Morgunblaðið - 18.02.2007, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 B 5
Sölufulltrúi óskast
fyrir vörur á hársnyrtistofur
Verður að geta starfað sjálfstætt.
Tölvukunnátta æskileg.
Reyklaus vinnustaður.
Áhugasamir sendi upplýsingar á
mano@mano.is eða komið á
Stórhöfða 15, 110 Reykjavík.
Mano ehf. – Sími 588 8808.
Vegna aukinna verkefna
óskar Ljósvirki eftir að
ráða í eftirfarandi
framtíðarstörf:
1. Rafvirkjar
Rafvirkjar óskast í vinnu við tengingar
ljósleiðarakerfa.
Einnig almenn rafvirkjastörf.
2. Jarðvinnumenn
Óskum eftir að ráða jarðvinnumenn.
Vinnuvélapróf og meirapróf æskileg.
Þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um störfin eru gefin í síma
595 1500.
Móttökuritari óskast á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
• Starfið felst m.a. í símsvörun á skiptiborði, móttöku þeirra sem sækja þjónustu
á Greiningarstöð, almennum ritarastörfum og skjalavörslu. Einnig skipulagningu
og úrvinnslu verkefna í samvinnu við sviðsstjóra. Um er að ræða hlutastarf.
• Leitað er að starfsmanni með mjög góða samskiptahæfni og þjónustulund
og jákvætt viðmót. Einnig getu til frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og eða reynslu af ritarastörfum og
góða tölvukunnáttu.
• Laun greiðast skv. kjarasamningi SFR við ríkissjóð.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi fyrir 5. mars nk.
Nánari upplýsingar gefa forstöðumaður og sviðstjóri inntöku- og samræmingarsviðs
í síma 510-8400 og í vefpósti ingibjörg@greining.is
Móttökuritari
Bifreiðasmiði, nema
eða menn vana réttingum vantar á vottað
verkstæði með Cabas tjónaskoðun. Góð laun
fyrir góða menn.
Uppl. í símum 568 5104 og 893 3108, Pálmi.
PS Rétting, Súðarvogi 52-54.
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast hálfan daginn í
bútasaumsdeild. Bútasaumskunnátta og
þjónustulund áskilin. Reyklaus vinnustaður.
Óskum einnig eftir sumarstarfsfólki.
Áhugasamir sendi upplýsingar á netfangið
dagbjort@virka.is eða hafið samband í síma
825 0022.
Mörkinni 3, 108 Reykjavík.