Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Sérfróðir um breskan ferða-mannaiðnað merkja mikla
aukningu í heimsóknum ferða-
manna á staði sem koma fyrir í
þekktum kvikmyndum. Nýútkomin
skýrsla þar í landi staðfestir þetta
jafnframt.
Heimsóknum í Alnwick kastalann
í Northumberland hefur fjölgað um
120% síðan
myndirnar um
Harry Potter
voru fyrst sýndar
en í myndunum
er kastalinn not-
aður sem galdra-
skólinn Hogw-
arts.
Annar kastali í
Bretlandi, Doune
kastalinn í Stirl-
ingshire, er einnig heimsóttur
margoft á ári af aðdáendum Monty
Python and The Holy Grail.
Samkvæmt áðurnefndri skýrslu
merkja menn 26% fleiri heimsóknir
í Lincon-dómkirkjuna og 38% í
Rosslyn-kapelluna eftir að kvik-
myndin um Da Vinci lykillinn var
frumsýnd.
Það er kannski skiljanlegt að
ferðamenn vilji láta taka af sér
myndir við „Hogwarrts“ og hina af
áðurnefndum stöðunum. Næstum
þreföld aukning ferðamnna að vatni
í Lyme garðinum í Cheshire er þó
kannski heldur langsóttari.
Þegar betur er að gáð kemur það
hinsvegar í ljós að vatnið er það
sama og Colin Firth steig uppúr
eftirminnilega, íklæddur hvítri
rennblautri skyrtu, í sjónvarps-
myndinni Hroki og hleypidómar
(Pride and Prejudice) eftir sögu
Jane Austen. Kannski ferðamenn
og konur vonist til að eygja Firth
votan í vatninu. Þá eru áhugasamir
enn að leggja leið sína á Corrour
lestarstöðina í West Highlands, sem
kemur fyrir í kvikmyndinni Trains-
potting, 11 árum eftir að myndin
var frumsýnd.
Í fljótu bragði séð myndu fæstirtelja að mynd sem einungis
verður frumsýnd í fjórum kvik-
myndahúsum í Bandaríkjunum sé
vænleg til vinsælda og sé fyrirfram
af mörgum talin ein áhugaverðasta
mynd ársins.
The Guardian birti á dögunum
grein um mynd sem fyrrnefnd lýs-
ing á við. Hún nefnist I’m Not
There og byggist á æviferli Bob
Dylans.
Hið óvenjulega við myndina er
það að ekki einn heldur sex leikarar
fara með hlutverk Dylans í mynd-
inni, þar af ein kona og eitt svart
barn. Konan er Cate Blanchett en
auk hennar fara þeir Richard Gere,
Christian Bale, Heath Ledger, Ben
Whishaw og Marcus Carl Franklin
með hlutverk Dylans.
Það er Weinstein dreifingarfyr-
irtækið sem framleiðir myndina og
eigandinn, Harvey Weinstein, hefur
fulla trú á verkefninu.
Lágstemmd dreifing af þessu tagi
hefur virkað áður hjá Weinstein en
Good Will Hunting var einungis
frumsýnd í sjö kvikmyndahúsum á
sínum tíma en vakti heimsathygli
og handritshöfundarnir Matt Da-
mon og Ben Affleck fengu Ósk-
arsverðlaunin fyrir handritið.
Weinstein segist þess fullviss að
það sama verði uppá teningnum í
þetta sinn og tekur svo djúpt í ár-
inni að hann muni „skjóta sig, fái
Blanchett ekki Óskarinn. „I’m Not
There“ verður frumsýnd í Banda-
ríkjunum í nóvember næstkomandi.
KVIKMYNDIR
Colin Firth
Bob DylanCate Blanchett
Eftir Björn Norðfjörð
bn@hi.is
The Sound of Music (1965) er að sönnuundarleg kvikmynd. Vissulega er húnum margt hefðbundin söngva- ogdansmynd þar sem persónur taka að
syngja og dansa upp úr þurru líkt og ekkert
væri sjálfsagðara, og karli og konu úr alls
ólíkum áttum tekst að yfirvinna margvíslegar
hindranir svo að ástin geti sigrað að lokum.
Myndin gerist aftur á móti í Austurríki í að-
draganda seinni heimsstyrjaldar og lýsir upp-
gangi nasismans sem von Trapp fjölskyldan
flýr í lok myndar. Ef Hollywood á allajafna
erfitt með að umgangast vandmeðfarin um-
fjöllunarefni er söngva- og dansmyndin
kannski síst til þess fallin af kvikmyndagrein-
um Hollywood – a.m.k. ef marka má The So-
und of Music. Á yfirborðinu er hún dæmigerð
bitlaus frásögn of illsku nasista, sem birtist
reyndar fyrst og fremst í andúð þeirra á aust-
urríska fánanum, en undir niðri liggur hún
óþægilega nærri þjóðernisrómantík og hug-
myndafræði nasista. Upphafsatriðið fræga þar
sem Julie Andrews dansar um hæð nokkra í
fjalladýrð syngjandi um þúsund ára gamlan
söng þeirra („The hills are alive with sound
and music / with songs they have sung for tho-
usand years“) gæti allt eins verið úr áróð-
ursmynd úr smiðju Goebbels. Ef marka má
myndina var gyðinga heldur hvergi að finna í
Austurríki þessa tíma á meðan hin „ofsóttu“
börn von Trapp eru sem staðaltýpur úr Hitler-
sæskunni. Myndin sló auðvitað í gegn vestra
(og reyndar víðar), vann fimm óskara og mun
vera í þriðja sæti yfir vinsælustu myndir sög-
unnar (þegar verðbólga er tekin með í reikn-
inginn).
The Sound of Music er gerð undir lok þessa
skeiðs í Hollywood sem oft er kennt við klass-
ík og tekur enda með hruni stúdíókerfisins.
Þannig á The Sound of Music meira sameig-
inlegt með kvikmyndum fjórða áratugarins, en
flestum myndum gerðum undir lok sjöunda
áratugarins (t.d. óskarsverðlaunamyndinni
Midnight Cowboy [1968] – það er sem öld
fremur en þrjú ár skilji þessar myndir að).
Klassíska skeiðið stóð fyrir ákveðið „sakleysi“
þar sem forðast var að stugga við þrýstihóp-
um, taka pólitíska afstöðu og glíma við ögrandi
viðfangsefni. En undir þessu yfirborði réð
ríkjum bandarísk hugmyndafræði sem mynd-
irnar dreifðu um heiminn í takt við heimsveld-
isstefnu Bandaríkjanna. Söngva- og dans-
myndin er einkar áhugaverð í þessu samhengi
sem sérstakur boðberi bandarískra gilda víða
um heim því að hún birtist áhorfendum alla-
jafna sem saklaus afþreying sakir augljósra
ýkna formsins. Enda er það svo að The Sound
of Music leikur stórt hlutverk í tveimur nýleg-
um myndum sem tekið hafa söngva- og dans-
myndahefð Hollywood til endurskoðunar –
hvor með sínum hætti.
Mynd Baz Luhrman Moulin Rouge (2001) er
um margt óður til gömlu söngva- og dans-
myndarinnar þótt allt sé þar gert með hætti
nútímans – hraðar klippingar, samkrull ólíkra
söngva, sjálfsmeðvitaður leikur með hefðina.
Söngleikurinn sem settur er á svið í Rauðu
myllunni er ekki The Sound of Music en fyrstu
línur hans sungnar af Ewan McGregor eru
línurnar um hæðina góðu sem vitnað var í hér
að ofan. The Sound of Music er sett á svið í
Dancer in the Dark og skipar lagið „My
favorite things“ veigamikinn sess í myndinni,
en nálgun Lars von Trier í Dancer in the
Dark (2000) er annars af öndverðum meiði. Í
stað þess að upphefja formið brýtur hann það
niður og snýr þessu „saklausa“ formi á end-
anum í kraftmikla gagnrýni á bandarískt sam-
félag. Á yfirborðinu eru allir vinalegir við inn-
flytjandann Selmu (Björk) en bregðast henni
hver með sínum hætti á endanum, sem á sér
samsvörun í saklausu yfirborði söngva- og
dansmyndarinnar. Í stórskemmtilegri rétt-
arsenu kemur svo ásetningur leikstjórans
skýrt fram en þar birtist söngva- og dans-
myndin sem yfirvarp á heimsveldisstefnu
Bandaríkjanna. Líkt og saksóknarinn mælir þá
kann Selma að dýrka Fred Astaire en hún
hatar Bandaríkin.
Söngur hæðanna ómar enn
SJÓNARHORN »Upphafsatriðið fræga þar sem Julie Andrews dansar um hæð
nokkra í fjalladýrð syngjandi um þúsund ára gamlan söng
þeirra („The hills are alive with sound and music / with songs they
have sung for thousand years“) gæti allt eins verið úr áróðurs-
mynd úr smiðju Goebbels
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
Þ
að er vel kunn staðreynd að þær
valda oftar vonbrigðum en hrifn-
ingu, risavöxnu afþreying-
armyndirnar sem gjarnar eru
kenndar við sumarið. Margar
smellhitta í mark um allan heim
og halda iðnaðinum meira og minna gangandi.
Stjórnendur dreifirisanna eru því með böggum
hildar þessa dagana þar sem þessi ómissandi
tekjulind er í uppnámi. Samningar kvikmynda-
veranna í Hollywood við samtök handritshöf-
unda (Writer’s Guild of America), eru að
renna út og svipað er uppi á teningnum hvað
snertir málefni leikstjóra, (Director’s Guild of
America), sem eru með lausa samninga nk.
mánaðamót. Hafi ekki verið samið við starfs-
stéttirnar innan árs leggja þær niður störf og
lama kvikmyndaiðnaðinn vestra.
Í kvikmyndaborginni hafa menn mestar
áhyggjur af framtíð stóru kassastykkjanna,
þau eru viðkvæmust fyrir verkfallsaðgerðum,
bæði undirbúningur og framleiðsluferli þeirra
langt og flókið. Ofurhetjumyndir eru áberandi
í flokknum, fokdýrar og svifaseinar í allri gerð
hafa þær skilað hlutfallslega mestu í kassann
síðustu áratugina. Ein af mörgum sem eru í
burðarliðnum er Justice League of America,
og fullkomin óvissa ríkir um hvort af gerð
hennar verður, en hún er hugsuð ein af aðal
trompum Warnerbræðra að sumri. Þar á bæ
gerast stjórnendur svartsýnir á að takist að
fullgera þetta fokdýra brelluverk fyrir hugs-
anlegt verkfall.
Myndir í uppnámi
Svipað ástand er hjá hinum stúdíóunum, hvar-
vetna eru stjórnendur að vega og meta verk-
efnavalið, endurskoða handrit og jafnvel ein-
falda þau með tilliti til aðstæðna. Þau eru
minnug mistakanna sem gerðust árið 2001,
þegar ástandið var hliðstætt og verkföll lágu í
loftinu. Til að bjarga málunum þá, gripu fram-
leiðendur til örþrifaráða og rumpuðu myndum
af í stórum stíl. Leikaravalið var handahófs-
kennt, þeir ráðnir sem voru tiltækir frekar en
aðrir sem hentuðu í hlutverkin; hálfbökuð
handrit voru kvikmynduð og framleiðendur,
leikstjórar og aðrir lykilmenn voru ekki alltaf
réttir menn á réttum stað. Verkfallið sem átti
að skella á fyrir 6 árum er ekki hafið enn, en
afleiðingarnar létu ekki á sér standa í ofhlöðn-
um, hálfhráum kvikmyndum sem voru fórn-
arlömb óðagotsins (The Truth About Charlie,
Reign of Fire, Dark Blue).
Kröfur WGA og DGA eru ólíkar, en stétt-
arfélögin hafa sameinast um áherslur á nokkur
atriði sem þau leggja kapp á að fá framgengt.
Þ. á m. tekjur af nýjum miðlum á borð við
kvikmyndaleigur á Netinu (video on demand),
niðurhal og sýningum með notkun farsíma.
