Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.2007, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.2007, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2007 3 Reuters Þyngsli Forseti Palestínu Mahmoud Abbas grúfir höfuð í hendur sér, en hjá honum situr Salam Fayyad, sem Abbas hefur nú gert að forsætisráðherra í stað Hamasleiðtogans Ismails Hanyeh Eftir Einar Stein Valgarðsson einarsteinn@hotmail.com A f umsögn fjölmiðla mætti halda að aðeins væri um gamla úlfúð milli tveggja hreyfinga, Hamas og Fatah að ræða, en fleira hangir á spýtunni. Það ber t.d. lítið á því í fjölmiðlum hér og í raun í vestrænum fjölmiðlum yfirleitt hvernig hinn svokallaði „kvartett“ (en hann skipa Bandaríkin, Rússland, ESB og Sameinuðu þjóðirnar, þó hann sé í raun fyrst og fremst valdatæki Bandaríkjanna) hefur stutt við bakið á Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Fatah á kostnað Hamas og andspyrnunnar. Gerðir Abbasar hafa spilað beint upp í hendur aflanna sem vilja sundra Palestínumönnum og spilað á móti Hamas og öðrum stjórnarflokkum og þar með og vanvirt niðurstöður frjálsra og lýðræð- islegra kosninga sem fóru eins vel fram og völ var á miðað við aðstæður. Eins og margir muna vann Hamas meirihlutasigur í kosningunum 2006. Abbas og Pinochet Palestínu Abbas er eins og strengjabrúða, hann hefur af- ar takmörkuð völd sem forseti í hernumdu landi og fer fyrir gjörspilltri hreyfingu. Ísraelar ráða einfaldlega því sem þeir vilja ráða. Abbas dans- ar eftir flautu kvartettsins, hann nýtur æ minna trausts þjóðar sinnar, og er það ekki að undra. Það er lítið minnst á dauðasveitir Mohammeds Dahlan, sem heyra að nafninu til undir Abbas en eru fjármagnaðar og vígvæddar af Ísrael og Bandaríkjunum sem þreytast ekki á að lofa Da- hlan og það að hann svarar fyrst og fremst til þeirra; eða þá hvernig Dahlan hefur verið kall- aður „Pinochet Palestínu“. Dahlan er ætlað að leggja sitt af mörkum til að ganga á milli bols og höfðus á palestínsku andspyrnunni. Sveitir hans hafa lotið í lægra haldi á Gaza en hann er enn tryggur ráðunautur Abbasar. Stefna kvartettsins, en til hennar er vísað í fyrirsögninni, er einföld:Divide et impera: Deildu og drottnaðu. Á meðan hann hampar Fatah og hefur þar trygga samverkamenn, lendir andspyrnan í höndunum á Hamas. Það fer heldur ekki mikið fyrir þeirri staðreynd að upplausn lögmætt kjörinnar stjórnar og skipun neyðarstjórnarinnar var skýrt brot á palest- ínskum lögum. Eins er tönnlast á stjórninni sem „Samsteypustjórn Hamas og Fatah“, rétt eins og það hafi verið einu flokkarnir sem skipuðu hina lögmætu þjóðstjórn. Fleiri flokkar áttu hins vegar fullttúa í stjórninni, t.d. Palestínska þjóðarfrumkvæðið, flokkur Íslandsvinarsins og læknisins Dr. Mustafa Barghouti, en hann var skipaður upplýsingaráðherra þjóðstjórn- arinnar. Þá má nefna flokkana Þriðju leiðina og Píslarvætti Abu Ali Mustafa (framboð Alþýðu- fylkingar til frelsunar Palestínu, PFLP). Góðu gæjarnir og vondu gæjarnir Ofuráhersla er lögð á að útmála Hamas sem „vondu gæjana“ og Fatah og Abbas sem „góðu gæjana“, „hófsömu gæjana“ eða alltént „hina skárri af tveimur vondum kostum“. Við megum endilega ekki að gleyma að Hamas er „herská íslömsk hreyfing sem viðurkennir ekki Ísrael“. Það eru ekkert meiri blómabörn í vopnuðum armi Fatah heldur en eru í Hamas, nema að þeir fyrrnefndu hafa verið Ísraelum heldur þægari ljár í þúfu upp á síðkastið, eins og áður er getið. Ísraelsher hefur drepið miklu fleiri en Hamas, þó heyrir maður hann aldrei kallaðan „herskáan“, nema að það sé einfaldlega talið liggja í hlutarins eðli. Hamas hafa margoft lýst sig reiðubúna að semja frið byggðan á því að