Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 20

Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 20
20 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HÖRÐ átök hafa geisað milli Ísr- aela og Hizbollah-samtakanna í Líbanon frá því á miðvikudaginn í kjölfar þess að tveim ísraelskum hermönnum var rænt. Eins og alltaf fer í átökum sem þessum eru það almennir borgarar sem verða verst úti en heildarmann- fall í ríkjunum tveimur er nú um 170 manns, þar af mun fleiri Líb- anir. Eftir ránið á hermönnunum tveimur krafðist Hizbollah þess að stjórnvöld í Ísrael slepptu úr haldi nokkrum hundruðum fanga sem eru í haldi en Ísraelar hafa hafnað þessum kröfum með þeim orðum að þeir semji ekki við hryðjuverkamenn. Frá því á miðvikudaginn hafa Hizbollah og Ísraelsher skipst á árásum. Leiðtogar beggja aðila, þ.e. Ísrael og Hizbollah, hafa lýst því yfir að átökin muni halda áfram og fara áhyggjur af víðtækari átökum á svæðinu vaxandi. Leiðtogar annarra ríkja hafa lýst því yfir að mikilvægt sé að átökunum linni og samþykktu leiðtogar átta helstu iðnríkja heims yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum sínum af stöðu mála í Mið-Austurlöndum og hvetja aðila til að láta af árás- um. Hizbollah er ein af helstu hreyfingum sjíta í Líbanon en nafnið þýðir „Flokkur Guðs“. Hreyfingin byggist á íslamskri hugmyndafræði Khomeinis erki- klerks, leiðtoga íslömsku bylting- arinnar í Íran og á 14 sæti af 128 á líbanska þinginu. Leiðtogi hreyfingarinnar er Hassan Nas- rallah. RE Íbúi í Beirút horfir yfir svæðið þar sem höfuðstöðvar Hizbollah-samtakanna stóðu en Ísraelar sprengd uðstöðvarnar í árásum sínum. Leiðtogi samtakanna, Hassan Nasrallah, er þó enn á lífi. RE Sjúkraliðar gera að sárum þriggja ára drengs sem slasaðist í loftárás Ísraela á Nabatiyeth í S-Líbanon Yfir 170 manns hafa lá ist á fimm dögum Mariam Shihabiyah, 39 ára einstæð móðir í Beirút, heldur á nokk púðum úr íbúð sinni sem eyðilagðist í loftárásum Ísraela. Skömm að myndin var tekin hófst ný loftárás á svæðinu. HEIMA ER BEST Þær áherslur í öldrunarmálum,sem Siv Friðleifsdóttir heil-brigðisráðherra kynnti fyrir nokkrum dögum sem sínar, hafa verið helstu baráttumál Landssam- bands eldri borgara og ötulla tals- manna þess, um áraraðir. Eldri borgarar hafa barist fyrir því að aukin áhersla yrði lögð á heima- hjúkrun og heimaþjónustu og að á sama tíma væri dregið úr stofn- anavæðingu. Oft hafa talsmenn eldri borgara talað fyrir daufum eyrum eða að minnsta kosti á þann veg að þótt stjórnvöld hafi hlýtt á orð þeirra hefur til þessa verið harla lítið um að baráttumálum eldri borgara hafi verið hrint í framkvæmd. Það er því vel að nýr heilbrigð- isráðherra, Siv Friðleifsdóttir, geri stefnu þeirra sem þjónustunnar eiga að njóta að stefnu ráðuneyt- isins. Með því er að minnsta kosti gefin von um að verkin verði látin tala. Ríkisendurskoðun gerði á liðnu ári stjórnsýsluúttekt um þjónustu við aldraða þar sem m.a. koma fram upplýsingar um fjölda þeirra sem njóta þjónustunnar og umfang hennar á einstökum sviðum. Að mestu leyti miðast þær upplýsingar sem þar koma fram við árið 2003. Meðal þess sem þar kemur fram er að eitt meginmarkmið stjórn- valda, samkvæmt heilbrigðisáætlun til ársins 2010 frá árinu 2001 til að efla og bæta öldrunarþjónustu í landinu felur í sér að fólk sem er í mjög brýnni þörf fyrir vistun á hjúkrunarheimili þurfi ekki að bíða lengur en 90 daga eftir rými. Annað markmið ofangreindrar áætlunar er að yfir 75% fólks 80 ára og eldra sé við svo góða heilsu að það geti með viðeigandi stuðningi búið heima. Ríkisendurskoðun áætlar að árið 2003 hafi um 4.100 manns fengið heimahjúkrun, að meðaltali 1,7 tíma á viku. Af þessum tölum er alveg ljóst að til þess að hverfa frá stofn- anavæðingu og leggja stóraukna áherslu á heimaþjónustu fyrir