Morgunblaðið - 18.02.2007, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 B 19
Styrktarfélag vangefinna
Forstöðumaður
í búsetu
óskast til starfa við Frekari liðveislu hjá
félaginu. Um er að ræða 100% starf frá
1. maí 2007.
Forstöðumaður ber ábyrgð á rekstri, sam-
starfi og þjónustu við íbúa og aðstand-
endur, starfsmannahaldi og faglegu starfi.
Tekur þátt í stefnumótun og þróun þjón-
ustu. Fær stuðning í starfi frá ráðgjöfum,
m.a. með þátttöku í starfstengdri hand-
leiðslu, markvissu samstarfi og fræðslu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Próf í þroskaþjálfun eða sambærileg
menntun á háskólastigi.
- Þriggja ára starfsreynsla í vinnu með
fötluðum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Samstarfshæfileikar, sveigjanleiki og
jákvæðni.
- Æskileg reynsla af starfsmannahaldi
og/eða verkstjórnun og skipulagsvinnu.
- Kunnátta í bókhaldi æskileg.
Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu
félagsins, Skipholti 50c, eigi síðar en
28. febrúar.
Nánari upplýsingar veitir starfsmanna-
stjóri á skrifstofutíma í síma 414 0500.
Hægt er að nálgast upplýsingar um
Styrktarfélagið á heimasíðu þess,
www.styrktarfelag.is.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum.
Helstu verkefni eru þýðingar á textum og skjölum úr íslensku á ensku, yfirlestur
enskra texta og textagerð á ensku. Flest verkefnin eru unnin fyrir Samskiptasvið
en einnig fyrir önnur svið bankans. Óskað er eftir starfsmanni sem hefur ensku að
móðurmáli og einnig mjög góðan skilning á íslensku.
Menntun og þekking
• Háskólapróf
• Reynsla af þýðingum á íslenskum
llltextum á ensku
• Góð tölvukunnátta
Hæfni og eiginleikar
• Framúrskarandi mannleg samskipti og hæfni til
lllað vinna í hópi
• Starfsmaður hafi ánægju af því að því að veita
lllgóða þjónustu
• Góð tjáningarhæfni
Nánari upplýsingar veitir Jónas Hvannberg,
sími: 444 6376, netfang:
jonas.hvannberg@kaupthing.com
Umsóknarfrestur er til og með
27. febrúar 2007.
Umsækjendur sæki um á vefsíðum bankans:
www.kaupthing.is
Kaupþing, sem er stærsta fyrirtæki landsins, veitir alhliða
viðskipta- og fjárfestingarbankaþjónustu til einstaklinga,
fyrirtækja og fagfjárfesta. Kaupþing er leiðandi á öllum
helstu sviðum íslensks fjármálamarkaðar og starfar í
9 löndum auk Íslands. Hjá bankanum starfa yfir 2.700
manns, þar af 1.500 erlendis.
Við bjóðum
• Krefjandi og skemmtileg verkefni í hópi
l kraftmikils samstarfsfólks
• Gott starfsumhverfi þar sem framtak
llleinstaklingsins fær að njóta sín
• Góð launakjör
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
2
5
7
10
Vinnumiðlun ungs fólks, sem oft er nefnd VUF
í daglegu tali, verður opnuð á morgun og geta
þá ungmenni, 17 ára og eldri, reynt að finna
sér sumarvinnu hjá Reykjavíkurborg.
Helst lögheimili í borginni
„Við höldum til í Hinu Húsinu, sem er í Póst-
hússtræti 3–5 í hjarta Reykjavíkur. Þar þjón-
ustar VUF allt ungt fólk sem orðið er 17 ára og
þarf á góðri og gagnlegri sumarvinnu að
halda,“ segir Selma Árnadóttir, starfsmaður
VUF.
Umsækjendur verða þó að uppfylla ákveðin
skilyrði til þess að geta sótt um sumarstörf hjá
Reykjavíkurborg eða VUF.
„Þeir þurfa að vera á sautjánda ári eða eldri
og hafa lögheimili í Reykjavík. Undantekning
frá skilyrði um lögheimili var gerð vegna
starfa leiðbeinenda hjá Vinnuskóla Reykjavík-
ur og Leikskólum Reykjavíkur. Þessi und-
antekning var gerð vegna þess hversu erfitt
hefur verið að manna í stöður á leikskólunum
og Vinnuskólinn hefur í áranna rás verið opin
öllum óháð búsetu,“ segir Selma.
Margir sækja um hjá VUF
Langstærsti hluti umsækjenda er skólafólk,
en eins og fyrr segir geta allir þeir sem eru 17
ára eða eldri og með lögheimili í Reykjavík sótt
um.
„Vinnumiðlun ungs fólks opnar fyrir um-
sóknir um sumarstörf á morgun, 19. febrúar,
en hætt er að taka við umsóknum um sum-
arstörf 21. apríl 2007.“
Selma segir að umsóknir frá 2.557 umsækj-
endum hafi borist á síðastliðnu ári.
„Í ár er áætlað að ráða í um það bil 1.000
sumarstörf hjá stofnunum borgarinnar. Upp-
lýsingabæklingur um hin ólíku störf og starfs-
staði er fyrirliggjandi á heimasíðu og móttöku
VUF meðan á umsóknartíma stendur,“ segir
Selma.
Tveir yngstu árgangarnir eru ætíð stór hluti
umsækjenda, en þeir voru tæplega 30% árið
2006 og áttu þeir hvað erfiðast með að fá vinnu.
„Þessu vandamáli er mætt af Reykjavík-
urborg með sérstöku fjármagni þeim til handa.
Reykjavíkurborg veitir sérstaka fjárveitingu
til að taka á atvinnumálum ungs fólks yfir sum-
armánuðina með sérstaka áherslu á tvo yngstu
árgangana. Samtals voru 374 ungmenni ráðin í
sumarstörf í 6–8 vikur af þessari fjárveitingu
árið 2006,“ segir Selma.
Allt milli himins og jarðar
Flestir starfsstaðir borgarinnar, sem ráða
til sín fólk í sumarstörf, fara með ráðningar
sínar í gegnum VUF.
Þau svið borgarinnar sem fara með sum-
arráðningar sínar að hluta til eða að öllu leyti í
gegnum Vinnumiðlun ungs fólks eru eftirfar-
andi:
Framkvæmdasvið, en sem dæmi um störf
má nefna almenna verkamannavinnu, slátt og
hirðingu, grasviðgerðir, hreinsun opinna
svæða, viðhald á leiksvæðum og á stofn-
analóðum. Ennfremur viðhald á gangstéttum
og göngustígum og viðhald gatna.
Selma segir að dráttarvéladeild og umferð-
armerkingar séu einnig með störf í boði.
„Þá er menningar- og ferðamálasvið með
störf í boði, en þau eru á Borgarbókasafni og
Árbæjarsafni og á leikskólum,“ segir Selma.
Íþrótta- og tómstundasvið
Vinsæl störf hafa verið störf við sundlaugar,
leikjanámskeið, smíðavellir, og ýmsir skapandi
sumarhópar eins og götuleikhús, jafningja-
fræðsla og margvísleg störf í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum, sem Íþrótta- og tóm-
stundasvið annast.
„Umhverfis- og tæknisvið er einnig með
störf í boði, en þar ber að nefna sorphreinsun,
starf sem leiðbeinendur í Vinnuskólanum, leið-
beinendur í Skólagörðum og almenn garð-
yrkjustörf.“
Velferðarsvið býður störf við búsetuþjón-
ustu fatlaðra, ýmis þjónustustörf á hjúkr-
unarheimilum og annað.
Þjónustu- og rekstrarsvið hefur störf í boði í
heimaþjónustunni og ýmis þjónustustörf í Fé-
lagsstarfi aldraðra.
„Af þeim 2.557 sem sóttu um í gegnum VUF
árið 2006 voru 1.411 ráðnir til starfa en 1.126
drógu umsóknir sína til baka. Eftir á skrá voru
20 einstaklingar. Reynt var að ná í alla um-
sækjendur og bjóða þeim starf en ekki náðist í
alla sem voru á skrá,“ segir Selma.
Flestir þeirra sem sóttu um sumarstarf í
gegnum Vinnumiðlun ungs fólks síðastliðið
sumar áttu kost á því að vinna hjá Reykjavík-
urborg, en þó ekki endilega í þeirri vinnu sem
þeir hefðu helst kosið sér. Atvinnuástand hefur
með ári hverju farið batnandi og áttu einstaka
vinnustaðir fullt í fangi með að manna í stöður
sem ætlaðar voru fyrir 20 ára eða eldri.
Vinnumiðlun ungs fólks opnuð á morgun
Morgunblaðið/ÞÖK
Sumarvinna VUF opnar á morgun og geta þá ungmenni 17 ára og eldri reynt að finna sér sumarinnu hjá Reykjavíkurborg.