Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 18

Morgunblaðið - 27.02.2007, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÞÝSKI rithöf- undurinn Lothar- Guenther Buch- heim er látinn, 89 ára að aldri. Buchheim er m.a höfundur met- sölubókarinnar Das Boot (The Boat) sem varð að kvikmynd sem fékk tilnefningu til Óskarsverðlauna. Das Boot, sem kom út árið 1973, er ein vinsælasta þýska skáldsaga sem hefur komið út eftir stríð, og hefur hún nú selst í meira en fjórum milljónum eintaka. Leikstjórinn Wolfgang Petersen gerði svo kvikmynd eftir bókinni ár- ið 1981, um áhöfn kafbáts í seinni heimsstyrjöldinni, og lék m.a. Juerg- en Prochnow í henni. Buchheim byggði Das Boot á eigin reynslu úr seinni heimsstyrjöldinni þegar hann vann sem stríðsfréttarit- ari. Rithöfundurinn, sem lést vegna hjartabilunar, var einnig myndlist- armaður og listaverkasafnari sem byggði upp hluta af safni sínu á nas- istatímanum. Hann opnaði „Safn ímyndunaraflsins“ í Bernried þar sem safn hans af expressjónískum verkum er til sýnis. Buchheim allur Höfundur þýskrar metsölubókar Buchheim Reuters Kafbátur Úr myndinni Das Boot. NORSKU málverki með álímdum 100.000 norskum þúsundkróna- seðlum var stolið í Ósló um helgina. Höfundur verksins er listmál- arinn Jan Christensen, en rúmur milljarður íslenskra króna fór í verkið í bókstaflegum skilningi mið- að við gengi norsku krónunnar í dag. Málverkið er 2x4 metrar að stærð og ber nafnið „Afstætt verðmat“ og var til sýnis í MGM listhúsinu í Ósló. Ræningjar brutust þar inn aðfar- arnótt sunnudags með því að brjóta rúðu og skáru strigann af verkinu þannig að blindramminn einn stóð eftir. Eigandi sýningarhússins segir þjófana hafa verið svo almennilega að taka strigann af blindrammanum. Öryggisverðir komu nokkrum mín- útum of seint því þjófarnir voru á bak og burt. Norðmenn hafa löngum verið gagnrýndir fyrir kæruleysi í kring- um verðmæt listaverk og er skemmst að minnast málverka eftir hinn fræga norska málara Edvard Munch sem hefur ítrekað verið stol- ið í gegnum árin. Málverka- þjófnaður Noregur Frá Akerbryggju í Osló. SKÁLDASPÍRUKVÖLD númer 79 verður haldið í dag á nýjum stað, Pennanum- Eymundssyni í Austurstræti. Kvöldið verður með litríkum og jafnvel pólitískum blæ, því gestur kvöldsins er Ellert B. Schram, sem mun m.a. lesa upp úr nýustu bók sinni: Á undan minni samtíð. Einnig gefst gestum kostur á að spjalla við Ellert um lífshlaup hans og blikurnar sem eru á lofti í íslenskum stjórnmálum um þess- ar mundir. Aðgangur er ókeypis. Skipuleggjandi kvöldsins er sem fyrr Benedikt S. Lafleur. Upplestur Með litríkum og pólitískum blæ Ellert B. Schram Á MORGUN, miðvikudaginn 28. febrúar, mun Fabúla leika á Domo í Þingholtsstræti 5, ásamt hljómsveit. Hljómsveitina skipa þeir Jökull Jörgensen bassaleikari, Birkir Rafn Gíslason gítarleik- ari og Björgvin Ploder trommuleikari. Fyrir jólin gaf Fabúla, eða Margrét Kristín Sigurð- ardóttir eins og hún heitir réttu nafni, út sinn þriðja geisladisk, Dusk, sem fékk mjög góðar viðtökur. Tónleikarnir á Domo hefjast klukkan 21.30 og aðgangseyrir er 500 krónur. Tónleikar Fabúla á Domo á morgun Margrét K. Sigurðardóttir MYNDIN Spegillinn frá 1975 er gjarnan talin vera per- sónulegasta kvikmynd rúss- neska leikstjórans Andreis Tarkovskys. Þar blandar Tarkovsky saman endurliti til fortíðar, sögulegum safn- skotum og eigin myndatökum með skáldlegu ívafi til að myndgera minningar deyj- andi manns og sýnir myndin æsku hans á dögum seinni heimsstyrjald- arinnar og unglingsár með sársaukafullum skilnaði í fjölskyldunni. Spegillinn er sýnd á vegum Kvikmyndasafns Íslands í Bæjarbíói, Hafnarfirði, klukkan 20. Kvikmyndir Spegill Tarkovskys í Bæjarbíói Andrei Tarkovsky Eftir Fóka Guðmundsson floki@mbl.is SVOKALLAÐ Cervantes-setur verð- ur opnað við Háskóla Íslands á laug- ardaginn. Við það tilefni mun dr. Enrique Bernárdez, prófessor við Compultense-háskólann í Madríd, sæma Álfrúnu Gunnlaugsdóttur og Guðberg Bergsson heiðursorðu spænskra yfirvalda fyrir störf í þágu spænskrar tungu og fyrir að efla menningartengsl milli Íslands og spænskumælandi menningarheima. Sjálfur mun Bernárdez svo þiggja viðurkenningu menntamálaráðuneyt- isins fyrir þýðingar sínar af íslensku yfir á spænsku. Þar með er tónninn sleginn fyrir Cervantes-setrið sem hefur það að markmiði að hlúa að spænskukennslu hér á landi, efla og örva hvers kyns menningarstarfsemi og auka sam- skipti