Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 18

Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 18
18 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÓGNVEKJANDI framtíðarsýn horfir við heiminum. Útlosun gróð- urhúsalofttegunda eykst með þeim afleiðingum að lofthjúpur jarðar hitnar. Hitnunin ógnar framtíð lífs á jörðinni. Og við vitum að eina ráðið gegn þessu er að minnka losun gróð- urhúsalofttegunda. Eitt af því sem við get- um gert er að minnka eldsneytiseyðslu bíla, flugvéla og annarra samgöngutækja með því að nýta léttmálma á borð við ál í framleiðslu þeirra. En ál þarf að bræða. Til þess þarf orku. Og þá stendur mannkynið frammi fyrir því vali hvort bræða eigi álið með því að brenna kolum eða olíu með tilheyrandi losun gróð- urhúsalofttegunda eða nota vist- væna orku fallvatna, orku sem hefur í för með sér litla sem enga losun gróðurhúsalofttegunda. Út frá nátt- úruverndarsjónarmiðum og sjón- armiðum um framtíð lífs á jörðinni er augljóst að síðari kosturinn er sá betri. Og ekki bara betri heldur í raun sá eini. Því hinn valkosturinn, álbræðsla með kolum og olíu, felur í sér að lífi á jörðinni er stefnt í hættu. En úrtölumenn segja að það meg- um við ekki gera. Þeir kæra sig koll- ótta um framtíð lífs á jörðinni. Þeir segja að það sé verið að „drekkja landi“ þegar búin eru til uppistöðu- lón til að jafna rennsli í virkjanirnar. Og þeir segja að fólk á Austfjörðum og Norðausturlandi þurfi ekki at- vinnu, það geti bara farið og gert eitthvað annað, tínt fjallagrös og „virkjað hugmyndaflugið“. En staðreyndin er sú að fólk þarf alvöru atvinnu. Það geta ekki allir verið á listamanna- eða rithöf- undarlaunum og sötrað cappuccino á kaffihúsi í 101 Reykjavík. Með því að styðja við uppbygg- ingu álvera hafa Ís- lendingar ekki aðeins lagt sitt af mörkum til hnattrænnar nátt- úruverndar, þeir hafa einnig skotið styrkari stoðum undir sam- félögin þar sem álverin eru staðsett. Hjól at- vinnulífsins snúast þar á fullum hraða og fólk sér fram á framtíð úti á landi. Með álverum er einnig skotið styrkari stoðum undir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar, þar með er dreift áhættunni af aflabresti í nytjafiski eða fækkun ferðamanna. Slík óhöpp hefðu þar með ekki eins lamandi áhrif á þjóðarbúið og áður. Framsóknarflokkurinn hefur ver- ið í fararbroddi í nýtingu vatnsafls- ins. Af því getur flokkurinn verið stoltur. Það er mikill misskilningur að halda að Framsóknarflokkurinn hringsnúist eins og vindhani þótt virkjunarandstæðingar hafi haft hátt í fjölmiðlum að undanförnu. Ábending Jóns Sigurðssonar iðn- aðar- og viðskiptaráðherra um að stjórnvöld sem slík reki ekki virkj- unarstefnu er engin breyting hvað það varðar. Sú ábending snýr aðeins að aðkomu ráðuneytanna og annarra framkvæmdavaldshafa að ákvörð- ununum, aðkomu sem einkennist af því að framkvæmdavaldshafar eru bundnir af ákvörðunum löggjafans. Þingmenn Framsóknarflokksins eru hluti af löggjafarvaldinu, lýðræð- islega kjörnir til stefnumótunar og til að setja þjóðfélaginu reglur. Framsóknarflokkurinn er flokkur velferðar og náttúruverndar. Það er því skylda hans að styðja áfram vist- væna nýtingu fallvatnanna á Íslandi, landi og þjóð og í raun heiminum öll- um til heilla. Framsóknarflokkurinn er náttúruverndarflokkur Jón Einarsson fjallar um nýtingu náttúruauðlinda og Framsóknarflokkinn ’Með því að styðja viðuppbyggingu álvera hafa Íslendingar ekki aðeins lagt sitt af mörkum til