Morgunblaðið - 19.10.2006, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, frétta-
stjóri, bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110
Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll
Íslands í gær námu 23,2 milljörðum
króna. Þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 2,2 milljarða.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5%
og er 6.472 stig. Mest viðskipti voru
með hlutabréf Glitnis, eða fyrir 440
milljónir og hækkaði gengi þeirra
um 0,9%. Mest hækkun varð hins
vegar á bréfum Atlantic Petroleum,
eða 1,9% og þá hækkuðu bréf Avion
Group um 1,6%. Mest lækkun varð
á bréfum Alfesca, 1,5%, og Ice-
landic Group, 1,2%.
Úrvalsvísitalan í
Kauphöllinni
lækkar um 0,5%
Íslensku við-
skiptabankarnir
eru með stóran
jákvæðan verð-
trygging-
arjöfnuð; Lands-
bankinn með um
135 milljarða en
Glitnir og Kaup-
þing hvor með um 115 milljarða. Í
Vegvísi Landsbankans segir að
þessi ójöfnuður hafi skilað bönk-
unum talsverðum tekjum í ár en að
á næsta ári verði væntanlega breyt-
ing á því.
„Útreikningar okkar benda til
þess að sá viðsnúningur gæti að
óbreyttu numið allt að 30 millj-
örðum króna, þ.e. að samanlagðar
hreinar vaxtatekjur bankanna
drægjust saman um 30 milljarða á
milli ára,“ segja greinendur Lands-
bankans.
Spá miklum
viðsnúningi
MIKIL viðskipti hafa verið á
skuldabréfamarkaði undanfarna
viku og hefur ávöxtunarkrafa verð-
tryggðra skuldabréfa hækkað mik-
ið og verð þeirra lækkað.
Í Vegvísi Landsbankans segir að
ljóst sé að bankarnir muni allir
verða fyrir nokkru gengistapi af
skuldabréfastöðum sínum á fjórða
ársfjórðungi. Það hvort bönkunum
takist að minnka verðtryggða stöðu
sína, og þar með hinn jákvæða
verðtryggingajöfnuð, ráði að sjálf-
sögðu miklu um lokaniðurstöðu
þessa árs og næsta.
Gengistap af
skuldabréfum
ANZA hf. dótturfyrirtæki Símans hf. hefur
keypt þann hluta af starfsemi TietoEnator sem
veitir aðilum tengdum opinbera geiranum í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð þjónustu á sviði upplýs-
ingatækni. Samfara því hefur verið stofnað fyr-
irtækið Sirius IT, nýtt norrænt
upplýsingatæknifyrirtæki sem yfirtekur þessa
starfsemi. Hjá fyrirtækinu munu starfa um 420
manns og er velta á þessu ári er áætluð um 5,4
milljarðar króna.
Keypt er starfandi fyrirtæki í Svíþjóð og stofn-
uð eru tvö ný rekstrarfélög um starfsemina í Dan-
mörku og Noregi. ANZA mun eiga félögin í gegn-
um dótturfélag sitt í Danmörku Sirius IT Holding
A/S. Lykilstjórnendur félagsins halda allir áfram
störfum og munu eiga um 10% hlutafjár. Kaup-
verðið á þessum rekstri er samtals 200 milljónir
danskar, 2,3 milljarða króna
Með kaupunum verður ANZA eitt stærsta upp-
lýsingatæknifyrirtæki landsins með starfsemi í
fjórum löndum, Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og
Noregi. Starfsmenn verða yfir 500 og velta ANZA
samstæðunnar á næsta ári er áætluð hátt í 7 millj-
arðar kr.
Hreinn Jakobsson, framkvæmdastjóri Anza,
segir kaupin nú hluta af þeirri stefnu Símans að
vaxa í upplýsingatækni og hafi fyrirtækið horft á
Skandínavíu sem spennandi markað. „Með kaup-
unum nú höfum við tekið stórt skref inn á þennan
markað. Möguleikarnir sem við sjáum eru m.a. að
með kaupunum fáum við aðgang að ýmsum vörum
og þekkingju sem hægt væri að bjóða hér á landi
auk þess sem við hjá Anza búum yfir þekkingu
sem við teljum spennandi að koma á framfæri er-
lendis. Þjónusta við opinbera aðila er mjög samleit
á Norðurlöndunum sem þýðir að lausnir sem not-
aðar eru í einu landi er hægt að samnýta í öðru –
það þarf ekki að finna upp hjólið aftur og aftur,“
segir Hreinn.
