Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 25
MINNINGAR
✝ Rannveig FriðrikaKristjánsdóttir fædd-
ist í Þjóðólfstungu í Bol-
ungarvík 2. júlí 1921.
Hún lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 10. júlí síð-
astliðinn. Rannveig var
dóttir hjónanna Kristjáns
G. Maríassonar, bátsfor-
manns og bónda, f.10.1.
1880, d. 9. 2. 1939 og
Guðbjargar Lovísu
Magnúsdóttur, f. 21.11.
1884, d. 26.10. 1938 og
var næstyngst í röð níu
systkina. Vegna veikinda
sem ungabarn var Rannveig sett í
fóstur hjá Magnúsi Þórðarsyni
bátsformanni og Sigríði Halldórs-
dóttur og dóttur þeirra Júlíönu en
þau bjuggu á Bolungarvík. Rann-
veig ólst upp hjá því fólki.
Eiginmaður Rannveigar er
Kristján Þorkelsson vélstjóri og
eignuðust þau sex börn, þau eru:
1) Jóhanna Maggý sjúkraliði, f.
25.5. 1941, d. 4.6. 2002, gift Bárði
Halldórssyni bólstrara. Synir
þeirra eru: a) Kristján Viðar
blikksmiður, kvæntur Kristínu
Kristjánsdóttur húsmóður, og
eiga þau börnin Ágúst Viðar, Jó-
hönnu Maggý og Hjalta Snæ. b)
Halldór verktaki, kvæntur Sigríði
Kristinsdóttur hárgreiðslumeist-
ara, og eiga þau börnin Arnar
Inga og Lindu Björk. c) Stefán Þór
flugmaður kvæntur Elínu Björgu
Ásbjörnsdóttur hárgreiðslumeist-
a) Kristján Daði atvinnubílstóri
(faðir hans er Valgeir Daðason),
kona Dagný Eiríksdóttir húsmóðir
og eiga þau börnin Eirík Kristin
og Brynhildi. b) Sigurður atvinnu-
kafari, kona Hildur Bjarney
Torfadóttir nemi, og eiga þau syn-
ina Elvar (móðir hans er Sigríður
Loftsdóttir) og Hafþór Loga. b)
Lilja matráður, maður hennar
Óskar Jónsson verkstjóri og eru
börn þeirra Stefán Ingi og Elva
Rún. 5) Auður leikskólakennari,
gift Roger Olofsson smið. Auður
var áður gift Sigurði Rúnari Jóns-
syni pípulagningameistara og eru
börn þeirra a) Jón Andri trésmíða-
nemi, b) Eydís Helga verslunar-
skólanemi, gift Jesper Skov og eru
börn þeirra Emma Marie og Fre-
derikke Liv, c) Þröstur Bjarmi, d)
Kristín Hlíf og e) Sunna María. 6)
Alfa bókasafnsfræðingur, gift Sig-
mari Þormar félagsfræðingi og
eiga þau börnin Valgeir, Vigdísi
og Aðalstein.
Rannveig ólst upp á Bolungar-
vík og Ísafirði. Hún fór í vinnu til
Siglufjarðar á síldarárunum og
kynntist þar verðandi eiginmanni
sínum Kristjáni. Þau Rannveig og
Kristján bjuggu víða um land
vegna vinnu Kristjáns, en settust
að lokum 1961 að á höfuðborgar-
svæðinu, í Kópavogi og síðar
Garðabæ.
Rannveig verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
ara. 2) Guð-
björg tækni-
teiknari, f. 6.12.
1946, d. 20.2.
2002, gift Grét-
ari Sveinssyni
húsasmiða-
meistara. Börn
þeirra eru: a)
Þórunn kerfis-
fræðingur, gift
Sveini Andra
Sveinssyni við-
skiptafræðingi,
og börn þeirra
eru Halldór
Fannar og Guðbjörg Lilja. b)
Rannveig viðskiptafræðingur,
maður hennar er Vignir Sigur-
sveinsson skipstjóri. Rannveig var
áður gift Sigmundi Jóhannessyni
húsasmiðameistara, og eignuðust
þau dæturnar Björgu og Söru. c)
Sveinn Ómar rekstrarstjóri,
kvæntur Lindu Reimarsdóttur
bankastarfsmanni, sonur Sveins
Ómars og Ásu Jóhönnu Pálsdóttur
er Grétar Snær, sonur Lindu og
Sveins er Jakob Freyr, en Lilja
Rún er stjúpdóttir Sveins Ómars.
3) Kristján pípulagningameistari,
kona Áslaug Gísladóttir. Sonur
Kristjáns og Sesselju Ólafsdóttur
er Pétur byggingartæknifræðing-
ur, kona hans er Eyrún Birna
Jónsdóttir kennaraháskólanemi.
