Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 23
Stofnandinn Elín stofnaði fyr- irtækið að loknu námi við HÍ. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is „HUGBÚNAÐURINN MindMana- ger er einfaldur en öflugur hug- búnaður sem nýtist einstaklingum og hópum innan fyrirtækja eða stofnana á einstakan hátt við verk- efnastjórnun og skipulagningu al- mennt, teymisvinnu, skýrslugerð, fundarstjórnun, stjórnun upplýs- inga, hugarflug og kynningar.“ Þetta segir Elín Þ. Þorsteinsdóttir hjá fyrirtækinu Verkefnalausnir, en fyrirtækið stendur fyrir ráð- stefnu um hugbúnaðinn í næstu viku, eða fimmtudaginn 26. októ- ber. MindManager byggist á hug- myndum um hugkort en því má lýsa sem myndrænni framsetningu á hugmyndum og verkefnum. Hug- búnaðurinn vinnur með Microsoft- hugbúnaði, þ.e. Word, Excel, Po- werPoint, Visio, Outlook og Micro- soft Project en einnig ýmsum öðrum hugbúnaðarlausnum svo sem JCVGantt og Lotus Notes. Þá er nýkominn á markað MindMana- ger 6 Mac fyrir Apple-tölvur. „Fjölmargir hafa nýtt sér Mind- Manager með góðum árangri, segir Elín. „Það á jafnt við um ein- staklinga og nemendur sem og stjórnendur og starfsmenn fyr- irtækja og stofnana. Þess má geta að við hjá Verkefnalausnum höfum mætt miklum áhuga til að mynda af hálfu Félags lesblindra en hin myndræna framsetning Mind- Manager getur einmitt hjálpað þeim sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða.“ Betri árangur Að sögn Elínar auðveldar Mind- Manager stjórnendum að sjá þá heildarmynd sem þeir þurfa að hafa yfirsýn yfir á vinnustaðnum eða í einstök verkefni. Hún segir að hugbúnaðurinn auðveldi stjórn- endum einnig að meta stöðuna og taka stefnumótandi ákvarðanir, miðla upplýsingum á skýran og einfaldan hátt, forgangsraða og ráðstafa mannauði í verkefni og greina meginverkþætti, und- irverkþætti og tengsl þeirra. „Þeir sem notfæra sér hugbún- aðinn, hvort sem það eru ein- staklingar, námsfólk, stjórnendur eða starfsmenn, eru þar með komnir með tæki sem leiðir til mun betri nýtingar á tíma. Þeir fá einnig betri yfirsýn yfir þau verk- efni sem hver vinnur að, afköstin aukast og því má almennt gera ráð fyrir betri árangri í námi eða starfi.“ Mikil fjölgun notenda Fyrirtækið Mindjet, sem var stofnað í Þýskalandi árið 1993, hannar og framleiðir MindMana- ger. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í dag í Kaliforníu í Bandaríkj- unum. Að sögn Elínar eru notendur MindManager um 800.000 talsins. Hún segir að notendum hafi fjölg- að að jafnaði um 15 þúsund í hverjum mánuði að undanförnu. Um 300 af þeim 500 stórfyr- irtækjum sem eru á Fortune 500 lista þess blaðs nýti sér hugbún- aðinn en auk þess hafi MindMana- ger fengið sérstök verðlaun, svo- nefnd „Best of Show“ verðlaun, á CeBit-hugbúnaðarsýningunni árið 2004 auk margra annarra verð- launa. Úr námi í stofnun fyrirtækisins Verkefnalausnir bjóða upp á hagnýtar lausnir á sviði verk- efnastjórnunar í víðustu merkingu þess orðs; forrit, fræðslu, ráðgjöf og tímabundna stjórnun verkefna. Elín stofnaði fyrirtækið í sept- ember á síðasta ári en hún hafði áður starfað um nokkurra ára skeið við verkefnastjórnun, bæði sjálfstætt og hjá ýmsum fyr- irtækjum. Hún segir að það hafi verið við lok náms í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun hjá Háskóla Íslands sem hún kynntist MindManager. „Því miður var það í lok náms því með þessum hugbúnaði hefðu vinnubrögðin orðið allt önnur. Ég fór til Bandaríkjanna og náði mér í leiðbeinandaréttindi og fór svo í samstarf við Mindjet. Síðan hefur boltinn rúllað hratt og æ fleiri fyr- irtæki og einstaklingar hérlendis tileinka sér MindManager. Tímabundin verkefnastjórnun Glitnir var eitt af fyrstu fyr- irtækjunum hér á landi til að ákveða innleiðingu á þessum hug- búnaði og höfum við annast nám- skeiðahald fyrir starfsmenn bank- ans. Þá bættist Landsbankinn við í hóp stærri fyrirtækja, einnig má nefna helstu hugbúnaðarhús lands- ins, lítil og millistór fyrirtæki og skólar. Þá bjóðum við reglulega opin námskeið.