Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 18
18 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. ZACH BRAFF ER 34 ÁRA. „Ég hef alltaf verið hrifinn af sögunni um örkina hans Nóa og hugmyndinni að byrja upp á nýtt með því að bjarga því sem þér líkar við og skilja annað eftir.“ Leikarinn Zach Braff er þekkt- astur fyrir hlutverk sitt í þátt- unum Nýgræðingar eða Scrubs. Hann skrifaði líka handritið að, lék í og leik- stýrði myndinni Garden State. MERKISATBURÐIR 1672 Frakkar lýsa yfir stríði gegn Hollendingum. 1722 Pétur mikli afnemur skatt af mönnum með skegg. 1746 Tveir af þremur bátum á sjó frá Ingólfshöfða farast. Eftir það leggjast af allir sjóróðrar þaðan. 1830 Joseph Smith stofnar Mormónakirkju í Seneca í New York-ríki. 1912 Rafknúinn ræsihreyfill fyrst settur í bíl. 1938 Roy J. Plunkett finnur upp teflon. 1941 Lengsti þorskur sem vitað er um á Íslandsmiðum, 181 sentimetri, veiðist á línu í Miðnessjó. 1944 Átta mönnum bjargað þegar bandarísk herflug- vél steypist í sjó úti af Vatnsleysuströnd. Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður hlaut styrk úr kvikmyndasjóði til að gera kvikmynd eftir skáldsögunni Land og synir, eftir Indriða G. Þorsteinsson. Myndin hlaut hæsta styrk kvik- myndasjóðs en þetta var í fyrsta sinn sem úthlut- un úr sjóðnum fór fram. Einnig fengu styrki þetta ár kvikmyndirnar Óðal feðranna og Veiðiferðin. Kvikmyndin Land og synir er jafnan talin marka upphaf samfelldrar kvikmyndagerðar á Ís- landi en hún var frumsýnd 25. janúar árið 1980 og voru bæði hún og Óðal feðranna sýndar á er- lendum kvikmyndahátíðum. Þær fjalla báðar um togstreitu milli sveitar og borgar á þeim tímum þegar borgarsamfélag er að myndast á Íslandi og fólksflutningar úr sveitunum á mölina verða stað- reynd. Sagan Land og synir segir frá bóndasyni sem býr ásamt öldruðum föður sínum í kotinu. Hugur hans leitar til Reykjavíkur og þótt hann felli hug til bóndadótturinnar á næsta bæ er það ekki nóg til að halda í hann. Þegar faðir hans fellur svo frá brýtur hann allar brýr að baki sér og tekur rútuna suður. Með aðalhlutverk fór Sig- urður Sigurjónsson. Um 110.000 miðar seldust á kvikmyndina og sló hún aðsóknarmet á Íslandi enda voru íslenskar kvikmyndir ekki oft á dagskrá kvikmyndahúsanna. ÞETTA GERÐIST: 6. APRÍL ÁRIÐ 1979 Land og synir hljóta styrk „Ég gekk í hestamannafélagið um leið og ég hafði vit á. Það er bara hluti af menn- ingunni hér í sveitinni,“ segir Guðrún Magnúsdóttir, sem býr í Bræðratungu og er formaður hins fimmtíu ára hesta- mannafélags Loga í Biskupstungum. Hún segir starf þess hafa verið öflugt frá upphafi. „Góð hross hafa alla tíð verið í metum í sveitinni enda mikið notuð kringum sauðféð. Tungnamenn eiga víðlendan afrétt á Kili sem tekur sjö daga að smala og þar þýðir ekkert að vera á neinum kettlingum. Hesta- mennskan snýst líka orðið um sýning- ar og ræktun. „Við erum með þrjú mót á hverjum vetri og eftir að ég tók við formennsku hef ég lagt mikla áherslu á æskulýðsstarf. Við erum með vikulöng reiðnámskeið á sumrin og síðast sóttu það sextíu þátttakendur, frá þriggja ára upp í fullorðna. Það var haldið á félagssvæðinu okkar Hrísholti, sem við erum afar stolt af. Þar hefur allt verið byggt upp í sjálfboðavinnu. Svo erum við dugleg að fara í útreiðartúra, förum í páskareið, sumarreið og ríðum í kirkj- urnar okkar til skiptis. Þær eru fimm og allar á sögustöðum, Bræðratungu, Skálholti, Torfastöðum, Haukadal og Úthlíð.“ Guðrún er uppalin á Kjóastöðum og kveðst hafa haft áhuga á hestum frá barnæsku. „Ég stefndi beint í bænda- skóla og fór að Hólum, tók öll próf sem hægt var í hestamennsku og vann þar um tíma sem reiðkennari áður en ég kom aftur heim í sveitina mína og fór að búa með Kjartani Sveinssyni sem er héðan frá Bræðratungu.“ Aðspurð upplýsir Guðrún að þau búi með sextíu kýr, 200 ær og hóp af hrossum. „Það gengur bara vel,“ segir hún glaðlega. „Að minnsta kosti erum við ekkert að barma okkur, enda erum við ekkert bættari með það.