Morgunblaðið - 19.10.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 19.10.2006, Síða 24
)*+,, )*-,, )*.,, )*/,, )*,,, +,, -,, .,, /,, , , .!LM *.& #9: 4 *.& #%0!9 =  . : #* )0+1 )00, )001 /,,, /,,1     !"" 2*1,, 2*,,, /*1,, /*,,, )*1,, )*,,, 1,, , , .!L;" #&  .:!&-7(4:! . * # !  &3# * !:"!!&! # )00, )00. )00+ /,,/ /,,.)00/ )00- /,,,  #  $   " !""%  &' ( ) '*+ B leikjan er vel aðlöguð lífinu á norðurslóðum og nær útbreiðsla hennar norðar en nokkurrar annarrar ferskvatnsfisktegundar. Hún er álitleg eldistegund fyrir íslenskar aðstæður, vex vel við lágt hitastig og mikinn þéttleika, harðgerð teg- und sem þolir meðhöndlun vel og hefur nokkuð góða mótstöðu gegn margs konar sjúkdómum. Bleikjan gefur af sér falleg flök, flakanýting er góð og markaðsverð yfirleitt hátt. Framleiðsla á bleikju á Íslandi Bleikjueldi var stundað í tak- mörkuðum mæli hér á landi síð- ustu öld. Upp úr miðjum níunda áratug síðustu aldar jókst áhugi manna á eldinu og náði fram- leiðslan hámarki árið 2003, var tæp 1.700 tonn (mynd 1). Fram- leiðslan dróst síðan saman á ár- unum 2004 og 2005 vegna dreifing- arbanns hjá annarri af tveimur kynbótastöðvum landsins. Gert er ráð fyrir mikilli framleiðsluaukn- ingu á næstu árum og er áætlað að hún verði um 3.000 tonn árið 2007. Spáð er að bleikjuframleiðsla hér á landi verði komin í um 5.000 tonn árið 2010. Heimsframleiðsla á bleikju Á síðasta áratug var stöðug aukning í heimsframleiðslu á bleikju og nam ársframleiðslan rúmum 2.000 tonnum í lok áratug- arins (mynd 2). Árið 2001 fór heimsframleiðsla á bleikju yfir 3.000 tonn en hefur síðan dregist saman, fyrst vegna samdráttar í framleiðslu í Svíþjóð (2002–2003) og síðan vegna minni framleiðslu á Íslandi árið 2004. Á undanförnum árum hafa Íslendingar verið stærstu framleiðendur á bleikju í heiminum. Önnur lönd sem eru með umtalsverða framleiðslu eru Kanada, Svíþjóð og Noregur. Markaðsmál Á árunum 1996–2002 nam út- flutningur á silungi 600–800 tonn- um á ári og fór hæst upp í 1.000 tonn á árinu 2003 að verðmæti um 500 milljónir króna. Á síðustu ár- um samanstendur útflutningur á silungi að mestu leyti af bleikju. Frá árinu 1998 hefur FOB-verð á ferskum flökum verið yfir 600 kr/ kg og hæst á árinu 2001 um 840 kr/kg. Verð á heilum ferskum fiski hefur verið tiltölulega stöðugt eða um 400 kr/kg (391–433 kr/kg) nema árið 2001 þegar það fór upp í rúmar 500 kr/kg. Íslendingar eru ráðandi í bleikjuútflutningi því að framleiðsla annarra fer að mestu á heimamarkað. Framboð á eldisbleikju kemur til með að aukast jafnt og þétt á næstu árum og mun aukningin lík- lega koma að stærstum hluta frá Íslandi. Það er því mikilvægt að unnið verði skipulega að markaðs- setningu bleikju á næstu árum til að tryggja áframhaldandi hátt verð á afurðinni. Til að efla bleikjueldi hér á landi hefur rík- isstjórn Íslands ákveðið að varið verði sérstöku 10 milljón króna framlagi árlega næstu þrjú ár til markaðs- og sölustarfs á bleikju- afurðum. Góðar aðstæður til bleikjueldis á Íslandi Við samanburð á samkeppn- ishæfni milli landa vega land- fræðilegar aðstæður mest. Ekkert samkeppnislandanna í Norður- Atlantshafi hefur þá gnótt af lind- arvatni, jarðhita og jarðsjó sem er að finna hér á landi þar sem hægt er að skapa kjöraðstæður fyrir eldisbleikju m.t.t. hita og seltu. Aðstæður hér á landi gera kleift að byggja mjög stórar stöðvar og ná þannig stærðarhagkvæmni í framleiðslunni. Í samkeppn- islöndum er takmarkað aðgengi að grunnvatni og vandamál með of heitt yfirborðsvatn á sumrin fyrir bleikjueldi í kerum og kvíum. Vegna takmarkaðs