aldr- aða þarf að koma til aukið fjármagn því þeir sem á annað borð þurfa á heimahjúkrun og heimaþjónustu að halda þurfa á meiri umönnun að halda en sem svarar innan við tveimur klukkustundum á viku. Miðað við áætlanir Ríkisendur- skoðunar um þörfina fyrir ný hjúkr- unarrými má gera ráð fyrir um 750 milljónum króna á ári í bygging- arkostnað, þ.e. 53 ný rými á ári, eða 7,5 milljörðum króna í framkvæmdir á verðlagi dagsins í dag, til næstu 10 ára, og þannig væri búið að fjölga hjúkrunarrýmum um 530. Er verið að fara fram á of mikið? Höfum við ekki efni á því að gera vel við okkar elstu borgara? Höfum við efni á því að gera það ekki? Í þessum efnum má ekki heldur gleyma því hversu miklir fjármunir sparast hjá hinu opinbera við það að þeir sem eru í brýnni þörf séu þegar í stað vistaðir á hjúkrunarheimilum í stað þess að liggja mánuðum og jafnvel misserum saman inni á heil- brigðisstofnunum á meðan beðið er eftir hjúkrunarrými því daggjöld á heilbrigðisstofnunum eru að lág- marki 100% hærri en á hjúkrunar- heimilum og upp í það að vera margfalt hærri þegar um dýrustu sjúkrarúm á heilbrigðisstofnunum er að ræða. Svo virðist sem þróun í heima- hjúkrun á Suðurnesjum geti orðið fyrirmynd á landsvísu. Þar hefur verið gert sérstakt átak í þessum efnum og jókst starfsemi heima- hjúkrunar á milli áranna 2003 og 2004 um 48% og skjólstæðingum heimahjúkrunar fjölgaði um 30%. Þetta kom fram í umfjöllun Sunnu Óskar Logadóttur hér í Morgun- blaðinu, fyrr á þessu ári. Þar kom fram í máli Hildar Helgadóttur, hjúkrunarforstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, að heimahjúkrun byggðist á þeirri hugmyndafræði að það væri hag- kvæmt og mannúðlegt að gera öldr- uðum kleift að dvelja sem lengst heima hjá sér og fá þar bæði heima- þjónustu og heimahjúkrun. Þar kom jafnframt fram í máli Bryndísar Guðbrandsdóttur, deild- arstjóra heimahjúkrunar Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja, að þessi aukna heimaþjónusta hefur leitt til þess að mun færri sækjast eftir plássum á hjúkrunarheimilum en áður og að á liðnu hausti hafi sú staða komið upp að á hjúkrunar- heimilum á Suðurnesjum hafi verið laus níu rými sem enginn hafi viljað. Í sömu umfjöllun var rætt við Sigurð Þór Sigurðsson, lækni á lyf- lækningadeild Heilbrigðisstofnunar- innar. Í máli hans kom fram að efl- ing heimahjúkrunar hjá stofnuninni hafi skipt gríðarlegu máli. Hún hafi gert það mögulegt að útskrifa fólk fyrr en ella. Aðstoð og aðhlynning heima við sé grunnforsenda þess. Legudögum hafi að meðaltali fækk- að úr 7 í 5,5 á milli áranna 2004 og 2005 og fækkunin hafi verið enn meiri en nemur meðaltalinu á lyf- lækningadeild. Er ekki vert að skoða hvort þær aðgerðir sem Heimbrigðisstofnun Suðurnesja hefur ráðist í hvað varð- ar eflingu heimaþjónustu og heima- hjúkrunar, geti orðið að fyrirmynd fyrir landið allt? Reynslan sýnir að þær hafa skilað umtalsverðum árangri og sparnaði, sem ekki ber að vanmeta. En þær hafa jafnframt skilað sér í aukinni ánægju og sátt þeirra sem heima- hjúkrunar og þjónustu njóta því þeim er með þjónustunni gert kleift að vera áfram heima hjá sér. Hvað sem krónum og aurum líður, hlýtur mannlegi þátturinn alltaf að vera mikilvægastur. Fjóla Eiríksdóttir, sem býr í þjónustuíbúðum fyrir aldraða í Keflavík, orðaði það svo í umfjöllun Sunnu Óskar: „Það er alltaf best að vera heima.“ Í augum okkar Íslendinga eru það sjálfsögð mannréttindi, ekki forrétt- indi, að fá að vera heima hjá okkur. Það á við um börn, það á við um ungt fólk, fullorðið fólk og gamalt fólk. Þess vegna ber stjórnvöldum, hvort sem er ríkisvaldi eða sveit- arstjórnum, að taka höndum saman og tryggja að sérhver einstaklingur fái að dvelja heima hjá sér eins lengi og hann kærir sig um og get- ur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.