Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 40
28 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR
sport@fretta-
KÖRFUBOLTI KR-ingar og Grind-
víkingar sýndu á sér tvær hliðar í
88-84 sigri KR í fyrsta úrslitaleik
liðanna í DHL-Höllinni á laugar-
daginn. KR vann fyrstu þrjá leik-
hlutana með 23 stiga mun, 74-51,
en fékk síðan á sig 33 stig í fjórða
leiklhuta og var nærri því búið að
missa frá sér leikinn.
„Við vorum virkilega góðir
fyrstu þrjá leikhlutana en svo
koma þeir mjög sterkir inn í þetta
í fjórða leikhluta þar sem allt
annað lið mætti til leiks hjá þeim.
Við þurfum að hafa það í kollinum
þegar við förum til Grindavíkur
að þeir eru með marga sem geta
skorað mörg stig á stuttum tíma,“
sagði Benedikt Guðmundsson,
þjálfari KR.
„Við vorum ragir og lélegir
framan af leik. Ég er mjög svekkt-
ur,“ sagði Friðrik Ragnarsson,
þjálfari Grindavíkur, og gat ekki
leynt vonbriðgum sínum með byrj-
un liðsins. Hann hrósaði sínu liði
þó fyrir að koma til baka. „Það
skiptir samt engu máli hvort við
töpuðum með 4 stigum eða með 30
stigum. Staðan er bara 1-0 og við
erum ekkert lélegri í körfubolta
en við vorum fyrir viku síðan. Við
þurfum að hysja upp um okkur og
spila betur,“ sagði Friðrik.
Nick Bradford var frábær í
leiknum, skoraði 38 stig og fékk
43 í framlagseinkunn. „Við erum
ekkert að stressa okkur yfir því
þótt Nick sé að skora mikið, svo
framarlega sem við vinnum. Það
má ekki hleypa þessum stórskytt-
um í gang. Við erum ekki að tví-
dekka hann til þess að það opnist
fyrir einhverja aðra,“ sagði Bene-
dikt, og fyrirliðinn Fannar Ólafs-
son, tekur undir þetta. „Nick er
ofboðslega góður leikmaður en ég
er á því að ef við höldum hinum
niðri má Nick skora eins og hann
vill,“ sagði Fannar.
Nick Bradford skoraði 28 af 51
stigi Grindavíkur í fyrstu þremur
leikhlutunum (55 prósent) þar sem
restin af liðinu nýtti aðeins 9 af 36
skotum sínum (25 prósent).
Tvær af umræddum skyttum
Grindvíkinga fóru einmitt í gang
í lokahlutanum þar sem Brenton
Birmingham og Helgi Jónas Guð-
finnsson skoruðu 19 af 25 stigum
sínum í leiknum.
Fram undan er annar leikurinn
í Grindavík í kvöld þar sem Grind-
víkingar unnu eina leik liðanna í
vetur með 11 stiga mun.
„Við vitum að Grindavík á hell-
ing inni. Þetta eru mjög jöfn lið,
held ég, og þeir eiga eftir að koma
grimmir til leiks,“ segir Benedikt.
ooj@frettabladid.is
KR ætlar ekki að tvídekka Nick
KR er komið í 1-0 í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn eftir 88-84 sigur á Grindavík. Þjálfari og fyrirliði
KR hafa meiri áhyggjur af grindvísku skyttunum en Nick Bradford sem skoraði 38 stig á laugardag.
TVEIR FRÁBÆRIR Fannar Ólafsson
og Nick Bradford berjast um frákast
en þeir léku báðir mjög vel í fyrsta
leiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Hanna náði ekki meti Ramune
Hanna Guðrún Stefánsdóttir var einu marki frá því að
bæta markamet félaga síns í Haukaliðinu, Ramune
Pekarskyte, í lokaumferð N1-deildar kvenna um
helgina. Ramune skoraði 253 mörk í 25
leikjum veturinn 2003-2004 eða 10,12
mörk að meðaltali í leik. Hanna skoraði
9 mörk í 30-22 sigri Hauka á HK en
þurfti að skora tíu mörk til að bæta afrek
Ramune. Hönnu tókst þó að ná 210
mörkum, sem þýðir að hún skoraði
yfir tíu mörk að meðaltali í leik.
Afraksturinn var 212 mörk í 21 leik
eða 10,09 mark í leik.
