Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.2007, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.2007, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2007 7 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@gmail.com NÝ plata er nú væntanleg frárapparanum/sálartónlistar- manninum Common. Mun hún kall- ast Finding Forever og kemur út í enda þessa mánaðar á vegum G.O- .O.D. Music/Geffen. Þetta er sjöunda hljóðversplata listamannsins og kemur í kjölfar plötunnar Be sem út kom fyrir tveimur árum. Eigi er skortur á gestastjörnum, því að Lily Allen, J Dilla, D’Angelo og Kanye West eiga öll þátt í plöt- unni. Common, sem er upprunalega frá Chicago, kallaði sig áður Common Sense og aflaði sér töluverðs fylgis í neð- anjarðarrappsenu tíunda áratug- arins, vopnaður djúphyglum textum sem þóttu brjóta alltumlykjandi bóf- arappið upp. Hann fluttist svo til Brooklyn og komst fljótlega í vin- fengi við framsækna rappara á borð við Roots, Talib Kweli, Mos Def, Q- Tip og fleiri. Með plötunni Like Wat- er for Chocolate (2000) færði hann sig inn á sálríkari og djassaðri slóðir og hann innsiglaði svo stöðu sína sem einn athyglisverðasti rapptónlist- armaður samtímans með Electric Circus (2002). Engu að síður hafa harðlínumenn deilt nokkuð um þessa þróun Common og því spennandi að sjá hvað hann gerir á plötunni nýju.    Dwight Yoakam hefur verið áblússandi siglingu að undan- förnu, en tvær síðustu hljóðvers- plötur hans, Population Me (2003) og Blame the Vain (2005), hafa verið prýðisvel heppnaðar. Næsta plata kemur út í október og verður til heiðurs meistara Buck Owens, föður Bak- ersfield- hljómsins, en Yoakam hef- ur alla tíð ver- ið undir sterkum áhrifum frá Owens. Platan heitir einfaldlega Dwight Sings Buck og mun innihalda ódauð- lega kántrísmelli eins og „My Heart Skips a Beat“, „I Don’t Care (Just As Long As You Love Me)“ og „Act Naturally“ sem er líklega þekktast í meðförum Bítlanna. Owens lést í mars á síðasta ári, þá sjötíu og sex ára að aldri.    Bresku tónlistarblöðin ástundaþað grimmt að blása listamenn upp í hæstu hæðir og sprengja þá síðan í öreindir tveimur vikum síðar. NME er einna grimmast í þess- um fræðum og má segja að blað- ið hafi sérhæft sig í „Stjörnum morgundagsins“, þar sem menn taka sénsinn og tippa á að þessi eða hinn eigi eftir að verða ógurlega vinsæll. Staðhæfa þau reyndar slíka hluti með miklum gífuryrðum og allra handa skrúð- mælgi. Nýjustu listamennirnir sem eru þessa „heiðurs“ aðnjótandi eru þau Kate Nash og Jack Penate, og eru þau kölluð „skærustu poppstirni Bretlands“ í dag. Nash hefur verið líkt við Lily Allen, en lag hennar „Fo- undations“ hefur notið mikilla vin- sælda undanfarið og fyrsta breið- skífan kemur út í byrjun ágústs. Jack Penate leikur stuðvæna, ska- skotna popptónlist og hefur vakið gríðarlega athygli fyrir tónleika sína undanfarið misseri eða svo. Enn sem komið er liggja einungis smáskífur og stök lög eftir hann. Við hér á tón- listarfréttunum segjum einfaldlega: Guð hjálpi þeim… TÓNLIST Common Dwight Yoakam Kate Nash Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is Tónlistarferill kántrísöngvarans WillieNelsons spannar rúmlega hálfa öld oghefur hann komið víða við á þeim tíma.Hann er fæddur árið 1933 í landbún- aðarþorpinu Abbot í Texas þar sem hann ólst upp við ýmiss konar tónlist, einkum gospel og blús. Hann segist auk þess hafa orðið fyrir töluverðum áhrifum frá söngvum svartra verkamanna þegar hann starfaði sem ungur maður á bómullarekrum í sveitinni. Tuttugu og fjögurra ára gamall gaf hann út fyrstu smáskífuna sína og þar með hófst tónlist- arferill hans, en í dag eru