Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins! Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...? ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA- FYLLSTA OG SKEMMTI- LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON The Benchwarmers kl. 6 og 8 B.i. 10 ára Bandidas kl. 6 og 8 B.i. 10 ára FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10 B.i. 12.ára. Click kl. 10 B.i. 10 ára Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20 The Benchwarmers kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Click LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára RV kl. 3.50 Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 3.50 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3.50 Sprenghlægileg grínmynd með Íslandsvini- num Rob Schneider úr Deuce Bigalow og John Heder úr Napoleon Dynamite! Frá leikst jóra Big Daddy og Happy Gilmore kemur sumarsmellurinn í ár! MENNINGARLÍF Seyðisfjarðar verður með endemum líflegt næstu vikuna en þá stendur yfir í bænum Listahátíð ungs fólks á Austurlandi: L.UNG.A. Aðalheiður Borgþórsdóttir er framkvæmdastjóri hátíð- arinnar: „Markmið hátíðarinnar hefur frá upphafi verið að efla áhuga ungmenna á menningu og listum,“ segir Aðalheiður en hátíðin er nú haldin í sjöunda sinn. „Þátttakendur koma að þessu sinni hvaðanæva úr heiminum og taka þátt í fjölbreyttum listasmiðjum sem haldnar eru alla daga vikunnar.“ Aðalheiður segir þátttakendur leggja hart að sér á lista- smiðjunum: unnið er hvern dag frá 9 á morgnana til 5 á kvöldin og listviðburðir öll kvöld sem ungmennin standa að. Meðal þess sem boðið er upp á er fatahönnunarsmiðja undir leiðsögn Rí- keyjar Kristjánsdottur, hljóðsmiðja undir leiðsögn Curvers Thoroddsen og leiklistarsmiðja þar sem leiðbeinandi er Vík- ingur Kristjánsson og sirkussmiðja undir leiðsögn liðsmanna Cirkus Circör. „Þátttakendur læra undirstöðuatriði í ýmsum listgreinum og búa síðan til lokasýningu sem sýnd verður á laugardag. Unnið er út frá þema götumenningar en að öðru leyti hafa þátttak- endur frjálsar hendur og öll dagskrá spuni frá upphafi til enda,“ segir Aðalheiður. Aðalsýning listasmiðjanna hefst kl. 1 á laugardag í félags- heimilinu Herðubreið. „Að því loknu verður haldin svaka tón- listarveisla þar sem fram koma margar af bestu hljómsveitum landsins, eins og Fræ, Ampop, Ghostigital, Jeff Who? og Biggi Orchestra,“ segir Aðalheiður. Á föstudeginum verða einnig haldnir tónleikar og koma þá til leiks margar efnilegustu hljómsveitir Norður- og Austurlands. Aðalheiður er eini „fullorðni“ einstaklingurinn sem kemur nærri skipulagningu hátíðarinnar: „Í framkvæmdaráði hátíð- arinnar er fólk á aldrinum 16 til 25 ára og er listræn stjórnun al- farið í þeirra höndum. Þannig ákveða þau hvaða smiðjur eru í boði og hvaða listamenn eru fengnir til hátíðarinnar.“ Aðalheiður segir erfitt að lýsa þeirri hátíðarstemmningu sem myndast á Seyðisfirði á meðan L.UNG.A stendur yfir: „Hér er á ferðinni sumarbúða-karnival-rokk-lista-útíhátíðar stemmning sem ekki er hægt að útskýra heldur verður að upplifa.“ Hátíð | L.UNG.A á Seyðisfirði dagana 17. til 23. júlí „Sumarbúða-karnival-rokk- lista-útihátíðar stemmning“ Fjöldi fólks sækir Seyðisfjörð heim í tilefni listahátíðarinnar: frá setningarathöfn L.UNG.A í fyrra. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Listahatíð ungs fólks á Austurlandi er á Seyðisfirði frá 17. til 23. júlí. Nánari upplýsingar um dagskrá eru á www.lunga.is AUSTURRÍSKI listahópurinn Gelitin opnaði sýningu og hélt gjörning í gallerí Kling og Bang á Laugaveginum á laugardag. Héldu listamennirnir fjórir; þeir Florian Reiter, Wolfgang Gantner, Ali Janka og Tobias Urban, niður Laugaveg á hestbaki og riðu prúðbúnir alla leið að galleríinu þar sem tók á móti þeim hópur fólks. Auk þess að bjóða gestum upp á léttar veitingar buðu listamennirnir upp á listrænan gjörning sem vakti misjöfn viðbrögð áhorfenda. Þótti sumum gestum á opnun sýningarinnar listahópurinn orðinn full-léttklæddur meðan á gjörningnum stóð. Listamennirnir létu sér standa á sama, og stóðu undir nafni sem umdeildur meðlimur listaflórunnar. Sýningin stendur til 13. ágúst. Reisn austurrískrar nú- tímalistar á Laugavegi Morgunblaðið/Eggert Fjöldi fólks tók á móti listamönn- unum og virti fyrir sér sýninguna. Sumir létu sig jafnvel hafa það að fylgjast með gjörningnum. Það var frítt föruneyti sem hélt af stað á hestbaki frá Hlemmtorgi. Þessi unga snót gekk milli gesta og tók við þá viðtal með banana. Listir | Gelitin listahópurinn opnar sýninguna Hugris í Kling og Bang og fremur gjörning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.