N1-deild karla
Akureyri-Fram 28-28 (13-15)
Stjarnan-Haukar 27-31 (13-16)
FH-Víkingur 25-27 (10-16)
HK-Valur 33-26 (17-11)
LOKASTAÐAN
Haukar 21 16 1 4 599-516 33
Valur 21 13 3 5 585-509 29
HK 21 10 5 6 564-560 25
Fram 21 10 4 7 586-580 24
FH 21 8 2 11 602-613 18
Akureyri 21 7 3 11 538-573 17
Stjarnan 21 6 3 12 535-572 15
Víkingur 21 3 1 17 527-613 7
Í ÚRSLITAKEPPNINNI MÆTAST:
Haukar-Fram Valur-HK
Úrslitakeppnin hefst 16. apríl og þurfa lið að
vinna tvo leiki til að komast í lokaúrslitin.
N1-deild kvenna
Fram-Fylkir 37-26 (19-13)
FH-Valur 15-29 (7-12)
HK-Haukar 22-30 (11-15)
Grótta-Stjarnan 23-32 (14-17)
LOKASTAÐAN
Haukar 21 18 2 1 659-553 38
Stjarnan 21 18 0 3 602-473 36
Valur 21 15 1 5 634-481 31
Fram 21 10 1 13 567-549 21
HK 21 7 1 13 564-612 15
FH 21 6 0 15 547-612 12
Grótta 21 4 0 17 463-635 8
Fylkir 21 3 1 17 510-631 7
Í ÚRSLITAKEPPNINNI MÆTAST:
Haukar-Fram Stjarnan-Valur
Úrslitakeppnin hefst 18. apríl og þurfa liðin að
vinna tvo leiki til að komast í lokaúrslitin.
LOKAUMFERÐIN
HANDBOLTI Akureyringar þökk-
uðu Haukum pent fyrir að vinna
Stjörnuna í lokaumferð N1-deild-
ar karla í gær. Þar með skipti
ekki máli að Akureyri gerði jafn-
tefli við Fram, 28-28, og endaði
liðið því í sjötta sæti deildarinn-
ar á meðan Stjarnan mætir Sel-
fyssingum í umspili um laust sæti
í efstu deild að ári.
„Við vorum bara á léttleikanum
í dag. Viggó sagði við okkur fyrir
leikinn að þetta væri pressulaust
og að leikurinn skipti ekki öllu
máli,“ sagði Framarinn Rúnar
Kárason, sem var besti maður
vallarins. Fram mætir nú deildar-
meisturum Hauka í úrslitakeppn-
inni í stað Valsmanna. „Þetta
eru bæði hörkulið sem við þurf-
um kannski að vinna til að verða
meistarar,“ sagði Rúnar.
Viggó Sigurðsson, áðurnefndur
þjálfari Fram, fékk rautt spjald
fyrir mótmæli eftir leikinn, sem
Framarar köstuðu frá sér. Þeir
leiddu 23-28 en með góðri vörn
náði Akureyri að minnka muninn
og Andri Snær Stefánsson jafnaði
svo metin í blálokin.
Annar dómara leiksins var Jón
Karl Björnsson, sem lék í mörg
ár undir stjórn Viggós hjá Hauk-
um. Jón Karl hefur lagt skóna á
hilluna en er búinn að snúa sér að
dómgæslunni.
„Það er gríðarlega létt yfir
okkur,“ sagði Akureyringurinn
Jónatan Magnússon brosmildur
eftir leik. „Við vildum alls ekki
enda tímabilið í þessari stöðu.
Fyrir stuttu ætluðum við okkur
í úrslitakeppnina, en við náðum
okkur aldrei aftur á flug. Við spil-
uðum illa í dag fyrir utan síðustu
mínúturnar en sýndum að það er
karakter í liðinu,“ sagði Jónatan
en bæði Heimir Örn Árnason og
Guðlaugur Axelsson ganga í raðir
liðsins í sumar.
„Við getum ekki beðið eftir
næsta vetri. Við gömlu mennirnir
erum langt frá því að vera sadd-
ir. Við erum deildarmeistarar í
2. flokki og framtíðin er björt,“
sagði Jónatan en líklega verða litl-
ar breytingar á leikmannahópn-
um utan Heimis og Guðlaugs.
