Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 31 SVIÐSSTJÓRI kjarasviðs Sam- band íslenskra sveitarfélaga og framkvæmdastjóri Launanefndar sveitarfélaga skrifaði grein í Morg- unblaðið föstudaginn 23. febrúar sl. Í grein- inni kallar hann eftir faglegum vinnubrögð- um af hálfu fulltrúa KÍ við gerð og fram- kvæmd kjarasamn- inga. Í ljósi þessara skrifa er fróðlegt að rifja upp nokkrar staðreyndir frá liðn- um árum. Kennsluskylda hefur aukist Frá því að sveit- arfélögin tóku yfir rekstur grunn- skóla árið 1996 hefur árleg kennsluskylda í grunnskólum auk- ist. Í síðasta kjarasamningi sem gerður var við samninganefnd rík- isins var kveðið á um að kennslu- skylda væri 28 kennslustundir í 34 vikur auk 5 daga til annarra starfa á starfstíma skóla sem þá var skil- greindur frá 1. september til 31. maí. Til viðbótar var samið um að kennarar með 15 ára kennsluferil fengju afslátt frá kennsluskyldu sem nemur einum tíma á viku. Í raun var því almenn kennsluskylda að meðaltali um 27,5 tímar á viku í 34 vikur eða 935 kennslustundir á ári. Þeir sem sinntu sérkennslu eða tónmenntarkennslu nutu síðan sérstaks afsláttar frá kennslu- skyldu sem nam frá 15 til 17% af vikulegri kennsluskyldu. Í dag er kennsluskylda 27 tímar á viku í 36 vikur eða 972 kennslu- stundir á ári. Að auki hefur afsláttur vegna sérkennslu og tó- menntarkennslu verið felldur niður. Þrátt fyrir ákvæði um lækk- un kennsluskyldu um einn tíma á viku haustið 2007 verður árleg kennsluskylda í grunnskólum lengri en hún var meðan grunnskólakennarar voru ríkisstarfsmenn. Laun hafa hækkað minna en meðaltalið Síðasti kjarasamningur við ríkið vegna grunnskóla rann út 31. des- ember 1996. Frá þeim tíma og til dagsins í dag hafa dagvinnulaun opinberra starfsmanna hækkað að meðaltali um 161,7% samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands. Á sama tíma hafa grunnlaun fé- lagsmanna KÍ í grunnskólum hækkað um nálægt 156% og heild- arárslaun um 141,3% samkvæmt upplýsingum frá Kjararannsókn- arnefnd opinberra starfsmanna. Þetta sýnir að þrátt fyrir lengingu skólaársins og þar með lengingu árlegrar kennsluskyldu hafa laun grunnskólakennara hækkað minna en laun annarra opinberra starfs- manna á síðustu 10 árum. Á árinu 2006 hækkuðu laun á ís- lenskum vinnumarkaði um 9,8% samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís- lands. Á árinu 2005 hækkaði vísi- talan um 7,2% og á árinu 2004 um 6%. Þessar hækkanir ásamt áfangahækkun 1. janúar 2007 upp á 2,9% eru því samtals á bilinu 26 til 27% Á sama tíma hafa taxtalaun grunnskólakennara hækkað um 16,5%. Það ber ekki vott um vin- samlegt viðhorf til menntamála að bjóða kennurum 0,75% hækkun til að brúa þetta bil eins og LN hefur gert enda beinlínis til þess fallið að flæma fólk burt úr starfi eins og þegar er farið að bera á. Rangar staðhæfingar Sviðsstjórinn staðhæfir í grein sinni að laun grunnskólakennara muni hafa hækkað um 33,8% í ág- ust 2007 á sama tíma og laun á al- mennum vinnumarkaði hafi hækk- að um 20,2%. Eins og að framan greinir er þetta rangt og hugs- anlega sett fram gegn betri vitund þar sem opinber gögn segja allt aðra sögu. Það sem sviðsstjórinn gerir í grein sinni er að reikna til launa- hækkunar mótframlag vinnuveit- enda í séreignarlífeyrissjóð (sem flestir launþegar fengu árið 2000) og jafnframt reiknar hann með að allir kennarar kenni að minnsta kosti tvær stundir í yfirvinnu á viku og að kerfisbreyting í launa- röðun stjórnenda virki á laun kennara. Alla vega var það sameig- inleg niðurstaða samningsaðila eft- ir verkfallið 2004 að samningurinn sem