Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 34
22 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR
menning@frettabladid.is
Nú um páskana verður tónlistarhátíðin Músík í
Mývatnssveit haldin í ellefta sinn. Eru hátíðahöld-
in þar nyrðra orðin fastur liður í helgi páskanna
þar um slóðir á mörkum vetrar og vors þegar
sólin hækkar og þíðu tekur að gæta. Það er Lauf-
ey Sigurðardóttir sem stendur fyrir tónleikahald-
inu en að þessu sinni verða tónleikarnir tvennir.
Annars vegar verða kammertónleikar í Skjól-
brekku á skírdag kl. 20 þar sem flutt verður
píanótríó eftir Beethoven og þekktar aríur
eftir Verdi og Puccini auk þess sem frumflutt
verða þrjú lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð
Þorsteins frá Hamri.
Á föstudaginn langa verða kirkjutónleikar í
Reykjahlíðarkirkju kl. 21. Þar verður flutt tónlist
af kirkjulegum toga, m.a. eftir Bach, Leclair og
Vivaldi, og frumflutt verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son, Síðustu orð Krists á krossinum.
Flytjendur að þessu sinni eru: Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran, Laufey Sigurðardóttir fiðla,
Bryndís Björgvinsdóttir selló og Aladár Rácz
píanó og orgel. Aðgöngumiðar að tónleikunum
verða til sölu við innganginn. - pbb
Músík í Mývatnssveit um páskana
TÓNLIST Laufey Sigurðardóttir stendur fyrir tónlistar-
hátíð við Mývatn í dymbilviku
Skoðaðu
Mín borg
ferðablað
Icelandair á
www.icelandair.is
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
kl. 21
Næsti fundur Bebopfélags Reykjavíkur
fer fram í kvöld. Fram kemur gítarsnill-
ingurinn Jón Páll Bjarnason ásamt þeim
Ólafi Jónssyni, Þorgrími Jónssyni og
Erik Qvick. Ætla þeir félagar að að fagna
50 ára afmæli útkomu tímamótaplötu
John Coltrane, Giant Steps, og leika
nokkur lög af henni ásamt fleiri lögum
tengdum Coltrane. Hefst leikurinn kl. 21
og upp úr kl. 22 verður djammsessjón og
eru allir sem vettlingi geta valdið hvatt-
ir til að mæta og spreyta sig. Fundurinn
fer fram í Jazzkjallara Café Cultura,
Hverfisgötu 18, gegnt Þjóðleikhúsinu.
>Ekki missa af
...tónleikum sem helgaðir eru
sálmum Hallgríms Pétursson-
ar í kvöld í Laugarneskirkju.
Kristín Erna Blöndal söngkona,
Gunnar Gunnarsson organisti
og Matthías Hemstock
slagverksleikari flytja bæði ný
og gömul lög við sálma eftir
Sigurð Sævarsson, Tryggva
Baldursson, Smára Ólafsson
og Kristínu Ernu. Hér er í boði
óvenjuleg samsetning raddar
og hljóðfæra. Fólk er hvatt til
að hafa Passíusálmana með
sér. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Það er vissulega erfitt að draga
sýninguna Húmanímal í dilka:
stundum er hún hrein myndlist,
stundum dramatískt samtal sem
hverfist í tvídans, raddtilraun
eða söngatriði, erótísk slagsmál,
kyrrstæður sólódans án hreyfing-
ar: hún er tilraunakend hreyfing
sem er bæði skopleg og sársauka-
full, tvíræð en tilfinningaþrungin.
Verkið er unnið í hópi en samt með
leikstjórum, einfaldlega hugsað í
rými með færanlegri dýpt tveggja
veggbrota sem geta lifnað við á
óvæntan og undurfagran máta.
Það var yndislega gaman að
sjá verkið skríða fram, finna fjöl-
breytnina kveikja undrun og hríf-
ast með í einfaldleika kyndugra
hugmynda sem klæddust holdi
og hreyfingu og stundum rödd-
um. Þau hafa verið heppin krakk-
arnir sem standa að sýningunni
að ná utanum svo óskyld kons-
ept sem eru fyrst og fremst sjón-
ræn og koma þeim í svo glæsilega
heild. Þau eru misjafnlega á sig
komin: Álfrún slíkt múltitalent
að mann undrar það, Jörundur að
þreifa sig inn á ný svið, Margrét
nánast himnesk í sínum makalausa
bakskúlptúr og víkur ekki undan
erfiðum orðaleik undir lok verks-
ins. Saga dýrslega líkamleg, Dóra
tvíbent í ræðu sinni um hvatirn-
ar og Friðgeir fáranlega þurr í
erótískri útlistun á ertisvæðum
kvenlíkama. Og allt er þetta borið
fram af hispursleysi, taktskynjun
og alvarlegri nálægð svo undrum
sætti. Allt framkvæmt af fullnustu
og slíkum krafti að aðdáunarvert
var.
Víst gerir grunnhugmynd um
liti og áferð búninga og leikmynd-
ar mikið og hljóðheimurinn sam-
svarar fullkomlega tínslu hug-
mynda í atburðarásina.
Þetta var bara gaman og furðu-
legt og fallegt og maður ók glaður
heim úr Firðinum. Það er á slíkum
stundum að maður þakkar fyrir
Leiklistarráð og það þrekfólk sem
smíðar stórkostlega sýningu úr
litlu. Og hina ungu og óreyndu leik-
stjóra sem binda pakkann saman
að lokum. Páll Baldvin Baldvinsson
Skepnan skríður saman
LEIKLIST Húmanímal rambar milli þess að vera leikur, tónlistargerningur, myndverk og dans. Spennandi efnistök á einföldum
hugmyndum sem koma stöðugt á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LEIKLIST
Húmanímal
Sýning eftir Mig og vini mína.
Flytjendur: Álfrún Helga Örnólfsdóttir,
Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einars-
son, Jörundur Ragnarsson, Margrét
Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir.
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Leikmynd og búningar: Rósa Hrund
Kristjánsdóttir
Ljósahönnun: Garðar Borgþórsson
Umsjón með sviðshreyfingum: Mar-
grét Bjarnadóttir og Saga Sigurðar-
dóttir
Leikstjórn: Friðrik Friðriksson og Frið-
geir Einarsson
★★★★★
Hressandi nýsmíði, fallega unnin og
hugkvæm.