4) Brynhildur hárgreiðslumeist-
ari, gift Stefáni Sigurðssyni mat-
reiðslumeistara. Börn þeirra eru:
Kæra tengdamamma, mig langar
að kveðja þig með nokkrum orðum á
útfarardegi þínum sem þú skynjaðir
vel að var í nánd. Þú sýndir mikinn
kjark og áræðni 2. júlí sl., á 85 ára af-
mælisdegi þínum, að bjóða þínum
nánustu, nokkrum vinum og sam-
ferðarfólki í gegnum tíðina til veislu
eða kveðjustundar eins og þú örugg-
lega hugsaðir það. Þetta var notaleg
og góð stund. Þakka þér. Við erum
búin að vera samferða í rúma 4 ára-
tugi eða hálfa þína ævi.
Mitt lán var að kynnast Hönnu
ykkar 1963 þegar hún var við nám á
Laugalandi í Eyjafirði og ég á Ak-
ureyri. Svo einkennilega vill til að ég
er staddur í sumarbústað á milli
þessara staða núna þegar ég hripa
þessar línur. Nokkrar ferðirnar fór-
um við fjögur saman annað hvort til
útlanda eða innanlands. Tvisvar fór-
um við á Vestfirðina á þínar heima-
slóðir og í annað skiptið á ættarmót
með þínu fólki í Bolungarvík sem tók
á móti okkur konunglega. Í bakaleið-
inni þræddum við alla kirkjugarða á
fjörðunum og við leituðum uppi leiði
forfeðra þinna sem þú hafðir gaman
af að segja okkur frá. Þú varst ekta
Vestfirðingur, þú naust þessara
ferða og við líka.
Svo var það Siglufjörður, Hólm-
urinn og Mývatnssveit sem við heim-
sóttum saman. Í eina sólarlandaferð
fórum við 1992 þegar ég varð fimm-
tugur og tengdapabbi 75 ára. Það
var líka skemmtileg ferð. Ég get
ekki staðar numið án þess að minn-
ast á þitt stóra áhugamál, blóma- og
trjárækt. Alltaf hafa fylgt þér hvar
sem þið hafið búið blómstrandi beð
og pottar, snyrtilega fyrirkomið.
Síðast í fyrravor, þrátt fyrir veikindi
og lélega heilsu, fóruð þið í Blómaval
og keyptuð fullt skott af blómum.
Síðan biðuð þið eftir að einhver
kæmi til að setja þau niður, sem og
var gert.
Við fjölskyldan þökkum þér sam-
fylgdina. Guð veri með þér.
Bárður.
Ég vil rita hér nokkur orð til að
minnast tengdamóður minnar Rann-
veigar Kristjánsdóttur. Þau Krist-
ján og Rannveig bjuggu í Reyni-
hvammi í Kópavogi þegar ég
kynntist þeim um miðjan níunda
áratuginn. Mér koma upp í hugann
hugtökin kraftur, dugnaður og um-
hyggja fyrir fjölskyldunni er ég
hugsa til Rannveigar og aftur til
þessa tíma. Þau hjónin höfðu búið
víða um land áður en þau fluttu í
Kópavoginn. Heimilishald í Reyni-
hvammi var allt með miklum glæsi-
brag, líf og fjör, stór og samstæð
fjölskylda sem hittist oft. Farið var
að síga á seinni hluta starfsævi og
börnin sex uppkomin. En ekki var
setið auðum höndum; endalaus orka
virtist vera til staðar á þessu heimili.
Rannveig naut lífsins meðal fjölda
barnabarna og brátt barnabarna-
barna. Mér er sérstaklega minnis-
stæð frábær eldamennska Rann-
veigar sem bar örlítið erlendan
keim. Rannveig fór ung í vist hjá
dönsku fólki á Ísafirði og kynntist
þar alþjóðlegum straumum sem
settu æ síðan svip á hana.
Rannveig var mikil áhugamann-
eskja um gróður og skógrækt. Ég
átti þetta áhugamál sameiginlegt
með tengdamóður minni og hún var
mér, ungum manninum, endalaus
uppspretta fróðleiks um þetta efni.
Hún var með frábæran garð í Reyni-
hvamminum. Síðan fengu þau hjónin
sér sumarbústað í Grímsnesi þar
sem Rannveig naut þess að rækta
skóg.
Ég vil ljúka þessu með því að
þakka fyrir tuttugu ára kynni af sér-
stakri konu.
