirgangi Noregs og Evrópusambandsins með góðum árangri hingað til. Það þurfa þjóðirnar að gera áfram, einkum hvað varðar norsk-íslenzku síld- ina. Færeyingar þurfa á því að halda að geta veitt kolmunna og síld innan lögsögu Íslands og öfugt. Það er því skynsamlegra að þessar þjóðir snúi bökum saman til að verja hagsmuni sína gagn- vart öðrum þjóðum, en að reyna að skara eld að sinni köku vegna skammtímahagsmuna. BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason Einkennileg skammsýni Færeyingar gefa Íslendingum engan kolmunnakvóta hjgi@mbl.is Útgerðarfélagið Stegla ehf á Tálknafirði fékk í síðustu viku af- hentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnar- firði. Að útgerðinni stendur Tryggvi Ársælsson sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Sæli BA 333 og leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni. Bát- urinn er 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Sæli er af gerðinni Cleopatra 38 byggður á sömu hönnun og aflabátarnir Guð- mundur og Hrólfur Einarssynir ÍS. Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715 hestöfl tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler. Í bátnum er ískrapavél frá Kæl- ingu. Báturinn er útbúinn siglinga- tækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún. Báturinn er einnig með vökva- drifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Sjóvélum. Örygg- isbúnaður bátsins er frá Viking. Rými er fyrir 12 660 lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upp- hituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með elda- vél, örbylgjuofn og ísskáp. Ný 15 tonna Cleopatra 38 afgreidd til Tálknafjarðar Fréttir á SMS                      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.