Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
VILTU?
ÞÁ ÁTTU ERINDI TIL OKKAR!
... aðskilja innheimtuna frá rekstrinum?
... auka rekstrarhæfni fyrirtækis þíns?
... bæta fjárstreymi fyrirtækisins?
... vernda viðskiptasamböndin?
... spara fé, tíma og fyrirhöfn?
Hlíðasmára 15 | 201 Kópavogur | Sími 530-9100 | www.innheimtulausnir.is
!"# !
"
# $%& !'#
!
(!
)* * !
+" ! !
+ *"% ! !
, !
*
!
-%&!.& /%0 #
1 2
#3
-% ! #
4 4
4 4
5 6 64
5 54
5 5 54
%
&
'
(
'
!"#
78#
!9
7:8
7#9!
!9
79
!9
; !
!9
<
!'
-=
!9
#!
;
=
> !
>9 8-
?@-7#?#!9
$#! . !A; !*
B !
)CDE <9FG9H
-I$D
(>E
+
J H9
:"!!
(#K
'# $ #
I9#
I9#
I9#
I9#
4
4
4
4
<
>
>
6 5 5 <
>
>
54
5 <
>
>
6 5 54
<
>
>
5 5 4
9#&
'# # 9#&
'# #
9#&
'# # 9#&
'# #
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SVÍINN Mats Jansson mun taka við
af Dananum Jørgen Lindegaard sem
forstjóri SAS um áramótin en Lin-
degaard ákvað í vor að hætta eftir
fimm erfið ár. Flestir gera því skóna
að eitt fyrsta verkefni Janssons verði
að grípa til sparnaðar- og hagræð-
ingaraðgerða sem væntanlega munu
hafa í för með sér uppsagnir.
Sjálfur hefur Jansson ekki viljað
tjá sig um væntanlegar hagræðing-
araðgerðir. „SAS hefur gripið til
hagræðingaraðgerða upp á um 160
milljarða og verið er að vinna að hag-
ræðingu upp á 23 milljarða til við-
bótar. Ég veit ekki enn hvort skera
þarf meira niður, það á eftir að koma
í ljós þegar við höfum farið yfir
reksturinn,“ segir Jansson.
Verður hagrætt
Egil Myklebust, stjórnarformaður
SAS, hefur sagt að örugglega verði
gripið til slíkra aðgerða. Hvort
starfsmenn verði fleiri eða færri velti
á því hversu mikið SAS nái að auka
við umsvif sín og tekjur en Mykleb-
ust tók þá fram að „færri starfs-
mennn muni leysa einstök verkefni“
sem flestir túlka sem svo að upp-
sagnir liggi í loftinu.
Mats Jansson er 54 ára gamall og
vel þekktur í sænsku viðskiptalífi en
hann var síðast forstjóri sænska
stórveldisins Axel Johnson sem er
m.a. í matvælaframleiðslu, veltir
hátt 400 milljörðum króna og er með
14 þúsund starfsmenn í 25 löndum.
Jansson hefur orð á sér fyrir harðan
stjórnunarstíl en hann hefur mikla
reynslu af að starfa í atvinnugrein-
um þar sem miklar breytingar hafa
átt sér stað. Lindegaard var með um
fimm milljónir íslenskra í föst laun á
mánuði en Jansson fær nokkru
hærra kaup eða um 7,6 milljónir.
Nýr forstjóri talinn
eiga að skera niður
REUTERS
Niðurskurður Margir telja að með valinu á Mats Jansson sem forstjóra sé
stjórn SAS að horfa til sparnaðaraðgerða sem hann eigi að stýra.
BÚIST er við því að heldur hægi á
ævintýralegum hagvexti í Kína á
þriðja fjórðungi ársins. Sérfræðing-
ar telja þó að viðleitni stjórnvalda til
að „kæla hagkerfið“ muni hafa lítil
áhrif.
Hagvöxtur í Kína mældist 11,3% á
öðrum fjórðungi þessa árs og 10,9%
þegar horft er til fyrstu sex mánaða
þess. Stjórnvöld hafa reynt að hægja
á, m.a. með því að hækka vextina.
Búist er við að örlítið dragi úr vexti
landsframleiðslunnar við þetta. Er
talið að vöxturinn muni nema um
10,5% á þriðja ársfjórðungi vegna
minni fjárfestinga.
Gríðarlegar fjárfestingar
Samkvæmt opinberum tölum í júní-
mánuði hafði iðnframleiðsla í Kína
aukist um 19,5% frá sama tíma í
fyrra. Tölurnar fyrir ágústmánuð
hljóðuðu upp á 15,7% og virðist því
sem hagkerfið þar eystra sé heldur
að hægja á sér.
Fjárfesting í verksmiðjum, vega-
kerfi og annars konar innviðum er
engu að síður enn gífurleg; í ágúst-
mánuði reyndist hún hafa aukist um
rúman fimmtung frá árinu áður.
