Morgunblaðið - 17.07.2006, Page 35

Morgunblaðið - 17.07.2006, Page 35
Bill Miller, sem var undirleikariFranks Sinatra í röska fjóra áratugi lést á þriðjudag 91 ára. Samstarf þeira Millers og Sinatra hófst árið 1941 og átti Miller hlut í lögum eins og „My Way “og „Stran- gers in the Night“. Miller hafði síð- ustu átta ár starfað með Frank Si- natra yngri, en hann mun meðal annars hafa kallað Miller „besta pínóundirleikara fyrr og síðar.“ MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 35 400 KR. Í BÍÓ * * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Sími - 551 9000 ROBIN WILLIAMS -bara lúxus Sýnd kl. 6, 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára K R A F T M E S TA HASARMYND ÁRSINS Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 B.i. 12 ára Sýnd kl. 4 ÍSL. TALSýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...? -bara lúxus Salma hayekpénelope cruz Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20 The Benchwarmers kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Yfir 51.000 gestir! eee L.I.B.Topp5.is Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins! Fólk folk@mbl.is Fótboltakempan Ashley Colemun kvænast poppsönkonunni Cheryl Tweedy á laugardag. Tekist hefur að halda brúðkaupsstaðnum leyndum fyrir bresku pressunni en getgátur eru uppi um að athöfnin fari fram í Highclare-kastala í Berkshire, sama stað og glamúrfyr- irsætan Jordan og söngvarinn Peter Andre giftust fyrir ári.    „ÉG ÞAKKA þetta fyrst og fremst mikilli vinnu hjá stelpunum og öll- um þeim sem eru í þessu með okk- ur,“ sagði Einar Bárðarson, þegar blaðamaður náði af honum tali á sunnudag, um árangur hljómsveit- arinnar Nylon. Smáskífa hljóm- sveitarinnar „Losing a Friend“ er í 29. sæti breska smáskífulistans. „Við höfum ekki fengið mikla út- varpsspilun en stelpurnar hafa far- ið þrjá hringi um Bretland og hald- ið tónleika: fyrst á eigin vegum í grunn- og framhaldsskólum en síð- ar með Vestlife og Girls Aloud. Vinsældir hljómsveitarinnar eru því að miklu leyti til komnar vegna kynna Breta af Nylon augliti til auglitis,“ segir Einar en bætir við að tónlistarsjónvarpsstöðvar Bret- lands hafi gert hljómsveitinni betri skil en útvarpsstöðvarnar: „Lagið „Losing a friend“ er núna í fjórða sæti vinsældalista sjónvarpsstöðv- arinnar The Box sem er önnur stærsta tónlistarstöð Bretlands. Sjónvarpsstöðin er ekki ósvipuð PoppTíví á Íslandi og stöð sem flestir landsmenn hafa aðgang að. Það væri gaman að ná inn á MTV en það er meira ímyndarmál og áfangi sem stúlkurnar ná örugg- lega fyrr en síðar.“ Einar segir árangurinn afrakstur eins og hálfs árs undirbúnings- starfs. „Við höfðum gert okkur vonir um að vera í topp-40 sem margir töldu bjartsýni þar sem lag- ið hefur fengið svo litla útvarps- spilun. Við erum því að vonum ánægð að ná 29. sæti.“ Sölutölurnar miða bæði við sölu í verslunum og sölu gegnum nið- urhal, en ef aðeins er talin sala í verslunum er smáskífan í 14. sæti. Að sögn Einars hefur smáskífan að mestu selst upp í miðborg Lundúna: „Margar verslanir voru tregar að kaupa plötuna vegna vöntunar á útvarpsspilun, og var jafnt upplag sent á flestar búðir. Það var víða uppselt um hádegisbil en heildarupplag var 15.000 eintök og má áætla að nú hafi um helm- ingur selst,“ segir Einar og bætir við að það sé álíka mikið og heild- arsala fyrstu plötu Nylon á Íslandi. Hljómsveitin er um þessar mundir að skemmta á tónlist- arhátíð í Guernsey og fá stúlkurnar eftir það stutt frí á meðan lögð eru drög að starfsemi hljómsveit- arinnar fyrir seinni hluta ársins. Í haust mun hljómsveitin senda frá sér aðra smáskífu og er undirbún- ingur fyrstu breiðskífu Nylon á lokastigi, að sögn Einars. Standa nú yfir viðræður um tónleikaferð með strákabandinu McFly sem nýtur mikilla vinsælda í Bretlandi um þessar mundir. Þess má einnig geta að Nylon kemur við sögu í heimildarmynd sem sýnd verður á BBC1 í ágúst- lok þar sem fjallað er um stúlkna- hljómsveitir allt frá tímum Supre- mes til okkar daga. Tónlist | Ný smáskífa hljómsveitarinnar Nylon í 29. sæti breska smáskífulistans Seldist upp í sumum verslunum Morgunblaðið/ÞÖK Stelpurnar í Nylon eru að gera það gott í Bretlandi. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is MARGT var um manninn á opnun sýningarinnar Eiland í Gróttu á laugardag. Að sýningunni standa fimm listamenn sem lagt hafa undir sig byggingarnar á eyjunni smáu auk þess að sýna útilistaverk. Listamennirnir eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ragnar Kjartansson, Hrafnkell Sig- urðsson, Haraldur Jónsson og Friðrik Örn Hjaltested. Alls er sýnt í tólf rýmum og beita listamennirnir fjöl- breyttri tækni við verk sín, sýna t.d. ljósmyndir, teikn- ingar, myndbandsverk og innsetningar. Opið er samkvæmt flóða- töflu en sýningin er opin sex tíma í senn, ýmist fyrri hluta dags eða seinni hluta, allt eftir ferðum tunglsins. Á vefsíðunni www.Eiland.is má finna nákvæmari upplýs- ingar um hvenær opið er og frekari upplýsingar um sýn- inguna. Myndlist | Fimm listamenn halda sýninguna Eiland Galsi á Gróttu Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir meðal annars vídeoverk í Gróttu og ræðir hér við Magnús Jensson. Morgunblaðið/Eggert Haraldur Jónsson og Þorsteinn Geirharðsson virða fyrir sér skel úr sýningu Harlads. Elísabet Þórunn Guðnadóttir og Tinna Sigrún Pétursdóttir standa álengdar. Listamennirnir sýna verk sín bæði innandyra og utan. Friðrik Örn Hjaltested og Sólveig Pálsdóttir formaður menningarnefndar Seltjarnarnes voru glöð í bragði fyrir framan verk Friðriks. Kanadíska poppstjarnan AvrilLavigne gekk að eiga tónlist- armanninn Deryck Whibley á laug- ardag að sögn tímaritsins People magazine. Giftingin fór fram í Kali- forníu og var athöfnin að mestu hefðbundin. Klæddist brúðurin kjól frá Veru Wang og hélt á blómvendi úr hvítum rósum. Lavigne og Whi- bley byrjuðu fyrst að rugla saman reytum árið 2004 og trúlofuðu sig í Feneyjum árið 2005.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.