Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf            !" #$ !  #                         ! " # $ % &  ' ( ) # * + , - - # + . # / ( ) /  0 . '  1 ' + 0 2 * / ( 3 # H ann hefur verið kall- aður Napóleón frí- dagblaðanna og allir í danska fjölmiðla- heiminum þekkja hann; yfir honum hangir nær goð- sagnakenndur blær; keppinautarnir hata hann og óttast en líklega bera þó allir mikla virðingu fyrir honum. Maðurinn er Svenn Dam, forstjóri 365 Media Scandinavia, en hann á að baki samfellda afrekssögu á dag- blaðamarkaðinum, fyrst sem mark- aðsstjóri hjá Jyllands-Posten, stærsta dagblaði Danmerkur, og síð- an hjá Metro þar sem hann reis til hæstu metorða. „Svenn Dam, sem fram til í sept- ember 2005 sat í yfirstjórn Metro International, hefur verið útnefndur herforingi fyrir allsherjarárás Dags- brúnar á dönsku dagblöðin,“ skrifaði eitt dönsku dagblaðanna þegar greint var frá því að Svenn hefði gengið til liðs við „Íslendingana“. Langhlaupari Enn á alveg eftir að koma í ljós hvort Svenn tekst jafnvel upp með Nyhedsavisen sem hann hefur stýrt uppbyggingunni á. Útgáfa blaðsins hefur raunar ekki farið áfallalaust af stað og útbreiðsla og lestur þess ver- ið minni en til stóð. Þá má ekki held- ur gleyma að keppinautarnir voru búnir að koma sér fyrir í skotgröf- unum þegar þeir fréttu af Svenn Dam og Nyhedsavisen og munu örugglega selja sig dýrt í því stríði sem nú ríkir á danska blaðamark- aðinum. En flestum ber saman um að Nyhedsavisen standi hinum fríblöð- unum framar að því er varðar frétta- skrif og efnistök. Enn er þó allt of snemmt að reyna að spá fyrir um hvernig kapphlaupinu á danska dag- blaðamarkaðinum muni lykta. En Svenn Dam ætti raunar sjálfan ekki að skorta úthaldið því hann leggur stund á hlaup í frítíma sínum. Vill vindinn í fangið Svenn Dam er baráttumaður og margt bendir til þess að það henti honum betur að starfa hjá fyr- irtækjum sem eru að sækja fram á markaði og hrista upp í þeim fremur en að stýra fyrirtæki sem er í stöð- ugum og jöfnum rekstri. „Honum líkar samkeppni og eink- um og sér í lagi þegar hún er mjög hörð,“ segir Henrik Bo Nielsen, for- stjóri Information. Sagt er að Svenn Dam hafi gengið mjög vel að vinna með Íslending- unum sem standa að baki Nyhedsav- isen enda ku hann víst ekki vera mjög formlegur í umgengni þótt hann sé á hinn bóginn afar faglegur í vinnubrögðum og sérdeilis einbeitt- ur. Öllum ber saman um að fáir ef nokkrir séu jafn „fókuseraðir“ eða hafi jafnskýra sýn á verkefnin og Svenn Dam, sem hefur þó sjálfur við- urkennt að vera dálítið óþolinmóður. En hann er líka sagður geisla bein- línis af sjálfstrausti hvað sem gengur á; þegar danska pressan gerði mikið úr óvissunni um fjármögnun Nyhed- savisen snemma í haust mun Svenn hafa staðið uppi á stól og haldið hvatningarræðu í húsakynnum Nyhedsavisen sem lægði allar efa- semdir starfsmanna. Og víst er að honum tókst að laða til sín afar marga öfluga blaðamenn á ritstjórn blaðsins. En menn hafa líka nefnt að Svenn sé fremur harður og kaldur persónu- leiki og að samstarfsmenn hans óttist hann; og líklega er viðurnefnið „Saddam“ þannig til komið. Og þeg- ar danskir blaðamenn hafa spurt samstarfsmenn Svenns um einkalíf hans verður oft frekar fátt um svör. Úr matvöru í dagblöð Svenn Dam kom inn í dag- blaðamarkaðinn úr verslunargeir- anum en þar starfaði hann hjá Bilka til ársins 1994 og sagt er að hann líti á dagblöð sem hverja aðra neyslu- vöru. Að minnsta kosti virðist hann bera litla virðingu fyrir ýmsu því sem aðrir í dagblaðageiranum hafa kannski talið heilög vé sem kann m.a. að skýra þá harðneskjulegu mynd sem sumir hafa dregið upp af honum. Svenn Dam var markaðsstjóri í mikilli framsókn Jyllands-Posten á seinni hluta níunda áratugarins og þótti ná undragóðum árangri. Og hikaði auðvitað ekki við fremur en fyrri daginn að leggja til atlögu við keppinautana af fullri hörku; þannig er hann til að mynda