Palestínumenn fengu ríki miðað við landamærin 1967, sem þó væri ekki nema um 22% af upp- runalegri Palestínu. Það er hræsni að krefjast þess að Palestínumenn „viðurkenni Ísrael“, sem hefur ekki einu sinni tiltekið landamæri sín á meðan engin krafa er gerð um að Ísrael virði rétt Palestínumanna til sjálfstæðs ríkis. Ísr- aelskum ráðamönnum hefur hvorki hugnast palestínskt ríki miðað við landamærin 1967 né sameiginlegt ríki Ísraela og Palestínumanna þar sem allir væru jafn réttháir. Þáttur trúar- bragða hefur líka verið stórlega ýktur. Hvaða hernumin þjóð sem er myndi rísa upp til and- spyrnu þegar þeirra eigin fulltrúar gerðust samverkamenn hernámsins. Það skýrir um- mæli hins virta ísraelska friðarsinna Uri Av- nery, í grein hans, „Crocodile Tears“, þegar hann segir frá því að ýmsir langtíma stuðings- menn Fatah sem hann hefur rætt við hafi sagt að Hamas standi nú hjarta þeirra nær en Fatah, þó þeir séu enn tryggir síðarnefndu hreyfing- unni. Ekki er heldur að undra að mörgum finn- ist þeir vera ráðvilltir. Það er ekki auðvelt að horfa upp á það að hreyfingin sem maður hefur alist upp við og sýnt tryggð bregðist manni. Því eru allar líkur á því, eins og Avnery bendir á í grein sinni, að íbúar Gaza muni styðja Hamas gegn hernámsliðinu og handbendi þess og að íbúar Vesturbakkans muni í kjöfarið gera slíkt hið sama. Aðrar kröfur kvartettsins hafa ein- mitt verið að Hamas leggi niður vopn, láti af of- beldi og virði gerða samninga. Hvernig er hægt að fara fram á allt slíkt við andspyrnuhreyfingu sem býr við hernám sem nú hefur varað í 40 ár þegar Ísrael gerir ekkert af þessu? Það er ekki er einu sinni farið fram á það við Ísrael sem heldur þvert á móti uppteknum hætti og ástandið hríðversnar dag frá degi. Loks er það fjársveltið sem hefur hert sultaról Palest- ínumanna. Ég leyfi mér að kalla það glæp gegn mannkyni þegar heil þjóð er svelt fyrir að kjósa öðruvísi í frjálsum og lýðræðislegum kosn- ingum en hugnast vestrænum valdhöfum. Það er verið að brjóta innviði Palestínu niður og fólkið lepur dauðann úr skel og er ekki aðeins þjakað af hernámsliðinu heldur einnig af ofbeld- inu meðal eigin landa, sem hernámið og styrkt- araðilar þess hafa kynt undir. Undirritaður von- ar þá jafnframt að lesendum sé ljóst hvílík fásinna það eru þegar fjasað er um valdarán- stilraunir Hamas. Hamas voru löglega kjörnir, og Vesturveldin, yfirlýstir málsvarar lýðræð- isins snúast gegn þeim og refsa Palest- ínumönnum sem heild fyrir að fara ekki að vilja Vesturveldanna. Um leið og Abbas rænir svo völdum og skipar aðra stjórn í trássi við lýðræð- isreglur er henni hampað af Vesturveldum. Eft- ir að hafa skipað neyðarstjórnina hefur hann svo aftur stokkað upp í stjórninni en núverandi stjórn er eftir sem áður valdaránsstjórn. George W. Bush Bandaríkjaforseti talar fjálglega um hvernig Bandaríkjamenn og fé- lagar séu að „styðja lýðræðið í Mið-Austulönd- um“. Það er ekki laust við að mér verði hugsað til bókarinnar 1984 eftir George Orwell þar sem kjörorðið var „Stríð er friður – frelsi er ánauð – fáfræði er styrkur“, slík eru öfugmælin og hringavitleysan. Eins má sjá hversu mikið hug- ur fylgir í raun máli hjá Ehud Olmert, forsætis- ráðherra Ísraels, er hann segist ætla að „styrkja Abbas“ samtímis því að ísraelskir her- menn gera ítrekað árásir á Vesturbakkann til að handtaka eða drepa Fatah-liða. Of seint að viðurkenna stjórnina Íslendingar áttu þess kost að viðurkenna lög- mætt kjörna stjórn Palestínu og taka upp sam- skipti við hana eins og margir urðu til að hvetja til, og var þar Félagið Ísland-Palestína í farar- broddi. Þverpólítísk samstaða var um þetta milli formanna allra flokka nema