Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 19
Í HNOTSKURN
»Áætlað er að samheita-lyfjamarkaðurinn í heim-
inum nemi um 60 milljörðum
Bandaríkjadollara í ár og að
hann verði kominn í um 84
milljarða á árinu 2010. Þá er
talið að vöxturinn verði um
10-12% á ári að jafnaði en
vöxturinn á frumlyfjamark-
aðinum verði þá um 5–7% á
ári.
»Á næstu árum eða til árs-ins 2010 er búist við að
um 40 stór frumlyf fari af
einkaleyfi í heiminum sem
mun styðja við vöxt samheita-
lyfjamarkaðarins. Áætlað er
að sala þessara frumlyfja
nemi um 22 milljörðum doll-
ara á þessu ári.
»Þróuðustu samheita-lyfjamarkaðir í Evrópu
eru Þýskaland, Bretland og
Danmörk. Hlutdeild samheita-
lyfja á þessum mörkuðum er
á bilinu 30-65% í magni.
atíu og Bretalandi. Hlutabréfaverð
Pliva, sem var í kringum 450 kúnur,
rauk á stuttum tíma upp í það sem við
buðum, þ.e. um 570 kúnur.
Í kjölfar orðróms á markaði um yf-
irtöku, ákváðum við að senda frá okk-
ur tilkynningu um að við hefðum sent
stjórninni óformlegt tilboð, sem var
með fyrirvara um áreiðanleikakönn-
un. Þetta var bara stutt yfirlýsing.“
Róbert segir að forstjóri Pliva og
stjórn félagsins hefðu á þessum tíma-
punkti brugðist illa við og sagt að yf-
irtakan væri óvinveitt. „Forstjórinn
sagði jafnframt að það væri enginn
hagur í tilboði okkar fyrir hluthafana,
því hlutabréfaverðið væri komið upp í
570 kúnur. Hann lagði einnig áherslu
á það að hann væri nýkominn úr vel
heppnaðri kynningarferð um Evrópu
og Ameríku, og að árangurinn af
þeirri ferð væri að koma fram í
hækkun hlutabréfaverðsins.“
Málin útskýrð í Króatíu
Í aprílmánuði fór Róbert til Króat-
íu og greindi þar frá fyrirætlunum
Actavis. Hann segist hafa lagt
áherslu á að benda á hvernig þessi
viðskipti myndu geta eflt starfsemi
Pliva í Króatíu, sem væri meðal ann-
ars gott fyrir króatíska ríkið sem átti
stærsta einstaka hlutinn í félaginu. Á
þessum tíma hafi forstjórinn hins
vegar haldið áfram að ítreka það að
félagið væri ekki til sölu og að það
verði ekki selt.
„Þess má geta að ég og forstjórinn
komum fram saman í spjallþætti í
sjónvarpi í Króatíu, þar sem ég út-
skýrði okkar hlið á málinu og for-
stjórinn sína. Þetta var svona sjón-
varpsþáttur þar sem áhorfendur gátu
hringt inn í lokin og látið skoðanir
sínar í ljós. Það áhugaverða er að um
þúsund manns hringdu inn og um
85% þeirra sögðu að forstjórinn ætti
að segja af sér.“
Formlegt söluferli
Í lok apríl hækkaði Actavis tilboð
sitt í Pliva úr 570 kúnum í 630 kúnur,
eða í samtals 1,85 milljarða dollara.
Segir Róbert að þá hafi Actavis verið
búið að skapa pressu í gegnum ýmsa
lykilhluthafa í félaginu, svo sem fjár-
festingarsjóðinn Tempelton, og einn-
ig bent hluthöfum á að fyrir lægi yf-
irlýsing um að forstjóri Pliva vildi
ekki selja alveg óháð verði.
„Við sögðum að við vildum komast
í áreiðanleikakönnun til að geta skoð-
að félagið og að við gætum hugs-
anlega aukið hag hluthafanna meira
en ef félagið yrði rekið óbreytt áfram.
Eftir mikinn þrýsting frá hluthöfum
var því forstjóri Pliva tilneyddur til
að koma fram og staðfesta að Pliva
væri of lítið félag til að geta rekið sig
sjálft, og að það þyrfti að finna sér
samstarfsaðila. Þá var félagið sett í
formlegt söluferli, sem Deutsche
Bank var falið að sjá um. Actavis
þvingaði því félagið í söluferlið.“
Forstjórinn átti að víkja
Zeljkjo Covic hóf störf hjá Pliva ár-
ið 1992 og hefur verið forstjóri félags-
ins frá árinu 1993. Honum var boðin
staða stjórnarformanns hjá Actavis
þegar óformlegar viðræðurnar áttu
sér stað 2005.
hvern annan kaupanda en okkur. Við
vissum því að að lokum myndi þetta
snúast um hluthafana sjálfa og hvaða
verð myndi bjóðast.“
Bindandi tilboð í júní
Þegar formlegt söluferli á Pliva
minni einingum
„Þegar það var búið að ýta Covic út
í söluferlið á Pliva þá var gremja hans
orðin mikil í okkar garð,“ segir Ró-
bert. „Það lá fyrir allt frá byrjun að
Actavis myndi láta Covic víkja úr
stóli forstjóra. Og hann lagði sig þá
sérstaklega fram um að finna ein-
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 19
Hótel Nordica
24. október
Meðal fyrirlesara:
Sigurður Einarsson
Stjórnarformaður KB banka
Hilmar Veigar Pétursson
Framkvæmdastjóri CCP
Átta norræn sprotafyrirtæki kynna
viðskiptaáætlanir sínar.
Skráðu þig á www.seedforum.is