grunnvatns og dýrrar orku þurfa samkeppnisað- ilar að nota dýr hringrásarkerfi til að endurnýta vatn í strand- og landeldisstöðvum. Kvíaeldi hefur náð minni útbreiðslu en eldi á bleikju í kerum og er meg- inástæðan sú að vatnshiti verður fullhár yfir heitustu mánuðina á sumrin og í verstu tilvikum getur það valdið verulegum afföllum á fiski. Rannsóknar- og þróunarstarf mikilvægt Um 1990 var stundað öflugt rannsóknar- og þróunarstarf í bleikjueldi og framan af var það Framleiðnisjóður landbúnaðarins sem veitti greininni mestan stuðn- ing. Þegar líða fór á tíunda áratug- inn dró verulega úr rannsóknar- og þróunarstarfi í bleikjueldi. Nú síðustu árin hefur einkum rík- issjóður styrkt greinina með ár- legu framlagi til kynbótaverkefn- isins á bleikju á Hólum í Hjaltadal. Fram að þessu hafa erlendir vís- indamenn leitt rannsóknar- og þróunarstarf í bleikjueldi og bleikjueldi hér á landi hefur hing- að til notið ávaxta þeirrar vinnu. Margt bendir til þess að erfitt verði að þróa umfangsmikið bleikjueldi í samkeppnislöndum og eru því miklar líkur á að vís- indamenn hafi takmarkað aðgengi að fjármunum úr opinberum rann- sóknarsjóðum með þeim afleið- ingum að dragi úr rannsóknar- og þróunarstarfi. Ef halda á áfram öflugu rannsóknar- og þróun- arstarfi í bleikjueldi þarf sú vinna að mestum hluta að framkvæmast af íslenskum vísindamönnum. Með auknu bleikjueldi á Íslandi á næstu árum og áratugum er því mikilvægt að haldið sé úti öflugu rannsóknar- og þróunarstarfi til að stuðla að samkeppnishæfu bleikju- eldi. Íslenskt bleikjueldi mun í framtíðinni ekki eingöngu keppa við bleikjueldi samkeppnislanda heldur einnig við eldi laxfiska og annarra eldisfiska. Kynbætur eru mikilvægar Árið 1989 hófst samanburður á bleikjustofnum hér á landi til að finna hentuga stofna til kynbóta. Kynbætur á bleikju hefjast síðan árið 1992 og hafa þær frá upphafi verið hjá Hólaskóla. Á þessum tíma hafa átt sér stað miklar fram- farir á mikilvægum eiginleikum s.s. vexti sem hefur lækkað fram- leiðslukostnað. Betur virðist hafa verið staðið að söfnun á efniviði til kynbóta á Íslandi í upphafi en í samkeppnislöndum. Hins vegar hafa kynbætur verið stundaðar lengur í sumum samkeppnisland- anna og hugsanlega eru þær komnar lengra. Kynbætur eru ei- lífðarverkefni og ein mikilvægasta forsenda þess að íslenskt bleikju- eldi geti orðið samkeppnishæft í framtíðinni. Bleikjueldisráðstefna Þann 27. október verður haldin bleikjuráðstefna á Hótel Loftleið- um. Að skipulagningu ráðstefn- unnar standa Landssamband fisk- eldisstöðva, Hólaskóli og Fiskeldishópur AVS. Markmið ráðstefnunnar eru:  Gefa yfirlit yfir stöðu og fram- tíðaráform í bleikjueldi á Íslandi  Meta samkeppnishæfni bleikju- eldis á Íslandi  Koma með tillögur að mik- ilvægum rannsóknar- og þróun- arverkefnum  Greina frá öðrum mikilvægum verkefnum sem miða að því að efla bleikjueldi á Íslandi Nánari upp- lýsingar um ráðstefnuna er að finna á www.fiskeldi.is Spáð er eldi 5.000 tonna af bleikju hérlendis árið 2010 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fiskeldi Eldi á bleikju er mest í heiminum á Íslandi. Hér er verið að vinna eldisbleikju á Klaustir. Íslendingar eru ráð- andi á markaðnum fyr- ir bleikju sem er bæði í Evrópu og Bandaríkj- unum. Þeir Valdimar Ingi Gunnarsson, Fisk- eldishópi AVS, og Guð- bergur Rúnarsson, Landssambandi fisk- eldisstöðva, hafa tekið saman eftirfarandi grein um bleikjueldið. Íslendingar eru stærstu framleiðendur á bleikju í heiminum og hafa náð lengra en keppinautarnir 24 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.