“ Hún segir að Verkefnalausnir selji einnig hugbúnaðinn JCVGantt sem sé einföld lausn til að stilla verkþáttum upp á tímaás, áætla kostnað o.fl. og Lotus Linker, sem tengi saman MindManager og Lo- tus Notes. Þá muni Verk- efnalausnir kynna svonefnda Prince 2-lausn á ráðstefnunni. „Við hjá Verkefnalausnum tök- um einnig að okkur tímabundna stýringu verkefna. Þar má nefna forvarnardaginn 2006, sem haldinn var í lok síðasta mánaðar, en þar var um að ræða flókið og marg- þætt verkefni þar sem MindMana- ger kom að góðum notum. Af öðr- um stærri verkefnum má nefna Landssöfnun vegna flóða í Ind- landshafi, Landssöfnun Rauða kross Íslands og fleiri verkefni.“ Elín segir þjónustu fyrirtækisins mjög hentuga því með því nýta hana geti fyrirtæki sparað sér að bæta við starfsmanni vegna tiltek- inna verkefna. Einnig geti það ver- ið kostur að utanaðkomandi aðilar sjái fyrirtækin í hlutlausu ljósi. „Okkar meginhlutverk er að stýra þeim verkefnum sem okkur eru falin og sjá til þess að sett mark- mið náist.“ Ráðstefna í næstu viku MindManager-ráðstefnan, sem er öllum opin, verður haldin fimmtudaginn 26. október kl. 8:30– 9:00 í Víkingasal Hótel Loftleiða. Ráðstefnan er ætluð bæði núver- andi og tilvonandi notendum hug- búnaðarins. Fulltrúar íslenskra fyrirtækja, sem hafa tekið hugbún- aðinn í notkun, munu lýsa reynslu sinni en auk þess verða tveir er- lendir fyrirlesarar. Nánari upplýsingar um ráðstefn- una eru á heimasíðu Verk- efnalausna, www.verkefnalausn- ir.is. Yfirsýn og aukin afköst » »Þess má geta að viðhjá Verkefnalausn- um höfum mætt miklum áhuga til að mynda af hálfu Félags lesblindra en hin myndræna fram- setning MindManager getur einmitt hjálpað þeim sem eiga við lestr- arerfiðleika að stríða. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 23 Einfaldar og traustar lausnir skipta máli í mínum rekstri. TOK bókhaldskerfið er þægilegt í notkun auk þess sem hægt er að bæta við kerfiseiningum eftir þörfum. Það tryggir mér örugga úrvinnslu á bókhaldi og gerir mér kleift að einbeita mér að rekstrinum og tryggja hámarksafköst. Þórður Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Nýja Sendibílastöðin hf. Ræddu við okkur um hvernig TOK hentar þér í síma 545 1000. HugurAx Grjóthálsi 5 www.hugurax.is HugurAx Guðríðarstíg 2-4 hugurax@hugurax.is HÁMARKAÐU AFKÖSTIN Jóhann Ólafsson löggiltur FFS. Gsm 863 6323, johann@vidskiptahusid.is Jón Sigfús Sigurjónsson hdl.& löggiltur FFS. Gsm 893 3003, jon@vidskiptahusid.is Hörður Hauksson viðskiptafræðingur. Gsm 896 5486, hh@vidskiptahusid.is M.a. í matvælaframleiðslu eða innflutningi, innflutningi í raftækja- og eða rafbúnaðargeira, heildverslun á byggingavörumarkaði, verslunarrekstri í Kringlunni eða Smáralind, öflugri bílasölu með gott svæði og góðum rekstri á landsbyggðinni. Viðskiptahúsið er deildaskipt eignamiðlun sem sérhæfir sig í sölu á fasteignum, fyrirtækjum, sölu og leigu á skipum og aflaheimildum. Starfsmenn eru 14 talsins. Skúlagata 17 - 101 Reykjavík - Sími 566 8800 - Fax 566 8802 vidskiptahusid@vidskiptahusid.is www.vidskiptahusid.is Höfum til sölu fyrirtæki með góða afkomu Höfum kaupendur að góðum fyrirtækjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.