Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 31
DAGBÓK
Íboði er úrval námskeiða á vegum SriChinmoy-miðstöðvarinnar. EymundurMatthíasson er einn af forsvarsmönnummiðstöðvarinnar: „Í sumar bjóðum við upp á
námskeið í hugleiðslu og verður næsta námskeið
haldið helgina 28. til 30. júlí. Er kennt frá kl. 8 til 10
föstudag og frá 3 til 5 laugardag og sunnudag,“ seg-
ir Eymundur.
„Á námskeiðunum er leitast við að kynna fyrir
fólki hvað hugleiðsla er og aðferðir til sjálfsræktar.
Nemendum er kennt í víðu samhengi hvað jóga fel-
ur í sér, þ.e. hvers konar leið jóga er til að efla
þroskann og svara ýmsum grundvallarspurningum
einstaklingsins um sjálfan sig.“
Eymundur segir hugleiðslu ekki snúast um
hugsun, heldur sé hugleiðsla dýpra fyrirbæri:
„Hugleiðsla felur í sér að einstaklingurinn kynnist
betur hvað hann er, komist að sínu innsta eðli.
Þetta innsta eðli er af andlegum toga, og þegar við
kynnumst því betur uppgötvum við jafnframt að
hamingjan er sjálfsprottin og samofin þessu innsta
eðli okkar,“ útskýrir Eymundur. „Við erum öll að
leita einhvers í lífinu, hamingju og lífsfyllingar, og
er hugleiðsla ein leiðin að því marki.“
Iðkun hugleiðslu getur einnig gagnast fólki á
pragmatískari máta: „Stór hluti hugleiðslu snýst
um að þjálfa einbeitingu hugans sem um leið krefst
þjálfunar viljans. Nái menn að auka einbeitingu
sína og temja vilja sinn þó ekki sé nema örlítið bet-
ur getur það gert þeim kleift að ná mun meiri af-
köstum í starfi og einkalífi og ganga til verka af
meiri orku,“ segir Eymundur.
Um þessar mundir er hlaupið kyndilhlaup um
landið, alþjóðlegt vináttuhlaup sem hlaupið hefur
verið allar götur síðan 1987. „Innan Sri Chimnoy-
miðstöðvarinnar er maraþonhópur sem tók þátt í
upphafi hlaupsins á dögunum og aðstoðar mið-
stöðin við hlaupið. Næstu vikurnar verður hlaupið
umhverfis landið og munu íþrótta- og ungmenna-
félög um allt land taka þátt í hlaupinu,“ segir Ey-
mundur. „Starfsemi miðstöðvarinnar fer síðan á
fulla ferð í haust en fólk af öllum stigum þjóðfélags-
ins hefur uppgötvað kosti hugleiðslu Sri Chinmoy.“
Sri Chinmoy-miðstöðin byggir starf sitt á kenn-
ingum indverska heimspekingsins og friðarfröm-
uðarins Sri Chinmoy. Hann opnaði sína fyrstu hug-
leiðslumiðstöð árið 1966 en síðan þá hafa Sri
Chinmoy-miðstöðvar verið opnaðar víða um heim;
„Lykiláhersla í kennslu Sri Chinmoy er að hug-
leiðsla er sjálfsprottin og í raun manninum eðlileg.
Hugleiðsla er nokkuð sem allir geta stundað, en
miklu skiptir að fólk finni sér réttan leiðbeinanda.
Þeir sem þykja kenningar Sri Chinmoy höfða til sín
ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum ef þeir byrja
að stunda hugleiðslu.“
Sri Chinmoy-miðstöðin á Íslandi var stofnuð í
janúar 1974 en Sri Chinmoy hefur sótt Íslendinga
heim nokkrum sinnum síðan þá og haldið hér fyrir-
lestra og tónleika. Nánari upplýsingar má finna á
slóðinni http://www.srichinmoycentre.org/is/
Heilsa | Ástundun hugleiðslu getur aukið einbeitingu og vellíðan einstaklingsins
Kynning á hugleiðslu Sri Chinmoy
Eymundur Matthías-
son fæddist í Reykjavík
1961. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA 1980
og BS-gráðu í stærð-
fræði og eðlisfræði frá
Washington & Lee Uni-
versity í Virginíu 1983.
