Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 12
 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Demparar Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár. Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast. Þvottavélar - Verð frá kr. 139.995 Þurrkarar - Verð frá kr. 119.995 TILBOÐ Sparaðu með Miele Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí ka 2 0 0 8 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI Á STIGAGANGINN EVRÓPUMÁL Þótt lítil eyþjóð hafi veika rödd innan „fjölskyldu“ eins og Evrópusambandsins, þá er það samt betra en að hafa veika rödd utan fjölskyldunnar. Á þennan hátt lýsir Marios Katsioloudes, deildar- forseti við Grísk-ameríska háskól- ann, Hellenic American University, reynslu Kýpverja af fimm ára veru í Evrópusambandinu. Hann hélt framsöguerindi á málfundi um kosti og galla ESB-aðildar sem haldinn var á vegum tvíhliða viðskiptaráða Íslands og Þýskalands, Bretlands, Svíþjóðar, Spánar og fleiri á Grand Hóteli fyrir helgi. Katsioloudes lagði í erindi sínu áherslu á að þótt efnahagsleg atriði væru jafnan í forgrunni þegar þjóð leggur mat á kosti og galla ESB- aðildar, þá skiptu önnur atriði á borð við formlegt og menningarlegt sjálfstæði ekki síður máli. Gerði hann í þessu sambandi að umtals- efni hve algengt það væri orðið að starfsfólk í ferðaþjónustu, svo sem afgreiðslufólk á veitingastöðum, væri eftir ESB-inngöngu Kýpur ekki mælandi á grísku og jafnvel illmælandi á ensku, þar sem þess- ir starfsmenn væru nú upp til hópa farandverkafólk frá nýju ESB-aðild- arríkjunum í austan verðri Evrópu. Martin Marcussen, dósent í stjórnmálafræði við Kaupmanna- hafnarháskóla, talaði um lærdóm sem draga mætti af nærri fjög- urra áratuga aðild Dana að ESB. Marcussen er einn höfunda nýlegrar skýrslu sem unnin var fyrir danska þjóðþingið um afleiðingar „dönsku undanþáganna“ svonefndu, sem samið var um eftir að Danir höfn- uðu staðfestingu Maastricht-sátt- málans í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1992. Marcussen lagði áherslu á að reynsla Dana sýndi hve mikilvægt það væri að „engu væri sópað undir teppið“ í umræðunni um kosti og galla aðildar, þegar sú umræða færi fram í aðdraganda aðildar. Danskir ráðamenn hefðu, með réttu eða röngu, setið uppi með það lengi eftir inngönguna árið 1973 að stór hluti almennings í landinu ætti bágt með að treysta því sem ráðamenn segðu um ESB-mál þar sem honum fyndist sem ráðamenn hefðu ekki sagt allan sannleikann um það hvað í ESB-aðild myndi felast, þegar samið var um hana á sínum tíma. Með öðrum orðum: Í upphafi skyldi endirinn skoða. Um reynslu Dana af því að standa utan evrópska myntbandalagsins sagði hann að með þeirri miklu nánd sem þeir hefðu komið sér upp við það kerfi (fastgengi og sama vaxtastefna) nytu þeir nú þegar margra kosta þess, án aðildar. Loks dró Alyson Bailes, gesta- prófessor við Háskóla Íslands, saman reynsluna af öryggismála- samstarfi í ESB. audunn@frettabladid.is KÝPUR OG DANMÖRK Í ESB Framsögumennirnir Marios Katsioloudes frá Kýpur og Martin Marcussen frá Danmörku hlýða á opnunarávarp Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra á málþinginu á Grand Hótel. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Veik rödd innan fjöl- skyldu betri en utan Betra er að hafa veika rödd innan þeirrar þjóðafjölskyldu sem ESB er en utan. Þetta kom fram á málfundi um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Þar var meðal annars fjallað um reynslu Kýpverja og Dana af mislangri aðild sinni. SAMFÉLAGSMÁL Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavand- ann, SÁÁ, eru sökuð um villandi og rangar staðhæfingar í umfjöll- un sinni um kannabisefni, í opnu bréfi Ólafs Skorrdal til Matthías- ar Halldórssonar landlæknis. Bréfið var sent 31. mars, í kjöl- far staðhæfinga á vef SÁÁ um að kannabisneysla leiddi til neyslu harðari vímuefna, og viðtala við Þórarin Tyrfingsson yfirlækni í fjölmiðlum. Ólafur, sem er stofnandi hóps- ins Lögleiðum kannabis og skatt- leggjum neysluna, bendir á að engin vísinda- leg rök fylgi máli hjá SÁÁ, og að ann- ars staðar á vef SÁÁ megi lesa að engar rannsóknir bendi skýr- lega til þess að kannabis neysla leiði til neyslu harðari efna. Þórarinn Tyrfingsson yfir- læknir hafi misnotað stöðu sína til að blekkja fólk og til að koma pólitískum sjónarmiðum á fram- færi. Í bréfinu er og fjallað um við- tal við Þórarin í Kastljósi, þar sem Þórarinn segi að ekkert hafi komið út úr tilraunum til að gera lyf úr kannabis. Ólafur kveður þetta rangt og telur upp þrjú lyf. „Er ekki orðið tímabært að ræða þessi mál af yfirvegun og með hliðsjón af vísindalegum rannsóknum?“ spyr Ólafur. Hann vill vita hvort landlæknir hyggist leiðrétta staðhæfingar Þórarins opinberlega og jafnvel víta hann eða stofnun hans. - kóþ Stofnandi lögleiðingarhóps sakar yfirlækni um rangfærslur af pólitískum toga: SÁÁ klöguð til landlæknis MATTHÍAS HALLDÓRSSON HEILBRIGÐISMÁL Meðal þess sem hefur verið nefnt til að skera niður í heilbrigðiskerfinu er að læknar fari ekki í útköll með neyðarbílum eftir klukkan fjögur á daginn. Ekk- ert er þó ákveðið í þeim efnum og ekki er komin tillaga þar um. Í fyrra var sú breyting gerð að læknir var tekinn úr áhöfn bílanna og síðan hefur hann ekki farið með í útköll nema aðstæður þyki gefa tilefni til; ef þarf að endurlífga eða fólk er fast undir fargi eða inni í bílum. Már Kristjánsson, sviðs- stjóri lækninga-, slysa- og bráða- sviðs á Landspítalanum, segir að þetta fyrirkomulag hafi gengið ágætlega. Ekki sé vitað um að nein vandamál hafi komið upp vegna þessa, þótt mögulega hafi komið upp þau tilvik að þjálfaður læknir hafi ekki verið til staðar í útköll. Már segir að öll starfsemi bráða- móttökunnar sé til skoðunar, þar sem verið sé að sameina tvær móttökur. „Hvort það hefur áhrif á starfsemi neyðarbíls get ég ekki sagt til um,“ segir Már. Hann segir að verið sé að glíma við að spara um tíu prósent eins og fyrri ríkis- stjórn hafi farið fram á. Sú ákvörðun að taka lækni úr áhöfn neyðarbíla vakti miklar umræður í samfélaginu og sitt sýndist hverjum. - kóp Viðvera lækna í útköllum skoðuð vegna hagræðingarsjónarmiða: Allt undir í niðurskurðinum NEYÐARÚTKALL Ekki hefur alltaf verið þjálfaður læknir til að sinna útkalli. Hug- myndir hafa komið upp um að læknir fari ekki með bílum eftir klukkan 16 en ekkert hefur verið ákveðið. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.