Morgunblaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 15
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 15
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Fjölhæfur eins og þú
Það þarf töluverða fjölhæfni til að vera framkvæmda-
stjórinn á heimilinu, útsjónarsami uppalandinn og
meistarinn í hvers kyns útréttingum. Mercedes-Benz
B-Class er hinn fullkomni fjölskyldubíll og býr yfir
sveigjanleika sem fáir aðrir bílar geta státað af. Hann
er ótrúlega rúmgóður miðað við hversu nettur og
lipur hann er auk þess að vera kraftmikill, þægilegur
og sportlegur, allt í senn.
Þessi glæsilegi meðlimur Mercedes-Benz fjölskyld-
unnar hefur náð frábærum árangri í öryggisprófum og
hlaut m.a. 5 stjörnur í EURO-NCAP. Há staða sætanna
eykur öryggi farþega verulega og gerir allt aðgengi að
bílnum þægilegra. Þá er B-Class frægur fyrir að vera
eyðslugrannur og hefur dísilknúni CDI bíllinn unnið til
verðlauna í sparaksturskeppnum bæði hér heima og
erlendis. Komdu í sýningarsal okkar að Laugavegi 170
og mátaðu bíl sem er fjölhæfur eins og þú.
Verð frá 2.680.000 kr.*
*miðað við tollgengi evru í febrúar 2007
● ÁLTÆKNIFYRIRTÆKIÐ Stímir í
Hafnarfirði hefur lokið við smíði á
tveimur vélum sem fara eiga til rúss-
neska álframleið-
andans Rusal. Að
sögn Inga B.
Rútssonar, fram-
kvæmdastjóra
Stímis, er um að
ræða sérhæfðan
búnað til notk-
unar í skaut-
smiðju álfyrir-
tækisins í
Sayanagorsk í
Síberíu. Verða vélarnar hluti af við-
haldslínu sem annast viðhald for-
skauta verksmiðjunnar.
Stímir hefur á undanförnum árum
þróað ýmsan sérhæfðan búnað og
tæki til álframleiðslu, í samvinnu við
álver Alcan í Straumsvík. Að sögn
Inga hefur mikil vinna verið lögð í
hönnun, þróun og markaðssetningu
þessa búnaðar til erlendra álfyr-
irtækja. Hefur Stímir einnig verið að
vinna vélar fyrir Alcan í öðrum lönd-
um sem og álver Balco í Indlandi.
Stímir smíðar tvær
vélar fyrir Rusal
Ingi B. Rútsson
● GREINING Glitnis spáir því að vísi-
tala neysluverðs lækki um 0,9% milli
febrúar og mars. Gangi spáin eftir
minnkar ársverðbólgan á milli mán-
aða úr 7,4% í 5,3%. Í síðustu verð-
bólguspá Glitnis var gert ráð fyrir
0,7% lækkun.
„Við höfum einnig endurmetið
næstu mánuði þar sem við gerum
ráð fyrir minni verðbólgu en áður og
þar með að það dragi hraðar úr verð-
bólgu en við höfum áður reiknað
með. Þar vegur þyngst styrking krón-
unnar það sem af er ári. Endur-
skoðun á verðbólguhorfum ber
sterklega merki þess hve mikið krón-
an hefur styrkst og við gerum ráð fyr-
ir að verðbólga fari niður fyrir 2,5%
verðbólgumarkmið Seðlabankans í
júní og verði undir því nánast út ár-
ið,“ segir í nýrri verðbólguspá grein-
ingardeildar Glitnis.
Spá minnkandi
verðbólgu á árinu
● TEYMI hf. hef-
ur selt allan
eignarhlut sinn í
Securitas hf. á
3,8 milljarða.
Kaupandi er
óstofnað félag í
eigu Fons eign-
arhaldsfélags hf.
Söluverðið kem-
ur allt til greiðslu á þessu ári og er
áætlaður söluhagnaður Teymis af
sölu Securitas um 500 milljónir
króna.
Áhrif þessara ráðstafana á efna-
hagsreikning Teymis eru þau að
vaxtaberandi skuldir lækka um 5,4
milljarða króna í 21,9 milljarða.
Teymi selur
Securitas til Fons
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista í Kaup-
höll Íslands hækkaði um 2,13% í
gær, og var lokagildi hennar
7.605,05 við lokun markaða.
Mesta hækkun á úrvalsvísitölu-
félögum varð á Mosaic Fashions hf.,
6,62%, og Glitni banka hf., 3,66%.
Mest lækkun varð á FL Group,
0,93%, og Össuri hf., 0,82%.
Heildarvelta í Kauphöllinni var
25,8 milljarðar króna, mest með
hlutabréf eða fyrir um 18,8 milljarða
króna. Velta á skuldabréfamarkaði
nam hins vegar um 6,4 milljörðum
króna.
Vísitalan 7.605 stig
Fréttir í tölvupósti