Eymundur stundaði
píanónám í Bretlandi
1983–1986. Á árunum
1986 til 1990 starfaði
Eymundur sem kennari við Menntaskólann í
Reykjavík. Hann var starfsmaður Talnakönn-
unar 1990 til 1996 en hefur síðan verið sjálf-
stætt starfandi. Eymundur starfrækir nú
hljóðfæraverslunina Sangitamya.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3
dxc4 5. e3 a6 6. a4 c5 7. Bxc4 Rc6 8.
O-O Be7 9. De2 cxd4 10. Hd1 O-O
11. Rxd4 Dc7 12. Rxc6 Dxc6 13. e4
b6 14. Be3 Bb7 15. Bd3 Bc5 16.
Hac1 Hfd8 17. b4 Bxb4 18. Rd5
Rxd5 19. Hxc6 Rxe3 20. Hxb6 Rxd1
21. Hxb7 Rc3 22. Df3 Bf8 23. g3
Rxa4 24. e5
Staðan kom upp í atskákeinvígi
búlgarska heimsmeistarans Veselins
Topalovs (2804) og spænska stór-
meistarans Francisco Ponz Vallejo
(2666) í undanúrslitum hins öflugu
skákmóts sem fram fór í Leon á
Spáni í byrjun júní. Spánverjinn var
0-2 undir í einvíginu og í þessari
þriðju skák einvígisins hafði heims-
meistarinn valtað yfir hann en síð-
asti leikur Búlgarans var hins afar
slakur og það nýtti sá spænski sér
til að ná jafntefli. 24... Hxd3! 25.
Dxd3 Rc5 26. Df3 Rxb7 27. Dxb7
Hd8 28. Dxa6 g5! 29. De2 Hd5 stað-
an er nú steindautt jafntefli þar sem
hvítur getur aldrei brotið niður virki
svarts. 30. De3 h6 31. Kg2 Bc5 32.
De2 Bb4 33. h4 Bc3 34. hxg5 hxg5
35. De3 Bxe5 36. Dxg5+ Kf8 37.
De3 Bd4 38. De4 Ke7 39. g4 Bc5 40.
Dc4 Kd6 41. f4 Ke7 42. f5 Bd4 43.
Kf3 Bf6 44. Dc7+ Ke8 45. Dc6+
Ke7 46. Dc7+ Ke8 47. Dc6+ Ke7 48.
Ke4 og jafntefli samið. Topalov vann
einvígið 2 ½- 1½ en tapaði úr-
slitaeinvíginu gegn Anand, hann
fékk einn og hálfan vinning en sá
indverski tvo og hálfan vinning.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
95 ÁRA afmæli. Í dag, 17. júlí, er95 ára Freyja Bjarnadóttir
(Lúlla), fyrrverandi talsímavörður,
Egilsgötu 17, Borgarnesi. Freyja er
að heiman í dag.
Lært að lesa
KYNNI mín og Morgunblaðsins
urðu fyrst í gegnum X-9, sem var
bandarískur lögreglumaður, og í
gegnum þetta starf sitt höfuðpaur í
teiknimyndasögu sem gladdi unga
skoðendur. Svo kom Markús og
leysti X-9 af.
Á þessum árum uppúr 1950 var
komin 8 ára skólaskylda, en eitt
hafði gleymst, það voru reyndir
kennarar. Þeir voru bara ekki til.
Svo að á þessum 8 árum voru bara
tvö ár með kennara sem kunni til
verka og hjá honum lærði ég nógu
mikið til að geta lesið textann með
Markúsi.
Vandræðin í skólanum ollu leiða
og lítið var um lærdóm á þeim vett-
vangi. Þetta virðist ekki hafa valdið
alvarlegum menntunarskorti því út
frá Markúsi var Morgunblaðið lesið
afturábak og áfram því Markús var
aftastur, alltaf byrjað á honum.
Kominn á vinnumarkað 15 ára sá
ég að ágætt væri að fara í Iðnskól-
ann. Þar vaknaði svo mikill áhugi
að ákveðið var að fara í framhalds-
nám til Svíþjóðar. Sænskukunn-
áttan var á núlli. Var á elleftu
stundu leitað hjálpar hjá þýskum
flóttamanni sem kunni ýmislegt.
Hann lét mig lesa Göteborgs Hand-
els- och Sjöfartstidning og sagði
eftir þrjár vikur að nú væri komið
nóg. Svo þegar þú ert kominn
þarna út átt þú að lesa dagblað
daglega, þá mun þetta bjargast.
Þeir eiga ekki að kasta grjóti sem
búa í glerhúsi. Nú er Morgunblaðið
flutt í glerhús, þetta glerhús hefir
þann kost að búið er að brjóta gler-
ið og breyta í utanhússklæðningu.
Skólastjóri útvarpsskóla BBC sagði
í skólaslitaræðu að það skipti engu
hvað fólk væri aumt eða fátækt, all-
ir vildu auka þekkingu sína. Ef
Morgunblaðið stofnaði menningar-
síðu með hæfilega krassandi ljós-
bláu efni yrðu ýmsir lesblindir ung-
lingar alsjáandi og keyptu
æviáskrift.
Gestur Gunnarsson.
Hvar er ríkisendurskoðun?
VIÐ erum mörg, sem furðum okk-
ur á hvernig starfsmenn hjá opin-
berum stofnunum geta dregið sér
fé, sem nemur tugum og jafnvel
hundruðum milljóna án þess að
neinn verði þess var og það jafnvel
árum saman.
Fyrir skömmu var það hjá
Tryggingastofnun ríksins og það
komst upp vegna vökuls auga ný-
ráðins starfsmanns, sem grunaði að
eitthvað hefði farið úrskeiðis.
Enn er öllum í fersku minni
Landssímamálið. Hvað verður
næst? Enginn virðist ábyrgur en
þetta er almannafé sem hægt hefði
verið að nýta til þarfari verkefna.
Soffía.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-1100 eða
sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Sterkar drottningar.
Norður
♠ÁD4
♥ÁG842 A/AV
♦G82
♣76
Suður
♠873
♥KD1093
♦Á
♣D832
Suður spilar fjögur hjörtu eftir opn-
un austurs á „multi“ tveimur tíglum:
Vestur Norður Austur Suður
– – 2 tíglar * 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
* Veikir tveir í hálit.
Útspil vesturs er spaðatía, sem er
greinilega ein á ferð.
Er einhver vinningsvon?
Svo er að sjá sem vörnin hljóti að fá
fjóra slagi á svörtu litina. Austur á
örugglega ekki ÁK í laufi (þá hefði
hann opnað á einum spaða), og vestur á
tæplega ÁKx (þá hefði hann komið þar
út). Svo það virðist langsótt að skapa
slag á laufdrottningu.
Eða hvað? Segjum að laufið sé 5-2.
Norður
♠ÁD4
♥ÁG842
♦G82
♣76
Vestur Austur
♠10 ♠KG9652
♥75 ♥6
♦K10763 ♦D954
♣ÁG954 ♣K10
Suður
♠873
♥KD1093
♦Á
♣D832
Sagnhafi drepur á spaðaás, af-
trompar mótherjana og hreinsar upp
tígulinn í leiðinni. Spilar svo litlu laufi
(jafnvel að heiman).
Við þessu á vörnin ekkert svar. Ekki
má austur taka á spaðakóng, og ef
vörnin tekur annan laufslag og spilar
laufi í þriðja sinn, hendir sagnhafi
spaða úr borði. Með öðrum orðum:
önnur svarta drottningin verður alltaf
að slag.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Þau Alex, Kjartan, Ursula og Guðrún söfnuðu kr. 10.205 til styrktar
Rauða krossi Íslands, fyrir börn í Sri Lanka.
Morgunblaðið/Sverrir
JÓNÍNA Magnúsdóttir, Ninný, opn-
aði myndlistarsýninguna „Í góðu
formi“ á Thorvaldsen bar í Austur-
stræti 8, Reykjavík.
Á sýningunni sýnir Ninný af-
strakt málverk, þar sem hún leikur
sér með form og liti. Sýningin mun
standa til 11. ágúst.
Ninný er fædd í Reykjavík árið
1955. Hún útskrifaðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands 1978.
Auk þess sótti hún tíma hjá Hring
Jóhannessyni í málun í Myndlista-
skóla Reykjavíkur. Á árunum 1983-
1987 stundaði hún nám hjá dönsku
listakonunni Elly Hoffmann og
sumarið 2004 var hún í málun í
Accademia Del Giglio, Florenz á
Ítalíu.
Þetta er 11. einkasýning lista-
konunnar. Auk þess hefur hún tek-
ið þátt í nokkrum samsýningum á
Íslandi og erlendis. Árið 2000 var
hún valin bæjarlistamaður Garða-
bæjar.
Ninný sýnir á
Thorvaldsen bar
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið