Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Afasystir mín, Áslaug Þorsteins- dóttir, saumaði þessa mynd af síð- ustu kvöldmáltíðinni,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur um mynd sem er í miklu uppáhaldi hjá henni. „Hún ákvað að gefa mér þessa mynd þar sem ég er eini presturinn í fjölskyldunni,“ útskýrir Arna. Myndina fékk Arna árið 2004 en á þeim tíma bjó hún á Kópa- skeri en var að flytja í bæinn. „Við fluttum úr tveimur einbýlishúsum í þriggja herbergja íbúð þannig að plássið var takmarkað og því átti ég engan stað fyrir myndina góðu,“ segir Arna en þegar hún fékk stöðu prests í Langholtskirkju fannst henni tilvalið að hengja myndina upp á skrifstofunni sem hún deilir með séra Jóni Helga Þórarinssyni sóknarpresti. „Mér þykir óskaplega vænt um þessa mynd enda ekki oft sem manni áskotnast slíkir dýrgripir eftir ættingja,“ segir Arna og finnst ekki verra að myndin hafi trúarlega merkingu. Mikið er að gera hjá prestum yfir páskana. Arna hlakkar mest til páskavöku sem haldin verður aðfaranótt páskadags. „Það er mjög áhrifarík stund sem hefst klukk- an ellefu að kvöldi laugardags. Í fyrstu er kirkjan almyrkvuð og smám saman birtir til þar til öll ljós eru kveikt. Þá er guðspjallið lesið og páskarnir komnir.“ solveig@frettabladid.is Listaverk á skrifstofunni Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Langholtskirkju, á fallega útsaumaða mynd af síðustu kvöldmáltíðinni. Myndina fékk hún að gjöf frá afasystur sinni sem hefur í gegnum tíðina saumað út fjölda verka. MÁLVERKAUPPBOÐ verður haldið í dag klukkan 18.15 í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Fjöldi verka gömlu meistaranna verður boðinn upp, meðal annars eftir Kjarval, Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur og Ásgrím Jónsson. Séra Arna Ýrr Sigurðar- dóttir, prestur í Langholts- kirkju, er með útsaumaða mynd af síðustu kvöld- máltíðinni á skrifstofu sinni í kirkjunni. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N Velbon þrífætur mikið úrval Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.