undirritaður var fæli í sér tæplega 20% launahækkun til maí 2008 og aðrir kostnaðarliðir svo sem mótframlag í séreignarsjóð, vinnutímabreytingar eingreiðslur og fleira fælu í sér að kostnaðar- auki sveitarfélaga yrði 32 til 34% til maí 2008. Fagleg vinnubröð Sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélag kallar eftir faglegum vinnubrögðum. Fagleg vinnubrögð felast ekki í að slá fram röngum tölum. Slíkt er þó fyrirgefanlegt ef um mistök er að ræða. Alvarlegt er hins vegar ef röngum tölum er vísvitandi haldið á lofti. Það eru vinnubrögð af þessu tagi sem KÍ hefur verið að gagnrýna og það er vinnubrögð af þessu tagi sem m.a. koma í veg fyrir að farsæl niðurstaða náist í samningamálum grunnskólakenn- ara. Nokkrar staðreyndir um samningamál grunnskólans Eiríkur Jónsson svarar grein sviðsstjóra kjarasviðs Sam- bands íslenskra sveitarfélaga » Sviðsstjórinn reikn-ar mótframlag í sér- eignarlífeyrissjóð til launahækkunar og að allir kennarar kenni a.m.k. 2 stundir í yf- irvinnu á viku. Eiríkur Jónsson Höfundur er formaður Kennarasambands Íslands. HEIÐMÖRK hefur verið í huga allra íbúa höfuðborgarsvæðisins ein mesta og besta útivistarp- aradís. Umdeildar framkvæmdir í Heiðmörk á vegum Gunnars Birg- issonar, bæjarstjóra í Kópavogi, hafa vakið óskipta athygli og al- menna hneykslun. Ýmsar spurningar vakna: Hvers vegna var svo umsvifamikil framkvæmd ekki lát- in sæta mati á um- hverfisáhrifum? Er skurðgröftur milli 2 og 3 km leið á vernd- arsvæði kannski ekki nógu stór fram- kvæmd í skilningi laganna? Í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106 frá 2000 segir m.a. í fyrstu grein: „Markmið laga þessara er: a. að tryggja að áð- ur en leyfi er veitt fyrir framkvæmd, sem kann vegna stað- setningar, starfsemi sem henni fylgir, eðl- is eða umfangs að hafa í för með sér umtalsverð um- hverfisáhrif, hafi farið fram mat á umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdar, b. að draga eins og kostur er úr neikvæðum umhverfisáhrifum framkvæmdar …“ Eru lögin ekki nógu skýr? Skurðgröfturinn og eyðileggingin ásamt brottnámi verðmæts trjá- gróðurs hefur umtalsverð áhrif á umhverfi Heiðmerkur og dregur stórlega úr gildi þessa mikilvæga útivistarsvæðis. Minni framkvæmdir hafa eðli- lega farið í umhverfismat. Mér sýnist á öllu að mjög margir aðrir agnúar séu á fram- kvæmdum þessum. T.d. hafa regl- ur um merkingu hættulegra og varhugaverðra framkvæmda verið hundsaðar. Framkvæmdir fara fram í svartasta skammdeginu þegar minnst umferð er í Heiðmörk og síst von er á fólki sem hyggst njóta útiveru þar. Hvenær og hvert bárust kvart- anir og hvernig var tekið á þeim? Ekki virðist framkvæmdar- aðili hafa haft fyrir að hafa minnsta samráð af neinu tagi við þá aðila sem hafa umsjón með Heiðmörkinni, hvorki um leiðir né aðferðir við fram- kvæmdir. Greinilegt er að framkvæmdagleði bæjarstjórans hefur borið mannlega skyn- semi ofurliði. Nú er mjög mikil eftirspurn eftir hvers konar trjákenndum gróðri sem unnt er að planta í sum- arhúsalönd og frí- stundabyggðir. Hvað þá trjám sem þegar eru komin vel á legg. Flest bendir til að einhver ráðamaður á vegum fyrirtækisins hafi haft þennan mik- ilsverða markað í huga með því að flytja í stórum stíl trjáplöntur á brott um langan veg í geymslu. Kannski hafa tré þegar verið flutt úr Heiðmörk og afhent til gróð- ursetningar annars staðar? Væri ekki rétt að opinber rannsókn færi fram? Man nokkur eftir gríðarlegum umsvifum forstjóra Símans hérna um árið þegar hann lét fyrirtækið greiða himinháa reikninga fyrir trjáflutning í sumarhúsaland sitt í