Sigmar Þormar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Mig langar til að minnast Rann-
veigar ömmu minnar með nokkrum
orðum. Okkur ömmu greindi á um
ýmsa hluti en við vorum einnig sam-
mála um margt. Við áttum það jafn-
vel til að þræta en það breytti því
ekki að okkur nöfnunum þótti alltaf
jafnvænt um hvor aðra.
Ég minnist óteljandi stunda á
Draghálsinum er amma og afi kíktu
á okkur og áttu þau á tímabili sitt
eigið herbergi þar. Áhugi ömmu á
Draganum og skógræktinni okkar
þar var mikill. Ég minnist þess þeg-
ar þau komu keyrandi frá Reykjavik
á Dragann til að vera viðstödd jarð-
arför hundsins okkar Pollyar, gróð-
ursetningaferðanna og margra
góðra stunda á Miðvanginum og í
Lækjarberginu. Minnist þess hve
amma var sterk þegar á móti blés en
þegar ég missti elskulegan eigin-
mann minn fyrir nokkrum árum og
þegar mamma og Hanna Maggý dóu
með stuttu millibili reis amma upp
og stóð sem klettur við hlið okkar
allra á þeim erfiðu tímum sem varla
eru liðnir þegar hún svo sjálf fer.
Á 85 ára afmæli ömmu hinn 2. júlí
sl. kom stórfjölskyldan saman á
sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði.
Þar áttum við góða stund saman,
amma koma fram í rúminu, spjallaði
aðeins við okkur og hlustaði á Ölfu
og fleiri spila og syngja. Nær öll
barnabörn, tengdabörn og barna-
barnabörn komu til veislunnar.
Amma talaði um hvað þetta væri allt
vel heppnað og gaman. Þetta var allt
ákveðið hjá henni, afmælið notaði
hún til að kveðja, hún vissi að hún
væri að fara.
Elsku amma, ég veit að dætur þín-
ar, elskuleg móðir mín og Hanna
Maggý, hafa tekið á móti þér með
opna arma, það er núna friður yfir
sálu þinni og þér líður vel. Búin að
hitta hetjurnar okkar sem fóru frá
okkur svo allt of snemma. Með þá
vitneskju að baki er auðveldara að
kveðja.
Elsku afi, guð blessi þig og styrki
þig í sorginni.
Rannveig.
Elsku amma Rannveig, ég sit hér
með tárin í augunum og hugsa um
þig, hvað það er sárt að þú sért farin
frá okkur.
Það koma nokkrar góðar minning-
ar upp í hugann. Þegar ég var lítil og
við Ágúst komum með ömmu Hönnu
og afa Bárði upp í sumarbústaðinn
ykkar í Grímsnesi. Við vorum á leið í
tívolíið í Hveragerði en kíktum fyrst
til ykkar.
Þegar við vorum í Munaðarnesi
um afmælishelgi ykkar afa, þegar þú
varðst 81 árs og afi 85, og þið fóruð á
fjórhjól í fyrsta sinn.
Þegar ég var að læra heima hjá
afa Bárði og afi Kristján smakkaði
folaldakjöt í fyrsta sinn og fannst
það meira að segja betra en lamba-
kjötið sem var líka á boðstólum.
Þið afi tókuð alltaf vel á móti okk-
ur þegar við komum í heimsókn í
Boðahlein og þótti mér vænt um það.
Elsku amma, ég á eftir að sakna
þín og ég veit að amma Hanna og
Gugga taki vel á móti þér.
Guð geymi þig.
Hanna litla.
Það tekur tryggðinni í skóvarp
sem tröllum er ekki vætt.
(Örn Arnarson)
Oft er þakkað fyrir minna en vin-
áttu sem varað hefur í hálfa öld og
hálfum tugi betur, vináttu sem aldr-
ei hefur komið brestur í, vináttu sem
hefur verið jafntraust hvort sem
samfundir hafa verið tíðir eða vík
milli vina. Rannveig Kristjánsdóttir,
sem nú hefur axlað sín skinn og
haldið til móts við birtuna sem aldrei
dvínar, var þeirrar gerðar að vinátta
hennar var eins og bjargið sem
hvergi bifast. Slíkar konur voru
fyrrum nefndar drengir góðir. Í ára-
tugi stóð heimili hennar og eigin-
mannsins, snillingsins Kristjáns
Þorkelssonar, okkur opið. Þaðan
eigum við margar góðar minningar.
Rannveig var góð viðræðu, fróð um
menn og málefni, greind og
skemmtileg. Alltaf var jafnnotalegt
að koma til þeirra, hvort sem var í
Stykkishólmi, Kópavogi eða Garða-
bæ. Alltaf vorum við velkomin. Allt-
af var heimilið jafnvistlegt og hlý-
legt. Við minnumst einnig ferða á
björtum sumardögum og skemmti-
legra samverustunda á dimmum
skammdegiskvöldum. Gott er að
orna sér við slíkar minningar.
