Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 16
Daglegtlíf
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
33
49
2
0
7/
20
06
www.lyfja.is
„Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“
VEGA Acidoph+detox
Þú kaupir eitt glas af Vega Champignon og
færð eitt glas af Vega Acidophilus bifidus
complex í kaupbæti. Champignon+FOS og
Spirulina léttir undir með hreinsunarferli
líkamans. Acidophilus Bifidus Complex+FOS
hjálpar þér að viðhalda góðri meltingaflóru.*
B-súper 120
Góð blanda B vítamína sem talin eru
styrkja ónæmis og taugakerfi og
stuðla að betri orkunýtingu líkamans.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað
Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki
Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Polarolje
Selolía frá Noregi.* Gildir á meðan birgðir endast.
kaupauki
Hefur jákvæð áhrif á:
Ónæmiskerfið
Liði
Húð
Maga- og
þarmastarfsemi
Kólesteról
Kajakáhuginn vaknaði fyrir alvöru hjámér árið 2001 og síðan hef ég ekkertlosnað við þessa bakteríu. Þetta ermjög skemmtilegt áhugamál og gefur
mér mikið frelsi. Þessi ferðamáti veitir mér svo í
þokkabót tækifæri til að sjá landið okkar frá öðru
sjónarhorni en keyrandi á bíl. Það verða fjöl-
margar náttúruperlur á vegi manns á sjónum
sem maður ekki sér frá landi,“ segir Sóley Ein-
arsdóttir, sem starfar sem íþróttakennari við Ás-
landsskóla og rekur auk þess Sundskóla Sól-
eyjar.
„Áhuginn á kajökum kviknaði ekki allt í einu
því ég hef verið að spá í kajaka í nokkuð mörg ár.
Sjórinn hefur alltaf togað í mig, en pabbi minn
var sjómaður og ég réð mig auk þess á humarbát
um tíma. Sjóbátar heilluðu mig mun meira en
straumbátar og svo fór að ég lét verða af því vor-
ið 2001 að kaupa mér sjókajak úr trefjum. Ég
skráði mig í Kajakklúbbinn og hóf að æfa mig,
fyrst í sundlaugunum til að ná tækninni. Fór síð-
an að fara upp á Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði og
út frá Reykjavík á bátnum, út í Viðey og kring-
um Geldinganesið. Með Kajakklúbbnum hef ég
svo farið á Þingvallavatn, Langasjó og á Hvítár-
vatn.“
Alltaf tveir saman
Að sögn Sóleyjar eru fjölmargir kajakáhuga-
menn til á Íslandi því mikil kajakvakning hafi átt
sér stað á síðustu fimm árum. „Allir eiga að geta
stundað þetta sport, en regla númer eitt, tvö og
þrjú er að fara aldrei einn út á kajakinn sinn því
ef eitthvað kemur upp á er enginn til taks til að
bjarga málunum.“
Að sögn Sóleyjar er hægt að læra kajakróður
hjá mörgum kennurum á vegum klúbbsins auk
þess sem upplagt er að stíga sín fyrstu skref hjá
Pétri Blöndal í Hvammsvík sem býður bæði upp
á báta og kennslu. „Kajakræðarar þurfa að hafa
gott jafnvægisskyn því báturinn er frekar valtur
og ekki styður maður sig við vatnið. Svo er nauð-
synlegt að klæða sig vel eftir verði og helst að
vera í ullarbrókum næst líkamanum.“
Kajakferð til Kanada
„Ég er yfirleitt með bátinn minn uppi á bílnum
og tek hann með mér hvert sem leið mín liggur.
Þegar ég er að fara út á land og kenna sund er
t.d. upplagt að skella sér í kajakróðra á nýjum
stöðum. Ég set bátinn minn bara á flot þar sem
ég er stödd hverju sinni. Báturinn minn er jafn-
nauðsynlegur í farangrinum og tannburstinn. En
ætli Siglufjörður sé ekki minn uppáhalds róðrar-
staður. Ég keypti sumarhús þar með vinkonu
minni Ragnheiði Sæmundsdóttur, sem einnig er
íþróttakennari og forfallin kajakáhugakona.
Þarna er mjög gott að róa. Það er til dæmis
skemmtileg vík fyrir neðan íþróttahúsið sem er í
miklu uppáhaldi hjá mér. Saman stefnum við
Ragnheiður svo að Kanadaferð í sumar og von-
umst auðvitað til að komast á kajaka þar vestra.“
HREYFING | Tvær vinkonur og íþróttakennarar eru forfallnir kajakræðarar
Frelsi í fögrum náttúruperlum
Vinkonurnar, íþróttakennararnir og ræðararnir Ragnheiður Sæmundsdóttir og Sóley Einarsdóttir.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
júlí
LIÐAMÓTAVANDAMÁL í
hnjám og mjöðmum hrjá nú sí-
fellt yngra fólk og fer þeim sí-
fellt fjölgandi sem þurfa að
undirgangast skurðaðgerðir
af þeim sökum. Skýringanna
er helst að leita í ofþjálfun hjá
mörgum og í offitu hjá öðrum.
Vert er að temja sér ýmsar
forvarnir til að komast hjá því
að lenda á skurðarborðinu,
ætli menn að taka á því í rækt-
inni. Þessar eru helstar:
Gættu þess að hita upp í að
minnsta kosti 15 mínútur
áður en þú byrjar að æfa.
Fáðu ráð varðandi rétta
skó hjá sjúkraþjálfara.
Fylgi þér sársauki eftir sex
mánaða æfingatímabil
skaltu vitja læknis.
Varastu mjög erfiðar æf-
ingar ef þú ert í yfirvigt.
Notaðu önnur ráð til að ná
af þér kílóum áður en þú
ferð að taka á því.
Gættu þess að hafa æfing-
arnar sem fjölbreyttastar
og eyddu ekki meira en 15
mínútum í hverja þeirra.
Ef saga um liðagigt er í
fjölskyldunni skaltu forðast
íþróttir á borð við tennis og
hlaup. Veldu þess í stað
íþróttir á borð við hjólreið-
ar og sund.
Morgunblaðið/Jim Smart
Góð upphitun getur komið í
veg fyrir ofþjálfun.
HEILSA
Ofþjálfun
skaðar
mjaðmir
og hné