Sjálfstæðis- flokks, þar sem Geir Haarde lýsti því yfir að slík umræða væri ekki „tímabær“ og nefndi einnig að hann væri „ekki sérlega hrifinn af Hamas“. Skoðanir ráðamanna á flokkum í ríkisstjórn, hvað þá ef hann er aðeins einn af mörgum, eiga varla að ráða milliríkjasamskiptum þjóða. Um- ræðan var líka ekki síður tímabær en svo en að nú er of seint að viðurkenna hina lögmætt kjörna þjóðstjórn þar sem hún hefur verið leyst upp. Það verður forvitnilegt að sjá hvort íslensk stjórnvöld muni viðurkenna núverandi stjórn Abbasar sem er skipuð í trássi við palestínsk lög, hafandi glatað tækifærinu til að viðurkenna hina lögmætu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra fór fyrir stuttu til Mið-Austur- landa að kynna sér aðstæður og kom þá m.a. til Ísraels. Ljóst er að Ingibjörg hefur ekki fengið sérlega greinargóða mynd af viðræðum við full- trúa hernámsliðsins og samverkamenn þeirra. Helst bind ég vonir við að viðræður við palest- ínsku þingkonuna Hanan Ashrawi og að heim- sóknin til flóttamannabúðana í Betlehem hafi getað gert henni nokkra grein fyrir þeim raun- veruleika sem Palestínumenn búa við. Heim- sókn til Gaza var sleppt „af öryggisástæðum“ [sic] svo þar missti hún strax af miklu, því fátt hefði fremur getað gefið henni mynd af dýpt vandans. Hverjir skyldu annars hafa ráðlagt henni að forðast Gaza? Ef til vill þeir sömu og þvertaka fyrir nokkrar viðræður við Hamas? Hvernig ætla menn að beita sér fyrir friði ef þeir neita að tala við helstu málsaðila? Ef Ís- lendingar vilja liggja sitt af mörkum til að reyna að stuðla að friði í Mið-Austurlöndum er vissu- lega vert að byrja á því opna sári sem hefur ver- ið þungamiðjan í átökunum þar svo áratugum skiptir. Það væri verðugt lóð á vogarskálarnar. Mikilvægt er þá að mynda sér fordómalausa af- stöðu, og kynna sér mál af eigin frumkvæði, eft- ir því sem efni standa til. Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar ástand mála og rætur þess vil ég mæla með nokkrum ítarlegum greinum sem veita góða innsýn og stuðst var við við við samn- ingu þessarar greinar. Auk áðurnefndar grein- ar Uri Avnery bendi ég lesendum á greinarnar „40 Bad Years“, „Crocodile Tears“ og „Saving President Abbas“ eftir sama höfund, en þær má allar finna á heimasíðu ísraelsku friðarsamtak- anna Gush Shalom. Þá vek ég athygli á grein- inni „Whose Coup Exactly?“ eftir Virginu Tilley sem finna má á heimasíðu Electronic Intifada. Loks minni ég á heimasíðu Félagsins Ísland- Palestína fyrir hverja þá sem vilja fræðast meira um málefni Ísraels og Palestínu. Að deila og drottna Þessi grein er skrifuð vegna vaxandi áhyggna af átökunum og ástandinu í Palest- ínu og vonbrigða vegna þess hvernig er al- mennt skýrt frá því í fjölmiðlum. Hefur mér þótt myndin af átökunum og rótum þeirra óskýr ef ekki allbjöguð. Höfundur er í BA-námi í ensku og kvikmyndafræði í Háskóla Íslands og er meðlimur í Félaginu Íslandi- Palestínu. Teiknimyndirnar eru eftir frægasta myndasöguhöfund Palestínu, Naji ’al-Ali Drengurinn á myndunum nefnist Hanthala, en hann kemur reglulega fyrir í myndum höfundarins. Hanthala er táknrænn fyrir höfundinn sjálfan, sem var flóttamaður tíu ára gamall og lifði í flótta- mannabúðum í Líbanon, fyrir Palestínumenn og fyrir palestínska æsku. Hann getur þó staðið fyrir alla sem eru ofsóttir, undirokaðir eða sæta misrétti. Hann er táknrænn fyrir okkur, sjón- arvotta sögunnar og virkar sem rödd samviskunnar. Rétt er að geta þess að seinni myndina á að lesa frá hægri til vinstri. Áhugasömum er bent á heimasíðu tileinkaða minningu Naji’al-Ali og verkum: http://www.najialali.com/index.html.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.