HK upp fyrir Fram og í 3. sætið
Þar sem Fram tapaði stigi náðu
HK-menn að komast upp fyrir þá
í 3. sætið en HK vann 33-26 sigur
á Val í Digranesi. HK-liðið hefur
leikið mjög vel í þriðju umferð-
inni og er til alls líklegt í úrslita-
keppninni þar sem það mætir ein-
mitt Valsmönnum.
Einar Ingi Hrafnsson og Valdi-
mar Þórsson skoruðu báðir átta
mörk fyrir HK, sem fékk 13 af 14
mögulegum stigum í þriðja og síð-
asta hluta deildarkeppninnar og
vann þá öll hin liðin sem eru með
HK í úrslitakeppninni.
Víkingar kvöddu N1-deildina
með 27-25 útisigri á FH í Kapla-
krika. Tímabilið var nokkuð
endasleppt hjá FH-liðinu, sem
missti marga lykilmenn í meiðsli
á lokasprettinum. Líkt og í síð-
ustu leikjum var liðið án tveggja
markahæstu manna sinna,
Arons Pálmarssonar og Ólafs
Guðmundssonar.
- hþh / óój
Akureyri slapp við umspilið um fallið og Fram missti HK upp fyrir sig í töflunni:
Geta ekki beðið eftir næsta ári
VIGGÓ SÁ RAUTT Viggó Sigurðsson
fékk rauða spjaldið og verður að
öllum líkindum í banni í fyrsta leik í
úrslitakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Helgi Már Magnússon átti mjög góðan leik í 88-84 sigri KR á
Grindavík í fyrsta leik lokaúrslita Iceland Express-deildar karla.
Helgi Már var með 22 stig á 30 mínútum og KR skoraði 21 stigi
meira en Grindavík meðan hann var inni á vellinum.
„Þetta eru úrslitin og það eru allir tilbúnir þá,“ sagði Helgi
kátur eftir leikinn. „Það er gaman að minna aðeins á sig. Það
er samt ekki að ástæðulausu sem er verið að tala um
Jón og Jakob því þeir eru ótrúlega góðir. Maður hefur
gaman af því að sýna að maður getur átt svona
leiki líka,“ sagði Helgi, sem hitti úr 9 af 13 skotum
sínum í leiknum.
„Það er lögð gríðarleg áhersla á að stoppa
þessa menn og Fannar og ég njótum góðs af
því. Sérstaklega Fansi,“ segir Helgi, sem fagnar
því að Grindvíkingar ætli ekki að tvöfalda á fyr-
irliðann. „Þeir virðast ætla að spila einn á einn, sem
er fínt. Fannar var frábær bæði í vörn og sókn. Hann
batt vörnina saman og spilaði fantavel í sókninni,“
sagði Helgi og var ánægður með fyrirliðann sinn.
Helgi var líka ánægður með vörnina í leiknum. „Ef við spilum
svona góða vörn kemur sóknin af sjálfu sér. Þá fáum við
auðveldu körfurnar og þá er bara hraði og hraðaupphlaup og
svaka gaman,“ sagði Helgi. KR tapaði samt fjórða leikhlutan-
um 14-33 og missti niður örugga forustu. „Það greip ákveðin
værukærð menn í lokin. Við vorum komnir með 20 stiga
forskot og menn fóru að reyna að verja forskotið eins og þeir
eiga til að gera í svona stöðu. Lið eins og Grindavík, sem er
með svona hratt spil og góðar skyttur, refsar fyrir það. Sem
betur fer náðu þeir ekki að snúa þessu algjörlega sér í
hag,“ sagði Helgi.
Fram undan er leikur tvö í Grindavík, sem Helgi gerir
sér grein fyrir að verður mjög erfiður. „Endakaflinn í
þessum leik var kannski bara ágætis spark í rassinn
því ef við erum ekki á tánum gæti allur leikurinn
verið svona. Við vitum að Grindvíkingar eru með
gott lið og það er ekki að ástæðulausu sem þeir
eru í úrslitunum. Við ætlum að taka á þeim,“ sagði
Helgi Már að lokum.
HELGI MÁR MAGNÚSSON HJÁ KR: ÁTTI FRÁBÆRAN LEIK Í SIGRI KR Á GRINDAVÍK Í FYRSTA LEIK LOKAÚRSLITANNA
Það er gaman að minna aðeins á sig