Þingvallasveit? Í viðtali í Kastljósi 20. febrúar kvað Gunnar Birgisson verktaka- fyrirtækið Klæðingu hafi flutt all- ar gröfur og annan búnað í eft- irlitsfyrirtækið Frumherja í „tékk“ til að ganga úr skugga um hvort tækin væru nægjanlega þétt. Ekki mætti leka úr þeim glussi eða olía þegar þau eru send í verkefni á vatnsverndarsvæði. Þetta atriði er sérstaklega athygl- isvert í ljósi þess að Gunnar hefur verið framkvæmdastjóri Klæðn- ingar ehf. síðan 1986. Hefur hann raunverulega hætt öllum af- skiptum af því fyrirtæki eftir að hann sest í bæjarstjórastólinn enda eru þarna mjög miklir hags- munaárekstrar. Gunnar Birgisson hefur dokt- orspróf í jarðvegsverkfræði frá bandarískum háskóla og sat á þingi nálægt áratug. Í umhverf- isnefnd Alþingis var hann 1999– 2005 en ekki fer miklum frægð- arsögum af athöfnum hans í þeirri nefnd. Í þau fáu skipti sem hann hefur tekið þátt í umræðum tengdum umhverfismálum er að- koma hans og viðhorf fyrst og fremst að þar talar hann sem tals- maður verklegra framkvæmda en ekki áhugamaður um varðveislu sérstæðrar náttúru landsins. Öllu þekktari er Gunnar fyrir vægast sagt umdeilt þingmál sem hann náði að berja í gegnum þingið á sínum tíma með harðri hendi: lögleiðing hnefaleika undir því yfirskyni að um „ólympíska íþrótt“ væri að ræða. Sennilega hefur ekkert þingmál leitt af sér jafnmikið ofbeldi og dýrkun þess í íslensku samfélagi fyrr eða síðar hvort sem það beinist gegn varn- arlausu fólki eða varnarlausri náttúru Íslands. Er ekki tími kominn að íbúar Kópavogsbæjar ráði sér nýjan bæjarstjóra! Heiðmörk spillt Guðjón Jensson fjallar um um- hverfismál og framkvæmdir í Heiðmörk Guðjón Jensson »Útivistarp-aradísinni Heiðmörk hefur verið spillt. Af hverju fór fram- kvæmdin ekki í umhverfismat? Hvað varð um trjágróðurinn? Höfundur er forstöðumaður bókasafns í Reykjavík. KVÖLD eitt fyrir um 25 árum stóð ég í biðröð til að komast inn í Óðal, sem þá var einn af helstu skemmti- stöðum borgarinnar. Með mér í för var kærastinn minn, síðar eig- inmaður. Næstir á eftir okkur í röð- inni voru þáverandi formaður Samtakanna ’78 og sambýlismaður hans. Eftir um hálftíma tíðindalausa bið var röðin komin að okkur að vera hleypt inn. Ég og kærastinn gengum inn, en síðan hrintu dyraverðirnir sam- býlismanni formanns- ins frá, kipptu for- manninum inn fyrir, fleygðu honum á grúfu í gólfið, settust ofan á hann og lömdu hann og létu svívirðingarnar dynja á honum – sögðust ekki vilja sjá hans líka inni á staðnum, og hon- um væri fyrir bestu að hætta að reyna að sækja staðinn. Ég hafði ekki séð þvílíkar aðferðir viðhafðar nema til að hafa hemil á verstu slagsmálahundum á sveita- böllum, og var alveg gapandi hissa. Maðurinn hafði ekkert til saka unnið, hann var ekki að áreita neinn og var þarna bara í sömu erindagjörðum og ég – að fara út að skemmta sér með kærastanum sínum. En hann var hommi, og svoleiðis fólk var ekki vel- komið í Óðal. Enn þann dag í dag skammast ég mín fyrir að hafa ekki gert neitt í málinu – minnug þess sem Tómas Guðmundsson sagði: „Á meðan til er böl sem bætt þú gast, og barist var á meðan hjá þú sast, er ólán heimsins einnig þér að kenna.“ Svo líða árin, og ég fylgist úr fjar- lægð með réttindabaráttu samkyn- hneigðra án þess að skipta mér neitt af henni. Enda voru persónuleg kynni mín af hommum og lesbíum af- ar lítil, þar til ein saumaklúbbsv- inkona kom út úr skápnum hátt á fer- tugsaldri og hommi var síðar uppáhaldskennari yngstu dótt- urinnar. Síðustu árin höfum við farið á Gay Pride með dæturnar, til að sýna stuðning og taka þátt í gleðinni. Og síðastliðið sumar – nokkrum dögum eftir gildistöku nýju laganna um réttindi samkynhneigðra – kom elsta dóttirin, 19 ára gömul, út úr skápnum. Þótt það kæmi okkur for- eldrunum á óvart þá fannst okkur það ekkert tiltökumál og sögðum henni hvað hún ætti gott að koma út í þjóð- félag þar sem samkyn- hneigðir hafa öðlast sömu réttindi og gagn- kynhneigðir á nánast öllum sviðum. En það er ekki af sjálfu sér sem sam- félagið hefur breyst svo mjög á síðustu 25 árum. Aldeilis ekki. Það er fyrst og fremst að þakka ötulli baráttu Samtakanna ’78 sem samkynhneigðir hafa fengið viðurkennd sjálf- sögð mannréttindi sér til handa. Það er Samtökunum ’78 að þakka að dótt- ir mín þarf ekki að vera í felum með það hver hún raunverulega er. Því ákvað ég að ganga í Samtökin ’78 til að leggja mitt af mörkum og sýna þakklæti mitt, þótt ekki væri með öðru en að greiða félagsgjald. Þá er komið að því sem er tilefni þessara skrifa. Þegar ég fékk í hend- ur félagsskírteini í Samtökunum ’78 þá stóð á því að ég væri félagi nr. 635. Ha? Númer 635? Það getur ekki ver- ið. Það hljóta að vera fleiri þúsund manns í félaginu. Hvað mættu marg- ir í síðustu Gay Pride-göngu? Voru ekki um 30 þúsund manns í bænum til að sýna stuðning við samkyn- hneigða? Ég var svo hissa að ég hafði samband við framkvæmdastjóra samtakanna og spurðist fyrir um þetta. Jú, þetta var rétt, ég var 635. einstaklingurinn sem gengið hefur í samtökin. Frá upphafi. Og ég er ekki einusinni samkynhneigð. Og af þessum 635 voru ekki nema rúmlega 400 sem greiddu fé- lagsgjaldið í fyrra, að sögn fram- kvæmdastjórans, og var það þó met- fjöldi. Miðað við þessar upplýsingar hlýtur það að teljast kraftaverk hverju samtökin hafa áorkað á þess- um 29 árum sem þau hafa starfað. Það að dóttir mín skuli geta staðið stolt við það að vera eins og hún er – það er langur vegur frá barsmíðum dyravarðanna í Óðali forðum. En þótt dóttir mín sé í góðum mál- um þá er fullt af krökkum úti um allt land sem eiga erfitt. Hvernig á strák- ur sem venst því að heyra pabba sinn nota orðin „helvítis hommatittur“ sem skammaryrði að geta sætt sig við að vera sjálfur hommi? Hvað með unglinga í litlum plássum úti á landi? Það er örugglega ekkert grín að vera eini homminn í þorpinu. Ef unglingar heyra ekki talað um samkynhneigð nema í neikvæðum tón er hætt við að þau sem samkynhneigð eru veigri sér við að viðurkenna það fyrir sjálf- um sér og öðrum. Það er enn mikið verk að vinna við að fræða fólk – börn og unglinga jafnt sem fullorðna, samkynhneigða jafnt sem gagnkyn- hneigða – um samkynhneigð. Þar þurfa Samtökin ’78 á tilstyrk okkar að halda, okkar allra sem lát- um okkur réttindi og velferð sam- kynhneigðra varða. Því vil ég hvetja fólk til að ganga í Samtökin ’78 og greiða félagsgjaldið, með því styrkj- um við félagið og gerum því auðveld- ara að fræða, aðstoða og berjast fyrir réttindum. Þið þurfið ekkert að vera hommar eða lesbíur; allir þeir sem styðja mannréttindabaráttu lesbía og homma og tvíkynhneigðra og markmið Samtakanna ’78 geta gerst félagar. Félagsgjald er 3.500 kr. á ári en 2.600 kr. fyrir námsmenn og líf- eyrisþega. Nánari upplýsingar fást á www.samtokin78.is. Fyrir foreldra og aðra aðstandendur má einnig benda á FAS, Samtök foreldra og að- standenda samkynhneigðra, sjá www.samtokinfas.is. Ég er í Samtökunum ’78 Guðrún Rögnvaldardóttir fjallar um Samtökin ’78 » Það er fyrst ogfremst að þakka öt- ulli baráttu Samtakanna ’78 sem samkynhneigðir hafa fengið viðurkennd sjálfsögð mannréttindi sér til handa. Guðrún Rögnvaldardóttir Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.