Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is FRAMLEIÐSLA á magnesíumkísil- járni hjá Íslenska járnblendifélaginu á Grundartanga verður til þess að auka þar enn sérhæfða framleiðslu. Sérfræðingur í framleiðsluferlinu segir að líkja megi framleiðslu á magnesíumkísiljárni við það að ákveðnum kryddtegundum sé bætt í framleiðsluna til að hún henti sem best þörfum einstakra viðskiptavina. Magnisíumkísiljárn er í daglegu tali skammstafað FSM, sem stendur fyrir ferro silicium magnesium – eða járn, sílíkon og magnesíum, sem eru helstu efnin í þessari kísilmálm- blöndu, segir Johan Berg, rekstar- stjóri FSM framleiðslu Íslenska járnblendifélagsins. FSM er kísiljárn sem búið er að blanda í magnesíum, kalsíum og jarðalkalímálmum. „Við þessa blöndu bætum við ákveðnum efnum eftir þörfum einstakra viðskiptavina, sem kalla mætti krydd í kísiljárnið. Viðskiptavinir okkar vilja mismun- andi samsetningu, svo við erum með 100 til 120 efnablöndur úr að velja,“ segir Berg. Viðskiptavinir um allan heim „Þetta er mjög sérhæfð framleiðsla, og við vinnum náið með okkar við- skiptavinum til að uppfylla þær þarf- ir sem þeir hafa,“ segir Berg. Hrá- efnin sem bætt er í kísilmálmblönduna koma aðallega frá Rússlandi og Kína. Viðskiptavinirnir eru málmsteyp- ur víðsvegar um heim, allt frá ör- smáum fyrirtækjum sem einungis nota eitt til tvö tonn á ári upp í risa- vaxnar málmsteypur sem nota marg- fallt það magn. Verksmiðja Elkem, móðurfélags Íslenska járnblendifélagsins, sem framleiðir FSM í Noregi – en sem verður í framtíðinni framleitt á Ís- landi – hefur einkum þjónað við- skiptavinum í Evrópu. Elkem fram- leiðir einnig FSM í Kanada og í Kína, enda er markmiðið að staðsetja framleiðsluna nærri helstu mörkuð- um fyrir vöruna. FSM hefur áhrif á kolefni í steypu- járni, og breytir svokölluðu grájárni í seigjárn, sem er ekki ósvipað stáli, og er hentugt í járnhluti sem mikið mæðir á. Um þriðjungur þess FSM sem framleitt er er notað í bílaiðn- aðinum, t.d. í sveifarása og bremsu- diska. Þriðjungur er notaður í vatns- lagnir, og þriðjungur í ýmsum verkstæðisiðnaði. Stefnt er að því að einn ofna Ís- lenska járnblendifélagsins muni framleiða járnríkt kísiljárn sem síð- an verður notað í FSM framleiðslu- línuna. Þess vegna þarf ekki meiri raforku en þegar er notuð í járn- blendifélaginu, þar sem sú fram- leiðslugeta sem nú þegar er til staðar verður einfaldlega nýtt á annan hátt en nú er gert. „Framleiðslan fer svipað fram og í dag, nema hvað við þurfum að bæta íblöndunarefnunum – kryddinu – í blönduna á ákveðnu stigi, eftir að grunnmálmframleiðslan er afstaðin, en hún er orkufreki hluti verksins,“ segir Berg. Þetta leiðir til breytinga á sam- setningu framleiðslu Íslenska járn- blendifélagsins, enda er ofninn sem verður notaður í nýju framleiðsluna notaður í aðra framleiðslu í dag. „Heildarmagnið sem við framleiðum mun aukast eitthvað vegna íblöndun- arefnana, en orkuþörfin verður sú sama,“ segir Berg. Dregur úr mengun Hann segir að þessi nýja framleiðsla komi til með að draga úr rykmengun frá járnblendinu á Grundartanga. „Í dag er málmurinn frá ofnframleiðsl- unni steyptur í steypuskálanum, og reykurinn berst um