Þjónusta við opinbera aðila
Í fréttatilkynningu segir að reksturinn byggist
fyrst og fremst á þróun og viðhaldi hugbúnaðar-
kerfa, ráðgjöf, innleiðingu staðlaðra hugbúnaðar-
lausna og þjónustu á þessu sviði. Fyrirtækið eign-
ast jafnframt með kaupunum vörur og
hugbúnaðarlausnir sem eru í notkun á Norður-
löndum og víðar.
Þessar lausnir eru m.a. sérhæfð þjónustukerfi,
skjalavistunarkerfi og eftirlitskerfi.
Meðal viðskiptavina eru margar opinberar
stofnanir á Norðurlöndunum, þjónustustofnanir,
vinnumálastofnanir, skattyfirvöld, eftirlitsstofn-
anir, lífeyrissjóðir, sveitarfélög og einkafyrirtæki.
Anza kaupir opinbera þjónustu
TietoEnator á Norðurlöndum
Morgunblaðið/ÞÖK
Starfsemi ANZA býður upp á hefðbundinn
rekstur tölvukerfa auk sérhæfðari þjónustu.
Í HNOTSKURN
» Anza var stofnað árið 1997 og er Sím-inn aðaleigandi þess.
» TietoEnator er eitt stærsta upplýs-ingatæknifyrirtæki Norðurlandanna
með 15.000 starfsmenn og veltu upp á um
1,7 milljarða evra.
Í gær tilkynnti Eurofima um útgáfu 3 milljarða króna svokallaðra jökla-
bréfa sem eru skuldabréf í íslenskum krónum. Bréfin eru með 10% vöxtum
og á lokagjalddaga í nóvember 2008. Eurofima er nýr útgefandi jöklabréfa
en þetta er banki í eigu evrópskra járnbrautarfélaga og er með höf-
uðstöðvar í Sviss. Krónan styrktist um 0,7% fyrri hluta gærdagsins, en
styrkingin gekk að nokkru til baka. Lokagildi vísitölunnar var 117,9 og
krónan því 0,4% sterkari en við lokun í fyrradag.
Morgunblaðið/ÞÖK
Nýr útgefandi jöklabréfa
ÍSLENSKT efnahagslíf er að ná
sér eftir að hafa ofhitnað, en það olli
óróa meðal fjárfesta og leiddi til þess
að gengi krónunnar féll um þriðjung
á fyrri helmingi þessa árs. Þetta
sagði Árni M. Mathiesen, fjármála-
ráðherra, í viðtali við Bloomberg
fréttastofuna í gær.
Sagði Árni að útlitið í efnahags-
málunum hér á landi væri mun betra
nú en það var. Bankarnir væru í
betri stöðu nú en þeir voru í fyrir
febrúar og að ríkisstjórnin væri hóf-
lega bjartsýn fyrir komandi ár.
Stóru bankarnir þrír, þ.e. Glitnir,
Kaupþing banki og Landsbankinn,
hefðu ekki átt í neinum alvarlegum
vandræðum með endurfjármögnun
fyrir næsta ár.
Aðrar leiðir ekki betri
Árni sagði í viðtalinu á Bloomberg að
þau skyndilegu áhrif sem lækkun á
lánshæfismati íslenska ríkisins hjá
alþjóða matsfyrirtækinu Fitch Rat-
ings hefði haft á krónuna, og hin
aukna verðbólga sem fylgt hefði í
kjölfarið, mundi ekki verða til þess
að ríkisstjórnin íhugaði að takmarka
fjármagnsstreymi eða að taka upp
fastgengisstefnu. Aðrar leiðir en sú
sem nú væri fylgt til að bæta stjórn-
un krónunnar væru klárlega ekki í
boði, enda ekki betri.
Bjartari horfur í
efnahagsmálunum