Rannveig Kristjánsdóttir kom frá
Bolungarvík til Siglufjarðar á þeim
árum þegar margrómað síldarævin-
týri stóð sem hæst. Ung var hún og
glæsileg og hefði Siglfirðingum ver-
ið illa brugðið ef þeir hefðu sent slík-
an kvenkost aftur til heimkynna
sinna. Kristjáni Þorkelssyni auðnað-
ist að ná ástum hennar. Þau giftust
og áttu samleið hálfan sjöunda ára-
tug. Þau eignuðust sex indæl börn
sem síðan hafa aflað þeim fjölda ann-
arra niðja. Heimili þeirra stóð víða
og var alls staðar húsráðendum til
sóma.
Það getur gefið á bátinn þó að
siglingin taki skemmri tíma en sjötíu
ár. Oftast var siglt í blásandi byr en
þó mætti þeim andviðri og erfiðleik-
ar, sumir í raun þyngri en tárum
taki. Þau sáu á bak tveimur dætrum
sínum á besta aldri. Þá kom í ljós af
hvílíkum góðmálmi þau voru gjör.
Þau risu upp eftir áföllin eins og skip
stígur úr djúpum öldudal og héldu
reisn sinni sem löngum fyrr.
Rannveig Kristjánsdóttir var ekki
einungis glæsileg kona heldur gædd
sérstökum gerðarþokka, menning-
arlegri víðsýni og eðlislægri háttvísi.
Orðin, sem skáldið og mannþekkj-
arinn Bjarni Thorarensen mælti eft-
ir aðra Rannveigu, hæfa einnig
þeirri sem nú hefur kvatt:
Kurteisin kom að innan,
sú kurteisin sanna
siðdekri öllu æðri
af öðrum sem lærist.
Vini okkar Kristjáni og ástvinum
hans öllum biðjum við Guðs bless-
unar og minnumst Rannveigar með
djúpri virðingu og þökk fyrir vinátt-
una óbilandi í meira en hálfa öld.
Björg Hansen, Ólafur
Haukur Árnason.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Kæra Rannveig.
40 ár eru liðin síðan við kynntumst
fyrst í Sjálfstæðiskvennafélaginu í
Kópavogi. Það var ansi glatt á hjalla
hjá okkur í sumarferðunum okkar
og á okkar mánaðarlegum fundum.
Ég man þegar þú aðstoðaðir mig í
fararstjórninni, hve létt, skemmtileg
og samvinnuþýð þú varst og með
okkur tókst þessi góða vinátta. Mig
langar til að þakka þér fyrir öll þessi
góðu ár, Rannveig mín, og Guð
blessi minningu þína.
Kristjáni, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum færi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Guðný Berndsen
RANNVEIG FRIÐRIKA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Látin er fyrrver-
andi vinnufélagi okk-
ar, Jenný Magnús-
dóttir ljósmóðir. Árum saman var
hún vökukona á HSS. Á þeim tíma
var hún ungum og óreyndum ljós-
mæðrum til halds og trausts. Börn-
in á barnastofunni voru hennar
uppáhald. Hún naut þess að dúlla
við þau og geta sér til um persónu-
leika þeirra. Hún hafði mikinn
áhuga á stjörnumerkjum og gat
sagt okkur í hvaða merki við vorum
JENNÝ ÞÓRKATLA
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Jenný ÞórkatlaMagnúsdóttir
fæddist í Reykjavík
12. nóvember 1917.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Garðv-
angi í Garði að
morgni 27. júní síð-
astliðinn og var út-
för hennar gerð frá
Ytri-Njarðvíkur-
kirkju 7. júlí.
löngu áður en hún
vissi hvenær við vor-
um fæddar.
Hún var engri lík,
alltaf að punta sig og
snurfusa. Hún var
mjög dugleg að fara á
mannamót og horfð-
um við hinar sem
yngri vorum til henn-
ar og vonuðum að við
yrðum svo lifandi og
áhugasamar á hennar
aldri.
Jenný var einstak-
leg ljúf og elskuleg
kona, glaðlynd og bjartsýn. Hún var
okkur mikill gleðigjafi. Við munum
ætíð minnast hennar sem góðs fé-
laga og vinar. Við sendum ættingj-
um hennar okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guð blessi minningu
Jennýjar Magnúsdóttur.
Samstarfskonur á fæðing-
ardeild Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella
á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minning-
argreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar