Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 32

Morgunblaðið - 17.07.2006, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Himintunglin verða vitni að því að hrúturinn undirbýr sig til þess að koma í veg fyrir óheppilegar uppákomur. Vertu með svörin við algengum spurningum á reiðum höndum og þá er allt klárt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vertu úti. Upplifðu hreina loftið. Of mikið af tilbúnu umhverfi dregur úr þér mátt. Í kvöld hjálpar unga fólkið þér við það að sjá þig í réttu ljósi. Þú ert virkilega flott týpa, ef þú skyldir ekki vita það. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn er svona álíka upplagður og steinn í augnablikinu og myndi gjarnan vilja læra eitthvað vanmetið, eins og til dæmis hvernig maður getur komist hjá því að vinna. Það er ekki vegna leti, held- ur þreytu. Taktu þér pásu og ekki refsa sjálfum þér fyrir. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Innihaldsríkt einkalíf kemur krabbanum í langþráð jafnvægi. Kannski tekst hon- um meira að segja að gleyma öllum áhyggjum sínum. Í kvöld áttu að segja það sem fær aðra til þess að opna sig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sérhvert augnablik dagsins þarf ekki að vera skipulagt. Frelsaðu andann með því að ákveða að gera alls ekki neitt. Vel að merkja, ótilgreindur kassi eða taska er enn óopnuð. Með því að ganga frá hlut- unum gerir þú tilkall til persónulegs rýmis. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hitinn kraumar undir niðri í vinnunni og sem betur fer er meyjan sjóðheit líka um þessar mundir. Skrifaðu bestu hugmynd- irnar þínar niður og farðu eftir þeim. Lífsgleðin gerir vart við sig á ný og það fer ekki framhjá neinum. Einhleypir vekja á sér alls kyns athygli. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin áttar sig á því hvernig ólíkir per- sónuleikar bæta hver annan upp. Nýttu þér þennan hæfileika núna. Þú færð tækifæri til þess að setja saman nokkurs konar draumalið. Vatnsmerki eru einmitt það sem þig vantar; fiskur, krabbi eða sporðdreki. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ástarsamband sem áður var nokkuð stormasamt upplifir yndislega blíðu í kvöld. Með smávegis sköpunarmætti tekst þér jafnvel að láta þægilegan túr treysta böndin. Heppnin er með þér í leikjum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Saga bogmannsins má alveg við smáveg- is umskrifun. Ný nálgun á fortíðina gæti hjálpað þér við að ná betri tökum á nútíð- inni. Og þú ert ekkert að ljúga. Allt snýst um að finna viðeigandi ramma. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Dagurinn í dag gengur út á peninga og hvernig þú átt að fara að því að afla þeirra með glænýjum hætti. Innlegg frá maka reynist vera hrein snilld. Ný hug- mynd gæti annaðhvort aflað eða sparað peninga, hvort tveggja er upplagt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Allt sem þú þarft að framkvæma er allt sem þú lofaðir. Ef þú lofar aðeins minna verður morgundagurinn léttari. Ef þú treystir þér ekki til þess að segja „nei“ skaltu að minnsta kosti prófa að segja „kannski“ í staðinn fyrir „ég er til“ næst. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sinntu vinnu þinni í friði – aðrir eiga bara eftir að gera minna úr framsýni þinni. Skynsamleg peningastefna opnar þér ýmsar dyr. Orkan verður meiri ef þú skil- ur þig frá vandamálum sem ekki er í þín- um verkahring að leysa. Stjörnuspá Holiday Mathis Ef líkja má hreyfingum tunglsins við þægilegt sumarbíó er viðkoma þess í hrúti á við hlé í miðju kafi til þess að dansa – óundirbúin orkulosun. Stundum virðist það gerast án hvatningar en áhorfendurnir spila með samt sem áður því það er bæði bjánalegt og gaman að sprikla með. Hreyfðu líkamann án þess að spá í hvað öðrum finnst. Fylgdu duttlungum þínum. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Myndlist 101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir til 22. júlí. Aurum | Helena Ragnarsdóttir sýnir ónefnt akrýlverk unnið á pappír. Opið mán–fös. kl. 10–18 og lau. kl. 11–16. Til 21. júlí. Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni myndlistarmanni) er þriðja sýningin í röð- inni af stjörnumerkjaportrettum unnin sem innsetning í rými. Til 4. ágúst. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Reynomatic myndir, nærmyndir af nátt- úrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Út júlímánuð. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rýmisverk til 26.ágúst eða fram yfir menningarvöku. Opið virka daga og laugardaga kl. 14–18 í sumar. Gallerí BOX | Þórarinn Blöndal, Finnur Arnar og Jón Garðar með sýninguna „Farangur“. Á sýningunni getur að líta hugleiðingar um drauma, galdra, harðvið- argólf, eldhúsgólf og ástarævintýri. Til 27. júlí. Gallerí Humar eða frægð! | Sýning um diskó og pönk í samstarfi við Árbæjar- safn. Myndir og munir frá árunum 1975– 1985. Til 31. júlí. Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjar- val og með henni beinir Hafnarborg sjón- um að hrauninu í Hafnarfirði. Listamenn- irnir tólf sem að sýningunni koma hafa allir sýnt víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins undanfarin ár. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búa- dóttir sýnir í forkirkju. Til 26. ágúst. Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur listiðnaður og nútímahönnun úr fjöl- breyttu hráefni eftir 37 aðila. Á sýning- unni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýningin stendur til 27. ágúst. Aðgangur er ókeypis. Hrafnista Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menn- ingarsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýn- ingunni er einstakt úrval næfistaverka. Til 31. júlí. Jónas Viðar Gallerí | Snorri Ásmunds- son sýnir hjá Jónas Viðar gallerí á Kaup- vangsstræti 12, Akureyri. Snorri hefur komið víða við í listsköpun sinni og á að baki sérkennilegan feril sem listamaður. Til 30. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berja- landi, Kjós með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Louisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýning sem haldin hefur verið á verkum Louisu og rekur allan hennar listamanns- feril í sex áratugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri landslagslist frá upphafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí. Kaffitár í kaffistofu. Ókeypis aðgang- ur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánu- daga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfir- litssýning á verkum Guðmundar Einars- sonar frá Miðdal. Í samvinnu við Náttúru- fræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð og kaffistofa Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára afmæli bankans. Til 30. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíð- um hlutum í skúlptúra og innsetningar. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ás- mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti listamaðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna úthlutunar listaverkaverðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtím- ans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verkanna. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað á mánudögum. Safnið og kaffistofan opin alla aðra daga yfir sumarið kl. 14–17. Sýn- ing á völdum skúlptúrum og portrettum Sigurjóns Ólafssonar. Tónleikar á þriðju- dagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmynd- ir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12–17. Óðinshús | Dagrún Matthíasdóttir og Guðrún Vaka með sýningu til 30. júlí. Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Málverkasýning Sesselju Tómasdóttur myndlistarmanns til 17. júlí. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. Sýningin er opin mið–fös kl. 14–18 og lau–sun kl. 14–17. Aðgangur er ókeypis. www.safn.is Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson með sýninguna Tákn og leikur í Listsýn- ingasal til 6. ágúst. Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Krist- jáns Guðmundsonar í Skaftfelli. Sýningin er opin daglega frá kl 14–21 í sumar. Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir, Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu formi til 11. ágúst. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra forréttinda að nema myndlist er- lendis á síðustu áratugum 19. aldar og upp úr aldamótum. Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sumarið 1938. Af myndum ferðalanganna má sjá hve ljósmyndin getur verið per- sónulegt og margrætt tjáningarform. Söfn Árbæjarsafn | Á Árbæjarsafni hefur ver- ið opnuð sýningin Húsagerð höfuðstaðar, saga byggingatækninnar í Reykjavík frá 1840–1940. Mánudaginn 24. júlí sýnir Brúðubíllinn á Árbæjarsafni. Sýningin er kl. 14 og að- Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 snjóþyngsli, 8 hæfni, 9 svera, 10 tala, 11 seint, 13 illa, 15 hrakn- inga, 18 svínakjöt, 21 eldiviður, 22 guðs- þjónusta, 23 heiðarleg, 24 fyrirferðarmikil. Lóðrétt | 2 ákveð, 3 hafna, 4 bál, 5 hlýði, 6 eldstæðis, 7 skjóla, 12 hlemmur, 14 bók- stafur, 15 skyggnast til veðurs, 16 slóu, 17 álögu, 18 víðátta, 19 styrkti, 20 lítið skip. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 svima, 4 bógur, 7 eljan, 8 ræðum, 9 auð, 11 læna, 13 hrum, 14 fenna, 15 stól, 17 kúpt, 20 emm, 22 nagli, 23 umbun, 24 Agnes, 25 nóana. Lóðrétt: 1 skell, 2 iðjan, 3 agna, 4 borð, 5 góður, 6 rímum, 10 unnum, 12 afl, 13 hak, 15 sunna, 16 ólgan, 18 útbía, 19 tunga, 20 eims, 21 munn. 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.