plötur hans orðnar hátt í fimmtíu talsins af öllum stærðum og gerðum. Nelson er yfirleitt sagður hafa átt sinn blóma- tíma sem tónlistarmaður á áttunda áratugnum þegar hann var einn helsti fánaberi hins svokallaða „útlaga-kántrís“ sem einfarar eins og Johnny Cash, Waylon Jennings og David Allan Coe hafa einnig verið bendlaðir við. Tónlistarhreyfing þessi er sögð hafa komið undan „Nashville-hljóminum“ sem upptökustjórinn Chet Atkins þróaði einna helst með því að mýkja hinn hráa „honky-tonk- hljóm“ sem þá var allsráðandi í bandarískri dæg- urtónlist. Platan Stardust kom fólki svolítið á óvart þegar hún kom út árið 1978 enda nokkuð frábrugðin því sem kennt var við „útlaga-kántríið“. Stardust inni- heldur safn laga sem söngvarinn hlustaði mikið á sem barn – bandarísk dægurlög frá þriðja og fjórða áratugnum. Upptökustjórn plötunnar var í höndum hins goðsagnakennda tónlistarmanns Booker T. Jones sem stjórnaði einnig upptökum á fyrstu plötu Bills Withers, Just As I Am. Stardust seldist í yfir fjórum milljónum eintaka og er að margra mati ein besta plata Nelsons, ef ekki sú allra besta, en þarna nær titrandi viðkvæm rödd söngvarans virkilega að njóta sín. Flest laganna á plötunni hafa verið tekin upp og flutt af ótal tónlistarmönnum en engu að síður er sérstaða hennar óumdeilanleg. Lagið „Georgia On My Mind“, sem margir tengja eflaust við tónlistar- manninn Ray Charles, er afar smekklega flutt og ábyggilega kunnuglegasta lag plötunnar. „Unchai- ned Melody“ hefur sömuleiðis heyrst í flutningi margra en Nelson nálgast það á mjúkan og fág- aðan hátt líkt og lagið væri hans eigið. „Moonlight In Vermont“ er uppáhaldslag Nelsons að hans eig- in sögn enda fer hann afar vel með það og sömu- leiðis hefur lagið „All of Me“ sjaldan verið flutt eins fallega og þarna. Fá lög frá síðustu öld hafa verið flutt jafnoft og titillag plötunnar, „Stardust“, en samkvæmt Wikipediu hefur lagið verið tekið upp rúmlega 1800 sinnum. Engu að síður tekst Nelson að gera það að sínu. Stardust var endurútgefin árið 1999 með tveim- ur aukalögum, „Scarlett Ribbons“ og „I Can See Clearly Now“, sem eru prýðilegur bónus. Þó verð- ur að segjast að upphaflega útgáfan er töluvert meiri dýrgripur. En hvað sem því líður er Stardust ein af betri plötum síðustu aldar. Hlýrri tónar eru vandfundnir POPPKLASSÍK Hlýrri tónar vandfundnir Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is J á, þar hafið þið það. Fyrsta plata The Coral er algjört meistaraverk, sú staðreynd blasti við mér er ég fyrir rælni hlýddi á hana á nýjan leik nú á dögunum. Það sem er í gangi á plötunni er hreinlega ekki eðlilegt; platan er gjörsamlega að springa af spilagleði og sköpunarþrá. Meðlimir, sem voru þá um og undir tvítugu (leiðtoginn, James Skelly, var 21 árs og elstur), sóttu grimmt í brunn sögunnar, og sýrurokk sjöunda áratug- arins var mikið brúkað. Hljómsveitarmeðlimir höguðu sér eins og börn sem ganga laus í leik- fangabúð – og í sykursjokki í ofanálag – og rugluðu og ringluðu með áhrifin á algerlega ómótstæðilegan hátt. Barnslegt kæruleysið og fullkomin vanþekking á því sem má og má ekki skilaði glæstri plötu örugglega í höfn. Sýr- urokk að hætti Doors og Love, Morricone og Zappa var í hanastélinu en einnig sjóara- söngvar, rakarakvartettar, ska og rússnesk þjóðlagatónlist. Þetta á ekki að geta gengið upp en gerir það samt. Ótrúlegt. Of mikið, of fljótt? Saga The Coral er reyndar eins og ævintýri. Sjö nágrannar og skólafélagar úr smábænum Hoylake, sem er rétt utan við Liverpool, spiluðu saman í stundaskráargötum eða heima hjá hvor öðrum og stofnuðu svo loks hljómsveit árið 1996, þá þrettán til sextán