“ En hvernig fagna félagar í Loga fimm- tíu ára afmælinu? „Við byrjuðum á að fá hinn þekkta fyrirlesara Eyjólf Ísólfsson, kennara á Hólum, til okkar í febrúar og það var skemmtilegt og fróðlegt. Einnig ákváðum við að taka þátt í stórsýning- unni Æskan og hesturinn, fórum þangað með 31 barn og tuttugu hross og vorum með sögusýningu sem gekk vel. Svo erum við vön að halda árshátíð í Ara- tungu með kvenfélaginu og ungmenna- félaginu og hún var afar vegleg í ár, hátt í 300 manns mættir og við fengum rausnarlegar gjafir. Búnaðar félagið gaf okkur til dæmis þrjár milljónir sem fara í reiðhöll á Flúðum sem við eigum hlut í með hestamanna félaginu Smára. Það er að byggjast upp skemmtilegt samstarf á milli félaganna enda verður stutt á milli þegar nýja brúin kemur yfir Hvítá sem á að reisa hér í túnfætinum.“ Guðrún segir fólki hafa fjölgað í Biskups tungunum á síðustu árum og mannlíf sé þar fagurt. „Það er gríðar- lega gott að starfa að félagsmálum í þessari sveit,“ segir hún. „Samstaðan er svo mikil.“ gun@frettabladid.is HESTAMANNAFÉLAGIÐ LOGI Í BISKUPSTUNGUM: FIMMTÍU ÁRA Engir kettlingar duga á KiliÚtför ástkærra foreldra okkar, tengdaforeldra, ömmu og afa, langömmu og langafa, Guðmundu Bjarnýjar Ólafsdóttur og Sigurðar Ágústar Magnússonar verður haldin í Grafarvogskirkju miðvikudaginn 8. apríl kl. 13.00. Jóngeir A. E. Sigurðsson Una Árnadóttir Benedikt Gabríel Sigurðsson Ólafía Kristný Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson Dagbjört Lára Garðarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Guðmundur Sv. Guðmundsson Jóhanna Sigurðardóttir Martin Jay Alex Martin barnabörn og barnabarnabarn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför ástkærrar konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Birnu Hervarsdóttur Hamraborg 18, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 13 E Landspítala við Hringbraut fyrir hlýhug og góða umönnun. Guðmundur Maríasson Hafsteinn Gunnar Jakobsson Þórunn Sif Björnsdóttir Svanhvít Jakobsdóttir Stefán Jens Hjaltalín Jón Þorkell Jakobsson Júlíana Harðardóttir Sóley Jakobsdóttir Bjarni Sigurbjörnsson Guðmunda Jakobsdóttir Hannes Ingi Jónasson og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Sesselja Anna Jóhannsdóttir Møhl frá Syðra-Lágafelli, Snæfellsnesi, fædd 19. nóvember 1934, lést í Kaupmannahöfn fimmtudaginn 2. apríl 2009. Jarðsett verður frá Gladsaxe Kirke miðvikudaginn 8. apríl 2009. Elsket og savnet. Erik Møhl Birgitte Møhl Christian Møhl Dorte Nielsen Cecilie, Isabella og systkini hinnar látnu. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Ólafur Finnbjörnsson Bugðulæk 18, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 28. mars, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. apríl kl. 13.00. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir Haukur Garðarsson Laufey Guðmundsdóttir Gylfi Georgsson Sigríður Guðmundsdóttir Brynjólfur N. Jónsson Helga Guðmundsdóttir Sigurður Einar Einarsson afabörn og langafabarn. Elsku litli drengurinn okkar, Valdimar Máni Guðjónsson, lést að morgni 25. mars sl. Útförin fór fram í kyrrþey frá Höfðakapellu á Akureyri. Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð og hlýhug. Svanhildur Sif Aradóttir Guðjón Friðmar Gunnarsson og aðstandendur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hjart- kærs eiginmanns míns, föður, fóstra, afa, langafa og langalangafa. Hallbjarnar Bergmanns Elímundarsonar. Sérstakar þakkir til deildar 4 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. F.h. okkar allra, Erla Fríðhólm Sigurðardóttir. Hjartans þakkir til allra þeirra sem auð- sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, Snorra Halldórssonar Hvammi, Eyjafjarðarsveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri, á lyflækningadeild og öldrunardeildinni í Kristnesi, ásamt hjúkrunarfræðingum heimahjúkrunar á Akureyri fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Guðlaug Helgadóttir og börn. FORMAÐUR HESTA- MANNAFÉLAGSINS LOGA Guðrún á Fal frá Bræðratungu. M YN D /SIG U R LÍN A K R ISTIN SD Ó TTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.