hnattrænnar náttúru- verndar, þeir hafa einnig skotið styrkari stoðum undir samfélögin þar sem álverin eru staðsett. Hjól atvinnulífsins snúast þar á fullum hraða og fólk sér fram á framtíð úti á landi. ‘Jón Einarsson Höfundur er lögfræðingur. KASTLJÓS Sjónvarpsins hefur að undanförnu fjallað á vandaðan hátt um íslenska lyfjamarkaðinn. Glögglega hefur kom- ið fram að verð frum- lyfja er nú lægra hér á landi en í Dan- mörku á meðan dæmi, sem sýnd hafa verið í fjölmiðlum, eru um að verð sam- heitalyfja er hærra hér á landi en þar. Heilbrigðisráðherra hefur verið yfirlýs- ingaglaður, m.a. talað um „óþolandi hátt lyfjaverð“ og ýmsu viljað breyta, nú síð- ast í viðtali við Ey- rúnu Magnúsdóttur í lokaumfjöllun Kast- ljóss um þessi mál. Misskilningur ráð- herra Heilbrigð- isráðherra vitnaði í Kastljósviðtalinu í skýrslu ríkisend- urskoðunar frá því í mars 2004 um lyfja- kostnað og sagði hann hafa komist að þeirri niðurstöðu að lyfjaverð á Íslandi væri 46% hærra hér en í nágrannalöndum okkar. Jafnframt sagði hún ríkisend- urskoðun skýra þann verðmun með því að samheitalyf á markaði væru of fá, lyfin væru of dýr og kostnaður við dreifingu þeirra of mikill. Þarna er ekki farið alveg rétt með úr skýrslu ríkisendurskoðunar. Rík- isendurskoðun sagði samanburð við Danmörku og Noreg leiða í ljós að árið 2003 hafi kostnaður, en ekki verð, á hvern landsmann verið 46% hærri hér á landi en þar. Sagði hún hærri kostnað á Ís- landi skýrast af minna úrvali ódýrra samheitalyfja og meiri kostnaði við dreifingu og sölu en einnig að meiri kostnað megi skýra með meiri notkun sumra lyfja hér á landi, t.d. tauga- og geðlyfja. M.ö.o. að hér á landi er meira notað af dýrum lyfjum en í löndunum sem var verið að bera okkur saman við. Þessari síðustu, en kannski mikilvægustu stað- reynd, kýs ráðherrann að sleppa. En jafnframt að það var kostn- aðurinn árið 2003 sem var 46% hærri en ekki verðið. Athyglisvert er að í skýrslunni eru settar fram 14 tillögur sem gætu lækkað lyfja- kostnað landsmanna. Flestar snúa þær að einhverju eða öllu leyti að hinu opinbera en fæstar virðast hafa fengið frekari skoðun. Heilbrigðisráherra segir hlutfall samheitalyfja vera of lágt á ís- lenskum markaði og að „mark- aðurinn [sé] ekki að skila okkur hagstæðum verðum“ eins og hún sagði í Kastljóssviðtalinu. Nú gilda ekki hefðbundin markaðslögmál á þessum markaði, þar eð yfirvöld ráða í raun verðlagningu lyfja hér á landi. Vert er að muna að það er á grundvelli samkomulags við yf- irvöld sem verð frumlyfja hér á landi er nú orðið lægra en í Dan- mörku. Jafnframt er rétt að halda til haga að hlutfall samheitalyfja á íslenskum markaði er ekki úr takti við önnur lönd. Að vísu sker Dan- mörk sig úr, þar er hlutfall sam- heitalyfja, ef horft er til magns, um 65% af heildarmarkaði. Í Þýskalandi er hlutfallið um 40%, í Svíþjóð um 39% og hér á landi um 31%. Í Finnlandi, Frakklandi og á Írlandi er hlutfallið um 13% og það er minna en 10% á Spáni og í Belgíu og engum sög- um fer af umræðu í þessum löndum um nauðsyn þess að hið opinbera fari að höndla með lyf. En með þessar tölur til grundvallar, hvernig er þá hægt að halda því fram að hlutfall samheitalyfja sé „of lágt“ hér á landi? Of lágt miðað við hvað? Eðlilegt að endur- skoða reglur Mikill árangur hefur náðst í góðri samvinnu við heilbrigðisyfirvöld til lækkunar á verði frumlyfja á Íslandi. Þá er heilshugar hægt að taka undir að rétt notkun samheitalyfja getur skilað