Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 27.02.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 33 MINNINGAR ✝ Emilía Guð-laugsdóttir fæddist á Lauga- landi í Vest- mannaeyjum 16. mars 1929. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Björg Sigurð- ardóttir, frá Péturs- borg í Vest- mannaeyjum, og Guðlaugur Þor- steinsson húsa- smíðameistari, f. í Gerðaskoti undir Eyjafjöllum. Systkini Emil- íu voru Þorsteinn Guðlaugsson, Sigurður Guðlaugsson, Guðbjörn Guðlaugsson, Indíana Guðlaugs- dóttir og Laufey Guðlaugsdóttir sem öll eru látin en eftirlifandi er Sveinbjörn Guðlaugsson. Emilía giftist árið 1950 Hall- dóri Guðmundssyni, framkvæmdastjóra viðgerðar- og verk- fræðideildar Loft- leiða og síðar Flug- leiða, f. 13. júlí 1925, d. 26. desember 2001. Börn þeirra sem öll eru búsett í Bandaríkjunum eru: 1) Sigurður R.H. Guðmundsson, kvæntur Sigurrós Guðmundsson. 2) Halldór Valur Guð- mundsson, kvæntur Hrefnu Harðardóttur. 3) Guð- mundur Halldórsson, kvæntur Donnu Doty. 4) Kristín Halldórs- dóttir, gift Michael Nethersole. Emilía átti átta barnabörn og fimm barnabarnabörn. Útför Emilíu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku mamma mín. Þegar ég lít til baka kemur í hugann þakklæti og hlýja. Þú varst mér yndisleg móðir og góð vinkona. Okkar sam- band var alveg sérstakt og ég á eft- ir að sakna okkar löngu símtala og góðu stunda saman þar sem við gát- um hlegið saman og talað um allt milli himins og jarðar. John Halldór sagði við mig fyrir nokkru að hann óskaði þess að eiga eins hlýtt og gott samband og okkar. Mikið þótti mér vænt um það. Þú varst dugnaðarkona og mikil smekkmanneskja og best af öllu var að það var svo stutt í stelpuna. Garðurinn var þitt yndi hvar sem við bjuggum í heiminum. Svo er ótrúlega mikið af fallegum sauma- skap eftir þig úti um allan heim, barna- og dúkkuföt, burðarkörfur, endur og margt annað. Þú elskaðir kvikmyndir og leik- hús, og átt heilt safn af prógrömm- um. Um tíma vannstu í Þjóðleikhús- inu og þar má finna Emilíu „touch“ eftir þig á saumastofunni. Alltaf varstu góður kokkur. Mér hefur oft orðið hugsað til þess hvað þið Katla voruð duglegar í eldhús- inu fyrir hver jól að undirbúa þessi stóru fjölskylduboð. Smákökur og tertur, frómas og fiskréttir, fyrir utan allt annað. Ég veit að ég hef fengið þessi gen frá þér og er ég þakklát fyrir það. Maður var alinn upp við að geta tekið hvað sem er að sér með jákvæðum hug. Þið pabbi voru yndisleg saman. Oft gekk ekki allt upp eins og þið óskuðuð ykkur, það voru meiri veikindi en á flestum bæjum. En með þolinmæði hans, og krafti þín- um og kímnigáfu var leitast við að gera það besta úr öllu. Þú vildir allt fyrir alla gera en ætlaðist aldrei til neins af öðrum. Mikið varstu ánægð í haust þegar þú fékkst íbúðina á Lindargötu. Allt dæmið loks að ganga upp. Kveiðst ekki flutningunum eða neinu. Svo komu veikindin og kipptu öllu úr skorðum. Þú áttir ekki til orð yfir hvað margir voru tilbúnir að hjálpa þér. Allt í einu var fólk að gera fyrir þig það sem þú hafðir gert fyrir svo ótal marga. Það var yndislegt og vil ég nota tækifærið að þakka öllum þeim sem hlupu undir bagga. Mér fannst þú eiga skilið nokkur árin í viðbót. Njóta þess að vera komin á Lind- argötuna, stutt frá mörgum þeim minningum sem þið pabbi áttuð saman. Hitta konurnar á sauma- stofunni og rabba við strákana. Maður huggar sig við það að þín kvöl er búin og þú ert komin til Guðs. Þú ert þar í góðum vinahópi. Ég kveð þig, elsku mamma mín. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín, Kristín. Elsku amma mín. Furðulegt hvað lífið getur allt í einu tekið óvænta stefnu. Minningabrotin koma upp í hugann hvert af öðru og hver minn- ing er sem dýrmæt perla. Heimsókn mín og Birnu systur til ykkar afa þegar þið bjugguð á Miami er okkur ógleymanleg en þar nutum við systurnar okkar í botn þar sem þið dekruðuð við okkur. Handbragð þitt var einstakt og hef ég fengið að njóta fjölmargra hluta sem þú hefur gert og má þar nefna sængurver, púða, dúkkuföt og annað. Það var mikil gleðistund þegar þú fékkst íbúðina á Lindargötunni. Við vorum nú ekki lengi að pakka, þú, ég og Þórunn og hlökkuðum svo til að gera fallegt og fínt nýja heim- ilið þitt. En svo veiktist þú. Við Þór- unn héldum áfram og fluttum fyrir þig og gerðum fínt og flott en þú varst auðvitað með ákveðnar skoð- anir á því hvernig þú vildir hafa hlutina enda smekkmanneskja fram í fingurgóma. Þrátt fyrir veikindi þín stefndi hugurinn alltaf heim á Lindargötuna og þar fékkstu þó varið nokkrum tíma þegar þú fékkst frí frá spítalanum. Þú varst einstakur karakter og að mínu mati mesta töffaraamma í heimi. Þú varst líka alltaf svo fín og flott, með fallega lagt hárið og vel snyrtar neglur. Það var heldur aldrei leiðinleg stund að vera í kringum þig því húmorinn var alltaf í fyrirrúmi hjá þér og ekki hvarf hann sama hversu lasin þú varst. Grínið skein alltaf í gegn. Mér finnst skrýtin tilhugsun að eiga ekki eftir að koma til þín á Lindargötuna eða á spítalann aftur. Mér finnst skrýtið af hverju þú fékkst ekki örlítið lengri tíma. Mér finnst skrýtið að við eigum ekki eft- ir að fá okkur tertu eða ís saman aftur. Mér finnst skrýtið að við eig- um aldrei aftur eftir að tala saman um sæta stráka. Mér finnst skrýtið að við eigum ekki eftir að fara í kirkjugarðinn aftur til að setja nið- ur sumarblómin. Mér finnst skrýtið að við eigum ekki eftir að fletta Mogganum og athuga hverjir eru farnir til Guðs. Mér finnst skrýtið að þú sért farin til Guðs. Nokkrum klukkustundum áður en þú lést fundum við Þórunn frænka sterkt fyrir afa við sjúkra- rúmið þitt. Það var greinilegt að hann var kominn til að sækja þig. Já, hann hefur heldur betur verið farinn að sakna þín. Elsku amma mín, takk fyrir allar góðu stundirnar. Þín Halla Rósenkranz. Elsku amma, loksins varstu flutt í bæinn. Þig var búið að dreyma um það í mörg ár að búa nær miðbæn- um og geta rölt niður Laugaveginn, við vorum búnar að ráðgera kaffi- húsaferðir í bænum í sumar. Því miður fékkstu ekki að njóta þess að búa lengi á Lindargötunni eins og þú varst ánægð með nýju íbúðina þína. Guðfinna Ósk og Sigrún Þóra voru mjög stoltar af því að eiga svona fallega og skemmtilega lang- ömmu en kölluðu þig ömmu eftir þá yfirlýsingu að þér þætti langömmu- heitið alveg hroðalega ljótt, og al- veg ótrúlegt að einhverjum hefði dottið þetta orð í hug! Þú varst orðin ósköp veik, elsku amma mín, samt fannst okkur alltaf að þú myndir hressast og komast á ról því þú varst alltaf svo dugleg og hafðir svo skemmtilegan húmor sem hélst alveg fram í andlátið. Við vitum að núna líður þér vel, búin að hitta afa aftur sem þú saknaðir mikið, systkini þín sem voru þér svo kær og eru farin á undan, elskaða foreldra og vini. Þú áttir sannarlega góða vini sem reyndust þér vel og þú þeim, sjá þeir á eftir góðri vinkonu. Heimahjúkrun Karítas og starfs- fólki á deildum 11E og 12E á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut þökkum við góða umönnun og umhyggju í garð Emil- íu ömmu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guðfinna sendir þér kossa og knús frá Ítalíu og finnst erfitt að geta ekki fylgt ömmu sinni síðasta spölinn. Okkur fannst alltaf gott að vera nálægt þér, elsku amma mín, og minningin um þig og afa mun lifa í hjarta okkar um ókomna tíð. Við Magnús, Guðfinna Ósk og Sigrún Þóra þökkum allar góðar stundir í gegnum árin. Síðustu mánuðir hafa verið okkur dýrmæt- ir. Hinsta kveðja Þórunn. Elsku Emilía, fyrsta minning mín um þig er mér í fersku minni. Þú komst til foreldra minna til að til- kynna andlát bróður þíns og besta vinar föður míns. Mér fannst þú fal- legasta manneskja sem ég hafði séð, svo fín og með þetta fallega síða hár. Þá hugsaði ég: Ef ég ætti eftir að eignast stúlku, þá fengi hún nafnið þitt og fallega hárið þitt. Þegar pabbi fór með mig eitt sinn í klippingu bað ég um að láta klippa það sítt eins og á Emilíu. Ég fékk að heyra þetta fram á fullorðinsár og oft var hlegið að þessu. Þú varst alltaf mitt „Idol“. Öll árin þín í Ameríku sendir þú mér gjafir og seinna börnunum mínum, allt svo fallega unnið af þér og listilega vel gert, dúkkufötin og fíniríið, það var svo spennandi að fá pakka frá útlöndum á þessum ár- um. Þú tókst þátt í öllum mínum viðburðum af ást og áhuga. Þið Halli voruð mér kær sem foreldrar. Það var gott að koma til ykkar, allt- af knúsuð í stykki. Það er leitt að þú skulir ekki hafa getað notið nýju íbúðarinnar þinn- ar, hún var orðin svo kósý og þú varst svo ánægð með hana og þér leið svo vel þar. Við vorum búnar að ráðgera að fara í bíó- og leikhúsferðir þegar þú værir orðin hressari, það var þitt uppáhald að fara í leikhús eða bíó. Elsku kerlingin, nú þegar þú hef- ur fundið Po aftur, eruð þið full- komnuð á ný. Emilía mín, takk fyrir allt og allt, þín er sárt saknað, en minningin lifir. Ása. Emilía Guðlaugsdóttir ✝ Árni GunnarBjörnsson fædd- ist í Vestmanna- eyjum 24. október 1925. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 17. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Björn Ketilsson húsasmíðameistari, f. 24. ágúst 1896, d. 24. apríl 1982 og Ólöf Guðríður Árnadóttir húsfrú, f. 23. febrúar 1884, d. 17. mars 1972. Börn Björns og Ólafar auk Árna eru Ragna Björnsdóttir, f. 31. maí 1924, Halldór Björnsson, f. 16. ágúst 1928 og uppeldisdóttir þeirra hjóna Stella Guðmundsdóttir, f. 19. desember 1922, d. 10. október 1984. Hinn 9. janúar 1960 giftist Árni Pálínu G. Þorsteinssdóttur, f. 24. mars 1930, d. 20. apríl 1996. Börn þeirra hjóna eru Júl- íana, f. 22. desember 1957, maki Guðmundur Árnason, þau eiga tvö börn og eitt barnabarn; Ólöf Guðríður Árnadóttir, f. 11. sept- ember 1959, maki Börkur Guðjónsson, þau eiga fjóra syni; Ester Árnadóttir, f. 30. september 1960, maki Hallmundur Hafberg, þau eiga tvö börn; Björn Árnason, f. 28. febr- úar 1966, maki Laufey Guðmunds- dóttir þau eiga þrjá syni. Árni byrjaði nam í vélsmíði og vél- virkjuni hjá Vél- smiðju Sigurðar Sveinbjörns- sonar árið 1942 og lauk því með sveinsprófi árið 1946, sama ár lauk hann einnig námi í plötu- smíði hjá Gunnari Brynjólfssyni. Seinna útskrifaðist svo Árni sem vélstjóri frá Sjómannaskólanum í Reykjavík og starfaði sem vél- stjóri til sjós í allmörg ár eða þar til hann réðst til starfa hjá Olíu- félaginu Esso þar sem hann vann til ársins 1995 þegar hann lauk störfum vegna aldurs. Útför Árna verður gerð frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku afi, takk fyrir allar þær góðu stundir sem þú gafst okkur. Þín minning mun fylgja okkur alla tíð. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þínir afastrákar: Elmar Björnsson, Gunnar Páll Björnsson, Eyþór Björnsson. Árni G. Björnsson ✝ SIGURÐUR LÁRUSSON frá Gilsá í Breiðdal, lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum föstudaginn 23. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, Herdís Erlingsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐMUNDA GUÐJÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 22. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 1. mars kl. 13.00. Kristinn Bergsson, Sjöfn Arnórsdóttir, Guðjón Bergsson, Kristín Kristmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHALLA GUNNARSDÓTTIR, Skúlagötu 20, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum laug- ardaginn 24. febrúar. Sigurður Jóhannesson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir minn, HALLDÓR R. RAGNARSSON, Áshamri 26, Vestmannaeyjum, lést á heimili sínu miðvikudaginn 14. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Friðjón Unnar Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.