skálann. Þegar við snúum okkur að framleiðslu á FSM bætist við ferlið, og þar sem íblöndunarefnunum er bætt við verð- ur nýtt loftræstikerfi með afsogs- búnaði,“ segir Berg. Þetta mun draga úr rykmengun frá verksmiðjunni, en Berg segir að á móti komi að aukið magn af vatns- gufu verði til þegar málmurinn er kældur. Gufunni verði hleypt út, svipað og í annarri málmsteypu, en hún valdi ekki mengun. Morgunblaðið/Þorkell Breytt ferli Framleiðsluferlið mun breytast talsvert, en ekki mun þurfa meiri orku vegna framleiðslu á magnisíumkísiljárni en verið hefur. Sérhæfð framleiðsla á magnesíumkísiljárni Móðurfélag Íslenska járnblendifélagsins ætlar að færa framleiðslu sína á magnesíumkísiljárni frá Noregi til Íslands. En hvers konar málmblanda er magnesíumkísiljárn? Í hvers konar framleiðslu er það notað? Hvernig má það vera að það þurfi ekki meiri raforku til að framleiða magnesíumkísiljárn en þegar er notuð hjá járnblendifélaginu, og að mengun verði minni? :#!                                    !    #$   %     &      ' ' ( )!*    *         +, '   '  )' !   '     - FJÓRTÁN bifvélavirkjar af at- vinnutækjasviði Brimborgar und- irbúa sig nú undir þátttöku í VISTA 2007, sem er stærsta keppni heims fyrir Volvo-bifvélavirkja. Keppnin hefst nú í október en alls hafa um 12 þúsund þátttakendur verið skráðir til leiks. Þeir koma frá ríf- lega þúsund verkstæðum í 68 þjóð- löndum. Það er dótturfélag sænska framleiðandans Volvo AB, Volvo Lastvagnar, sem stendur að VISTA en keppnin fer fram í mörgum áföngum og lýkur henni með heimsúrslitum í Gautaborg í júní á næsta ári. Að þessu sinni taka rúmlega 3 þús- und lið, með 3–4 liðsmönnum hvert, þátt í keppninni en þar af eru fjög- ur lið frá Brimborg. Þó eru ekki all- ir þátttakendur bifvélavirkjar því einnig má finna sérfræðinga í vara- hlutum og stjórnendur í liðunum þótt meirihluti keppenda sé bifvéla- virkjar sem sérhæfa sig í við- gerðum á vörubílum og rútum. En það eru ekki einunigs þátttak- endur sem koma að keppninni því til þess að keppni af þessari stærð- argráðu geti gengið hnökralaust þarf mikinn fjölda umsjónarmanna. „Að þessu sinni tekur metfjöldi þátt í keppninni en umfang hennar hef- ur vaxið um nær 30% síðan VISTA var haldin síðast,“ segir Åke Hans- son, umsjónarmaður VISTA hjá Volvo Lastvagnar. „Í sumum löndum er nær hver ein- asti Volvo-bifvélavirki og vara- hlutamaður skráður til leiks.“ En tilgangurinn er þó ekki aðeins að ota saman Volvo-bifvélavirkjum frá öllum heimshornum. „Eitt af markmiðum okkar er að tryggja að getan sé til staðar og sjá til þess að viðskiptavinir okkar hafi aðgang að hæfustu bifvélavirkjunum um ókomna tíð,“ segir Åke Hansson. Það er fyrsta umferð keppninnar sem fer fram nú í október en þá þurfa keppendur að svara 30 fræði- legum spurningum auk tveggja út- sláttarspurninga. Svæðisund- anúrslit verða haldin í upphafi næsta árs á níu stöðum í sex heims- álfum og úrslitin fara síðan fram í Gautaborg í júní 2007 eins og áður segir. Þegar VISTA 2007 lýkur verða liðin 50 ár síðan fyrsta keppnin var haldin og 30 ár síðan byrjað var að nefna hana VISTA. VISTA 2007 hleypt af stokkunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.