Vöxturinn á þessu sviði fer þó einnig
minnkandi því ef miðað er við mán-
uðina á undan reyndist vöxturinn
27,4% í júlí og 33,5% í júní.
Bindiskylda aukin
Stjórnvöld í Kína hafa löngum haft
áhyggjur af gríðarlegri fjárfestingu
og of mikilli framleiðslugetu. Af
þessum sökum voru vextirnir hækk-
aðir öðru sinni á fjórum mánuðum í
ágústmánuði, auk þess sem nýjar
skorður voru settar við lánum og
bindiskylda banka aukin.
Hægir á hag-
vexti í Kína
INNFLUTNINGUR til Færeyja hefur aukizt
óvenjumikið á þessu ári. Hann er nú 22% meiri en á
sama tíma í fyrra.
Fluttar voru inn vörur fyrir 6,4 milljörðum krónum
meira en á sama tíma í fyrra. Sama tímabil á síðasta
ári varð innflutningur hins vegar 600 milljónum
króna minni en á sama tímabili árið 2004.
Segja má að innflutningur á nánast öllum varningi
hafi aukizt í ár.
Skýringin á auknum innflutningi til Færeyja er
aukin einkaneyzla landsmanna, en umsvif fyrirtækja
hafa að sama skapi einnig farið vaxandi. Þá breytir
það miklu að verð á olíu hefur hækkað mikið frá
árinu áður. Þannig hefur olíureikningurinn hækkað
um 1,7 milljarða frá því í fyrra. Að öðru leyti stafar
aukningin af meiri neyzlu og meiri starfsemi fyr-
irtækja.
Flytja mun meira inn
Morgunblaðið/Ómar
Allt eykst Skýringin er aukin einkaneyzla en umsvif fyr-
irtækja hafa að sama skapi farið vaxandi.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) hefur mælt
svo fyrir að Frökkum beri að
breyta lögum sem fela í sér auknar
varnir við yfirtöku erlendra fyr-
irtækja á frönskum fyrirtækjum.
Framkvæmdastjórnin telur að
lögin skerði frelsi fjárfesta frá öðr-
um ríkjum ESB í Frakklandi. Í þeim
séu innbyggðar hindranir gegn
frjálsu flæði fjármagns og athafna-
frelsi sem hvort tveggja brjóti í
bága við lög ESB. Skirrist Frakkar
við að breyta lögunum innan
tveggja mánaða eiga þeir yfir höfð-
um sér málshöfðun af hálfu fram-
kvæmdastjórnar ESB.
Frökkum beri
að breyta lögum
SIEMENS
mun framleiða
hverfla í
stærsta vind-
myllugarð í
Evrópu en
verðmæti
samningsins
er um 30 millj-
arðar króna.
Það er Scottish Power sem reisir
garðinn með 140 vindmyllum suður
af Glasgow. Þær eiga að geta séð
um 200 þúsund heimilum fyrir
nægri raforku.
Siemens í
vindmyllum
AUKIN umferð var um Erm-
arsundsgöngin milli Bretlands og
Frakklands á þriðja ársfjórðungi,
að sögn rekstraraðila ganganna,
Eurotunnel. Nam veltuaukningin
7% á tímabilinu, eða 220,6 millj-
ónum evra. Ástæðan er einkum
aukin umferð vöru- og fólksbíla.
Jacques Gounon, forstjóri Euro-
tunnel, lýsti ánægju með hina
auknu veltu en sagði að þrátt fyrir
hana blasti ískyggileg framtíð við
fyrirtækinu yrði skuldsetning þess
ekki leyst með einhverjum ráðum.
Segir Gounon að óvissunni um
framtíð fyrirtækisins yrði ekki
rutt úr vegi nema lánardrottnar
samþykktu nauðasamninga sem
fyrir þá verða lagðir fyrir mán-
aðarlok.
Reuters
Gounon forstjóri Eurotunnel.
Aukin
velta hjá
Eurotunnel
KANADÍSKI seðlabankinn skýrði frá
því á mánudag að vöxtum yrði ekki
breytt að sinni þar sem hagvöxtur
væri minni en vonast hafði verið eftir.
Vextirnir verða því áfram 4,25%.
Þetta er í þriðja skiptið frá því í júlí
að stjórn Kanadabanka ákveður að
halda vöxtum óbreyttum. Þar á und-
an hafði bankinn sjö sinnum í röð
hækkað vextina. Frá því í júlí hefur
verðbólgan mælst yfir viðmiðunar-
mörkum bankans sem eru 2%.
Eftirspurn hefur aukist til muna í
Kanada að því er fram kom í yfirlýs-
ingu bankastjórnar Kanadabanka.
Hagvöxtur var hins vegar minni á
öðrum og þriðja ársfjórðungi en búist
hafði verið við.
Kanadíski seðlabankinn telur að
hagvöxtur í Kanada í ár mælist 2,8%,
hann verði 2,5% á næsta ári og 2,8%
árið 2008.
Óbreyttir
vextir í
Kanada