sparnaði í heilbrigðisþjónustunni og veitt svigrúm fyrir nýsköpun og ný með- ferðarúrræði. Stjórn- völd geta beitt ýmsum aðgerðum til að hvetja til notkunar samheita- lyfja en slíkar aðgerðir mega ekki koma í veg fyrir að læknir ávísi þeim lyfjum sem henta best þörfum einstakra sjúklinga. Fram hafa komið hugmyndir um að taka til skoðunar ógagnsætt kerfi afslátta í lyfjaverði og skal tekið undir að þar má vafalaust skerpa á. Einnig er eðlilegt að far- ið sé yfir regluverkið er lýtur að greiðsluþátttöku ríkisins. Mik- ilvægt er þó að hafa í huga að ef breytingar verða gerðar, að þær uppfylli kröfur um að allir sitji við sama borð, að mögulegar breyt- ingar verði ekki sniðnar að þörfum einstakra fyrirtækja og að hvergi verði slakað á kröfum sem gerðar eru til lyfja og lyfjadreifingar varðandi gæði, öryggi og þjón- ustustig. Einn megintilgangur samtaka framleiðenda frumlyfja er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og gæta hagsmuna framleiðenda frumlyfja á Íslandi. Það gerum við ekki síst með góðri samvinnu við heilbrigðisyfirvöld sem þegar hefur skilað lægra verði frumlyfja hér á landi en í Danmörku. Því er rangt að halda því fram að lyfjaverð á Íslandi sé almennt mun hærra en annars staðar og það er rangt að halda því fram að markaðurinn hér sé þegar kemur að hlutföllum lyfja á markaði öðruvísi en í okkar helstu nágrannalöndum. Aftur á móti er rétt að halda því til haga að hlutfall lyfjakostnaðar af heild- arkostnaði við rekstur heilbrigð- iskerfisins hefur lækkað und- anfarin ár, frá því að vera u.þ.b. 18% árið 1996 og niður í u.þ.b. 12% árið 2003. Á sama tíma hafa út- gjöld til heilbrigðismála sem hlut- fall af vergri þjóðarframleiðslu vaxið hröðum skrefum. Það skýtur því skökku við að á meðan kostn- aðurinn við rekstur heilbrigðiskerf- isins vex almennt hröðum skrefum skuli helst gagnrýndur sá kostn- aður sem hefur sannarlega lækkað. Lyfjaverð og ráðherra Jakob Falur Garðarsson fjallar um lyfjaverð Jakob Falur Garðarsson ’Það skýtur þvískökku við að á meðan kostn- aðurinn við rekstur heil- brigðiskerfisins vex almennt hröðum skrefum skuli helst gagn- rýndur sá kostn- aður sem hefur sannarlega lækkað.‘ Höfundur er framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja. Sagt var: Leikmenn beggja liða náðu ekki að skora fleiri mörk. Betur færi: Leikmenn hvorugs liðs náðu að skora . . . Gætum tungunnar ENN og aftur hefur það gerst í Ölfusi að stórar og miklar ákvarðanir sem ráða miklu um framtíðarheill sveitarfélagsins og skipta ein- staklinga miklu máli eru teknar á bak við luktar dyr, án nokk- urrar umræðu og svo rammt kveður að því að jafnvel bæjarstjórnin veit ekki af þessu fyrr en búið er að ganga frá málum. „Sala ekki á dag- skrá“ Á fundi með eldri borgurum rétt fyrir kosningar var bæj- arstjórinn Ólafur Áki Ragnarsson spurður að því hvort til stæði að selja jörðina Hlíðarenda. Svar hans var stutt og laggott, skýrt og einarðlegt: „Slíkt er ekki á dag- skrá.