Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LEIÐTOGAR G-8 ríkjanna lýstu á
fundi sínum í gær yfir vilja sínum til
að halda áfram stuðningi við Afríku-
lönd, þróunar- og heilbrigðisaðstoð
þar með talið. Talsmenn hjálparstofn-
ana sögðu hins vegar ekkert nýtt
koma fram í máli leiðtoganna og að
þeir hefðu í raun ekki gert annað en
að endurtaka ræðurnar frá því í fyrra.
Þó bar það til tíðinda að Rússar lofuðu
að leggja meira fé til þróunaraðstoð-
arinnar, en það var ekki á dagskrá
rússnesku sendinefndarinnar þegar
hún mætti til fundarins.
Leiðtogarnir lýstu því einnig yfir
að áhersla yrði lögð á orkulindir aðrar
en olíu og kol, til að mynda kjarnorku.
Hækkandi olíuverð og takmarkaðar
birgðir gerðu það að verkum að nauð-
synlegt væri að grípa til slíkra að-
gerða. Þá lýstu þeir yfir vilja sínum til
að koma á opnum og gagnsæjum
orkumarkaði í Evrópu, en Evrópu-
sambandinu varð hins vegar ekkert
ágengt í að komast inn á rússneska
orkumarkaðinn.
Þá samþykktu leiðtogar G-8
ríkjanna harðorða ályktun þar sem
tilraunir Norður-Kóreumanna með
langdrægar eldflaugar eru fordæmd-
ar. Japanskur embættismaður segir
leiðtogana hafa fallist á kröfu Junich-
iro Koizumi, forsætisráðherra Jap-
ans, um að Norður-Kóreumönnum
yrðu send skýr skilaboð.
„Það er mikilvægt að Norður-Kó-
rea fari að ályktun öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna, taki þátt í viðræðum
sex þjóða á ný og verði ábyrgur aðili
að alþjóðasamfélaginu,“ segir í álykt-
unardrögum Koizumis sem leiðtog-
arnir eru sagðir hafa samþykkt.
Lofa áframhald-
andi stuðningi
við Afríku
!"#
$
%&#
'
!"#
(
)*+
, +
- ./
0
1
!"#$)
) ,
2 2
3
4 67
8
1
8
4 2
3
2
1
!" # $
UM fjögur þúsund slökkviliðs-
menn í Kaliforníu hafa glímt við
skógarelda undanfarna daga og
hafa náð nokkrum árangri í bar-
áttunni. Eldarnir ná nú yfir 30
þúsund hektara svæði en á laug-
ardaginn runnu tveir eldar sam-
an í eitt bál. Veðurfar hefur gert
slökkviliðsmönnum erfitt fyrir, en
heitt og þurrt er í veðri og fór
hitastigið upp í allt að 45 gráður
á laugardaginn.
Arnold Schwarzenegger, rík-
isstjóri Kaliforníu, kom á staðinn
í gær og hrósaði slökkviliðsmönn-
unum fyrir hetjulega framgöngu.
„Þetta eru hættulegar að-
stæður en við vonumst til að
slökkviliðið haldi áfram að ná
tökum á eldinum á næstu dög-
um,“ sagði Schwarzenegger sem
lýsti yfir neyðarástandi vegna
eldanna á fimmtudaginn í síðustu
viku.
Enginn hefur látist vegna eld-
anna en tveir íbúar og níu
slökkviliðsmenn hafa orðið fyrir
minniháttar meiðslum.
Reuters
Einn þeirra fjögur þúsund slökkviliðsmanna sem berjast við skógarelda í
Kaliforníu. Í baksýn má sjá eldana loga í hlíðum Morongo-dalsins.
Slökkvilið vinnur
á í baráttunni við
skógarelda
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti á laugardaginn ein-
róma ályktun þar sem tilraunaskot
N-Kóreumanna frá því í byrjun mán-
aðarins voru fordæmd. Þá var sjö
flugskeytum skotið á loft, þar af einu
af gerðinni Taepodong-2 sem er
langdræg og getur borið kjarna-
vopn. Sú skottilraun mistókst hins
vegar og flaug skeytið aðeins í um
mínútu.
Í ályktuninni er lagt bann við því
að kaupa eða selja tækni sem gæti
nýst stjórnvöldum í Kóreu til að þróa
flugskeyti.
Ályktun Öryggisráðsins vakti
hörð viðbrögð hjá ráðamönnum í N-
Kóreu.
„Lýðveldið mun styrkja varnir
sínar á allan hugsanlega máta núna
þegar aðstæðurnar hafa ekki verið
verri í kjölfar óvenjulega fjandsam-
lega aðgerða Bandaríkjamanna,“
segir í yfirlýsingu utanríkisráðu-
neytis N-Kóreu þar sem Bandaríkja-
menn eru taldir bera ábyrgð á álykt-
uninni. Þá kom fram hjá ráðuneytinu
að það væri undarlegt að tilrauna-
skot Bandaríkjamanna og Japana
með flugskeyti væru lögleg á meðan
prófanir N-Kóreu með flugskeyti
væru það ekki. Í viðbrögðum stjórn-
valda segir ennfremur að N-Kórea
teldi sig ekki bundna af ályktuninni,
enda færi hún í bága við fullveldi rík-
isins.
