Morgunblaðið - 19.10.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 13
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
FJÁRFESTAÞING Seed Forum í
Reykjavík verður haldið í fjórða sinn
á Nordica hóteli næstkomandi
þriðjudag, hinn 24. október, en þá
munu fjögur íslensk og fjögur norsk
sprotafyrirtæki kynna viðskipta-
hugmyndir sínar fjárfestum ásamt
því að Sigurður Einarsson, starfandi
stjórnarformaður KB Banka, og
Hilmar Pétursson, framkvæmda-
stjóri CCP, flytja erindi.
Uppgangur Seed Forum samtak-
anna hefur verið hraður undanfarin
misseri en á næstu vikum verða Seed
Forum-fjárfestaþing haldin á 16
stöðum í heiminum. Að sögn Jóns
Helga Egilssonar, framkvæmda-
stjóra Klaks Nýsköpunarmiðstöðvar
sem er rekstraraðili þingsins á Ís-
landi og í Bandaríkjunum, þá er upp-
gangur Seed Forum í raun tilkominn
vegna framboðs og eftirspurnar, í
takt við nýjar þarfir sprotafyr-
irtækja og fjárfesta.
„Hér áður fyrr dugði að einbeita
sér að heimamarkaði en í dag þurfa
sprotafyrirtæki að hugsa um alþjóð-
legan markað frá upphafi ef þau vilja
eiga möguleika á að freista fjárfesta
enda er það iðulega forsenda þess að
eygja möguleika á að standast sam-
keppni. Það fer oft saman að ef
sprotafyrirtæki á ekki erindi á al-
þjóðlegan markað þá á það hvort eð
er ekki erindi við fjárfesta. Þetta eru
því nýjar þarfir í breyttum heimi,“
segir Jón Helgi. Hann segir fjárfesta
í dag ekki þurfa nálægð við fyr-
irtækin sem þeir fjárfesti í, líkt og oft
áður þegar fjárfestar fjárfestu varla
í fyrirtækjum sem ekki voru í seil-
ingarfjarlægð frá skrifstofum þeirra.
Alþjóðlegur samanburður
„Sprotafyrirtækin þurfa að stand-
ast alþjóðlegan samanburð frá upp-
hafi því það er grunnforsenda þess
að fjárfestingar fjárfesta í sprotafyr-
irtækjum gangi upp. Þess vegna
þurfa fjárfestar að finna þau sprota-
fyrirtæki sem standast þennan al-
þjóðlega samanburð, eða eru líkleg
til þess, sem fyrst. Til að svo sé þá er
æskilegt að þessi samanburður fari
fram snemma í ferlinu. Slíkur sam-
anburður gerist ekki með því að fjár-
festir sitji á skrifstofu sinni í Reykja-
vík, London, New York eða hvar sem
sú skrifstofa kann að vera og velti
eingöngu fyrir sér fjárfestingum
sem eru innan 40 kílómetra radíuss
frá skrifstofunni,“ segir Jón Helgi og
bæti við að með Seed Forum-ferlinu
komi sprotafyrirtæki
frá mismunandi lönd-
um saman og þar fari
samanburðurinn fram
en fyrirtækin eru til-
nefnd og síðan valin af
alþjóðlegri dómnefnd
fjárfesta.
„Ég spyr mig til
dæmi að því hvort það
sé ekki Nýsköp-
unarsjóði atvinnulífs-
ins fjötur um fót að
fjárfesta bara í íslensk-
um fyrirtækjum.
Hvernig eiga starfs-
menn sjóðsins að geta
metið hvort íslensk
fyrirtæki standast al-
þjóðlegan samanburð
ef þeir vinna ekki með, meta ekki og
fjárfesta ekki í fyrirtækjum frá öðr-
um löndum,“ segir Jón Helgi.
„Það er engum greiði gerður með
því að skerma af samkeppni í upp-
hafi. Með því að einskorða fjárfest-
ingar við landsvæði eða lönd er verið
að búa til falskar forsendur fyrir
sprotafyrirtæki sem líklega kemur
þeim síðar í koll.“
Jón Helgi segir að með Seed For-
um-þingunum hafi íslensk sprotafyr-
irtæki fengið fjármagn
innanlands og erlendis,
komið á samstarfi,
myndað tengsl, sett
upp skrifstofur og að-
stöðu, til dæmis í Dan-
mörku, Bretlandi,
Rússlandi og Kína í
framhaldi af Seed For-
um-þingum. Því megi
segja að í það heila tek-
ið hafi fyrirtækjunum
gengið ágætlega enda
sé það svo að ef saman
fara góðar hugmyndir
og samstillt og snjallt
teymi þá sé tækifæri
víða að finna. Vissulega
sé það svo að sum fyr-
irtækin hafi ekki náð
neinum árangri og þá séu það skýr
skilaboð til þeirra að endurskoða sín
mál.
Jón Helgi segir að nú sé ansi
breiður hópur sem styðji við Seed
Forum-þingið í Reykjavík og við
fyrstu sýn sé um ólíka aðila að ræða.
„Þessir aðilar eru allir sammála
um að nýsköpun og sprotastarfsemi
sé mikilvæg fyrir þjóðfélagið og að
því vilja þeir stuðla. Við þurfum
framfarir, við þurfum nýsköpun til
að fjölga störfum og auka fjölbreytni
í atvinnulífinu og þarna sameinast
hið opinbera og einkageirinn í því
átaki. Þessi starfsemi er hins vegar
tímafrek og oft á tíðum erfið í þeim
skilningi að stór hluti sprotafyr-
irtækja nær ekki að vaxa í þau fyr-
irtæki sem stefnt er að. Það þarf því
ólíka hópa og þolinmæði til að vinna
það verk og sem betur fer er bæði
skilningur, þekking, reynsla og vilji
meðal þessara aðila til að stuðla að
nýsköpun hér á landi.“
Jón Helgi segir að framundan sé
að tryggja áframhaldandi aðgang ís-
lenskra sprotafyrirtækja að Seed
Forum og fjölga stöðum í takt við
áhuga viðskiptavinanna, þ.e. sprota-
fyrirtækjanna og fjárfesta.
„Í vor vorum við í fyrsta sinn í
Sjanghaí í Kína og það heppnaðist
afskaplega vel. Stöðunum í Asíu er
því að fjölga og Seed Forum verður
bæði í Sjanghaí og Peking á næstu
vikum auk þess sem ráðgert er að
haldið verði Seed Forum-fjár-
festaþing í Tókíó á næsta ári. Þá er
verið að fjölga stöðunum í Banda-
ríkjunum og Austur-Evrópu.“
Fjórða fjárfestaþing Seed Forum haldið
Jón Helgi Egilssson,
framkvæmdastjóri
Klaks Nýsköp-
unarmiðstöðvar.
Átta norræn fyrirtæki kynna
fjárfestum viðskiptahugmyndir sínar
TENGLAR
..............................................
www.seedforum.is
H ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a