“ Skömmu síðar, eftir kosningar, er búið að ganga frá sölu Hlíðarenda fyrir litlar 100 miljónir og fyrirtækið sem keypti búið að leggja veg og ræsi yfir vatnslindinni og byrjað að bora. Allir sem hafa staðið að verklegum framkvæmdum vita að nokkurn fyr- irvara þarf þegar ráðist er í slík stór- verkefni. „Við skulum hinkra, strák- ar, fram yfir kosningar“ gætu þeir hafa sagt hver við annan mennirnir hjá vatnssölufyrirtækinu og bæj- arstjórinn, ég er nýbúinn að segja að „þetta sé ekki á dagskrá“. Einkaleyfi Sömu daga, fyrir kosningar, var bæjarstjórinn að ganga frá einkaleyfi þessa fyrirtækis á vatnslindum Þor- lákshafnarjarðarinnar. Í uppkasti að þeim samningi sem bæjarstjórinn kom með á fund var gert ráð fyrir því að einkaleyfið næði til Hlíðarenda- jarðarinnar líka. Þessu mótmæltu bæði Hjörleifur Brynjólfsson oddviti og Baldur Kristjánsson prestur. Samningurinn undanskildi því Hlíð- arenda. Þá hefur hugmyndin um að kaupa Hlíðarenda fyrir slikk vaknað. Þegar þeir væru báðir hættir í bæj- arstjórn Baldur og Hjörleifur. Kaupa fyrir slikk Og þeir kaupa Hlíð- arenda fyrir slikk (og halda samt líka vatns- réttindum á allri Þor- lákshafnarjörðinni, eða hvað?). Fyrir 100 millj- ónir sem greiðast eftir fimm ár(!!). Bæjarstjór- inn segir í viðtali við héraðsfréttablaðið Gluggann að hann hafi fengið tvo ráðgjafa til að meta jörðina. Annar hafi nefnt töluna 60 milljónir, hinn 120 millj- ónir „svo við fórum milliveginn“ segir bæjarstjórinn. Með leyfi að spyrja. Hvaða ráðgjafar voru þetta? Hvaða kálfur mat jörðina á sextíu milljónir sem greiðist eftir fimm ár? Sá hefur líklega verið fóðraður á undanrennu! Það var verið að selja jörð í Gríms- nesinu á 235 milljónir? Hlíðarendi er 1544 hektarar. Þetta er risaflæmi á dýrasta parti Íslands. Ótakmarkaðar vatnslindir bæði heitar og kaldar. Eftir fimm ár má leikandi fá milljarð fyrir þetta land. Í dag er enginn vandi að fá 2–300 miljónir fyrir þetta land. Sennilega er hér um að ræða stærstu afglöp í sögu sveitarfélagsins Ölfuss. Glymjandi hlátur kaupendanna Til viðbótar þessu má nefna að bæjarstjóri sagði okkur að gatna- gerðargjöld og önnur gjöld fyrir vatnsverksmiðjuna á Hafnarsandi yrðu 50–75 miljónir króna. Drögum það frá jarðarverðinu og heyrum glymjandi hlátur kaupendanna sem huga vel að hag síns fyrirtækis svo sem eðlilegt er. Okkar hagur hefði verið sá að leigja þeim spildu úr Hlíð- arenda fyrst þeir vildu fara þangað og fá árlegar greiðslur. Krossarnir voru ekki þornaðir á at- kvæðaseðlunum þegar fyrirtækið var búið að leggja ræsi og leggja veg yfir vatnslindina upp í hlíðina og byrjað að bora. Þurfti ekkert mat, þurfti ekki leyfi, þurfti enga athugun? Og hvað gerðist? Greinilega hefur raskið haft áhrif á lindina, vatnsborðið í tjörninni fyrir framan húsið lækkaði við þetta um a.m.k. tíu sentimetra. Þeir hafa m.ö.o. spillt sinni eigin vatnslind. Vatnslind sem við héldum þegar við kusum að myndi tilheyra okkur ásamt allri þeirri nátt- úruparadís sem Hlíðarendajörðin er. Lokaorð Málið er tvíþætt. Annars vegar leyndin sem var yfir málinu. Við vilj- um ekkert reka sveitarfélag þar sem menn þegja fram yfir kosningar og láta ekki uppskátt um fyrirætlanir sínar. Stór og góð mál þola umræðu. Vond mál þola illa dagsljós. Hins veg- ar það að selja þessa náttúruperlu okkar Ölfusinga á spottprís. Ég tel engan vafa á því og allir ráðgjafar mínir eru mér sammála um að jörðin muni margfaldast í verði á næstu fimm árum eins og hún hefur gert á síðustu fimm árum. Hver ætlar að svara fyrir söluna þá? Um sölu jarðarinnar Hlíðarenda í Ölfusi Garðar Karlsson fjallar um sölu jarðarinnar Hlíðarenda í Ölfusi ’Ég tel engan vafa á þvíog allir ráðgjafar mínir eru mér sammála um að jörðin muni margfaldast í verði á næstu fimm árum eins og hún hefur gert á síðustu fimm árum. Hver ætlar að svara fyrir söl- una þá?‘ Garðar Karlsson Höfundur er frístundabóndi og býr í Þorlákshöfn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.