Að öllum líkindum verður ofurhetjumyndin
Justice League of America, tilbúin í slaginn að
vori, sömuleiðis The Day the Earth Stood
Still. Sú síðarnefnda er kostnaðarsöm end-
urgerð sígildrar framtíðarfantasíu frá 1951,
með Keanu Reeves í hlutverki Michaels Ren-
nie. Spielberg og félagar, ætla sér að hespa
tímanlega af fjórðu myndinni um Indiana Jon-
es og nýjasta Batman-myndin, The Black
Knigt, verður örugglega tilbúin til dreifingar
fyrir næsta sumar.
Þrátt fyrir dapurt gengi The Incredible
Hulk, fyrir fáeinum árum, er verið að fram-
leiða nýja mynd um fyrirbrigðið, með Edward
Norton (af öllum mönnum) í titilhlutverkinu,
og tvær framhaldsmyndir til viðbótar eru
sloppnar yfir hættumörkin; The Chronicles of
Narnia: Prince Caspian og Múmían, sem er
aftur tekin á rás í eyðimörkinni. Nefnist þriðji
kaflinn The Mummy: Tumb of the Dragon
Emperor, austurlensk slagsmálaflétta er aug-
ljóslega nýja kryddið og mannar kung-fu
kempan Jet Li, hlutverk Drekakeisarans.
Sumarmyndir 2008, sem geta fallið á tíma,
eru m.a., The International, spennumynd gerð
af þjóðverjanum Tim Tykwer, með Clive
Owen, Naomi Watts og gamla, góða Armin
Mueller-Stahl. Endurgerð söngva- og dans-
amyndarinnar Fame, og Death Race, nýjasta
mynd Pauls W.S. Anderson, framleidd af Tom
Cruise með Jason Statham í hlutverki Davids
Carradine (í frummyndinni frá ’75).
Framtíð fjölda annarra verka er í tvísýnu
um sinn: Land of the Lost, með Will Ferrell,
sem er byggð á gömlum sjónvarpsþáttum; The
Fighter með Matt Damon og Mark Wahlberg,
gerð af Darren Aronofsky; Fantasy Island,
með Eddie Murphy er komin á sumaráætl-
unina 2010 – verið færð fram um tvö ár.
Klukkan tifar hratt
Klukkan tifar því óvenju hratt í kvikmynda-
heiminum vestra, sem dæmi má nefna að einn
dreifirisinn festi á dögunum kaup á end-
urgerðarrétti gamallrar hrollvekju og fengu
framleiðendurnir aðeins mánuð til að ganga
frá undirbúningi fyrir tökurnar. Af þeim sök-
um voru tveir höfundar ráðnir til að rubba
handritinu af á viku. Almennt hafa handrits-
höfundar 12 vikur til að ljúka við fyrsta upp-
kast. Önnur kvikmyndaver eru með hug-
myndir í gangi um að hraðsjóða stórar
brellumyndir, líkt og The Fast and the Furio-
us 4.
Nokkrir leikstjórar hafa hætt klippingu og
annarri eftirvinnu mynda sem þeir eru með í
smíðum og rokið til að hefja tökur leikinna at-
riða í nýjum verkefnum. Þannig er Ron How-
ard að fara af stað með Angels & Demons
(hún á að enda þar sem Da Vinci Code byrj-
aði), en hefur sett frágang Frost/Nixon í salt.
Ridley Scott hleypur með haustinu beint úr
tökum Body of Lies í Nottingham, nýja mynd
um Hróa hött.
Þótt hjólin snúist hraðar en áður er farið
með fullri gát að öðrum og metnaðarfyllri
verkefnum á borð við The Winter of Frankie
Mchine, nýju myndinni þeirra Martins Scor-
sese, Leonardos DiCaprio og Roberts De
Niro. Þar á bæ var óánægja með handritið og
í stað þess að gera tilraunir til að koma því í
viðunandi horf undir álaginu, var ákveðið að
fresta kvikmyndagerðinni uns línur skýrast.
Verkföll vofa yfir Hollywood
Blikur á lofti í kjarasamningum og kvikmynda-
verin hafa áhyggjur af framtíðinni.
Indiana Jones Spielberg og félagar, ætla sér að
hespa tímanlega af fjórðu myndinni um Indiana
Jones áður en hugsanleg verkföll skella á í
draumasmiðjunni meðal handritshöfunda og
leikstjóra.