Íslands og hins spænskumæl- andi heims, að sögn Hólmfríðar Garð- arsdóttur, dósents í spænsku við hugvísindadeild Háskóla Íslands. „Menningarmálastofnun Spánar var sett á laggirnar 1991 undir nafn- inu Cervantes-stofnunin (Instituto Cervantes). Síðan þá hefur sú stofnun verið að koma sér fyrir út um allan heim. Fyrsta miðstöðin á Norð- urlöndunum var sett upp í Stokk- hólmi fyrir þremur árum. Í framhaldi af því var farið að skoða með hvaða hætti starfsemi annars staðar á Norðurlöndunum gæti verið og var farin sú leið að opna eins konar útibú frá aðalmiðstöðinni í Stokkhólmi; það sem við höfum kosið að kalla „setur“,“ útskýrir Hólmfríður en íslenska setr- ið er hið fyrsta á Norðurlöndunum. Vill minnismerki um Borges Hólmfríður segir að Háskóli Ís- lands hafi verið ákveðinn sem sama- staður setursins m.a. vegna mikils og vaxandi áhuga á spænsku innan hug- vísindadeildar en einnig vegna Tungumálamiðstöðvar sem stofnunin er nú hýst hjá. Þá hafi fundur for- svarsmanna stofnunarinnar með Vig- dísi Finnbogadóttur verið þungt á metunum í þeirri ákvörðun og er Cervantes-setrið rekið undir vernd- arvæng Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur í erlendum tungumálum. Í tengslum við opnunina hefur ver- ið skipulögð málstofa um hinn merka argentínska rithöfund Jorge Luis Borges í hátíðarsal Háskóla Íslands. Aðalræðumaður er María Kodama, ekkja Borgesar, sem hingað kemur í boði Cervantes-stofnunarinnar. Mun Kodama fjalla um reynslu eig- inmanns síns af norrænum bók- menntum og af Íslandi, en Borges heimsótti landið nokkrum sinnum á áttunda áratugnum. Þá mun Sigrún Á. Eiríksdóttir fjalla um reynslu sína af þýðingum á verkum skáldsins og Matthías Johannessen segja frá kynnum sínum af Borges. Hólmfríður segir komu Kodama mikið fagnaðarefni og að gaman sé að geta boðið upp á svona flottan dag- skrárlið. Þá sé Kodama með sérverk- efni í burðarliðnum sem hún komi til með að leggja frekari grunn að með- an á dvöl hennar stendur. „Um þessar mundir er hún að vinna því fylgi að reistur verði minn- isvarði um eiginmann sinn – í Sviss, í Argentínu og á Íslandi – sem er byggður upp eins og völundarhús og er eiginlega nafnið hans Borgesar og spegilmynd af því.“ Borges í boði Cervantes  Guðbergur Bergsson og Álfrún Gunnlaugsdóttir sæmd heiðursorðu við opnun Cervantes-seturs á Íslandi  Málþing um Borges haldið í tengslum við opnunina Ljósmynd/Fundación Internacional Jorge Luis Borges de Buenos Aires Borges Ekkja Borges kemur hingað í tengslum við opnun Cervantes-seturs. Í HNOTSKURN » Cervantes-stofnunin heldurúti u.þ.b. 60 útibúum í yfir 30 löndum. » Stofnunin er nefnd eftir höf-undi Dons Kíkóta, Miguel Cervantes. » Formaður Cervantes-setursá Íslandi er Isaac Juan Tom- ás. » Jorge Luis Borges þykireinn af merkustu höfundum síðustu aldar. Opnunin fer fram í hátíðarsal HÍ nk. laugardag kl. 15. Málþing um Borges fer fram á sama stað nk. fimmtudag kl. 16.30. Tónleikar ein- leikarans Pablos Galdos verða haldnir í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar kl. 20 á fimmtudaginn í tengslum við opnunina. UPPTÖKUR á nýrri ferðalaga- plötu KK og Magga Eiríks, sem nú standa yfir í alþýðulýðveldinu Kína, ganga að óskum að sögn Óttars Felix Haukssonar, útgáfu- stjóra Zonet, en hann segir að haft hafi verið í flimtingum að kalla nýju plötuna Langferðalögin þar sem menn séu komnir alla leið til Sjanghæ til að ljúka upptökum. Kínverska útgáfufyrirtækið SAVPH hélt heljarmikinn fjöl- miðlafund á sunnudag til að kynna væntanlega útgáfu og hljómleika KK og Magga sem fara fram í Shanghai Grand Theatre nk. laug- ardagskvöld og þar rakti Óttar Felix í stuttu máli fyrir kínversk- um fjölmiðlum menningar- samskipti íslenskra dægur- og djasstónlistarmanna við Kína und- anfarin þrjú ár og upplýsti á fund- inum að nú væri komið að gagn- kvæmni þessara samskipta þar sem það væri orðið ljóst að Zonet myndi gefa út kínverska tónlist í Norður-Evrópu á þessu ári. Í lok- in léku KK og Maggi þrjú lög af „Langferðalögunum“ við góðar undirtektir fjölmiðlafólksins. Ein helsta sjónvarpsstöð Shanghai, ORIENTAL TV, gerði fundinum góð skil í kvöldfréttum á sunnu- dagskvöld. Zonet gefur út kín- verska tónlist í Evrópu Morgunblaðið/Arnaldur Ferðalangar KK og Magnús taka nú upp þriðju ferðalagaplötu sína í borg- inni Sjanghæ í alþýðulýðveldinu Kína. Óttar Felix hjá Zonet er með í för. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.