Kínverjar kusu með
Öll fimmtán ríkin í Öryggisráðinu
samþykktu ályktunina, þar á meðal
Kínverjar sem hafa allajafna verið
tregir til að standa að gagnrýni á N-
Kóreumenn. Orðalag ályktunarinnar
er hins vegar hófsamt og t.d. ekki
minnst á kafla 7 í stofnsáttmála Sam-
einuðu þjóðanna sem heimilar hern-
aðaraðgerðir sé ekki farið að tilmæl-
um ráðsins.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fagnaði álykt-
uninni og sagði að hún myndi knýja
stjórnvöld í N-Kóreu að samninga-
borðinu.
Viðræður eini kosturinn
Rice sagði að viðbrögð N-Kóreu-
manna kæmu sér ekki á óvart en
lagði áherslu á að stjórnvöld þar í
landi yrðu að átta sig á að viðræður
um kjarnorkumál við Bandaríkin,
Kína, Rússland, Japan og S-Kóreu
væru það eina sem kæmi til greina.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagði að um merkilega
ályktun væri að ræða, sérstaklega
þar sem Kínverjar hefðu greitt henni
atkvæði sitt.
„Við höfum svo sannarlega mynd-
að bandalag núna,“ sagði Bush.
Einróma ályktun samþykkt í Öryggisráðinu
Fordæma tilrauna-
skot N-Kóreumanna
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Pétursborg. AFP. | Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, lýsti því
yfir á leiðtogafundi G-8 ríkjanna í
Pétursborg í Rússlandi í gærmorgun
að hann ætlaði sér að taka þátt í leið-
togafundinum að ári.
Með þessari yfirlýsingu er ljóst að
Blair hefur fullan hug á því að gegna
embætti forsætisráðherra í að
minnsta kosti eitt ár í viðbót en mikl-
ar vangaveltur
hafa verið uppi
um hvenær hann
hyggist láta af
embætti.
Í gærmorgun
lýsti Roy Hat-
tersley lávarður,
sem var leiðtogi
Verkamanna-
flokksins í neðri
deild breska
þingsins 1983-1992 og ráðherra í rík-
isstjórn áður en íhaldsmenn komust
til valda 1979, því yfir í fjölmiðlum að
Blair ætti að hætta fyrir flokksþing
Verkamannaflokksins í september.
Þannig myndi hann geta hætt í góðu
en því lengur sem Blair héldi áfram
þeim mun meiri skaða ylli það hon-
um og flokknum í heild.
Gordon Brown
bíður óþreyjufullur
En ljóst er að ekkert fararsnið er
þó á Blair. Hann hefur sagt að hann
muni stíga til hliðar fyrir næstu
þingkosningar sem verða í síðasta
lagi í maí 2010 en nákvæmari dag-
setning hefur ekki verið gefin upp.
Hafa vangaveltur um hvenær Blair
víki verið ofarlega á baugi í breskum
stjórnmálum allt þetta ár og raunar
lengur. Næsta víst þykir að Gordon
Brown fjármálaráðherra Bretlands
muni taka við af Blair en haft er fyrir
satt, að honum sé farið að leiðast bið-
in og vilji gjarnan að Blair fari að
víkja svo hann geti spreytt sig á
starfinu.
Blair gat þess við fjölmiðla í gær
að þessar vangaveltur yllu honum
ekki miklum áhyggjum. „Ég sit ekki
og velti því fyrir mér stöðugt hver sé
rétta tímasetningin til að hætta,“
sagði hann.
„Ég hef alltaf kveðið skýrt á um
það að ég ætli mér að halda áfram að
vinna vinnuna mína. Ég hlakka að
sjálfsögðu til næsta G-8 fundar en
það sem skiptir mestu máli er þó að
vinna vinnuna,“ sagði Blair við
blaðamann BBC.
Ekkert
fararsnið
á Blair
Tony Blair
Leiyang. AFP. | HITABELTIS-
STORMURINN Bilis hefur gengið
yfir Kína undanfarna daga og hafa
alls 115 látist í flóðum sem urðu í
kjölfar stormsins.
Milljónir íbúa á þeim svæðum sem
urðu hvað verst úti þurftu að yfir-
gefa heimili sín og hafa tugir þús-
unda heimila eyðilagst í flóðunum.
Þau svæði sem orðið hafa hvað verst
úti eru Fujian, Hunan, Guangdong,
Jiangxi og Zhejiang.
Stormurinn hefur verið í rénun
um helgina en hann náði til Kína á
föstudaginn. Áður hafði hann haft
viðkomu á Filippseyjum og á Tævan.
Veðurfræðingar hafa spáð því að
óveðrið haldi áfram næstu daga.
Á myndinni má sjá kínverska her-
menn aðstoða fórnarlömb flóðanna
við að komast á öruggan stað í
Leiyang í Húnan-héraði í Kína í gær.
Reuters
115 látnir í flóðum í Kína