Morgunblaðið - 19.10.2006, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
Miðað við mikilvægi íslensku bank-anna fyrir hagkerfið væri erfittað sjá fyrir sér að stjórnvöldmyndu ekki grípa til einhverra
aðgerða ef bankarnir lentu í erfiðleikum. Það
táknar hins vegar ekki endilega að stjórnvöld
myndu leggja fram fé heldur gætu það verið
hvers konar stuðningsaðgerðir við íslensku
bankana. Þetta hefur áhrif á lánshæfismat en
út frá þessu er hins vegar ekki gengið í mati
Moody’s á öðrum norrænum bönkum þótt það
kunni hugsanlega að koma til skoðunar.
Þetta segir Janne Thomsen, sem stýrir sér-
fræðingahópi Moody’s sem fylgist með nor-
rænum bönkum.
Innlán ekki aukist í takt við vöxtinn
Thomsen segir Moody’s hafa fylgst með ís-
lensku bönkunum til fjölda ára og þegar þeir
hafi tekið að vaxa mjög hratt hafi innlánin
ekki aukist að sama skapi vegna þess að þar
sem þeir færðu út kvíarnar hafi þeir oftast
ekki tekið yfir mikil innlán. Þegar Kaupþing
hafi t.d. tekið yfir FIH í Danmörku hafi Moo-
dy’s bent á að fjármögnunarstaðan myndi
breytast. Þannig hafi verið tekið tillit til þessa
og Moody’s hafi talið bankarnir myndu þola að
halda sig fjarri lánsfjármörkuðum í tiltekinn
tíma.
Thomsen bendir á að hjá Moody’s hafi
menn haft meiri áhyggjur af sveiflum á Ís-
landi og hugsanlegum áhrif þeirra á tekjur
sumra íslensku bankana, þ.e. til veikingar á
stöðu þeirra. M.a. þess vegna hafi verið gefnar
út neikvæðar horfur á einkunn fyrir fjárhags-
legan styrkleika. Hún tekur þó fram að ís-
lensku bankarnir hafi skilað gríðargóðum
hagnaði en hann sé að verulega leyti óreglu-
legur að mati Moody’s; eðli málsins sam-
kvæmt leggi Moody’s mikið upp úr stöð-
ugleika í tekjum og stöðugleika almennt. Og
þótt íslensku bankarnir hafi raunar skilað
miklum tekjum og hagnaði til margra missera
telji Moody’s hann engu að síður óstöðugan
eða óreglulegan. Þegar sérfræðingarnir skoði
bækur bankanna taki þeir út allt sem að
þeirra mati megi teljast til óreglulegra liða.
Hafa bætt upplýsingagjöf
Thomsen segir að horfa megi á útrás bank-
anna með tvennum hætti. Þegar þeir hafi nær
eingöngu starfað á Íslandi hafi þeim verið
settar skorður og þeir verið mjög háðir ís-
lenska hagkerfinu og sveiflum. En það fylgi
því einnig viss áhætta að fara inn á nýja mark-
aði og matsfyrirtæki verði alltaf að taka allt
með í reikninginn, bæði jákvæða og hugs-
anlega neikvæða þætti. Þannig skipti miklu
hvernig útrásin sé framkvæmd og hvernig
haldið sé utan um áhættustýringu þeirra.
Thomsen segist þeirrar skoðunar að ís-
lensku bankarnir hafi bætt sig til mikilla
muna varðandi alla upplýsingagjöf, hvort
heldur á heimasíðum sínum eða í fjórðungs-
uppgjörum, sem sé jákvætt þótt það breyti út
af fyrir sig ekki miklu fyrir Moody’s sem hafi
alltaf haft aðgang að miklu meiri og nákvæm-
ari upplýsingum en markaðsaðilar.
Um krossseignarhald segir Thomsen að
sérfræðingar Moody’s hafi lengi skoðað þau
mál mjög vel og fjárhagsleg tengsl bankanna
við tiltekin fyrirtæki eða fjölskyldur. Þessi
tengsl séu miklu meiri á Íslandi en á hinum
Norðurlöndunum en auðvitað geti verið erfitt
eða illmögulegt að komast alveg hjá slíkum
tengslum í litlu hagkerfi. Sérfræðingar Moo-
dy’s hafi alltaf getið þess í skýrslum sínum að
það væri ákveðin eignartengslaáhætta hjá ís-
lensku bönkunum.
Thomsen segir að þegar íslensku bankarnir
hafi farið inn á fasteignamarkaðinn hafi þeir
tekið að líkjast frekar öðrum norrænum bönk-
um en hjá flestum þeirra séu húsnæðislán um
60% af efnahagsreikningi þeirra. Það hafi því
vissulega verið jákvætt þegar íslensku bank-
arnir fóru inn á fasteignalánamarkaðinn.
Lána mun meira til fyrirtækja
Spurð hvort íslensku bankarnir séu áhættu-
sæknari en aðrir norrænir bankar svarar
Thomsen því til að viðskiptamódel þeirra
marki þeim allmikla sérstöðu. Norrænir bank-
ar séu með afar stóran hlut útlána sinna í fast-
eignalánum til heimilanna, þ.e. í lánastarfsemi
með lítilli áhættu. Íslensku bankarnir hafi á
hinn bóginn lánað miklu meira til fyrirtækja,
taki beinni þátt í fyrirtækjaviðskiptum auk
þess að kaupa hluti í fyrirtækjum í tengslum
við yfirtökur o.s.frv. Að þessu leyti séu þeir
ólíkir öðrum norrænum bönkum. Thomsen
segir að kannski sé ekki alls kostar rétt að
segja að þeir starfi meira í líkingu við fjárfest-
ingabanka en áhætta íslensku bankana sé þó
vissulega meiri en hefðbundinna banka og
sveiflurnar í tekjum meiri. Það hafi gengið
mjög vel undanfarin ár en það breyti því ekki
að þetta sé sveiflukennd starfsemi, ekki síst
þegar menn taki líka þátt í hlutabréfa-
viðskiptum. Hún segir langflesta norrænu
bankanna taka mjög litla áhættu í hlutabréf-
um; þeir hafi dregið mjög úr slíku eftir banka-
kreppuna snemma á tíunda áratugnum.
arnorg@mbl.is
Íslensku bankarnir hafa sérstöðu
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s hefur fylgst með starf-
semi íslensku bankanna um árabil. Arnór Gísli Ólafsson
ræddi við Janne Thomsen, sem stýrir sérfræðingahópi Moo-
dy’s sem fylgist grannt með norrænum bönkum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Lána meira til fyrirtækja Janne Thomsen
segir íslensku bankana lána meira til fyr-
irtækja auk þess að kaupa hluti í fyrirtækjum
í tengslum við yfirtökur o.s.frv.