Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2007, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Jim Smart
Þorsteinn Gylfason „Mannskrattinn skrifar einfaldlega þannig að maður getur ekki hætt, jafnvel þótt augun kræki ekki í nema setn-
ingarbrot.“ Eyjólfur Kjalar Emilsson og Kristján Árnason fjalla um heimspekina og skáldskapinn í skrifum Þorsteins. » 4-5
Laugardagur 24. 3. 2007
81. árg.
Hrein orka
Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkunotkun er
72% á Íslandi en um 6-7% innan Evrópusambandsins
og um 13% á heimsvísu
72% á Íslandi – 7% í ESB
lesbók
BLEIKIR DRAUMAR
FJALAKÖTTURINN SÝNIR ÞRJÁR MYNDIR EFTIR MEISTARA
JAPANSKRA KLÁMMYNDA, TATSUMI KUMASHIRO » 3
Jöfnuður er of mikilvægur til að láta hann jafnaðarmönnum einum eftir » 12-13
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Þau ykkar sem hafið ekki nú þeg-ar lesið Steinsteypu eftirThomas Bernhard skuluðverða ykkur úti um hana núna!
Þetta er bók um múrsteininn í maga
okkar. Þetta er bók um fallið og lend-
inguna á steinsteyptri stéttinni. Þetta er
bók um það þegar við vöknum í algerri
örvæntingu.
Og bókin er eins konar múrsteinn eða
hella, textinn er 150 síður án kaflaskila, án greinaskila,
settur saman úr löngum endurtekningarsömum máls-
greinum. Lesandinn fær vart ráðrúm til að draga and-
ann.
Maðurinn sem ryður þessum texta út úr sér, sögu-
maður bókarinnar, heitir Rúdolf og er eitthvert aumk-
unarverðasta ritfífl sem um getur. Hann hefur í tíu ár
reynt að koma sér að því að skrifa ævisögu eftirlæt-
istónskálds síns, Mendelssohns Bartholdy, án árangurs
og kennir systur sinni um sem hann segir kúga sig og
grafa undan sér með óþolandi afskiptasemi. Lesandinn
kemst hins vegar fljótt að því að Rúdolf sjálfur er ekki
allur þar sem hann er séður. 150 síðna einræðan lýsir
inn í hugarheim manns sem er fullur af þversögnum, til-
vistarótta, óstjórnlegri dómhörku, hatri og hugsunum
um dauða og sjúkleika.
Þetta hljómar ekki vel en bókin er samt ein ánægju-
legasta og sterkasta lestrarreynsla mín um langt skeið.
Bókin kom út hjá Bjarti í þýðingu Hjálmars Sveins-
sonar árið 2005. Lítið bar á henni. Hún fór líklega fram
hjá mörgum. Það logar misvel á menningarvitunum.
Múrsteinn í
maga okkar
MENNINGARVITINN