talinn upphafs- maður að einu mesta stríði á danska auglýsingamarkaðinum vorið 1998 þegar hann hóf að selja fast- eignaauglýsingar í Jyllands-Posten á einum þriðja til einum fjórða af því verði sem þá hafði tíðkast. En tveimur árum síðar kom til harðs ágreinings milli Svenns Dams og þáverandi ritstjóra Jyllands- Posten, Jørgen Ejbøl, um framtíð- arstefnu blaðsins sem leiddi beinlínis til hreinnar óvildar þeirra í milli. Dam hefur verið nefndur hefnand- inn í dönskum dagblöðum því skömmu eftir að hann hvarf frá Jyl- lands-Posten réðst hann til atlögu á danska blaðamarkaðinum með út- gáfu fríblaðsins Metroexpress, sem dreift er á fjölförnum stöðum, og þá auðvitað meðal annars á Jyllands- Posten. Segja má að Svenn Dam hafi nú í raun tækifæri á tvöfaldri hefnd með útgáfu Nyhedsavisen, þ.e. bæði á Jyllands-Posten og Metroexpress. „Það versta sem hægt er að gera Svenn er að bjóða honum ekki upp á nýjan leik þegar hann hefur tapað. Það getur gert hann alveg brjál- aðan,“ hefur verið haft eftir ónefnd- um íþróttafélaga Svenns. Margir ef ekki flestir efuðust um viðskiptahugmyndina á bak við Metroexpress og spáðu blaðinu fárra lífdaga. En það var Svenn Dam sem reyndist hafa rétt fyrir sér og stóð síðan uppi sem sigurvegari; útgáfa fríblaðsins gekk framar vonum og það er nú raunar eitt fárra blaða í Danmörku sem skilar hagnaði. „Svenn Dam er gríðarlega strat- egískur með næstum óhuggulega sterkan hæfileika til að taka skyn- samlegar ákvarðanir jafnframt því sem hann hefur mikinn kjark til þess að hætta sér út á svæði sem aðrir þora ekki að fara inn á. Hann kemur auga á viðskiptatækifæri á undan flestum öðrum. Útgáfu Metroex- press má að 80–90% rekja til frum- kvæðis Svenns Dams,“ sagði Søren Hyldegaard, fyrrum samstarfs- maður Svenns og auglýsingastjóri á Berlingske Tidende. Flýgur á hverjum degi Eftir árangurinn með Metroex- press í Danmörku varð Svenn Dam aðstoðarforstjóri hjá Metro-veldinu sem gefur út 69 dagblöð um heim all- an en hætti hjá Metro í fyrrahaust þar sem starfið kom of mikið niður á einkalífi hans. Raunar er slíkt oft til- greint þegar losna þarf við forstjóra en það mun þó ekki hafa átt við um Svenn Dam; hann ku ekki hafa verið tilbúinn til þess að flytja til London né ferðast jafnmikið um heiminn með tilheyrandi fjarveru frá fjölskyldunni og Metrostarfið krafðist af honum. En Svenn Dam vílar þó reyndar ekki fyrir sér að ferðast með flugi á svo til hverjum degi til þess að stýra Nyhedsavisen því hann býr ekki í Kaupmannahöfn heldur í Árósum. Svenn Dam er á besta aldri, fædd- ur árið 1960 og er viðskiptafræð- ingur að mennt. Hann er því aðeins einu ári eldri en hugmyndasmiðurinn á bak við Nyhedsavisen, Gunnar Smári Egilsson, en þeir Svenn og Gunnar eru sagðir hafa náð mjög vel saman. Svenn á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni og þau búa hjá hon- um og núverandi konu hans ásamt börnum hennar tveimur. Um einkalíf hans er að öðru leyti afar lítið vitað. Jafnvel þeir sem unnið hafa með hon- um árum saman vita oft ekkert um konu hans eða börn. Þó er vitað að Svenn stundar hlaup og hjólreiðar og hann mun einnig vera mjög liðtækur skíðamaður og fer gjarnan í skíða- ferðir með fjölskyldunni. Herforinginn á bak við Nyhedsavisen Svenn Dam er áhrifa- maður á danska blaða- markaðinum og sagður einbeittur með af- brigðum. Hann hefur áður teflt mjög djarft og nú ætlar hann að endurtaka leikinn með Nyhedsavisen. Arnór Gísli Ólafsson kynnti sér manninn. Ljósmynd / Haraldur Jónasson Útgáfu fagnað Svenn Dam broshýr með samstarfsmönnunum sínum á ritstjórn Nyhedsavisen eftir að fyrsta tölublaðið kom út. » Svenn Dam er gríð-arlega strategískur með næstum óhuggu- lega sterkan hæfileika til að taka skynsamlegar ákvarðanir jafnframt því sem hann hefur mik- inn kjark til þess að hætta sér út á svæði sem aðrir þora ekki að fara inn á. arnorg@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.