Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.2007, Blaðsíða 1
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Framtíðin tilheyrir Bart Simpson, fortíðin
Genji. Fortíðardrengurinn var munsturbarn,
fæddur prins, prúðmenni, karlmenni og hetja.
Framtíðarstaulinn er upprennandi rusti, leti-
blóð með sorakjaft, ódámur og ótugt, en hon-
um er ekki alls varnað því hann á það til að sjá
að sér og vera góður. Bart er ekki vondur að
upplagi, hann er sonur pabba síns, minnsta
barnsins og mesta óvitans í fjölskyldunni.
Drengirnir ólíku spássera um síður Lesbókar í
dag, sá forni er persóna í elstu skáldsögu í
heimi, að því er Úlfhildur Dagsdóttir segir, en
hún heimsótti söguslóðirnar í Japan í fyrra.
Frá landi Genji kemur líka hvuttinn Aibo, sem
ég ímynda mér að Genji hefði þótt gaman að
leika við – hundur, tækniundur, með blikkandi
ljós í stað augna og dansar við teknótónlist, en
um hann og fleiri kynjaskepnur og gæludýr
nútímans skrifar Þórunn Árnadóttir, nýút-
skrifaður vöruhönnuður, í greinaflokki um
hönnun og arkitektúr. Ef til vill er Aibo Lúkas
framtíðarinnar.
En börnin eru fleiri en sagnadrengirnir
Bart og Genji. Ljóðskáld dagsins, Þuríður
Guðmundsdóttir, dregur upp mynd af Grímu,
dóttur Jóhanns Sigurjónssonar í ljóði dagsins.
Var Gríma ef til vill Rauða liljan?
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson leiðir júgó-
slavneskan dreng inn á Lesbókarleikvöllinn,
Saša Stanišic, sem ólst upp við stríð. Fjórtán
ára flúði hann með fjölskyldu sinni til Þýska-
lands, en var vart sestur á þýskan skólabekk
þegar kennari hans sá að hann bjó yfir mikilli
frásagnargáfu. Nú er Saša að verða þrítugur,
og höfundur bókarinnar Hermaður gerir við
grammófón, og Ólafur hvíslar því að hann
verði gestur Bókmenntahátíðar í haust.
Leikvöllur barna og dýra
Laugardagur 28. 7. 2007
81. árg.
lesbók
MANGAGANGA
Í LANDI DÖGUNARINNAR MEÐ GENJI, ASTRÓ-STRÁKNUM,
KARLSEFNI, BAMBA OG KONUM SEM SKENKJA TE » 8
Það var rauða liljan hans sem skein við þeim í grænni lampaglætunni » 15