ára gamlir. Smátt og smátt fór að byggjast upp allmikið „suð“ í kringum sveitina í heimabænum og í Liverpool og trymbilinn Allan Wills, sem hafði leikið með Liverpool-sveitunum Top og Shack, sá sér þann kost vænstan að stofnsetja plötu- útgáfu í þeim eina tilgangi að gefa út efni með sveitinni. Útgáfan, Deltasonic, er einnig með á snærum sínum sveitir sem spruttu upp í kjöl- far velgengni The Coral, og ber þar helst að nefna The Dead 60’s og The Zutons. Þrjár stuttskífur með Coral komu svo út árið 2001 og nefndur frumburður ári síðar. Breska tónlist- arpressan hélt ekki vatni yfir sveitinni og breiddi út fagnaðarerindið sem mest hún mátti. Skelly og félagar voru síðan ekkert að tví- nóna við hlutina. Strax ári síðar, sumarið 2003, kom platan Magic and Medicine út þar sem höggvið er í sama knérunn. Platan er ágæt en nýjabrumið er eðlilega búið að skolast af. Skelly var um þetta leyti algerlega hamslaus því að enn kom ný plata út, og nú aðeins hálfu ári síðar, eða í ársbyrjun 2004. Platan hefur verið kölluð stuttskífa, sem er nú rangnefni, enda eru á henni ellefu lög. Ástæðan fyrir því að hún er oft frátalin sem „alvöruplata“ er vinnsluferlið, en Coral-menn rusluðu henni saman á einni og hálfri viku, og sum lögin voru samin og tekin upp samdægurs. Í þetta sinnið fékk sveitin þó bakslag, platan fékk fremur slæma dóma og Skelly var ekki sagður standa tónlistarlega undir öllum þessum látalátum. Fjórða platan, The Invisible Invasion, kom svo út árið 2005, í maí. Nú var búið að skipta um upptökustjóra, fyrri verk höfðu verið í umsjá Ians Broudie, sem oftast er kenndur við The Lightning Seeds, en nú sáu Geoff Barrow og Adrian Utley úr Portishead um þau mál. Tónlistin var þó enn nokkurn veginn við það sama. Vandamál Ný plata The Coral kallast Roots And Echoes og segir Skelly að með henni sé sveitin að skríða úr holu en undanfarin ár hafi tekið sinn toll. Þegar Invisible Invasion var fylgt eftir var sveitin búin að vera á stanslausu tónleika- ferðalagi í fjögur ár. Um það leyti hætti að- algítarleikari sveitarinnar, Bill Ryder-Jones, í sveitinni vegna „persónulegra vandamála“. Hassneysla hljómsveitarmeðlima var víst og komin úr böndunum og Skelly hefur lýst því yfir að bandið hafi einfaldlega verið væng- brotið án Bills. Það var því ákveðið að snúa aftur til Hoylake til að athuga hvort einhverjir neistar væru enn á milli meðlima. Bill rak inn nefið og menn fóru að djamma saman, líkt og í gamla daga, og hópurinn fór að skríða saman og þéttast á nýjan leik (auk þess sem hass- neyslan var miðuð við „eðlileg“ mörk). Hljóm- sveitin komst svo endanlega yfir þröskuldinn er Noel Gallagher, gamall vinur og aðdáandi sveitarinnar, bauðst til að lána henni hljóðver Oasis, þar eð Oasis var á ferðalagi og hljóð- verið stóð autt á meðan. Platan nýja var svo að mestu leyti tekin upp þar með upptökustjór- anum Craig Silvey. „Mest allt var tekið upp beint,“ segir Skelly. „Þegar við læsum okkur saman í grúvinu erum við ósigrandi. Mér finnst við í alvörunni jafn- þéttir og Doors þegar við förum á flug.“ Skelly, sem nær álagaaldrinum 27 ára í ár (en þá deyja rokkararnir, þar á meðal Jim Morr- ison úr Doors), hefur sem betur fer misst lítið af sjálfstraustinu, þrátt fyrir áðurnefndar hrakningar. Í faðmi fortíðar … og ekki Liverpool-sveitin The Coral sendir frá sér nýjan grip nú um mánaðamótin en henni hefur gengið erfiðlega að fylgja eftir samnefndum frumburði sínum frá 2002, sem telst hæglega ein besta plata sem út hefur komið á þessum áratug. Coral Þekkja fortíðina, en kunna að brjóta viðjar hennar. James Skelly

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.