Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 38
26 6. apríl 2009 MÁNUDAGURNÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 12 12 L L L L 16 L L FAST AND FURIOUS kl. 5.50 - 8 - 10 MALL COP kl. 5.50 - 8 - 10 12 L FAST AND FURIOUS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 FAST AND FURIOUS LÚXUS kl. 5.45 - 8 - 10.15 MONSTERS VS ALIENS 3D kl.1 - 3.20 - 5.30 ísl. tal MONSTERS VS ALIENS kl.1 - 3.20 - 6 ísl. tal MONSTERS VS ALIENS LÚXUS kl. 1 - 3.20 íslenskt tal MALL COP kl.1 - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 KILLSHOT kl. 8 - 10 MARLEY AND ME kl. 8 - 10.30 BLÁI FÍLLINN kl.1 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ KAUPIR BÍÓMIÐANN Á 14 12 L 14 14 CHOKE kl. 6 - 8 - 10 (Ekkert hlé) THE BOY IN THE STRIPED PYJAMAS kl. 5.50 - 8 - 10.10 MALL COP kl. 5.50 - 8 - 10.10 ARN THE NIGHT TEMPLAR kl. 10.20 THE READER kl. 5.50 - 8 5% 5% SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000 L 16 12 L MARLEY AND ME kl. 5.30 - 8 - 10.30 KILLSHOT kl. 6 - 8 - 10 HE´S JUST NOT THAT INTO YOU kl. 6 - 9 FANBOYS kl. 6 - 8 - 10 Vinsælasta gaman- mynd ársins í USA 2 vikur á toppnum! Vinsælasta myndin á Íslandi í dag! Öryggi tekur sér aldrei frí! PÁSKAMYNDIN Í ÁR! Vinsælasta My ndin í USA í dag! 850kr. fyrir börn1000 kr. fyrir fullorðna kl.1 PÁSKAMYNDIN í ár! Frá þeim sem færðu okkur Shrek og Kung Fu Panda kemur ÓTRÚLEGA SKEMMTILEG teiknimynd fyrir alla fjölskylduna! Fyrsta DREAMWORKS ANIMATION TEIKNIMYNDIN SEM ER GERÐ SÉRSTAKLEGA FYRIR ÞRÍVÍDD(3D). TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA MONSTERS VS ALIENS m/ísl. tali kl. 8 L WATCHMEN kl. 10:10 16 THE INTERNATIONAL kl. 8 16 THE WRESTLER kl. 10:30 14 MONSTERS VS ALIENS m/ísl. tali kl. 6 L ELEGY kl. 8 12 RACE TO WITCH MOUNTAIN kl. 6 7 KNOWING kl. 8 12 MONSTERS VS ALIENS m/ísl. tali kl. 8 L DUPLICITY kl. 8 - 10:20 L VALKYRIE kl. 10 16 FAST & FURIOUS kl. 6 - 8 - 10:20 12 FAST & FURIOUS kl. 8 - 10:20 VIP MONSTERS VS ALIENS kl. 5:50(3D) L MONSTERS VS ALIENS kl. 5:50 L MONSTERS VS ALIENS kl. 8 - 10:20 L KNOWING kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 WITCH MOUNTAIN kl. 5:50 L DUPLICITY kl. 8 12 WATCHMEN kl. 8:20 16 GRAN TORINO kl. 10:20 12 GRAN TORINO kl. 5:50 VIP m/ísl. tali m/ísl. tali m/ísl. taliMONSTERS VS ALIENS kl. 5:50(3D) L MONSTERS VS ALIENS kl. 5:50 L MONSTERS VS ALIENS kl. 8(3D) - 10:10(3D) (ótextuð) L KNOWING kl. 8D - 10:30D 12 BAADER MEINHOF COMPLEX kl. 6 - 9 16 m/ensku tali m/ísl. tali - bara lúxus Sími: 553 2075 FAST & FURIOUS - POWER kl. 5.50, 8 og 10.10 12 MONSTERS VS. ALIENS 3D kl.2(850 kr), 4, 6 Ísl tal L MONSTERS VS. ALIENS kl.2(500 kr), 4, 6 Ísl tal L MALL COP kl. 4, 8 og 10.10 L VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 10 12 ÆVINTÝRI DESPERAUX kl. 2(500 kr) L Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu! POWERSÝNING KL. 10.10 HEIMSFRUMSÝNING EINNIG SÝND Í 3D Leikstjóra verðlaunamyndarinnar verður boðið til CANNES þar sem myndin tekur þátt í Short Film Corner. ® STUTTMYNDADAGAR Í REYKJAVÍK 2008 Kringlubíó 28 maí. Fyrsta sæti 100.000 kr. Annað sæti 75.000 kr. Þriðja sæti 50.000 kr. Áhorfendaverðlaun. Tónlistarhátíðin Nokia on Ice var haldin í annað skiptið á föstudags- kvöldið. Sú fyrri var haldin í nóv- ember 2007 á Gauki á Stöng og Organ, en í þetta skiptið fór hátíð- in fram í Listasafni Reykjavíkur og Sódómu Reykjavík. Þegar stór- fyrirtæki vilja tengja við tíðarand- ann lenda þau oft svolítið til hliðar við kúlið. Upplýstu ísklumparnir með Nokia-símunum innan í sem búið var að stilla upp fyrir utan tónleikastaðina voru ágætt dæmi um það. Mjög 2007 og í besta falli krúttlega hallærislegir. En tónlist- in er aðalatriðið og þar var finnski farsímarisinn ekkert að klikka. Þegar ég gekk í salinn á Hafnar- húsinu klukkan rúmlega tíu var ný sveit Bigga Maus, Króna, að spila en henni var bætt inn á dag- skrána á síðustu stundu. Þetta lag sem ég heyrði hljómaði bara vel. Biggi kominn heim og farinn að gera gera það sem hann kann best – búa til rokk með íslenskum text- um. Næst á svið var Sometime. Þau tóku sig vel út á sviðinu í sérfram- leiddum glansbúningum. Þau náðu upp ágætri stemningu með raf- danspoppinu sínu. Skemmileg sveit og betri á tónleikum en á plötunni, sem var frekar bragðdauf. Svo var það Jeff Who? Þrátt fyrir að hafa bara sent frá sér tvær plötur geta þeir félagar auðveldlega sett saman prógramm með nær eintóm- um útvarpssmellum. Þeir byrjuðu á Congratulations og svo tók hver hittarinn við af öðrum. Og áhorf- endur voru vel með á nótunum. Gógódansarar og þeramín Á Sódómu Reykjavík var Báru- járn að stíga á svið þegar ég kom á staðinn. Mjög efnileg sveit sem spilaði hressilega blöndu af sýru- rokki, þungarokki, pönki og rokka- billí. Hún er ágætlega spilandi og hefur meðal annars þeramínleik- ara innanborðs sem setur mikinn svip á útkomuna. Á sviðinu voru líka tvær gógóstelpur sem döns- uðu út alla tónleikana og áttu sinn þátt í að rífa upp stemninguna. Flott band sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Næst var það svo Bang Gang í Hafnarhúsinu. Barði ásamt Arnari og Nóa Steini úr Leaves, Hrafni Thoroddsen og fleirum. Eins og við var að búast hjá Barða var mikið lagt í smáatriðin og band- ið vel æft. Samt fannst mér þessi gæðaframsetning fara svolítið fyrir lítið þarna í Hafnarhúsinu. Kannski vegna þess að hljómburð- urinn þar er ekkert sérstaklega góður og skvaldrið í áhorfendum var orðið ansi hávært á þessum tímapunkti. Hápunktarnir á Sódómu Síðustu tvö böndin á Sódóm- unni voru hins vegar hápunktur Nokia on Ice 2009. Fyrst var það skemmtilegasta tónleikabandið á Íslandi þessi misserin, Sudden Weather Change. Ég sá þá fyrst á Airwaves í haust og tónleikarnir á föstudagskvöldið staðfestu að þeir verða bara betri. Amerískt gítar- rokk undir miklum Sonic Youth áhrifum. Bara hressara. Drullu- þétt band og gleðin sem skein af meðlimunum á sviðinu smitaði líka allan salinn. Loks var það svo Mammút sem kláraði kvöld- ið með frábæru setti. Á þessum tímapunkti var Sódóman orðin vel troðin og stemningin í hamarki. Á heildina litið var þetta fín kvöldstund. Ágæt blanda af íslensku rokki og poppi. Sneiðmynd með stórum nöfnum og minni. Stærstu nöfnin voru í Hafnar- húsinu, en hápunktar kvöldsins voru á Sódómu Reykjavík. Trausti Júlíusson Góð blanda af poppi og rokki TÓNLEIKAR Nokia on Ice-hátíðin Hafnarhús og Sódóma Reykjavík, 3. apríl ★★★★ Fín kvöldstund. Stærstu nöfnin voru í Hafnarhúsinu, en hápunktar kvöldsins voru á Sódómu Reykjavík. FLOTT TÓNLISTARHÁTÍÐ Nokia on Ice var haldin öðru sinni í miðbæ Reykjavíkur á föstudagskvöld. Ný hljómsveit Bigga í Maus, Króna, sló upphafstóna hátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Plötusnúðurinn Magnús Guð- mundsson, betur þekktur sem Maggi Legó, hefur ákveðið að breyta um nafn. Og hefur skilað inn þar til gerðum pappírum hjá Þjóðskrá. Þegar breytingin verð- ur um garð gengin mun hann heita Magnús Dýri Guðmundsson. „Jú, þetta er búinn að vera draumur minn lengi,“ sagði Magnús þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Þetta nafn átti víst að vera með þegar ég var skírður og mér var sagt frá því þegar ég var lítill og fannst það alltaf mjög flott,“ útskýrir Magnús. En síðan hafa liðið nokkur ár og það var ekki fyrr en Magnús Dýri átti leið niður á Þjóðskrá af algjörlega óskyldum ástæðum að hann lét verða af þess- um langþráða draumi sínum. „Ég var bara að skipta um lögheim- ili og þá kviknaði þessi hugmynd bara allt í einu. Ég fyllti út ein- hverja pappíra og greiddi fjögur þúsund krónur fyrir. Mér skilst að það taki tíu daga að fá þetta í gegn og eftir það mun nafnið verða Magnús Dýri.“ - fgg Maggi Legó verður Dýri FÆR LOKS DÝRA-NAFNIÐ Dýra-nafnið hefur fylgt Magga Legó frá unga aldri. Hann hefur nú loks látið verða af því að bæta því við nafnið sitt.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.